Morgunblaðið - 07.04.1990, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 07.04.1990, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRIL 1990 Utgerðarfélag’ Akureyringa: Afli 700 tonnum minni fyrstu 3 mánuði ársins SLÉTTBAKUR landaði í vikunni 225 tonnum af íirystum fiski að verðmæti um 45 milljónir króna og er verðmæti aflans með því mesta sem skipið heíur borið að landi, en í maí á síðasta ári var verðmæti eftir eina veiðiferð tæplega 42 milljónir króna. _ , _ Heildarafli fimm ísfisktogara '' Utgerðarfélags Akureyri á fyrstu þremur mánuðum ársins er 3.595 tonn, en á fyrstu þremur mánuðum síðasta árs höfðu togararnir fímm komið með 4.288 tonn að landi. Einar Óskarsson hjá ÚA sagði að Flugleiðir opna bílaleigu FLUGLEIÐIR ætla að opna bíla- leigu á Akureyri og hefur verið auglýst laust til umsóknar starf umsjónarmanns bílaleigunnar. Félagið hefur keypt Shell-húsið gegnt flugvellinum, þar sem til skamms tíma var starfandi tóla- leiga. Um tuttugu bílar verða á leig- unni og er ætlunin að starfsemin hefjist í sumar. hluti skýringarinnar á minni afla nú væri, að Svalbakur hefði verið frá veiðum í einn og hálfan mánuð, en hann var í slipp og fór ekki til veiða fyrr en um miðjan febrúar. A fyrstu þremur mánuðum ársins veiddi Sléttbakur tæp 1.200 tonn og er þá miðað við fisk upp úr sjó, en á liðnu ári hafði hann veitt 1.130 tonn. Að viðbættum afla Sléttbaks hafa togarar Útgerðarfé- lagsins veitt um 4.800 tonn af físki á árinu. Kaldbakur landaði í fyrradag 173 tonnum, og Harðbakur kom með 178 tonn í vikunni. I síðustu viku landaði Sólbakur 82 tonnum, Sval- bakur 168 tonnum og Hrímbakur 134 tonnum. Stór hluti afla Kald- baks var karfi, eða 87 tonn, en afli Harðbaks var nokkuð blandað- ur. Afli annarra togara var að mestu þorskur. Morgunblaðið/Rúnar Þór Frá undirritun samningsins. Frá vinstri eru Sigurgeir Haraldsson, Skautafélaginu, Ragnar Steinbergs- son, Golfklúbbi Akureyrar, Sigfús Jónsson bæjarstjóri og Aðalsteinn Sigurgeirsson, Þór. Þá eru einnig á myndinni Hermann Sigtryggsson íþróttafulltrúi, Ingólfúr Ármannsson og Baldvin Grétarsson lrá Skaut- afélaginu, Páll Stefánsson, íþróttaráði, Þórarinn B. Jónsson, GA og Smári Garðarsson, GA. Samningnr undirritaður: Bærinn greiðir íþrótta- félögum 15,5 milliónir SAMNINGUR um samstarf Akur- eyrarbæjar og þriggja íþróttafé- laga á Akureyri var undirritaður í gær, en alls mun bærinn greiða - v Byg-g-ðastofnun tryggir ekki áframhaldandi rekstur: Fóðurstöðin á Dalvík verður ekki opnuð á ný Hræddur um að þetta þýði endalokin, segir formaður Loðdýraræktarfélags Eyjaíjarðar FÓÐURSTÖÐIN á Dalvík verður ekki opnuð aftur eftir að hún var innsigluð um miðja síðustu viku. Á fúndi stjórnar Byggðastofhunar sem haldinn var í gær var rætt um vanda bænda á svæði Fóðurstöðv- arinnar á Dalvík og var niðurstaða meirihluta stjórnar stofnunarinn- ar að ekki væri fært að leggja fram það fé sem þarf til að opna og tryggja áframhaldandi rekstur stöðvarinnar. Ekki er talið ólík- legt að þessi niðurstaða geti leitt til endaloka loðdýraræktar á EyjaQarðarsvæðinu. bænda sem talið er að geti numið um 50 milljónum króna hjá loð- dýrabændum á landinum öllu. Jafnframt verði unnið að því með bændum að tryggja áframhaldandi fóðurframleiðslu á Norðurlandi þar til lausn til lengri framtíðar finnst. Jón Hjaltason formaður Loðdýr- aræktarfélags Eyjafjarðar sagði að þessi niðurstaða fundar Byggð- astofnunar þýddi að um helmingur bændanna á svæðinu myndi slát'ra dýrum sínum, en á fundi í fyrri viku var mjög þungt hljóð í mörg- um. Hann sagði að allt benti til að komið væri að endalokum grein- arinnar á svæðinu, en hluti bænda myndi reyna að hjara til hausts enda væru skinnin verðlaus nú. Á fundi stjórnar Byggðastofn- unar var samþykkt að stofnunin greiddi kostnað vegna flutnings á fóðri til loðdýrabænda í Eyjafirði frá fóðurstöð Melrakka á Sauðár- króki, á meðan unnið er að athug- un á fyrirkomulagi fóðurfram- leiðslu á Norðurlandi. í fréttatil- kynningu frá Byggðastofnun segir að áhersla hafí verið á það lögð í umræðum að leggja sem fyrst fram tillögur um skipan fóðurframleiðsi- umála á Norðurlandi, en áður en slíkar tillögur verði gerðar þarf að liggja fyrir hversu umfangsmikil loðdýraræktin verður á svæðinu öllu í næstu framtíð. Þá þurfi einn- ig að liggja fyrir hver kaupi af -stöðvunum ríkistryggð skuldabréf Ómögulegt væri að segja fyrir um hvort menn reyndu að þrauka leng- ur. Jón sagði að bændur austast á svæðinu, þ.e. í Fnjóskadal og á Svalbarðsströnd út í Grýtubakka- hrepp, hefðu hug á að fá fóður frá Húsavík, enda um mun styttri veg- alengd að ræða. Þeir bændur sem eftir stæðu hefðu af því áhyggjur að fóður frá Sauðárkróki yrði æði dýrt. „Þetta er langur vegur með ekki stóra slettu," eins og Jón orð- aði það. Bændur hafa lítillega rætt þá hugmynd að koma sér upp eig- in fóðurstöð þar sem þeir ynnu sjálfir og sagði Jón að mönnum þætti það mun skynsamlegri lausn en að fá fóður frá Skagafirði. Bændur á svæði Fóðurstöðvar- innar á Dalvík ætla að hittast um helgi, eða í síðasta lagi á mánu- dag, til að ræða stöðu mála. Fóðri var ekið til bænda í gær og dugar það fram yfir helgi. 15.5 milljónir króna til félaganna þriggja samkvæmt samningnum á þessu ári. Bæjarstjóri undirritaði samninginn fyrir hönd Akur- eyrarbæjar, en formenn félag- anna þriggja fyrir hönd íþrótta- félaganna. Samningurinn við Þór tekur til framkvæmda í félagsheimili og vall- arhúsi félagsins, frá síðustu áramót- um og þar til framkvæmdum við þann hluta hússins sem ætlaður er undir íþróttastarfsemi er lokað. Kostnaðaráætlun vegna fram- kvæmdanna hljóðar upp á tæplega 23,8 milljónir króna og hefur bærinn fallist á að greiða 75% af kostnaði, eða 17,8 milljónir króna á árunum 1990-93, eftir því sem framkvæmd- um miðar og kveðið er á um í fjár- hagsáætlun hverju sinni. Hvað varðar Golfklúbb Akureyrar tekur samningurinn til stækkunar og endurbóta golfvallar og golfskála að Jaðri á árunum 1985-89, samtals 15.6 milljónir króna. Akureyrarbær mun einnig greiða styrk til félagsins á árunum 1990-93, samkvæmt því sem nánar verður ákveðið í fjár- hagsáætlun hvers árs. Samningurinn við Skautafélag Akureyrar tekur til þeirra mann- virkja sem reist hafa verið á félags- svæðinu við Krókeyri um síðustu áramót og kaupa á frystivél, sem og framkvæmda á félagssvæðinu vegna byggingar 70 fermetra bún- ingsaðstöðu. Fjárfestingar á skauta- svæðinu nema tæplega 15,4 milljón- um króna og hefur bærinn fallist á að greiða 75% kostnaðar eða rúmar 11,5 milljónir króna, en frá þeirri tölu dregst styrkur úr íþróttasjóði og frá Akureyrarbæ samtals tæp- lega 9 milljónir króna. Kostnaður við byggingu húss fyrir búningsað- stöðu er 3,5 milljónir króna og er hlutur bæjarins rúmlega 2,6 milljón- ir króna. Öll félögin skuldbinda sig til að ráðast ekki í frekari framkvæmdir á félagssvæðum sínum og einnig er í samningunum kveðið á um að stuðningur Akureyrarbæjar sé bund- inn því að sem flestum sé gefínn kostur á að nýta sér þau án óhóflegr- ar gjaldtöku. Starfslaun bæjarlistamanns Akureyrar Á fundi stjórnar Menningarsjóðs Akureyrarbæjar 22. mars sl. var samþykkt að auglýsa eftir umsóknum um starfslaun fyrir tímabilið júlí til desember í ár. Aðeins listamenn búsettir og starfandi á Akureyri koma til greina við úthlutun starfslaunanna. Gengið er út frá því, að viðkomandi gegni ekki öðru starfi, eða námi, á því tímabili, sem starfslaunin næðu til. Umsóknir um starfslaunin skal senda til skrifstofu menningarmála, Strandgötu 19b, 600 Akureyri, fyrir 1. maí í ár. í umsókninni komi fram upplýsingar um starfsferil við- komandi og hvernig umsækjandi hugsi sér að nýta þann tíma, sem starfslaunin nái til. Nánari upplýsingar á skrifstofu menningarmála, sími 27245. Menningarfulltrúi Akureyrarbæjar. UTIHURÐIR Mikið úrval. SýningaMir á staðnum. Tré-x búðin, Smiðjuvegi 30, s. 670777, Brúnás, Ármúla 17, Rvík, s. 84585 og 84461, Tró-x, löavöllum 6, Keflavík, s. 92-14700, TrósmlAjan Börkur, Frosta- götu 2, Akureyri, s. 96-21909. Akureyrarbær Almennar kaupleiguíbúðir Akureyrarþær auglýsir lausar til umsóknar sex íbúðir, 3ja og 4ra herbergja, í fjölbýlishúsi við Helgamagra- stræti 53, á kjörum almennra kaupleiguíbúða (sbr. lög um Húsnæðisstofnun ríkisins nr. 86/1988 30.-47. gr.). íbúðirnar verða væntanlega fullbúnar í október 1990. Með íbúðum þessum hyggst Akureyrarbær meðal ann- ars auðvelda fólki með stækkandi fjölskyldu að auka við sig húsnæði, gefa ungu fólki kost á leigukjörum fram- an af veru sinni á Akureyri, laða fólk með ferskar hug- myndir í atvinnumálum til bæjarins og eins fólk með menntun og verkkunnáttu, sem hingað til hefur skort. Skilyrði fyrir úthlutun eru: a) Að umsækjandi hafi fullan lántökurétt hjá Húsnæðisstofnun ríkisins. b) Að umsækjandi hafi nægar tekjur til að standa straum af kostnaði við leigu eða kaup. c) Að umsækjandi eigi ekki íbúð fyrir. Eyðublöð, ásamt upplýsingabæklingi um almenn kaup- leigukjör, fást á bæjarskrifstofunum, Geislagötu 9. Hag- sýslustjóri Akureyrarbæjar veitir frekari upplýsingar. Umsóknum skal skilað á bæjarskrifstofurnar eigi síðar en 30. apríl 1990, ásamt umbeðnum fylgiskjölum. Bæjarstjóri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.