Morgunblaðið - 07.04.1990, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ' LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1990
Slippstöðin berst fyrir lífi sínu
eftirHalldór
Blöndal
Það voru mikil ótíðindi, þegar
það spurðist, að Meleyri hefði horf-
ið frá kaupum á raðsmíðaskipi
Slippstöðvarinnnar á Akureyri.
Málið er búið að vera í þófi síðan
fyrir jól. Afstaða Fiskveiðasjóðs
hefur verið óskiljanleg. Einstakir
ráðherrar, einkum forsætisráðherra
og iðnaðarráðherra, hafa verið önn-
um kafnir við að gefa yfirlýsingar
og fyrirheit, bæði opinberlega og í
einkasamtölum, en hefur komið fyr-
ir lítið, — fyrir minna en ekki neitt,
satt að segja ...
í ræðu á ársfundi Félags
íslenskra iðnrekenda 15. mars sl.
veik iðnaðarráðherra að skipaiðnað-
inum svofelldum orðum: „Skipaiðn-
aðurinn og tengdar greinar eiga enn
í erfiðleikum vegna afturkipps í
Borgarfiilltrúar minnihlutaflokk-
anna lögðu fram tillögu í borgar-
stjórn Reykjavíkur á. fimmtudag
um að hafinn verði undirbúningur
að gerð undirganga undir Miklu-
braut við strætisvagnabiðstöð
nærri Rauðagerði. Tillögunni var
vísað til borgarráðs.
Kristín Á. Olafsdóttir, borgarfull-
trúi Alþýðubandalagsins, mælti fyrir
verkefnum. Nokkuð hefur þó ræst
þar úr að undanförnu og framundan
eru mikil verkefni í markaðs- og
hagræðingarmálum þessarar grein-
ar.“ Annað meira og merkilegra var
það nú ekki. En hvað er ráðherrann
að reyna að segja:
1. Áð verkefnastaða skipaiðnaðar
sé betri nú en verið hafi síðustu
misseri. Atviksorðið „enn“ skírskot-
ar til þess, að senn sjáist fram úr
erfiðleikunum. Því miður er þetta
rangt hjá ráðherranum. Það er búið
að klúðra smíðasamningnum um
raðsmíðaskipið á Akureyri. í Slipp-
stöðinni eru engar meiriháttar end-
urbætur í gangi eða framundan.
Ég hygg að ástandið sé svipað ann-
ars staðar. Hitt má vera, að með
haustinu komi ný viðhorf. Það verð-
ur kosið ekki síðar en að ári og það
eitt gefur tilefni til bjartsýni.
2. Ráðherra talar um, að mikið
átak sé framundan í „markaðs- og
tillögunni. Sagði hún meðal annars,
að tilefni tillöguflutningsins væri
slys á þessum stað á Miklubraut-
inni, en alls hefðu sex slys orðið þar
á gangandi vegfarendum frá árinu
1979. Staðurinn væri flokkaður sem
svartur blettur í umferðinni en engin
örugg gönguleið væri yfir Miklu-
braut í tengslum við strætisvagna-
hagræðingarmálum“ skipaiðnaðar.
Ég vil bæta því við, að það hefur
verið svo alla tíð og verður, — er
ekkert einstakt fyrir árið 1990. Þá
er þess að gæta, að ekki verður
hagrætt í skipaiðnaði nema verk-
efni séu fyrir hendi. Það er einstakt
fyrir þetta ár og hið síðasta, að
skipaiðnaður hefur ekki átt upp á
pallborðið hjá stjómvöldum. Það
sést ekki síst vel á því, að ekki er
farið að greiða upsafnaðan sölu-
skatt vegna síðari hluta árs 1989
til fyrirtækja í skipaiðnaði. Og það
sem verra er: Engin merki eru um
að það verði gert. Þó liggur fyrir,
að skipaiðnaður er greiddur niður
í löndum Evrópubandalagsins.
Ég hef stundum sagt, að sá
maður, sem ekki skilji þýðingu
Slippstöðvarinnar fyrir Akureyri,
skuli ekki bjóða sig fram fyrir norð-
an, — það sé þýðingarlaust. Slíkur
maður þekkir hvorki söguna né
biðstöðina. Lagði hún til að borgar-
stjórn veitti 20 milljóna króna auk-
afjárveitingu vegna gerðar undir-
ganganna.
Katrín Fjeldsted, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, flutti tillögu
um að málinu yrði vísað til borgar-
ráðs og var húri samþykkt sam-
hljóða.
eðli atvinnulífsins norður þar. Nú
hefur það orðið að samkomulagi við
starfsfólk Slippstöðvarinnar, að það
taki hluta af sumarleyfinu út í
dymbilviku og páskaviku vegna
þess að engin verkefni liggja fyrri.
Bátarnir og togararnir fara að
tínast í slipp úr því og í maí verður
aftur nóg að gera. Kannski finnst
kaupandi að raðsmíðaskipinu. Ef
vinnan við að ljúka við það fellur á
mesta annatímann yfir sumarið, er
fljótséð, hvaða tjóni það hefur vald-
ið Slippstöðinni og starfsfólki henn-
ar, að eðlileg lánsfyrirgreiðsla
fékkst ekki til Meleyrar þegar á
jólaföstu.
Fyrir jól lagði ég fram frumvarp
um að gjald af erlendum lántökum
vegna innlendrar skipasmíði yrði
endurgreitt úr ríkissjóði eins og
verið hefur um lántökugjald vegna
endurbóta og meiriháttar viðhalds
fiskiskipa. Hér er ekki um háar ijár-
hæðir að ræða fyrir ríkissjóð, en
getur ásamt ýmsu öðru orðið til að
greiða fýrir því, að raðsmíðaskipið
seljist. Fjármálaráðherra hefur
svarað fyrirspurn minni svo á Al-
þingi, að hann telji sig ekki hafa
heimild til að endurgreiða lántöku-
gjaldið nema sérstök lagaheimild
komi til.
Nú hefur það gerst, að stjórnar-
liðar í fjárhags- og viðskiptanefnd
efri deildar hafa lagt til, að frum-
varpinu verði vísað til ríkisstjórnar-
innar, — þeir hafa m.ö.o., hafnað
því, að lántökugjaldið verði endur-
Halldór Blöndal
„Þá er þess að gæta,
að ekki verður hagrætt
í skipaiðnaði nema
verkefni séu fyrir
hendi.“
greitt. Með því sýna þeir hug sinn
til skipasmíðaiðnaðarins og er hægt
að fullyrða, að á engan sé hallað,
þótt sagt sé, að hann sé sá sami
og ríkisstjórnarinnar.
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins fyrir
Norðurlandskjördæmi eystra.
Borgarstjórn Reykjavíkur:
Borgarráð Qalli um undirgöng undir Miklubraut
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
ríð drögum um margar milljónir
á hverjum einasta laugardegi!