Morgunblaðið - 07.04.1990, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1990
0
0
—v
Honda Accord 1990
hlaut hina eftirsóttu viöurkenningu
Gullna stýrið í Vestur-Þýskalandi.
Greiðsluskilmálar við allra hæfi.
Við tökum góða notaða bíla upp í nýja.
Verð frá kr. 1.290.000,- stgr.
U HONDA
ÍIP
rlhoro
Sýning í dag kl. 13-17.
HONDA Á ÍSLANDI, VATNAGÖRÐUM 24, S-689900
Skóli og íþróttamið-
stöð í Kópavogsdal
eftirLoga
Kristjánsson
í október sl. gerðu Kópavogur og
UBK með sér ramma- og samstarfs-
samning um uppbyggingu íþrótta-
mannvirkja og uppeldis- og þjón-
ustuhlutverk félagsins gagnvart
bæjarbúum.
Samkvæmt samningnum átti á
næstu 5 árum að rísa æfingarhús
(26x45 m), félagsheimili og heilsárs
knattspyrnuvöllur. Á næstu 10-15
árum þar á eftir voru áform uppi
um byggingu íþróttahúss fyrir 1.500
áhorfendur, aukna félagsaðstöðu,
sal fyrir leikfimi og karate og
hlaupabraut innanhúss fyrir ftjálsar
íþróttir. Samkvæmt þessu var gert
ráð fyrir byggingu um 4.500 fm
húsnæðis, þar af um helmingur á
næstu 5 árum.
Upp úr áramótunum síðustu leit-
aði ríkisstjóm íslands til Kópavogs
um samvinnu um byggingu íþrótta-
og sýningarhúss sem gæti nýst í
HM-keppninni í handknattleik 1995.
Ákveðið var að skoða strax mögu-
leika á að nýta sér áform Breiða-
bliks um byggingu félagsheimilis og
íþróttahúss og leita lausnar þar sem
notagildi og hagkvæmni færu sam-
an. Fljótlega kom í ljós að til var
bráðheppileg lausn á málinu fyrir
alla aðila. Bygging sem hýsti fyrir-
hugaða aðstöðu Breiðabliks og
grunnskóla sem byggja átti á svæð-
inu á næstu 4 árum og einnig HM
’95.
Sl. fimmtudag skrifaði bæjar-
stjórn Kópavogs undir samninga við
HSÍ um HM-keppnina í handknatt-
leik 95. Við ríkisstjórn íslands um
þátttöku ríkisins í byggingu íþrótta-
húss fyrir HM ’95 og við Ungmenna-
félagið Breiðablik um aðild að bygg-
Sælkerans
Við kaup á þessum páskaeggjum styrkir þu
barnaspítalasjóð Hringsins.
Pau eru auðkennd með merki fSd
Barnaspítalans. Þessi __
bragðgóðu páskaegg eru til
tveimur gerðum og fjórum
stærðum. Að sjálfsögðu er (g)
íslenskur málsháttur og V
leikföng í eggjunum. íþeim er
svissneskt hágœðasúkkulaði
frá Chocolate Bernraine. ,.
Athugið að önnur
páskaegg eru um
50% dýrari.
„Og þeir þurfa ekki að
vera margir unglingarnir
sem væntanleg æskulýðs-
og íþróttamiðstöð vísar
veginn frá breiðgötum
spillingarinnar inn á
þroskavænlegri brautir
til að það fjármagn sem
ríkið, Kópavogur og
Breiðablik leggja til upp-
byggingar og reksturs
stöðvarinnar skili góðum
arði.“
ingunni og rekstri hússins að keppni
lokinni.
Hvað verður þá byggt?
Ætlunin er að byggja tveggja
handknattleiksvalla íþróttasal líkt
og hjá FH í Kaplakrika en með að-
stöðu fyrir 7.000 áhorfendur meðan
á HM-keppninni ’95 stendur en með
um 4.000 áhorfendur að keppni lok-
inni. Þá verður húsinu breytt og
fæst þá auk tvískipts salar, félagsað-
staða fyrir Breiðablik, leikfimi- og
karatesalur, salur sem er 10x65 m
fyrir ftjálsar íþróttir, badminton o.fl.
Grunnskóli sem byggja á í tengslum
við íþróttahúsið fær um 1.100 fm
undir kennslustofur. Sá hluti hússins
sem verður fyrir íþrótta- og æsku-
lýðsstarf í framtíðinni er um 5.200
fm.
Logi Kristjánsson
Hver er munurinn?
Stærðarmunur fyrri hugmynda
um byggingu félags- og íþróttaað-
stöðu og þess em nú er ætlunin að
■ra ■ sm
Staðreyndir
um íþróttahöll
í Kópavogi
eftir Gunnar I.
Birgisson
Undanfarið hefur verið mikil fjöl-
miðlaumræða um byggingu íþrótta-
hallar í Kópavogi. Meirihlutaflokk-
arnir í bæjarstjórn Kópavogs hafa
lagt mikla áherslu á þetta mál og
hefur verið gert samkomulag við
ríkissjóð um byggingu skóla og
íþróttamiðstöðvar í Kópavogsdal.
Samkomulagið er eftirfarandi
(verðlag febrúar 1990):
1. íþr.hús fyrir 7.000 áhorf.
634 m.kr.
2. Skólahús 170 mkr.
3. Breyting á íþróttahúsi
-í minna íþróttahús 84 mkr.
4. Bílast. fyrir 600 bíla 63 mkr.
Samtals 951 mkr.
Óafturkræft framlag ríkisins
verður 300 mkr. sem er meðal ann-
ars vegna byggingar íþróttahúss,
flýtingu á framkvæmdum, bráða-
birgðaaðstöðu af ýmsu tagi, breyt-
inga á húsinu eftir á o.fl. Þessi
upphæð greiðist á 4 árum. Einnig
lofar ríkið að útvega Kópavogsbæ
354 mkr. lán sem greiðist á árununt
1996-2007.
Upphaf málsins
Undirritaður kom fyrstur manna
með þá hugmynd að byggja þjóðar-
höll í Kópavogi fyrir heimsmeistara-
keppnina í handknattleik árið 1995.
Sjálfsiæðismenn í Kópavogi eru því
frumkvöðlar að byggingu íþrótta-
hallar í Kópavogsdal og einlægir
fylgismenn þeirrar hugmyndar. En
við erum á móti því sámkomulagi
sem meirihluti bæjarstjórnar hefur
gert við ríkið. Við teljum að framlag
ríkisins sé allt of lágt eins og sýnt
verður fram á hér á eftir.
Staðreyndir
Ef Kópavogur myndi byggja
íþróttahús sem fullnægði þörfum
bæjarfélagsins og tæki 2.500
manns í sæti og skólahús ásamt
bílastæðum myndi það kosta:
1. íþr.hús fyrir 2.500 áhorf.
ásamt félagsaðstöðu 170 mkr.
2. Skólahús 170 mkr.
3. Bílastæði . 60mkr.
Samtals 400 mkr.
Ef ríkisframlaginu væri bætt of-
an á þessa upphæð fást 700 mkr.
þannig að Kópavogur þarf að leggja
fram 250—300 mkr. til þess að fá
að byggja íþróttahöllina samkvæmt
fyrrgreindri áætlun. Þá er hægt að
spytja hvort þjóðin öll eigi að kosta
heimsmeistarakeppnina 1995 eða
hvort ríkið og Kópavogur eigi að
skipta kostnaðinum á milli sín.
Oddvitar A-flokkanna í Kópavogi
hafa haldið því fram að þetta sé
lottóvinningur fyrir Kópavog. En
eins og sjá má af framangreindu
er þetta lottóvinningur fyrir ríkið.
Hugmyndin að byggingu íþrótta-
hallar í Kópavogi er góð, en ekki
þýðir að láta stjórnast af augnabliks
hrifningu án þess að hafa báða
fætur á jörðinni hvað fjármálin
varðar.
Framgangur málsins
í bytjun febrúar var bæjarfulltrú-
um Sj álfstæðisflokksins sagt í al-
gerum trúnaði og með fyrirskipun
um algera leynd að viðræður væru
hafnar við ríkið um byggingu
íþróttahúss í Kópavogi. Það var
síðan í seinni hluta mars að sam-
komulagið var kynnt bæjarfulltrú-
um Sjálfstæðisflokksins, nokkrum
dögum áður en átti að samþykkja
það í bæjarstjórn.