Morgunblaðið - 25.04.1990, Page 1
48 SIÐUR B
92. tbl. 78.árg.____________________________________MIÐYIKUDAGUR 25. APRÍL 1990______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Stofiium aldrei mið-
stýrðan alríkisflokk
- segir leiðtogi jafiiaðarmanna í Moskvu
Moskvu. Frá Páli Þórhallssyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
„VÍÐA um Sovétríkin hafa sprottið upp samtök jafnaðarmanna og eru
félagar þeirra nú samanlagt um 15.000,“ sagði Vasílíj Vasíltsjenko,
formaður samtaka jaftiaðarmanna í Moskvu þegar Morgunblaðið ræddi
við hann í gær. Sovéskir jafnaðarmenn halda þing í borginni 4. maí
nk. og er búist við að Júríj Afanasejev, sagnfræðingur og þingmaður,
sem nýverið hefúr sagt sig úr kommúnistaflokknum, verði kosinn for-
maður.
Fjöldi nýrra stjórnmálaflokka og
hreyfinga er nú í fæðingu í Sovétríkj-
unum í kjölfar þess að valdaeinokun
kommúnista hefur verið afnumin
þótt ekki sé enn búið að ieyfa aðra
flokka með formlegum hætti.
Samband sovéskra jafnaðarmanna
hefur aðsetur í óhijálegri íbúð í
Moskvu, þar eru bæði Moskvudeildin
og höfuðstöðvar landssambandsins.
A skrifstofu formanns Moskvudeild-
arinnar er kratarósin allsráðandi og
hann sýnir blaðamanni stoltur kort
af Sovétríkjunum þar sem búið er
að merkja með rauðri rós við alla
þá staði í landinu þar sem jafnaðar-
mannasamtök hafa verið stofnuð.
Að sögn Vasíltsjenkos má rekja til-
komu jafnaðarstefnunnar í Sovétríkj-
unum til ársins 1985 er Míkhaíl
Gorbatsjov núverandi forseti hrinti
umbótastefnunni í framkvæmd. Þá
Metverð fyr-
ir málverk
Strindbergs
Stokkhólmi. Reuter.
MÁLVERK eftir sænska leik-
skáldið August Strindberg var
selt á uppboði í Stokkhólmi í
gær fyrir rúmar 240 milljónir
ísl. kr.
Myndina nefndi Strindberg
„Undraland“ en hana málaði
listamaðurinn í Þýskalandi árið
1894.
Þetta er hæsta verð sem feng-
ist hefur fyrir málverk á upp-
boði á Norðurlöndum en fyrr á
þessu ári greiddi óþekktur kaup-
andi tæpar 160 milljónir króna
fyrir mynd eftir sænska lista-
manninn Anders Zorn.
Líbanon:
Belgísk-
um gísl-
um sleppt?
Beirút. Reuter.
Heimildarmenn Reuters-frétta-
stoíúnnar í Beirút, höfúðborg
Líbanons, sögðu í gær að fjóru m
belgískum gíslum yrði sleppt úr
haldi innan skamms. Belgarnir
hafa verið á valdi félaga I „Bylting-
arráði Fatah“, er lýtur stjórn
hryðjuverkamannsins illræmda
Abu Nidals, í rúm þrjú ár.
Fólkinu, Emmanuel Houtkins,
eiginkonu hans Godelieve og tveim-
ur börnum þeirra, var rænt er það
var á siglingu á Miðjarðarhafi
ásamt fimm manna fjölskyldu sem
liðsmenn Abu Nidals tóku einnig á
sitt vald. Mannræningjarnir slepptu
tveimur telpum í desember árið
1988 en hinir gíslamir þrír voru
látnir lausir fyrr í þessum mánuði
eftir að Muammar Gaddafi Líbýu-
leiðtogi hafði haft afskipti af mál-
inu.
Þá hermdu óstaðfestar fréttir í
gær að líkur væru á því að tveimur
svissneskum starfsmönnum Rauða
krossins yrði brátt sleppt úr gíslingu
en óþekktir menn rændu þeim í
Líbanon 6. október síðastliðinn.
Stjóriiarandstæðing-ar mótmæia kommúnískum stjórnarháttum í Rúmeníu:
Kosningar án aðstoðar
erlendra eftirlitsmanna
var farið að stofna samtök jafnaðar-
manna víða í borgum landsins en það
var ekki fyrr en í janúar á þessu ári
sem þau gerðu með sér formlegt
samband á landsvísu.
„Samtökin á hverjum stað verða
áfram sjálfstæð. Við ætlum ekki að
verða flokkur á landsvísu því að við
þekkjum allt of vel til hvers það leið-
ir, að hafa slíka miðstýringu," segir
Vasíltsjenko. Aðspurður um stefnu-
mál jafnaðarmanna segir hann að
þau séu hin sömu og jafnaðarmanna-
flokka í Vestur-Evrópu.
Samband sovéskra jafnaðarmanna
hefur fengið heimsóknir frá jafnaðar-
mönnum í öðrum löndum og undirbýr
nú að sækja um aðild að Alþjóðasam-
bandi jafnaðarmanna. Þegar Vasílt-
sjenko er spurður hvers konar fólk
eigi aðild að samtökunum tekur hann
dæmi af Moskvu. Félagar séu um
250, þar af 200 tæknimenntaðir há-
skólamenn, 25 háskólamenn af öðru
tagi og 25 úr öðrum stéttum.
Reuter
Stjórnarandstæðingar í miðborg Búkarest í gær. Þar mátti m.a. sjá
höggmynd af krepptum hnefa er myndaði V-laga sigurmerki en um
fingurna var bundinn svartur borði sem tákna átti svik núverandi
stjórnvalda við málstað byltingarmanna.
Búkarest. Reuter, The Daily Telegraph.
RÚMLEGA 4.000 manns komu
saman í Búkarest, höfuðborg
Rúmeníu, í gær og kröfðust af-
sagnar Ions lliescus, sitjandi for-
seta bráðabirgðaríkistjórnar End-
urreisnarráðsins. Petre Roman,
forsætisráðherra Rúmeníu, sagði
í viðtali við franskt dagblað í gær
að ákveðið hefði verið að falla frá
hugmyndum um að leita eftir að-
stoð erlendra eftirlitsmanna er
þing- og forsetakosningar fara
fram í Rúmeníu þann 20. maí.
Lögreglumenn vopnaðir hríðskota-
rifflum og bareflum höfðu hægt um
sig er um 3.000 manns gengu í fylk-
ingu inn á Háskólatorgið í miðborg-
inni og tóku að kreíjast þess að Ili-
escu forseti segði af sér. Um 1.000
manns héldu enn til á torginu seint
í gærkvöldi.
Á meðal þeirra sem þátt tóku í
mótmælunum voru félagar í samtök-
unum „21 desember", sem fullyrða
Stefiit að þýsku mynt-
bandalagi í byrjun júlí
Bonn, Austur-Berlín. Reuter.
HELMUT Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, og Lothar de Maiziere,
forsætisráðherra Austur-Þýskalands, hafa komist að samkomulagi í
meginatriðum um myntbandalag þýsku ríkjanna og er að því stefnt,
að það verði að veruleika 2. júlí næstkomandi. Þá mun vestur-þýska
efnahagskerfið taka það austur-þýska upp á sína arma og verður þá fátt
í veginum fyrir fullri sameiningu ríkjanna.
Búist er við, að stjórnir þýsku
ríkjanna afgreiði samninginn um
myntbandalagið fyrir vikulok en
með honum hefur Bonnstjórnin lát-
ið verulega undan kröfum Austur-
Þjóðveija og að sumu leyti í óþökk
vestur-þýska seðlabankans. í meg-
inatriðum er samningurinn þannig,
að almennum launum og eftirlaun-
um og sparifé upp að 4.000 austur-
þýskum mörkum á mann verður
breytt á genginu eitt mark á móti
Embættismenn í Bonn viður-
kenna raunar, að þeir eigi erfitt
með að gera sér grein fyrir kostnað-
inum við myntbandalagið og er það
einkum hugsanlegt atvinnuleysi í
Austur-Þýskalandi, sem óvissunni
veldur.
Austur-Þjóðveijar hafa í fyrsta
sinn greitt þeim, sem lifðu af helför
nasista á hendur gyðingum, nokkr-
ar skaðabætur, um 225 milljónir
ísl. kr. Austur-þýskir kommúnistar
vildu aldrei kannast við, að þeir
bæru neina ábyrgð á fortíðinni, og
eru greiðslurnár táknrænar fyrir
umskiptin í Austur-Þýskalandi.
Reuter
I gær var hafist handa við að fjarlægja a-þýsk mörk úr byggingu
miðstjórnar a-þýska kommúnistaflokksins í Berlín til að rýma til
fyrir mörkum að vestan. Austur-þýsku seðlunum var komið á flutn-
ingabíla og þeim ekið á leynilegan stað þar sem þeir voru grafnir
í jörðu.
Vestur-Þjóðveijar hafa hins vegar
greitt gyðingum og Ísraelsríki
næstum 2.900 milljarða ísl. kr. í
skaðabætur.
að byltingin í Rúmeníu hafí ekki orð-
ið fyrir tilviljun eina heldur hafi ver-
ið um að ræða þaulskipulagt valda-
rán núverandi ráðamanna. Um þetta
deila menn í Rúmeníu en stjórnar-
andstæðingar eru sammála um að
fyrrum flokksbræður einræðisherr-
ans Nicolae Ceausescus hafi enn öll
ráð landsmanna í hendi sér og að í
engu hafi verið hvikað frá komm-
únísku þjóðskipulagi.
Þá hefur stjórnarandstaðan látið
í ljós efasemdir um að kosningarnar
þann 20. næsta mánaðar verði leyni-
legar og fijálsar. Þykir víst að deilur
um þetta muni magnast á næstunni
þar sem Roman forsætisráðheiTa
sagði í blaðaviðtali að ekki hefði
gefist nægur tími til að skipuleggja
eftirlit með framkvæmd kosning-
anna. Hefði ríkisstjórnin því ákveðið
að falla frá þeirri hugmynd að bjóða
erlendum eftirlitsmönnum til Rúm-
eníu.
Gelu Voican, aðstoðarforsætisráð-
herra Rúmeníu, sagði að lög hefðu
verið brotin er frönsk sjónvarpsstöð
sýndi myndir m.a. frá aftöku Ceaus-
escu-hjónanna á sunnudag. í mynd-
inni kemur fram að Voican tók ásamt
fleiri núverandi ráðamönnum þátt í
réttarhöldunum yfir Ceausescu-hjón-
unum. Sögðu franskir fréttaskýrend-
ur í gær að myndin hlyti að vekja
upp nýjar spurningar um byltinguna
í Rúmeníu.
Sjá „Rúmenska öryggislögregl-
an. . . “ á bls. 20.