Morgunblaðið - 25.04.1990, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 1990
21
Hjartans þakkir sendi ég öllum þeim, er heim-
sóttu mig, sendu mér heillaskeyti, blóm og
gjafir á sjötugsafmœli mínu 18. apríl sl.
Sérstakar þakkir vil ég fcera syni mínum og
fjölskyldu hans og frœnkum mínum fyrir ómet-
anlega hjálp.
Guðlaug Pálsdóttir,
Kleppsvegi 38.
Volvo 360 QL, '88. Ljósblár
mot., s gfra, vökvastýri,
útv/seguib., upphækk., s
dyra. Ek. 33.000 km. Verö
800.000.
Volvo 240 QL, '87. Rauður, 5
gíra, vökvastýrl, útv/segulb.,
snjódekk ó felgum. Ek.
37.000 km. Verð 940.000.
Volvo 740 QLE '88. Dökkblár
met., sjálfsk., vökvast.,
útv/segulb., rafdr. rúöur. Ek.
62.000 km. Verö 1.450.000.
Volvo 240 QL '86. Hvftur, 5
glra, vökvast., útv/seguíb.,
sflsabrettl. Ek. aðeins 36.000
km. Verð 840.000.
Volvo 240 GL, '86. Sllfurgrár
met., sjálfsk., vökvast.,
útv/segulb. Sflsabrettl. Ek.
49.000 km. Verð 840.000.
Volvo 740 QLE '87. Beige
met., 5 glra, vst., útv/segulb.,
vetrard. og sumard. á felgum.
Sállúga, sllsabreHI. Ek.
62.000 km. Verð 1.285.000.
Charade QTTl, '88. Dökkblár
met., 5 gfra, 101 hestöfl,
turbo m/intercooler. Álfelgur.
Rafdr. sóllúga, rafdr. speglar,
útv/segulb., 14“ Plrelll dekk.
Ek. 28.000. Bfll I sérflokkl.
Verð 760.000. Sklpti ódýrt.
MMC Pajero 4wd, bensln '88.
Sllfurgrár, 5 gfra, vökvast.,
útv/segulb., sumar/vetrard.
Ek. 64.000 km. Verð
1.370.000. Sklpti mögul.
Fjöldl annarra notaðra úrvals
bíla á staðnum og á skrá.
Brimborg hf.
Faxafeni 8, s. (91) 685870,
Bandarískir ráðamenn ræða vanda Litháa:
Bush frestar ákvörðun um að-
gerðir gegn Moskvustj órninni
Aukinn viðbúnaður sovésku öryggislögreglunnar á landamærum Litháens
BÍLAGALLERÍ
Opið virka daga f rá kl. 9-18.
Laugardaga frá kl. 10-16.
Volvo 740 QL '86. Dökkblár
met.f sjölfsk.y vökvast., upp-
hækk., útv/segulb. Ek.
36.000 km. Verö 1.050.000.
hefði orðið um smygl af þessu tagi.
Frá því að deilurnar vegna sjálfstæð-
iskröfunnar hófust hafa leiðtogar
Litháa ávallt skorað á landsmenn
að forðast ofbeldisverk og hvergi
hefur komið til vopnaðra átaka.
V egabréfsáritun
Prunskiene til
Bandaríkjanna
Sendinefnd Litháa undir forygtu
varaforsetans, Bronius Kuzmickas,
er enn í Moskvu og bíður þess að
fá sovéska ráðamenn til viðræðna
um deilur ríkjanna. Kazimiera
Prunskiene, forsætisráðherra Lithá-
ens, hefur skýrt frá því á blaða-
mannafundi að Bandaríkjamenn hafi
neitað sér um vegabréfsáritun til að
heimsækja landið í næsta mánuði;
hún hafi fengið að vita að það gæti
ekki orðið fyrr en í byrjun júní.
Prunskiene gaf í skyn að bandarísk
stjórnvöld væru e.t.v. mótfallin því
Washington, Moskvu, París. Reuter. dpa.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti
sagði í gær að hann hefði ekki
tekið neina ákvörðun um það
hvernig og hvort svara bæri efiia-
hagsþvingunum Sovétstjórnar-
innar gegn Litháum með gagnað-
gerðum. Á mánudag létu banda-
rískir embættismenn í það skína
að til greina kæmi m.a. að fresta
viðræðum sem hafnar eru í París
um aukin viðskipti risaveldanna
og betri viðskiptakjör fyrir Sovét-
menn á Bandaríkjamarkaði. For-
setinn sagðist ekki vilja hætta á
að magna deilurnar vegna sjálf-
stæðisyfirlýsingar Litháa. „Við
skulum vona að viðræður hefjist
— það er eina leiðin út úr vandan-
um,“ sagði Bush. Sovéska örygg-
islögreglan, KGB, hefur aukið við-
búnað sinn við hafnir og landa-
mæri Litháens og sovéskur tals-
maður varaði í gær Bandaríkin'
við því að grípa til refsiaðgerða
gegn Sovétríkjunum.
„Allar aðgerðir, sem aukið gætu
á misklíð, hefðu ekkert jákvætt í för
með sér, þær fengju engu áorkað,"
sagði Vadím Períljev, fulltrúi sov-
éska utanríkisráðuneytisins. „Þetta
ættu þeir að hafa í huga sem mæla
með aðgerðum gegn landi okkar eða
þrýstingi á sovésk stjórnvöld. Hvort
sem það væri ætlunin eða ekki gætu
slíkar aðgerðir orðið vopn í höndum
þeirra sem vilja aukin völd og boða
þjóðernisstefnu, aðgerðirnar gætu
með þessum hætti komið Litháum á
kaldan klaka.“ Talsmaður sovésku
öryggislögreglunnar, KGB, skýrði
frá því að stofnunin hefði aukið
umsvifin á landamærum Litháens, á
ströndum lýðveldisins og við hafnir
til að koma í veg fyrir að vopnum
yrði smyglað til landsins. Yfirmaður
landamæravarðsveitanna, Anatólíj
Paratsín, sagði fréttamönnum að í
þessu skyni yrði fylgst með „sam-
skiptum skipvetja á sovéskum og
erlendum skipum" í lögsögu ríkisins.
í frétt sovésku TASS-fréttastofunn-
ar sagði ekkert um það hvort uppvíst
blaði þegar efnahagsmál eru annars
vegar. Bandaríkjamenn hafa til að
mynda miklar áhyggjur af því að
þeir séu að dragast aftur úr Japön-
um. ítalir lýstu því stoltir yfir árið
1987 að þeir væru il surpasso („ég
er ríkari en þú“ í grófri þýðingu)
er tölum yfir landsframleiðslu hafði
verið hagrætt þannig að svo virtist
sem þeir hefðu slegið Bretum við.
Bretar og Frakkar hafa í ár átt í
deilum um hvorir þeirra eigi að.
vera ofar á lista Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins, þar sem Japanar eru að
færast úr fimmta sætinu í annað
(á eftir Bandaríkjamönnum).
Frakkar eru óánægðir með að þeir
skuli verða í fimmta sæti í stað
þess fjórða og því enn á eftir Bret-
um (sem eru í öðru sæti en verða
brátt í því fjórða).
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn miðar
við landsframleiðslu, viðskipti við
útlönd og gjaldeyrisvarasjóði
ríkjanna. Þannig er hægt að kom-
ast að niðurstöðu sem flestir geta
sætt sig við. Aðrar tölur er hægt
að nota með sama árangri. Enginn
ber brigður á að landsframleiðslan
er mest í Bandaríkjunum en meiri
í Sviss miðað við höfðatölu og að
japanar eru mestu lánardrottnar
veraldar. En þegar allt kemur til
alls eru allar þjóðir efstar á ein-
hverju sviði, til að mynda er hundr-
aðshluti atvinnulausra hærri á
Spáni en í nokkru öðru iðnvæddu
ríki heims.
Þolinmóðir tölfræðingar Ec-
onomist hafa farið í gegnum tölur
24 ríkja sem aðild eiga að Efnahags
og framfarastofnuninni (OEGD).
Sum ríkjanna virðast hvað eftir
annað skara fram úr öðrum: Banda-
ríkin vegna stærðarinnar, Svíþjóð
vegna félagshyggjunnar. Svíþjóð er
efst á blaði hvað varðar ríkisút-
gjöld, skatta, félagslega þjónustu
og, þótt skrýtið megi virðast, hluta-
bréfaeign einstaklinga.
Þeir sem eru með efasemdir um
afrek Vestur-Þjóðveija á efnahags-
sviðinu ættu að líta á tölur yfir bjór-
neyslu þeirra miðað við höfðatölu -
en hún er sú mesta í öllum heimin-
um. Tyrkland er fátækasta ríki
OECD, en hagvöxturinn hefur líka
verið þar mestur á undanförnum
árum. I auglýsingum breska Verka-
mannaflokksins að undanförnu hef-
ur verið lögð rík áhersla á að í
Bretlandi séu vaxtahækkanir mest-
ar, auk þess sem framleiðslan hafi
hvergi minnkað jafn mikið og þar
á undanförnum áratug. Stuðnings-
menn Margaretar Thatcher, forsæt-
isráðherra Bretlands, geta hins veg-
ar stært sig af því að sala á plötu-
spilurum, segulböndum og geisla-
spilurum er hvergi meiri en þar.
Frakkar eru enn efstir hvað varð-
ar áfengisneyslu á hvern landsmann
í OECD. Islendingar eiga fleiri Tri-
vial Pursuit-spil miðað við höfðatölu
en nokkur önnur þjóð veraldar (all-
ir þessir löngu og köldu vetrarmán-
uðir). Samkvæmt þessu ættu allir
íslendingar að vita svarið við spurn-
ingunni: „hveijir eru mestu mat-
mennirnir?" Það eru Irar, því þeir
borða fleiri hitaeiningar á mann en
nokkur önnur þjóð sem aðild á að
OECD.
Reuter
George Bush Bandaríkjaforseti ásamt Thomas Foley, forseta fulltrúa-
deildar Bandaríkjaþings, og George Mitchell, leiðtoga demókrata í
öldungadeildinni, i gær.
að hún væri þar á ferð rétt fyrir
viðræðufund þeirra George Bush og
Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétforseta
sem verður í Washington um mán-
aðamótin maí-júní.
Bush átti fund með helstu ráðgjöf-
um sínum á mánudagskvöld um
málefni Litháa og í gærmorgun
ráðgaðist hann við þingleiðtoga.
Claiborne Pell, formaður utanríkis-
málanefndar öldung'adeildarinnar,
líkti ástandi mála í Litháen við upp-
reisnina í Ungveijalandi árið 1956.
Þá hefðu gagnrýnendur Bandaríkja-
stjórnar sagt að hún hefði tælt Ung-
veija til að halda að Bandaríkjamenn
myndu styðja vopnaða uppreisn
gegn Sovétmönnum. Moskvustjórnin
kæfði uppreisnina í blóði. Þingleiðto-
garnir virðast hafa lýst stuðningi við
ákvörðun Bush um að ákveða engar
refsiaðgerðir gegn Sovétmönnum að
sinni. „Þetta kemur mönnum niður
á jörðina; bandamenn okkar vilja
ekki efna til efnahagslegra refsiað-
gerða og sjálfur er ég ekki viss um
að ég geti mælt með einhliða aðgerð-
um við þessar aðstæður,“ sagði
demókratinn Dante Fascell, formað-
ur utanríkismálanefndar fulltrúa-
deildarinnar. „Við viljum alls ekki
glæða falsvonir hjá Litháum um að
Banadríkin geti leyst vanda þeirra
með einhvetjum efnahagslegum eða
pólitískum töfrabrögðum,“ bætti
þingmaðurinn við.
Li Peng í Moskvu
Segist vilja umbæt-
ur en ekki glundroða
Námsmenn og borgarfulltrúar mótmæla
komu kínverska forsætisráðherrans
Moskvu. Reuter.
LI PENG, forsætisráðherra Kína,
hóf viðræður við Míkhaíl Gorb-
atsjov, forseta Sovétrikjanna, í
Kreml í gær. Forsætisráðherrann
tjáði Sovétforsetanum að stjórn-
völd í Kína myndu halda áfram
að koma á umbótum í iandinu en
reyna að koma í veg fyrir glund-
roða. Nokkur hundruð náms-
manna í Moskvu fóru í göngu um
miðborgina til að mótmæla komu
Li Pengs og slógust 22 borgarfull-
trúar i Moskvu í lið með þeim.
Li Peng er æðsti kínverski ráða-
maðurinn sem sækir Moskvu heim
í aidarfjórðung. Hann lagði blóm-
sveig að minnisvarða óþekkta her-
mannsins og Vladímírs Leníns,
stofnanda Sovétríkjanna, áður en
hann kom til fundarins í Kreml.
Fréttastofan TASS skýrði frá því
að Gorbatsjov hefði sagt Li að hann
reyndi að komast hjá því að beita
vopnavaldi á meðan sögulegar breyt-
ingar ættu sér stað í Sovétríkjunum.
Leiðtogarnir tveir undirrituðu
einnig samning um samvinnu
ríkjanna á sviði efnahagsmála, tækni
og vísinda til aldamóta. Utanríkis-
ráðherrar þeirra höfðu komist að
samkomulagi um fækkun í landa-
mæraheijum rílq'anna.
22 borgarfulltrúar í Moskvu
gengu í lið með róttækum stúdentum
og mótmæltu nærveru mannsins
sem réð ferðinni þegar lýðræðisbar-
áttan í Peking var brotin a bak aft-
Námsmenn mótmæla komu Li
Pengs forsætisráðherra Kína fyr-
ir utan utanríkisráðuneytið í
Moskvu.
ur með hervaldi í júnímánuði í fyrra.
Lögð var fram tillaga í borgarstjórn
Moskvu á mánudag þar sem sagði
meðal annars að hendur Li Pengs
væru ataðar blóði hans eigin fólks.
Mótmælaaðgerðir eins og þarna
áttu sér stað vegna opinberrar heim-
sóknar eiga sér ekki fordæmi í Sov-
étríkjunum.
Moskvu-heimsókn Li Pengs lýkur
á morgun.