Morgunblaðið - 03.05.1990, Page 2

Morgunblaðið - 03.05.1990, Page 2
2 J MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1990 Morgunblaðið/Sig. Jóns. Úrkoman og hlýindin 1. maí og nóttina eftir gerðu að verkum að víða flæddi yfir vegi í uppsveitum Arnessýslu. Skörð komu í Skálholtsveg og Biskupstungnabraut. Vatn flæddi yfir Biskupstungna- braut ofarlega í Grímsnesi þar sem þessi mynd var tekin í gær. Verulegar vegaskemmdir mjög víða vegna leysinga VEGASKEMMDIR urðu um allt land í kjölfar mikilla leysinga. Að sögn starfsmanna Vegagerðarinnar rofiiuðu vegir allt frá Árnessýslu norður í Skagafiörð og var víða gert við aðalvegi til bráðabirgða jafnóðum og fréttist af skemmdum. Enn eru margir útvegir í illfæru ástandi. Samkvæmt upplýsingum legar vegaskemmdir að ræða og Vegagerðarinnarerhérumveru- urðu nokkrar umferðartafir af Morgunblaðið/Jón Sig. Hjólað í vatnselgnum á Blönduósi. þeirra völdum. Nokkrir aðalvegir fóru í sundur, til að mynda á Snæfellsnesi, Borgamesi, Barða- strandarsýslu, báðum ísafjarðar- sýslum og Húnavatnssýslu. Vegurinn við Bergstaðaklif í Svartárdal í Austur-Húnavatns- sýslu fór í sundur á tíu metra kafla, en að sögn Vegagerðar- innar, háttar þar mjög illa til vegna þess að vegurinn er í mikl- um bratta. Ekki var búið að gera við veginn í gær. Þá fór Heydals- vegur í sundur. Viðgerðum til bráðabirgða Iýkur fljótlega á þeim vegum sem illa urðu úti vegna vatnsgangsins en enn er töluverð vinna fram- undan hjá Vegagerðinni við fullnaðarviðgerðir. Bráðbirgða- viðgerðir sóttust nokkuð seint vegna þess hve erfiðlega gekk að nálgast efni, en jörð er víða mikið freðin. 60 millj. í niður- greiðslu áburðar SAMKOMULAG hefúr náðst milli Þorsteins Pálssonar formanns Sjálfstæðisflokksins og Ólafs Ragnars Grímssonar §ármálaráð- herra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar um að áburðarverð hækki um 12% og að ríkissjóður leggi til það fé sem Áburðarverksmiðju ríkis- ins vantar, miðað við að áburðarverð hefði hækkað um 18%, um 60 milljónir króna. Akvörðun meirihluta stjórnar Áburðarverksmiðjunnar um 18% hækkun verður því breytt og frum- varp ríkisstjórnarinnar um lögfest- ingu 12% hækkunar mun daga uppi í þinginu. „í þessu samkomulagi felst það,“ segir Þorsteinn Pálsson, „að viðurkennt er af ríkisstjórnarinnar hálfu að til að geta staðið við fyrir- heit 'um 12% hækkun á áburðar- verði þurfi að koma framlög úr ríkissjóði og eigi ekki að velta því yfir á bændur og neytendur á næsta ári.“ „Þetta þýðir að rekstur verk- smiðjunnar er tryggður, bændur fá áburðinn á því verði sem geng- ið var út frá við gerð kjarasamn- inganna og frumvarp ríkisstjóm- arinnar um að ákveða þetta ein- hliða með löggjöf dagar hér uppi og kemur ekki frekar til af- grejðslu,“ segir Þorsteinn. Ólafur Ragnar Grímsson segir það alltaf hafa legið fyrir að síðar á árinu hefði þurft að taka á mál- efnum Áburðarverksmiðjunnar. „Ég tel að þetta samkomulag sé farsælt vegna þess að það er vont að harðar deilur séu um atriði af þessu tagi, bæði vegna þess að áburðarverðið er mikilvægt atriði í verðlagningu matvæla í landinu og eins vegna þess að þetta er eitt af þeim atriðum sem tengjast kjarasamningunum sem gerðir voru fyrir skömmu,“ sagði Ólafur. Eldhúsdagsumræða á Alþingi í kvöld ALMENNUM stjórnmálaumræðum í Sameinuðu þingi verður útvarp- að í kvöld og hefst útsending klukkan 20.30. Umræðurnar fara þannig fram að hver þingflokkur fær 30 mínútur til umráða, sem skiptast í tvær umferðir, 15-20 mínútur í fyrri umferð og 10-15 mínútur í þeirri seinni. Röð flokkanna verður þessi í báðum umferðum: Sjálfstæðis- flokkur, Framsóknarflokkur, Kvennalisti, Alþýðuflokkur, Fijáls- lyndi hægri flokkurinn, Alþýðu- bandálag og Borgaraflokkur. Stef- án Valgeirsson, Samtökum jafn- réttis og féiagshyggju, talar síðast í fyrri umferð og hefur 15 mínútur til umráða. Ræðumenn flokkanna verða: Fyrir Sjálfstæðisflokk Þorsteinn Pálsson, Geir H. Haarde og Matt- hías A. Mathiesen. Af hálfu Fram- sóknarflokks Halldór Ásgrímsson, Guðni Ágústsson og Steingrímur Hermannsson. Fyrir Kvennalista Þórhildur Þorleifsdóttir, Danfríður Skarphéðinsdóttir og Málmfríður Sigurðardóttir. Fyrir Alþýðuflokk Jón Baldvin Hannibalsson, Jóhanna Sigurðardóttir og Jón Sigurðsson. Af hálfu Fijálslynda hægri flokks- ins Ingi Björn Albertsson og Hregg- viður Jónsson. Fyrir Alþýðubanda- lag Margrét Frímannsdóttir, Svavar Gestsson, Steingrímur J. Sigfússon og Ólafur Ragnar Grímsson. Fyrir Borgaraflokk Júlíus Sólnes, Guð- mundur Ágústsson, Ásgeir Hannes Eiríksson og Óli Þ. Guðbjartsson. Fólk hætt komið í Óshlíð: Mikill fögnuður og óendanlegt þakk- læti vegna þess hversu vel þetta fór - segir Sigrún Þórisdóttir, eiginkona Einars Guðfinnssonar, sem beið hans í vegskálanum þegar snjóflóðið féll Bolungarvík. Karl og kona voru hætt komin er snjóílóð féll á Óseyrarveg að morgni 1. maí sl. Mikil rigning og hláka var og höfðu tvö snjóflóð lokað veginum fyrr um morguninn. Fólkið sem hér um ræðir voru Einar Kristinn Guðfinnsson er kom með áætlunarflugi Flugleiða fyrr um morguninn til ísafjarðar en hann hafði gert þær ráðstafanir að komið yrði á móti honum að skriðunni. Konan var Elín Guðmunds- dóttir sem var í heimsókn í Bolungarvík ásamt eiginmanni sínum og ungri dóttur þeirra. Þau voru á leið til Reykjavíkur. Morgunblaðið/Gunnar Hallsson Sigrún Þórisdóttir og Einar Kristinn Guðfinnsson með börnin tvÖ Guðfinn Ólaf og Sigrúnu Maríu. Elín sagði svo frá ferðum þeirra „Við ætluðum akandi til Reykjavík- ur um morguninn en höfðum af því fréttir að Óseyrarvegur væri lokað- ur. Við settum okkur í samband við Vegagerðina á Isafirði og fengum þar upplýsingar um að moksturs- tæki væri á leið út á Óshlíð og veg- urinn yrði opnaður. Að fengnum þessum upplýsingum lögðum við af stað. Við komum að skriðunni sem lokaði veginum rétt handan við annan tveggja vegskálanna. Við biðum þarna inni í vegskálanum dijúga stund og á meðan við biðum þama kom áætlunarbíllinn frá Bol- ungarvík með farþega sem vom að fara í flug til Reykjavíkur og fór það fólk gangandi yfír skriðuna í annan bíl sem beið þeirra hinumeg- in. Við höfðum nú beðið það lengi að okkur fór að lengja eftir mðn- ingstækinu. Bíllinn sem við emm á er búinn farsíma og hringdum við í Vegagerðina aftur og fengum þá þær upplýsingar að moksturstækið hlyti að vera rétt ókomið til okkar. Rétt á eftir ákvað ég að fara upp á skriðuna og vita hvort ég yrði nokkurs vísari. Er upp á skriðuna kom sá ég hvar Einar Kristinn kom gangandi að innan og aðspurður sagði hann mér að hann hefði ekki orðið var við nokkurt snjóruðnings- tæki. Um það leyti urðum við vör við að snjóflóð allmikið var að falla og tókum við þá til fótanna I átt frá vegskálanum, ég á undan en Einar var á eftir mér. Það munaði hársbreidd að flóðið næði okkur en það tók nokkur andartök fyrir flóð- ið að stöðvast og biðum við róleg á meðan en okkur var auðvitað fyrst hugsað til þess að láta fólkið sem beið okkar í vegskálanum vita af okkur", sagði Elín að lokum. En hvernig leið þeim sem biðu inn í vegskálanum? Sigrún Þórisdóttir eiginkona Einars Kristins, sagði: yEg fór inná Óshlíð á móti Einari. I bílnum voru með okkur börnin okkar tvö sem eru 7 og 3ja ára. ................................1 Búið að moka flóðið sem Einar og Elín rétt sjuppu úr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.