Morgunblaðið - 03.05.1990, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 03.05.1990, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1990 47 tefia og gera hinar ýmsu kúnstir, eins og að hlaupa á skautum, áður en þeir fara í sex ára bekk. Það skarð sem amma okkar skil- ur eftir sig verður aldrei fyllt, en einlæg trú hennar á Guð og himna- ríki varð til þess að við vitum að nú er hún hjá Guði, umvafín kær- leik þeirra ástvina sinna, sem gengnir voru á undan henni. Við vitum að ást hennar fylgir okkur öllum alla tíð og að hún mun halda sinni vemdarhendi yfir okkur um ókomna framtíð. Blessuð sé minning hennar. Valdi og Rikki Hún dó í sumarbyijun hún Róra frænka mín. Þessi kona sem mér fannst í barnæsku að hlyti að vera eilíf og óumbreytanleg líkt og per- sónurnar í ævintýrunum sem hún sagði mér svo oft frá þegar ég heim- sótti hana á Grettisgötuna. Og það var nú hátíð þegar maður gisti hjá henni Róru og drakk hnausþykkt súkkulaði úr könnu og hlustaði á sögur og frumsamin ævintýr. Ræktarsemi hennar við þjóðlega menningu ásamt rómantísku eðli og hugmyndaauðgi gerði hana að listilegum sögumanni. Allt var svo skemmtilegt í kringum hana Róru. Með einni setningu gat hún sveipað hversdagslegt umhverfi ævintýraljóma eins og þegar hún benti mér á mjaðarjurtina við snúrustaurinn og sagði: „Finndu hvað hún angar, svo dýrðlega að ekki heimsins dýrustu ilmvötn kom- ast í hálfkvisti við þennan ilm.“ Og litii bakgarðurinn við húsið hennar breyttist í einu vetvangi í lystigarð úr Þúsund og einni nótt. Það var eins og hún Róra væri aldurslaus. Hún átti samleið með ungum jafnt sem öldnum og átti svo auðvelt með að setja sig í ann- arra spor. Frá henni stafaði hlýju og rósemd sem hlaut að laða fólk að henni. En manngildi hennar birt- ist fyrst og fremst í hleypidóma- leysi í garð annarra. Hún var um- burðarlynd friðsemdarmanneskja, sem þó tókst alltaf að lífga upp á mannlífið í kringum sig. Það er dýrmætt að hafa fengið að kynnast henni Róru og hafa átt hana að vini. Þóra Lárusdóttir Ég hef fyrir satt að þegar hún mágkona mín sem nú er borin til grafar var spurð um líðanina síðustu dagana sem hún lifði, þá hafi svarið einatt verið á sama veg. „Mér líður vel,“ hvíslaði Róra okk- ar. Það hefur samt trauðla alltaf verið allur sannleikurinn svona und- ir lokin. Aftur á móti var hún þann- ig af guði gerð þessi kona að fólki leið vel í návist hennar. Ég átta mig ekki alminlega á því hvort það var hlýjan í andlitinu ellegar við- mótið eða þá bara þetta hægláta aðlaðandi bros sem ég þóttist raun- ar stundum merkja ögn af angur- værð í. En að vísu skiptir það ekki máli. Það streymdi bara eitthvað frá henni Róru eins og stundum vill verða, sem ekki verður skil- greint, og fyrir bragðið var bæði svo ógn notalegt að vera í návist hennar og svo var það líka svo fyrir- hafnarlítið ef svo mætti að orði komast. Hún átti ekki viðburðaríkt líf sem svo er kallað, þessi ljúfi vinur okkar allra sem umgengumst hana, nema þá helst ef hægt væri að tala um að sumum auðnist að eiga það í sjálfum sér. Ævintýri sín upplifði hún í ástvinum sínum og gæfa þeirra var auðna hennar og gleðin mest. Þannig var kærleikurinn alla tíð förunautur Róru, mildin og um- hyggjan. Ætli nokkur manneskja í víðri veröld hafi átt henni nokkuð nema gott að gjalda? Ekki undirrit- aður að minnstakosti, svo mikið er víst, sem var svo lánsamur að eign- ast hana fyrir mágkonu. Um leið og við Guðný systir hennar og börnin okkar þökkum henni samfylgdina vottum við börn- um hennar og tengda- og barna- börnum okkar dýpstu samúð. Gísli J. Ástþórsson + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVERRIR JÚLÍUSSON útgerðarmaður, fyrrverandi alþingismaður, andaðist 30. apríl í Landspítalanum. Jarðarförin verður auglýst síðar. ingibjörg Þorvaldsdóttir, börn.tengda- börn, barnabörn og barnabarnabörn. Útför HALLDÓRU GUÐMUNDSDÓTTUR, - Mólandi, Hauganesi, fer fram frá stærri Árskógskirkju laugardaginn 5. maí kl. 13.00. Sigurpáll Sigurðsson, börn og aðrir ástvinir. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, KJARTAN Þ. ÓLAFSSON fiskmatsmaður, fyrrum bóndi að Leirum, Austur-Eyjafjöllum, Hraunbæ 132, Reykjavík, verður jarðsunginn á morgun, föstudaginn 4. maí, kl. 13.30. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju. Jarðsett verður í Fossvogskirkju- garði. Kristín Pétursdóttir, Vigdís Kjartansdóttir, Þorvarður Þórðarson, Pétur Sævar Kjartansson, Ingibjörg Hrönn Sveinsdóttir, Ólafur Marel Kjartansson, Guðný Védís Guðjónsdóttir og barnabörn. BÍLGREINASAMBANDID Bílgreinasambandió heldur vorfund sinn á Hótel Sögu, laugardaginn 5. maí og hefst hann kl. 09:15. DAGSKRÁ: Kl. 09:15 Formaður BGS, Gísli Guðmundsson, setur fundinn. Kl. 09:30-11.15 Sérgreinafundir A) Verkstæðisfundur B) Málningar- og réttingarverkstæði C) Bifreiðainnflytjendur og varahlutasalar D) Smurstöðvar og hjólbarðaverkstæði Kl. 11:30-12:15 Niðurstöður sérgreinafunda. Kl. 12:15-14.00 Hádegisverður og hádegisverðarerindi. Júlíus Sólnes umhverfismála- ráðherra fjallar um umhverfismál og mengunarvarnir í bílgreininni. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna. Stjórnin. (FALKINN SUÐURLANDSBRAUT 8 SiMI 84670 optibelt KÍLREIMAR REIMSKÍFUR OG FESTIHÓLKAR Drifbúnaður hvers konar er sérgrein okkar. Allt evrópsk gæðavara. Veitum tæknilega ráðgjöf við val á drifbúnaði. Það borgar sig að nota það besta. Þekking Reynsla Þjónusta Sjónvarpstœki Sjónvarps- myndavélar Hljómtœkja- samstœður Útvarpsvekjarar Gœðatœki fyrir þig og þína! SMITH& NORLAND Nóatúni 4 - Sími 28300
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.