Morgunblaðið - 03.05.1990, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1990
41
Dæmi um orkukostnað
Ef tekið er dæmi um frystihús
hjá RARIK sem er með 330 kW
meðaltopp og 1320 MWh ársnotk-
un, þá yrði orkukostnaðurinn tæp-
lega 6,4 Mkr samkvæmt gjaldskrá
RARIK. Samkvæmt gjaldskrá RR
þyrfti að greiða fyrir hæsta topp,
eða um 354 kW og yrði kostnaður-
inn þá liðlega 5,7 Mkr. Mismunur-
inn er því 11,8%. Við 100 kW og
sömu nýtingu yrði munurinn um
9%.
Taka má annað dæmi um minna
fyrirtæki, sem er með um 60 kW
afltopp. Samkvæmt ákvæðum í
gjaldskrá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur fengi hann aðeins véla-
notkun selda eftir afltaxtanum, en
aðra notkun væntanlega eftir Al-
mennum taxta (A.l). Hjá RARIK
er heimilt að sammæla alla notkun
á afltaxtanum. í þessu tilfelli getur
dæmið snúist við. Ef um fjórðungur
notkunar er til annars en véla, þá
væri um 5—10% ódýrara að kaupa
orkuna samkvæmt gjaldskrá
RARIK.
Gamlar tölur
Kristján vitnar í athugun sem
gerð var fyrir „nokkrum árum“ sem
hafi sýnt 50% mun. Það getur látið
nærri, því munur á gjaldskrám
RARIK og RR hefur minnkað hin
síðari ár. Raforkuverð beggja veitn-
anna hefur farið lækkandi, sérstak-
lega síðustu 5 ár. Á árunum 1982—
1984 varð mikil hækkun á raforku-
verði og því hægt að sýna fram á
mikla lækkun frá árinu 1984. En
ef skoðað er tímabilið frá 1980—
1990 þá kemur í ljós að orkuverð
RARIK til heimilisnota hefur lækk-
að.um 25% að raungildi og til iðnað-
ar um 12%. Heimilistaxti RR hefur
hinsvegar lækkað nokkru minna á
þessu tímabili og afltaxti RR hefur
reyndar hækkað að raungildi um
alit að 30%. Þannig er verðmunur
heimilistaxta veitnanna „aðeins“
rúm 20% nú en var fyrir 10 árum
um 50%. Verðmunur á afltaxta
hefur minnkað enn meira eða úr
60% í um 10%. (Sjá mynd.)
Meðalverð raforku
Þó svo að gjaldskrárverð RARIK
sé yfírleitt nokkru hærra en hjá
Rafmagnsveitu Reykjavíkur er það
þó ekki algilt. Dæmi um taxta sem
snertir sveitarfélög er götulýsingin.
í því tiiviki er taxti Rafmagnsveitu
Reykjavíkur um 25-----30% hærri
en hjá RARIK, og þegar litið er á
heildarsölu beggja veitnanna kemur
í ljós að meðalverð orku frá RARIK
í smásölu er nokkru lægra en hjá
RR. Ástæðan fyrir því er sú að um
60% allrar smásölu RARIK er til
húshitunar, á verði sem er undir
kostnaðarverði orkunnar frá Lands-
virkjun, þegar tekið hefur verið til-
lit til flutningstaps og kostnaðar
við dreifikerfið.
Höfundur er deildarstjóri
Viðskiptadeildar Rafinagnsveitna
ríkisins.
*
SEYÐIÐ YKKAR EIGIÐ
S S
;tr
ASIU ÆVINTYRI
Asíu ævintýrið er einfalt, en einkar ljúflega samansett, eins og reyndar öll alvöru ævintýri.
Til að njóta þess fullkomlega færðu örlitla aðstoð við undirbúninginn,
síðan seiðir þú þitt eigið ævintýri í Wok-potti sem hitaður er með léttum gasloga.
Japanskt ævintýri:
Nautakjöt með
Sukiyaki sósu,
grænmeti
og salati
Vietnamskt ævintýri:
Svínakjöt eða
rækjur með
Mekong sósu,
grænmeti
og víetnömsku salati
Indónesískt ævintýri:
Lambakjöt eða
smokkfiskur með
karrý sósu,
grænmeti og
salati
Filippeyskt ævintýri:
Kjúklingakjöt eða
nýr fiskur
með Santos sósu,
Santos grænmeti
og salati
SÉRSTAKT TILBOÐ!
5 úrvals sérréttir og kaffi á aðeins 890,- krónur.
Tilboðið gildir alla mánudaga, þriðjudaga og
miðvikudaga.
norrabraut 56, 2. hæð,
bflastæði á bak við húsið
Meiriháttar rými
ima húsi omÁlá
ENGIMARKAÐURINN
Snorrabraut 56.
Opið daglega frá kl. 13.00 til 1
Laugardaga frá kl. 10.00 til 16
\
s