Morgunblaðið - 03.05.1990, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1990
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNIN
Liverpool áfram í banni
Þær fréttir bárust frá aðalstöðvum Knattspyrnusambands Evrópu
í gær að Liverpool yrði áfram í banni frá þátttöku í Evrópukeppn-
inni í knattspyrnu. Félagið verður a.m.k. í banni í þrjú ár til viðbótar,
en bann var sett á ensk félagslið eftir harmleikinn í Brussel 1985,
þar sem 39 áhorfendur fórust þegar Liverpool og Juventus léku til
úrslita í Evrópukeppni meistaraliða.
Miklar líkur eru á að önnur ensk félög fái að taka þátt í Evrópu-
keppninni næsta keppnistímabil.
HANDKNATTLEIKUR / SPANN
Létt hjá Teka í Madrid
KRISTJÁN Arason og félagar
hans hjá Teka unnu léttan sig-
ur, 23:19, á Atletico Madrid í
1. deildarkeppninni á Spáni í
gær. „Þetta var mun léttara en
við reiknuðum með. Við náðum
strax góðum tökum á leiknum
og vorum með forustuna f rá
upphafi," sagði Kristján Ara-
son.
Kristján, sem skoraði þrjú mörk
í leiknum, á möguleika á að
verða Spánarmeistari. Ef Teka nær
titlinum nær Kristján þeim áfanga
að verða meistari í þremur löndum.
Hann var meistari með FH og síðan
Gummersbach í V-Þýskalandi.
„Lokaspretturinn verður erfiður.
Við erum með aðeins eins stigs for-
skot á Barcelona. Auðvitað er
draumurinn meistaratitill. Maður
er í þessu til að vinna titla,“ sagði
Kristján. Cabanas átti mjög góðan
leik með Teka og skoraði átta mörk.
Teka leikur næst gegn Alicante
heima og síðan á félagið erfiðan
útileik gegn Caja Madrid, sem vann
Bidasoa 30:20 í gærkvöldi.
Mm
FOLK
■ KENNY Dalglish, fram-
kvæmdastjóri Liverpool, kom inn
á sem varamaður gegn Derby og
lék síðustu 20 mín. leiksins við
HBI^B mikinn fögnuð
FráBob áhorfenda. Leik-
Hennessy menn Liverpool
lEnglandi tóku ^ mgt; gng.
landsbikarnum eftir
leikinn, sem þeir unnu, 1:0. Dalgl-
ish, sem er 39 ára, var í peysu
númer 14.
■ DOUG Ellis, forseti Aston
Villa, afhenti Alan Hansen, bikar-
inn. En það var einmitt Villa sem
barðist við Liverpool um bikarinn.
H PETER Beordsley, landsliðs-
maður Englands, var eini leikmað-
ur Liverpool sem var ekki staddur
á Anfield Road. Sögusagnir eru
nú uppi um að hann sé á förum til
Leeds, en hann er óhress með að
hafa fengið lítið að leika að undanf-
ömu.
H LIVERPOOL ætlar ekki að
kaupa írsaelmanninn Ronnie Ros-
enthal, sem félagið hefur haft í
láni frá Standerd Liége. Þegar
Rosenthal, sem hefur skorað fimm
mörk á stuttum tíma fyrir Liver-
pool, átti að kosta 500 þús. pund
þegar hann kom fyrst til félagsins.
Það verð var síðan hækkað í 600
þús. pund og í gær vildi Standard
Liege fá 1,2 millj. punda fyrir hann.
H FRANSKA félagið Metz hefur
boðið Standard Liege 750 þús.
pund fyrir Rosenthal. Hann sagði
aftur á móti í gær, að hann hafi
áhuga að leika með félagi í London.
H LOU Macari, fyrrum fram-
kvæmdastjóri West Ham og Swin-
don, var handtekinn á hóteli í
Manchester kl. sjö á þriðjudags-
morgun, 1. maí. Macari var settur
í steininn á lögreglustöðjnni í Brist-
ol ásamt þremur öðrum mönnum
sem hafa verið hjá Swindon. Grun-
ur leikur á að Macari hafi verið
maðurinn á bak við að Swindon
greiddi leikmönnum „svarta pen-
inga“ til að losna við skattgreiðslur.
H MACARL á nú yfir höfði sér
fjársektir. Ef hann verður fundinn
sekur, en ef félagið verður dæmt,
getur svo farið að það verði látið
fara niður úr 2. deild - í þá þriðju
eða jafnvel fjórðu.
H BRISTOL Rovers tryggði sér
sæti í 2. deild í fyrsta sinn síðan
1981 er liðið sigraði Bristol City,
3:0 í ensku 3. deildinni í gær. Fram-
kvæmdastjóri Bristol City er
Gerry Franeis, fyrrum fyrirliði
enska landsliðsins.
H NORTHAMPTON Town féll í
4. deild í gærkvöldi er liðið gerði
markalaust jafntefli við Tranmere
Rovers á heimavelli.
ISHOKKI / HMISVISS
Sovétmenn
meistarar í
áttunda sinn
undir sljóm -
Tikhonovins
Juventus lagði
Fiorentina
JUVENTUS vann fyrri úrslita-
leikinn gegn Fiorentina í
UEFA-bikarkeppninni, 3:1, í
Tórfnó ígærkvöldi. Seinni leik-
urinn verður leikinn 300 km frá
Fiorentina, sem var sett í
heimaleikjabann í keppninni
eftir ólæti á vellinum í leik gegn
Mónakó.
Roberto Galia færa Juventus
óskabyrjun er hann skoraði
eftir aðeins þrjár mín. við mikinn
fögnuð 45 þús. áhorfenda. Renato
•Buso jafnaði fyrir gestina á tíundu
mín. Eftir það náðu leikmenn Fior-
entina yfirhöndinni, en Tacconi,
markvörður Juventus kom í veg
fyrir að þeir skoruðu mörk. Hann
varði hvað eftir annað meistara-
lega. Þeir Luigi Casiraghi og Luigi
De Agostini gerðu út um leikinn
með tveimur mörkum í seinni hálf-
leik.
Seinni leikurinn verður jafnframt
kveðjuleikur Dino Zoff, sem verður
ekki áfram þjálfari liðsins.
SOVÉTMENN urðu heims-
meistarar í íshokkí eftir sigur á
Tékkum, 5:0, íBérn íSviss í
gær. Þetta var áttundi heims-
meistaratitill Sovétmanna
siðan Viktor Tikhonovin tók við
þjálfun liðsins 1977. Svíar
höfnuðu í öðru sæti, sigruðu
Kanada, 6:4, í síðasta leik
mótsins.
Sovétmenn unnu alla þrjá leiki
sína í fjögurra liða úrslita-
keppninni og fengu aðeins á sig
eitt mark. Þeir unnu Svía, 3:0,
Kanadamenn, 7:1 og síðan Tékka
í gær, 5:0. í riðlakeppninni töpuðu
þeir reyndar fyrir Svíum og gerðu
jafntefli við Kanada.
„Þetta var mjög mikilvægur sig-
ur fyrir liðið og eins fyrir mig,“
sagði Tikhonovin, þjálfari Sovét-
manna. „Við höfum nú sannað það
Reuter
Viktor Tikhonovin, þjálfari sovéska landsliðsins í íshokkí, fagnar hér átt-
unda heimsmeistaratili sínum og tekur.utan um yngsta leikmann liðsins, Pavel
Burre, sem er aðeins 18 ára gamall.
Setning féll niður
Ein setning féll út niður í frá-
sögn af Íslandsglímunni 1990 í
vinnslu blaðsins á þriðjudaginn.
Rétt er málsgreinin í heild þann-
ig, feitletrað það sem vantaði:
„Eg fann mig rosalega vel og
náði alltaf að vera skrefi á und-
an andstæðingunum," sagði
Ólafur Haukur. Þetta era orð
að sönnu því að flest öllum
glimum Ólafs var lokið á fimm
til tíu sekúndum. Úrslitaglíman
tók þó heilar 18 sekúndur, en
í henni lagði Ólafiir helsta
andstæðing sinn, Jóhannes
Sveinbjörnsson úr HSK, með
vinstri fótar klofbragði. Þetta
var lengsta glima Ólafs og segir
það nokkuð um yfirburði hans.
Þá var Baldur Bjarnason,
knattspymumaður í Fram,
rangfeðraður i myndatexta og
sagði Bragason. Beðist er vel-
virðingar á mistökunum.
KNATTSPYRNA / UEFA-KEPPNIN
einn einu sinni að sovéskt ishokkí
er enn á toppnum. Við vorum með
nýtt lið og það hefur sjálfsagt hjálp-
að okkur að við vorum ekki taldir
mjög sigurstranglegir fyrir mótið,^..
sagði þjálfarinn.
Pavel Wohl, þjálfari Tékka, sagði
eftir leikinn í gær að Sovétmenn
hafi sýnt það í mikilvægustu leikj-
unum á mótinu að liðið er það besta
í heiminum í dag. „Við áttum smá
möguleika í fyrsta leikhluta, en eft-
ir það var leikurinn tapaður," sagði
Pavel.
Svíar unnu silfurverðlaunin með
því að leggja Kanadamenn að velli, '
6:4. Tákkar hlutu bronsverðlaunin,
hlutu þijú stig eins og Svíar, en
lakara markahlutfall.
Tommy Sandlin,_ sem stjómaði
sínum síðasta leik fyrir Svía, sagði
eftir leikinn að þeir hafi lært af
leiknum við Tékka. En Svíar kom^
ust þá í 4:1 og síðan 5:3 en klúðf^
uðu leiknum niður I jafntefli, 5:5.
„Við löguðum vömina og voram
ákveðnir í að láta þetta ekki endur-
taka sig,“ sagði Sandlin.
„Fyrir viku síðan voram við farn-
ir að gæla við að vinna gullverð-
launin, en nú förum við heim án
verðlauna og það er sárt,“ sagði
Dave King, þjálfari Kandamanna.
Lokastaðan í úrslitakeppninni:
Sovétríkin............3 3 0 0 15: 1 G
Sviþjóð...............3 1 1 1 11:12 3
Tékkóslóvakía.........3 111 8:12 3
Kanada................3 0 0 3 7:16 0
KNATTSPYRNA
Bayern meistarí
Mans Pfliigler tryggði Bayem
Múnchen tólfta meistaratitil-
inn er hann skoraði sigurmarkið,
1:0, gegn St. Pauli í Múnehen á
16. mín. í gærkvöldi. Yfírburðir
meistaranna voru miklir í leiknum.
Þetta var fimmti titill þeirra á sex
árum.
REYKJAVÍK
KNATTSPYRNA / SVISS
3,6 milljón krónum úthlutað
Afreks- og styrktarsjóður
Reykjavíkur úthlutaði í gær 3,5
milljónum króna í styrki til félaga í
Reykjavík. Fjórtán félög fengu styrk
að upphæð 200-400 þúsund krónur,
hvert félag.
Handknattleiksdeild Fram og
i knattspyrnudeild Vajs fengu hæstu
styrkina, 400.000 kr. hvort félág,
fyrir íslands og bikarmeistaratitla
1989. Knattspyrnudeild Vals fékk
300.000 kr. fyrir íslandsmeistaratitil
í kvennaflokki og handknattleiksdeild
Fram sömu upphæð fyrir íslands- og
bikarmeistara í kvennaflokki. Blak-
deild Víkings hlaut sama styrk fyrir
íslands- og bikarmeistaratitil.
Átta félög fengu styrk að upphæð
200.000 kr. TBR, Ösp, Fjölnir og
skíðadeildir Fram, ÍR og Víkings,
fyrir öflugt félags- og unglingastarf,
Skylmingafélag Reykjavíkur, vegna
nýliðastarfs og frjálsíþróttadeild ÍR
vegna bikarmeistara í sveitakeppni
og unglingastarf. Þá fengu „Fram-
konur" 200.000 kr. viðurkenningu
'fýrik jfér#^rt.;,,I1^jJ 1 íri>'a •
Luzern gegn Grasshoppersi^
Vítaspyrnuskot réðu úrslitum í
leik Luzern gegn Wettingen í
svissnesku bikarkeppninni á þriðju-
dag. Dominique Cina hjá Wettingen
tók fyrstu vítaspymuna þegar leik-
ar stóðu 0:0 eftir framlengingu og
hitti beint í stöng en þeir sem á
eftir honum komu settu boltann í
netið. Luzem sigraði 5:4 og var
, Sigprður prétai-s^on meðpl þeirra
sem skoruðu.
Sigurður lék á miðjunni. Hann
skoraði á 19. mínútu en var rang-
stæður. Grasshoppers, liðið sem
hann ætlar að leika með næstu
þijú árin, sigraði Basel 1:0 og mun
mæta Luzern í undanúrslitum bik-
arkeppninnar hinn 22. maí. Xamax
spilar þá gegn Lausanne.
1 v^jS.SÍir.b 'ilj ••Í'11Ó:;. i':cv i