Morgunblaðið - 03.05.1990, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1990
Grafarvogur:
238 milljónum varið til
íþróttamiðstöðvar og skóla
DAVÍÐ Oddsson borgarstjóri, kynnti í gær íbúm Grafarvogshverf-
anna, fyrirhugaða byggingu íþróttamiðstöðvar, byggingu Hamra-
skóla, lokaáfanga við Foldaskóla og væntanlegan Húsaskóla, á opnum
fúndi í gær. Fundurinn var haldinn í Fjörgyn, að tilhlutan Ungmenna-
félagsins Fjölnis og Foreldra- og kennararfélags Foldaskóla. Upp-
drættir ásamt likönum af hverfínu verða áfram til sýnis í Fjörgyn
næstu daga.
í íþróttamiðstöð, sem reist verður
við Dalhús í Húsahverfi, verður
sameinuð aðstaða fyrir skólaíþrótt-
ir, almenningsíþróttir og keppnisað-
staða fyrir íþróttafélög hverfisins.
Heildarstærð hússins er um 6.100
fermetrar auk sundlaugar, sem er
325 fermetrar og þriggja heitra
potta, nuddpotts og vaðlaugar.
Iþróttasalurinn er 22x44 metrar
með áhorfendapalla fyrir 1.500
manns. Verður 25 milljónum króna
varið til framkvæmdanna á þessu
ári.
Ákveðið hefur verið að hefja
byggingu Hamraskóla á þessu ári
og er gert ráð fyrir 65 milljónum
til þess á árinu en heildarkostnaður
er um 275 milljónir. Skólinn er um
2.700 fermetrar og ætlaður nem-
endum á aldrinum 6 til 12 ára. Þar
verða_12 almennar kennslustofur,
þtjár sérgreinastofur, stofa fyrir
sérkennslu, bókasafn, samkomusal-
ur, eldhús og aðstaða fyrir nemend-
ur utan kennslutíma. Leikfimishús
skólans er í sérstakri byggingu en
tengt skólanum með gangi. Að sögn
Davíðs er gert ráð fyrir heilsugæslu
í skólanum þrátt fyrir þá óvissu sem
ríkir varðandi fyrirkomulag og
stjórnun almennra heilsugæslu í
Reykjavík.
Tæplega 148 milljónum verður
varið til framkvæmda við Folda-
skóla og er fyrst og fremst gert ráð
fyrir að ljúka við 3. áfanga skólans.
Á efri hæð verða 9 kennslustofur
sem teknar verða í notkun í haust.
Þá mun verulegt átak verða í frá-
gangi á ióð skólans í sumar og verð-
ur lögð áhersla á aðkomuna frá
Fjallkonuvegi, bifreiðstæðin þar og
á leikvellina næst húsunum.
Næsta verkefni er Húsaskóli en
hann mun standa í næsta nágrenni
við íþróttamiðstöðina og nýta þar
leikfimi og sundkennslu. Bygging
skólans hefur enn ekki verið tíma-
sett, en ræðst af uppbyggingu í
Húsahverfi.
VEÐUR
/ DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR í DAG, 3. MAÍ
YFIRLIT í GÆR: Suðvestan kaldi víðast hvap á landinu. Skúrir voru
á Suður- og Vesturlandi. Þurrt var á Norðaustur- og Austurlandi.
SPÁ: Suðvestan gola eða kaldi. Þurrt og víða bjart veður á Norð-
ur- og Austurlandi og allt að 13 stiga hiti en smáskúrir.og nokkru
svalara suðvestan til.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG og LAUGARDAG: Fremur hæg suðvestan-
átt. Lítilsháttar súld á Suöur- og Vesturlandi en þurrt og víða bjart
veður norðaustan til. Hiti 7-12 stig, hlýjast á Austurlandi.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
s, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
rrr
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * #
* * * * Snjókoma
---------—
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—)- Skafrenningur
Þrumuveður
vn / VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 10 skýjað Reykjavík 6 haglél á s.kl.
Bergen 18 léttskýjað
Helsinki 18 léttskýjað
Kaupmannah. 16 léttskýjað
Narssarssuaq +5 skýjað
Nuuk +2 snjókoma
Osló 22 léttskýjað
Stokkhólmur 22 léttskýjað
Þórshöfn 9 súld
Algarve 22 léttskýjað
Amsterdam 24 heiðskirt
Barcelona 20 heiðskírt
Berlín 22 léttskýjað
Chicago 6 skýjað
Feneyjar 22 þokumóða
Frankfurt 25 skýjað
Glasgow 18 léttskýjað
Hamborg 22 heiðskírt
Las Palmas vantar
London 24 heiðskírt
Los Angeles 14 léttskýjað
Lúxemborg 25 léttskýjað
Madríd 19 skýjað
Malaga 18 skýjað
Mallorca 22 hálfskýjað
Montreal 8 léttskýjað
New York 15 alskýjað
Orlando 23 heiðskírt
París 24 heiðskírt
Róm 20 léttskýjað
Vín 21 léttskýjað
Washington 17 léttskýjað
Winnipeq +3 léttskýjað
„ Morgunblaðið/Bjami
Ibúar í Grafarvogi virða fyrir sér uppdrætti af Hamraskóla ásaint
Davíð Oddsyni borgarstjóra.
Ný 757 þota bætist
í flugflota Flugleiða
Seattle. Frá Ágústi Inga Jónssyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
FLUGLEIÐIR fengu í gær afhenta aðra vélina af gerðinni Boeing 757,
Fanndísi, og er hún væntanleg til landsins í fyrramálið undir flug-
stjórn Stefáns Gunnarssonar. Auk forystumanna Flugleiða var Vigdís
Finnbogadóttir, forseti ísiands, Charles J. Cobb, sendiherra Banda-
ríkjanna á íslandi, og ýmsir forystumenn í íslensku atvinnulífi viðstadd-
ir athöfhina í Seattle. Fanndís er þriðja vélin sem Flugleiðir fá á um
mánuði og er verðmæti þeirra tæplega 8 milljarðar króna.
Það var Frank Shrontz, forstjóri
og stjórnarformaður Boeing, sem
afhenti Sigurði Helgasyni, forstjóra
-Flugleiða, Fanndísi í gær og er þá
lokið fyrri hluta endurnýjunar milli-
landaflota Flugleiða. Á síðasta ári
tók félagið í notkun tvær nýjar Bo-
eing 737-400 vélar, í síðasta mánuði
bættust vélar af gerðinni 757 og 737
við og nú 757 þotan Fanndís. Á
næsta ári fá Flugleiðir tvær vélar
af gerðinni 737-400 og 757, en á
þessu stigi er þó ekki ljóst hvort fé-
lagið tekur þær vélar í eigin rekstur.
Forseti íslands, forystumenn
Flugleiða og fylgdarlið skoðuðu Bo-
eing verksmiðjurnar í gær og meðal
annars fór Vigdís Finnbogadóttir í
Boeing 757 flugherminn. Flugstjóri
í þeirri „ferð“ forsetans var Sigríður
Einarsdóttir, flugmaður, einn 42
flugmanna sem hafa verið og verða
þjálfaðir á 757 vélarnar. Sigríður er
fyrsta konan í flugliði Flugleiða, sem
flýgur þotum félagsins. Hún byijaði
á Fokkerum í innanlandsflugi, þá
tóku Boeing vélar við á Evrópuleiðum
og nú verður hún flugmaður á 757
vélunum á Norður-Atlantshafsleið-
ini.
Vigdís Finnbogadóttir er í Seattle
í boði Flugleiða, íslendingafélagsins
þar og vinafélags Reykjavíkur og
Seattle. Á þriðjudag heimdótti for-
setinn norrænt minjasafn, sem komið
hefur verið upp í Seattle af þjóðrækn-
isfélögum í borginni. Mikill fjöldi
Norðurlandabúa settist að í Was-
hington-fylki á sínum tíma og eru
til dæmis um fimm þúsund manns
af íslensku bergi brotnir á þessum
slóðum. Yfir þijú hundruð manns á
öllum aldri heilsuðu forsetanum í
móttöku á þriðjudagskvöld.
Arnarflug:
Helmingur flugvall-
arskattsins greiddur
ARNARFLUG greiddi Flugmálastjórn í gær innheimtan flugvallarskatt
sem félagið átti að standa skil á fyrir 15. mars sl. Enn er ógreiddur
innheimtur flugvallarskattur sem Arnarflug átti að standa skil á fyrir
15. apríl og nemur hann einnig um 1,6 milljón króna. Fjármálastjóri
Flugmálastjórnar segir að leitað verði aftur til lögreglustjóra um að
stöðva rekstur Arnarflugs, verði skatturinn ekki greiddur.
Flugmálastjóri hafði sent Amar-
flugi kröfu um að greiða flugvallar-
skattinn sem gjaldféll 15. mars og
síðan leitað liðsinnis lögreglustjóra
til að stöðva rekstur Arnarflugs yrði
flugvallarskatturinn ekki greiddur
fyrir síðustu mánaðamót. Félagið
fékk frestinn síðan framlengdan til
gærdagsins en greiddi þá ekki þann
helming upphæðarinnar sem féll í
gjalddaga eftir að krafan um lokun
vár gerð, að sögn Guðrúnar Mogen-
sen fjármálastjóra Flugmálastjórnar.
Guðrún sagði að Flugmálastjóm
myndi nú gera kröfu um að Arnar-
flug greiði þegar það sem á vantar
flugvallarskattsins, og jafnframt
leita aftur til lögreglustjóra um lok-
un. Hún sagði að það yrði á hendi
lögreglustjóra hvaða gjaldfrestur
yrði veittur í því sambandi.
Guðjón F. Teitsson fyrr-
verandi forstjóri látinn
GUÐJÓN F. Teitsson, fyrrverandi
forstjóri Skipaútgerðar ríkisins,
lést á Landakotsspítala í
Reykjavík að morgni 2. maí, 84
ára að aldri.
Guðjón var fæddur 14. febrúar
1906 að Grímarstöðum í Andakíls-
hreppi í Borgarfirði, sonur hjónanna
Teits Þorkels Símonarsonar bónda
og oddvita þar og konu hans Ragn-
heiðar Daníelsdóttur Fjeldsted. Lauk
gagnfræðaprófi frá Flensborg 1923
og burtfararprófi frá Samvinnuskól-
anum 1926. Skrifstofustjóri Skipaút-
gerðar ríkisins frá stofnun hennar í
árslok 1929 til 1953 og forstjóri frá
1953-76, auk þess sem hann hefur
gegnt öðrum trúnaðarstörfum.
■' Guðjónvarókvænturogbarnlaus: - -