Morgunblaðið - 03.05.1990, Side 17

Morgunblaðið - 03.05.1990, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAI 1990 17 Ríkisútvarpið: Djasshátíð í eina viku í tilefhi sextíu ára afmælis í TILEFNI af 60 ára afmæli sínu á þessu ári gengst Ríkisútvarpið fyrir djasshátíð, sem haldin verður 6.-13. maí. Dagskrá hátíðarinn- ar er felld inn í norræna útvarpsdjassdaga, sem nú eru haldnir í þriðja sinn. Alls verða haldnir um 50 tónleikar þessa daga og munu um 200 hljóðfæraleikarar taka þátt í hátíðinni. Leikið verð- ur á hverju kvöldi á Hótel Borg, Fógetanum, Duus-húsi, Gauk á Stöng, Fimmunni, Horninu, Óperukjallaranum og Kringlukránni. Þrjár norrænar hljómsveitir koma hingað á hátíðina og margar íslenskar hljómsveitir taka þátt í hátíðinni. Fólki verður gefinn kost- ur á að kaupa sérstök aðgangs- kort, „djasskort“, og gilda þau á alla staðina. Sérstakir norrænir dagar verða í Iðnó fimmtudags- og föstudagskvöld og á laugar- dagskvöld verða tónleikar á Hótel Borg, þar sem allar norrænu sveit- irnar koma fram. Útvarpað verður á báðum rásum Ríkisútvarpsins öll kvöld. Af íslands hálfu taka þátt með- al annars stórsveitir Kópavogs, Vesturlands, Tónlistarskóla Keflavíkur, Tónlistarskóla FÍH og Tónmenntaskóla Reykjavíkur. Af öðrum sveitum má nefna Gamma, Súld, Vini Dóra, Sveiflusextettinn, Kvartett Reynis Sigurðssonar, Kuran-Swing, Kvartett Guðmund- ar Ingólfssonar og Hljómsveit El- lenar Kristjánsdóttur, sem er full- trúi íslands á norrænum útvarps- djassdögum. Djasstónleikar verða í útvarpshúsinu við Efstaleiti og verður þeim útvarpað á Rás 1. Lokatónleikar djassdaganna verða í Borgarleikhúsinu, þar sem norræn stórsveit undir stjórn Jukka Linkola leikur verk eftir stjórnandann, Ole Koch Hansen, Gugge Hedrenius og Stefán S. Stefánsson. Fulltrúar íslands í sveitinni verða Asgeir Steingríms- son, Rúnar Georgsson, Stefán S. Stefánsson, Sigurður Flosason og Björn Thoroddsen. Zen - kynning Jakusho Kwong Roshi kínverskættaður Bandaríkja- maður kynnir og svarar spurn- ingum um hugleiðslu formið Zen. Kynningarfyrirlesturinn fer fram laugardaginn 7. maí í húsnæði Guðspekifélagsins í Inqólfsstræti 22 kl. 10.00. Aðgangur okeypis. Zen - hópurínn. Meira en þú geturímyndad þér! < CO O to O X < Þarna sérðu Hauk. Hann er sæll því nú hefur hann efni ó betri veiðisvæðunum. Haukur er mikill áhugamaður um veiðar. Þar til fyrir nokkrum árum lét hann sér nægja silungsveiðar og að hlusta á veiðisögur annarra úr „stóru“ ánum. Það var svo fyrir 3 árum, þegar yngsta barnið flutti að heiman, að þau hjón minnkuðu við sig húsnæðið og losuðu þannig um 4.000.000 kr. á núvirði. Að ráðum ráðgjafa Verð- bréfamarkaðar Fj árfestingarfélagsins keyptu þau Tekjubréf fyrir þessa upphæð. Miðað við 9% raunávöxtun fá þau 30.000 kr. skattfrjálsar útborg- aðar mánaðarlega. Þetta þýðir að nú geta hjónin veitt sér eitt og annað sem þau áður þorðu ekki að láta sig dreyma um og nú er það Haukur sem segir veiðisögurnar. Ef þeim dytti í hug að njóta lífsins í enn ríkari mæli eiga þau þann möguleika að ganga á höfuðstólinn. Fjóru milljónimar þýddu þannig 40.000 kr. mánaðarlaun í 15 ár miðað við 9% raunvexti. Eða eins og Haukur orðar það: „Þeir Gska sem róa“! VERÐBRÉFAMARKAÐU R FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF HAFNARSTRÆTI28566 • KRINGLUNNI 689700 • AKUREYRI10100

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.