Morgunblaðið - 03.05.1990, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 03.05.1990, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAI 1990 23 Hugleiðingar um kvóta eftir Garðar Pálsson Fiski- og útvegsmenn hafa um áratugi haft nytjahald á fiskimiðun- um við íslands. Veðurfarslega eru þetta einhver erfiðustu fiskimið í heimi, það sannar hinn hái tollur, sem hafið tekur árlega. Ægisdætur eru allt annað en blíðar í faðmlögum sínum og það þarf því bæði kjark og þor til að sækja fang í sjó. Fiski- og útvegsmenn hafa einir þá getu, þekkingu og sóknarhug, sem þarf til að nytja þessa auðlind, svo hámarksafrakstur náist. Þeim eigum við áfram að treysta fyrir nýtingu þessarar auðlindar, en án endurgjalds, annað er vart til um- ræðu eins og málum er komið í dag. Því verður þó ekki neitað að sumt hefði betur mátt fara, t.d. hvað varðar nýtingu og meðferð aflans. Allt þjóðfélagið er starfs- skipt, menn gerast sjómenn, bænd- ur, iðnaðar- og verslunarmenn svo eitthvað sé nefnt. Aldrei getur það talist hagkvæmt, að allir séu að grauta í öllu. Fólk lærir til hinna ýmsu starfa og öðlast síðan verk- þjálfun, sem skilar sér í betri af- komu fyrir þjóðarbúið. Fiskimiðin Fiskimiðin í kring um ísland eru sameign þjóðarinnar og þá sameign má aldrei láta af hendi við einn eða neinn. Þannig þarf að skrá það í nýjum lögum um kvótakerfi, ef samþykkt verða. Sjávarútvegsmálaráðuneytið fer með yfirstjórn þessara mála og út- deilir veiðiheimildum eða kvóta í byijun hvers kvótaárs. Aflakvótinn skal að 80 hundraðshlutum miðast við afla síðustu 4 ára og að 20 hundraðshlutum við afla síðasta árs hjá hveijum veiðileyfisumsækjanda. Afrakstrarþol Sjávarútvegsmálaráðuneytið skal í einu og öllu fara eftir tillögum Hafrannsóknastofnunar um há- marksnýtingu hinna mismunandi fiskistofna, með plús eða mínus 5% fráviki. Fullyrða má að engir þegn- ar þjóðfélagsins eru hæfari í slíkri tillögugerð, en þeir sem byggja allt sitt í vísindalegum vinnbrögðum. Ef ráðuneytið nýtir sér þess 5% heimild til hækkunar, þá skal öll aukningin renna til ráðuneytisins, sem útdeilir þeim síðan til sjávar- plássa, sem standa höllum fæti at- vinnulega séð. Frumvarp að nýju kvótakefí Ef nýtt kvótakerfi er réttlátasta leiðin til að skipta aflaheimildum á milli fiskiskipa og engin betri leið í augsýn, þá eiga ný lög þar að lútandi að taka mið af því. Enginn vafi má leika á því, að kvóta er aðeins úthlutað til eins árs í senn og þá í formi nytjahalds en ekki eignar. Öllum kvóta skal útdeilt með tvíhliða viðmiðun í huga, eða í þunga og tölu fiska. Allur þorskur undir tveimur kílóum að þyngd sker niður kvóta viðkomandi skips. Kjör- stærð þorsks er frá þremur til sex kílóum. Engin bein greiðsla kemur fyrir veiðiheimild eða kvóta, en þar á móti kemur, að allir sem fá úthlut- að kvóta skuldbinda sig í einu og öllu að fara eftir þeim reglum sem ráðuneytið setur og standa eða falla með þeim leikreglum, sem markað- urinn býður upp á hveiju sinni án beinna styrkja frá ríkinu. Garðar Pálsson yFiskimiðin í kring um Island eru sameign þjóðarinnar og þá sam- eign má aldrei láta af hendi við einn eða neinn. Þannig þarf að skrá það í nýjum lögum um kvótakerfí, ef sam- þykkt verða.“ Aflakvóti Aflakvóta má hvorki gefa, leigja né selja. Ef kvóti verður ekki nýttur að fullu á kvótaárinu, þá skal hon- um skilað aftur til ráðuneytisins til ráðstöfunar. Engum afla, sem á skip kemur, má henda aftur frá borði, hvorki afskurði né heilum fiski. Ef skip eru leigð eða seld skal ávallt leita samþykkis ráðuneytisins fyrir þeirri framkvæmd, ef málið snertir kvóta. Sama gildir um úreldingu og nýsmíði. Rétt er að allir veiðieftirlitsmenn verði eiðssvarnir í framtíðinni. N ýbyggingarsjóður Hver veiðileyfishafi skal leggja til hliðar 3-5% af afláhlut útgerðar- innar (brúttó) í nýbyggingarsjóð. Sjóðurinn skal ávaxtaður í Seðla- banka íslands á nafni veiðileyfis- hafa. Sjóðurinn skal verðtryggður með 4,5% ársvöxtum. Nánari reglur verði settar um sjóðina. Hagsveiflusjóður Stofnaður skal hagsveiflusjóður hjá hveijum veiðileyfishafa fyrir sig. Sjóðurinn skal ávaxtaður í Seðlabanka Islands á nafni veiði- leyfishafa. Sjóðurinn skal verð- tryggður með 4,5% ársvöxtum. Inn- Og útgreiðslur í sjóðinn fara eftir einföldum markaðsreglum og hag- sveiflum. Nánari reglur verða settar um sjóðinn. Með þessari tilhögun yrði pólitískum hrossakaupum haldið utan við sjóðina. Lokaorð Þorskafli á íslandsmiðum var um það bil 400.000 til 450.000 tonn á ári, þegar útlend veiðiskip sóttu óhindrað á íslandsmið. Hvað veldur því að slíkur afli fæst ekki lengur? Við því er aðeins eitt svar, stjórn- leysi, rányrkja og ill meðferð á afla. Það sem er hvað sárast við þessar tölur er að við engan er að sakast nema okkur sjálfa, þar sem við sitj- um svo að segja einir að veiðunum. Höfundur er deildarstjóri skipatæknideildar La ndhelgisgæslunnar. Anna S. Björnsdóttir Ljóðabók- in Strendur er komin út Ut er komin ljóðabókin Strend- ur, eftir Onnu S. Björnsdóttur sem einnig er útgefandi. Bókin hefur að geyma 40 ljóð og er yrkisefnið einkum ástin og tilver- an. Lis Johansen myndskreytti bók- ina. Prentsmiðjan Oddi sá um setn- ingu og prentun. Fjórir sluppu vel frá veltu BIFREIÐ valt á Eyrarbakka að- faranótt sunnudags og stór- skemmdist. Ökumaður og þrír far- þegar sluppu með minni háttar meiðsli. Samkvæmt upplýsingum lögregl- unnar á Selfossi er mikil hálka á öllum vegum í umdæmi hennar. Bif- reiðin sem valt er mikið skemmd, jafnvel ónýt, og er talin mikil mildi að slys voru lítil. Ajax hreingerningalögur _ A_ 750 ml.............. ÍOV Botaniq þvottaduft .,A 75 di. 469 Formula '77 ræstikrem AA 500 ml................02 McVities homeweat 30% meira , AA 300 gr.............. 1 OO Victöria kremkex AA 300 gr................OT Karen Volf . franskarvöfflur..... IVi Sofline bleiur ... 10-15 kg, 60 stk.......YOY Beech Nut barnamatwua st. 1 og 2............Sw Maling sveppir . saxaðir, 425 gr..... IUO Maling aspas, K.J. fiskibollur . na 850 gr.............. I Y Y Neptuna túnfiskur olía/votn, 185 gr...../ Y Skælskör jarðarberja-, hindberja- og sólberjasulta . ,A 750 gr.............. I OY Toro stroganoffgryte.....154 Vi-Jon Lotion Extra Care OOQ Surcare barnalotion. 250 ml................ 14Y Cheerios . AA 425 gr.............. 1 YY DDS flórsykur ,A 500 gr................. OY Kartöflumjöl , _ 500 gr..............05 Melroses te n, Pfanner eplasafi ð. 1 Itr............... 05 Ecjils appelsínudjús ^ ^ Hunts Barbequesósu^ Kjarna jarðarberja- qrautur 149 Tilboð vikunnar eru sex: og hórnæring 2x500 ml......... Kartöflur í 5 kg pokum Pf- k9................. Laukur pfkg................... Sítrónur pr- kg................. Appelsínur Sunzest pakkaðnr, pr. kg....... Rófur Pr- kg................. 3591 F#K*C* maískorn 69 1/2 dós Skælskor appelsínu- marmelaöi Bíótex ’******+# 249 'gen sópufögur 185 ón ilms 199 m. ilmi Sun»<“d túsi*** HHP BN imdri***. <1 pfl

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.