Morgunblaðið - 03.05.1990, Side 24

Morgunblaðið - 03.05.1990, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1990 Jorma Panula hljómsveitarsljóri. Matti Raekallio píanóleikari. Sinfóníuhlj ómsveitin: Finnarnir Jorma Pan- ula o g Matti Raekallio á áskriftartónleikum Hið konunglega félag breskra myndhöggvara: Olöfii Pálsdóttur afhent viðurkenningarskjal OLOFU Pálsdóttur, mynd- höggvara, hefiir í London verið afhent viðurkenningarskjal til staðfestingar á heiðursfélaga- nafnbótinni, sem Konunglega breska myndhöggvarafélagið, Royal Society of British Sculpt- ors, sæmdi hana fyrir nokkru. Afhcndingin fór fram í móttöku sem íslensku sendiherrahjónin í Londóft, Helgi Ágústsson og Her- vör Jónasdóttir, héldu í íslenska sendiherrabústaðnum að við- stöddum ýmsum gestum, m.a. aðal listgagnrýnanda The Times, John Russel Taylor og hinum þekkta listmálara, Nicholas Egon. Það var forseti Konunglega breska myndhöggvarafélagsins, John Rivera, sem afhenti Ólöfu Ólöf Pálsdóttir, myndhöggvari. heiðursskjalið. Sagði Rivera að þessi heiðurs- félaganafnbót væri vottur um það hve mikils list Ólafar Pálsdóttur væri metin í Bretlandi. Helgi Ágústsson, sendiherra, tók einnig til máls og sagði að það væri ánægjulegt að sjá Ólöfur Pálsdóttur aftur á fornum slóðum. Hún hefði starfað bæði sem lista- maður og sendiherrafrú í London um árabil og hefðu íslendingar ástæðu til að vera stoltir af þess- um fulltrúa sínum. Ólöf sagðist í þakkarorðum allt- af hafa reynt að halda aðskildum störfum sínum sem listamanns og sendiherrafrúar. Því þætti sér ekki minna um vert að fá þessa bresku viðurkenningu nú. FINNINN Jorma Panula verður hljómsveitarstjóri Sinfóníuhljóm- sveitar íslands á næstsíðustu áskriftartónleikum sveitarinnar í dag, fímmtudag. Einleikari verður landi hans, píanóleikarinn Matti Rae- kallio. Á efíiisskrá verða þrjú verk. En Saga eftir Sibelius, Píanókon- sert nr. 5 eftir Prokofieff og Sinfónía nr. 4 eftir Tsjajkovskíj. Eðlileg niðurstaða að sölu- samtökin vinni meira saman - segir Magnús Gunnarsson framkvæmdastjóri SIF „ÞAÐ er út af fyrir sig merkilegt að vangaveltur um aukið sam- starf stóru sölusamtakanna skuli koma upp á sama tíma hjá Sam- bandinu og Sölumiðstöðinni, án þess að það sé kannski beint sam- band þar á milli,“ sagði Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda, í samtali við Morgunblað- ið. „Hins vegar finnst mér þetta vera mjög eðlileg niðurstaða, þar sem kaupendurnir eru stöðugt að kaupa upp fyrirtæki og samein- ast,“ sagði Magnús. Þetta er í fyrsta sinn sem hljóm- sveitarstjórinn, Jorma Panula, kem- ur hingað. Hann var aðalkennari Petri Sakari, aðalstjórnanda Sin- fóníuhljómsveitar íslands, 1 hljóm- sveitarstjórn við Sibeliusar-akade- míuna í Helsinki. Panula hefur stjórnað hljómsveitum í Finnlandi, meðal annars Fílharmóníusveit Helsinki og verið aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Árósa í Dan- mörku. Matti Raekallio lærði píanóleik í TÓLF uinsækjendur eru um stöðu fræðslustjóra á Suðurlandi sem veitt verður frá og með 1. júní næstkomandi. Þá lætur Jón R. Hjálmarsson fræðslusljóri af störfúm eftir 25 ár í starfi. Þeir sem sækja um stöðu fræðslustjóra í Suðurlandskjördæmi eru: Ásþór Ragnarsson sálfræðing- ur, Bjarni Ansnes skólastjóri, Guð- mundur Ingi Leifsson fræðslustjóri, Guðmundur ■ Birkír Þorkelsson skólameistari, Jón Hjartarson skólastjóri, Kristinn Kristjánsson skólastjóri, Ólafur Bjarnason kenn- ari, Pálína Snorradóttir yfirkennari, Sigurlín Sveinbjamardóttir nám- stjóri, Sverrir Magnússon skóla- Landsmót í skóla- skák 1990 HIÐ árlega landsmót í skóla- skák verður haldið í Kópavogi dagana 3.-6. maí. Keppnin fer fram I Digranesskóla við Álf- hólsveg og hefst fyrsta umferð í dag, fimmtudaginn 3. maí, kl. 20. Landsmótið er úrslitamót í langri hrinu skólaskákmóta í öll- um kjördæmum landsins. Keppt er í tveimur flokkum, yngri flokki, sem í eru nemendur 1.-6. bekkjar grunnskólans, og eldri flokki, sem í eru nemendur 7.-9. bekkjar. Skákunnendur eru hvattir til að koma á mótið og fylgjast með mörgum af sterkustu ungu skák- mönnum okkar í dag. Á síðasta landsmóti sem hald- ið var á Laugum í Dalasýslu sigr- uðu þeir Helgi Áss Grétarsson í yngri flokki og Héðinn Steingr- ímsson í eldri flokki. (Fréttatilkynning) Turku í Finnlandi, í Lundúnum, Vínarborg og Leningrad. Hann hef- ur haldið einleikstónleika viða um heim, meðal annars í Carnegie Rec- ital Hall í New York. Þá hefur hann fengið fjölda verðlauna fyrir einleik sinn og einnig leikið inn á hljómplöt- ur. Hann var um tíma gestaprófess- or við Western Michigan University í Bandaríkjunum. Tónleikamir verða í Háskólabíói og hefjast klukkan 20.30. Miðasala er í Háskólabíói. stjóri, Trausti Ólafsson kennari og Unnar Þór Böðvarsson skólastjóri. Fræðsluráð Suðurlands tók um- sóknimar fyrir á fundi 27. apríl og samþykkti að gefa umsækjendum kost á að ræða við fræðsluráðið 3. maí. Fræðsluráð er umsagnaraðili gagnvart menntamálaráðherra sem veitir stöðu fræðslustjóra. — Sig. Jóns. „Ég held að heillavænlegast væri fyrir þjóðarbúið að vera með tvö öflug fyrirtæki, sem kepptu í freðfi- skútflutningi og þá fyrst og fremst til að fyrirbyggja að deyfð skapist, sem hætt er við að komi þegar ekki er um samkeppni eða saman- burð að ræða,“ sagði Guðjón B. Ólafsson. Hann sagði að saltfisk- málin væru af öðrum toga. „Þar ákváðu menn úr röðum Sölumiðstöðvarmanna og Sam- bandsmanna, eftir að hér hafði ríkt neyðarástand á sínum tíma, að sam- einast í ein sölusamtök. Eg held að þau rök, sem voru færð fyrir því, eigi ennþá við, fyrst og fremst vegna þess að kaupendahópurinn í aðalmarkaðslöndunum er miklu þrengri en í aðalmarkaðslöndunum fyrir freðfisk,“ sagði Guðjón. Hann sagði að það kerfi, sem hefði þróast hjá okkur á undanförn- -um-áratugum-varðandi-fiskútflutn-^ Magnús Gunnarsson sagði að menn yrðu að gera sér grein fyrir því að ef þeir vildu hafa eitthvað að segja á mörkuðunum í framtíð- inni þyrftu þeir að vera með mjög sterk og vel stæð fyrirtæki. „Nú er pólitískt verið að velta vöngum yfir að breyta sölukerfinu. Menn spyija sig því þeirrar spurningar hvemig þeir geta haldið sinni markaðsstöðu og þá finnst mér ekki óeðlilegt að hugmyndir um aukið samstarf stóru sölusamta- kanna komi fram,“ sagði Magnús. Hann sagði að ákveðin söguleg ing, hefði reynst okkur feiknalega vel. „Ég get alveg staðfest að okk- ar helstu keppinautar gjóta gjarnan öfundaraugum til okkar fyrir að hafa borið gæfu til að byggja upp tiltölulega öflug sölusamtök." Guðjón sagði að til stæði að stjórn Sambandsins fjallaði um hug- myndir um skipulag Sambandsins 11. maí næstkomandi. „Þá verður væntanlega ákveðið hvort og þá hvernig þær hugmyndir verða unn- ar áfram. Einn af valkostunum, og ef til vill ekki sá sísti, er sá að breyta Sambandinu í eitt almenn- ingshlutafélag. Það er ekki einung- is skipulagsþátturinn, sem er í skoð- un, heldur einnig hvernig þessir hlutir koma út tölulega séð þegar menn stiila upp efnahags- og rekstraráætlunum,“ sagði Guðjón. Hann sagði að sér fyndist vera afskaplega mikil skammsýni sam- Jara-þeim-sjónaxmiðum, -sem Jcomið breyting væri að eiga sér stað. „Við höfum síðustu 60 árin byggt sölustarfsemina upp á vinnslustigi vörunnar. Mikill meirihluti fram- leiðendanna hefur viljað halda þessu fyrirkomulagi en það eru stjórnmálamennirnir, sem ákveða að breyta því,“ sagði Magnús. Hann sagði að framundan hlyti að vera sókn inn á markaði, sem krefðust aukinnar vinnslu á afurð- unum. „Það er hins vegar dýrara og krefst meira af fyrirtækjunum en ella og sölufyrirtækin þurfa að vera mjög sterk og stór til að geta hefðu fram um að auka svokallað frelsi í útflutningi. „Stjórnmála- menn, sem boðað hafa þessa stefnu, hafa afskaplega lítið sett sig inn í staðreyndir á erlendum mörkuðum, að ég held. Ég hef að minnsta kosti ekki orðið var við að þeir hafi eytt miklum tíma í að skoða þau mál. Það, sem okkur vantar, eru sterk- ari og öflugri fyrirtæki til að keppa á erlendum mörkuðum, ekki minni og veikari," sagði Guðjón. TRYGGVI Ólafsson opnar mál- verkasýningu í Gallerí Borg við Pósthússtræti, í dag, fimmtudag. Til sýnis eru nýjar akrýlmyndir. Tryggvi Ólafsson hefur haldið fjölmargar einkasýningar hér á landi og í Danmörku þar sem hann stytt leiðina frá framleiðandanum til neytandans. Það eru því eðlileg viðbrögð við breytingum á markað- inum að þessar hugmyndir um samstarf sölusamtakanna fæðist, enda þótt ég sjái kannski ekki að þeim verði hrint í framkvæmd á næstu dögum eða misserum. Ég held þó að menn séu að gera sér grein fyrir að nauðsynlegt sé að þeir efli að mihnsta kosti samstarf- ið.“ Magnús sagðist hins vegar ekk- ert vilja um það segja hvort SÍF, SH og sjávarafurðadeild Sam- bandsins yrði breytt í hlutafélög. Hins vegar væri alveg ljóst að segja mætti að umræða um slíkt hefði komið upp í öllum þessum samtökum á sama tíma. „SÍF hefur haft einkaleyfi á saltfiskútflutningi og SH og Sam- bandið á sölu á frystum afurðum til Bandaríkjanna til skamms tíma. Það má hins vegar ekki gleyma því að þessi samtök eru byggð á félagslegum grunni og með þess- um sérréttindum, sem stjórnvöld veittu þeim, fylgdu einnig ákveðn- ar skyldur. Ég held að menn verði að átta sig á því að um leið og þeir taka þessi sérréttindi frá þeim eiga þau náttúrulega erfiðara með að uppfylla ýmsar félagslegar skyldur, sem hafa verið ofarlega á viðfangsefnalista þeirra,“ sagði Magnús. Hann sagði að menn hlytu að mega vinna saman ef þeir vildu. „Ég held að það sé eðlileg þróun og viðbrögð við þeim veruleika, sem við búum við, og þá erum við ekki að horfa á einhver innri pólitísk sambönd hér á landi, held- ur hvernig við getum tryggt að okkar afurðir seljist fyrir sem hæst verð erlendis,“ sagði Magnús Gunnarsson. hefur verið búsettur í 29 ár. Hann hefur einnig sýnt í Hollandi, Þýska- landi og á Norðurlöndum og tekið þátt í samsýningum um allan heim. Sýningu Tryggva lýkur 15. maí. Hún er opin virka daga frá klukkan 10 til 18 og um helgar 14 til 18. Tólf sækja um stöðu fræðslu- stjóra í Suðurlandskjördæmi Selfossi. Pólitísk íhlutun í atvinnu- greinar tilheyri fortíðinni - segir Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sambandsins „ÞAÐ ER MÁL til komið að pólitísk íhlutun í atvinnugreinar til- heyri fortíðinni og að fagmennska taki við af pólitík og hentistefnu. Við höftim ekki lengur efni á að vera með pukursjónarmið hér á íslandi. Okkur veitir ekki af öllum okkar kröftum út á við,“ sagði Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sambands íslenskra samvinnufélaga, i samtali við Morgunblaðið. _ * Tryggvi Olafsson sýnir akrýlmyndir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.