Morgunblaðið - 03.05.1990, Síða 25

Morgunblaðið - 03.05.1990, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1990 25 Ein af myndum Bandaríkjamannsins F.W.W. Howell, sem ekki hafa birst opinberlega áður. Hún er frá afhjúpun styttu Jóns Sigurðssonar fyrir framan Sljórnarráðið 1911, en styttan var síðar flutt á Austurvöll. Reykjavík: Áður óbirtar ljósmyndir frá síðustu aldamótum gefiiar út „Ljósmyndir gamla tímans“ er myndaröð, sem gefin hefur verið út í 33 bæjarfélögum um land allt og nú er röðin komin að höfuðborginni, Reykjavík. Mynd- irnar eru flestar eftir banda- rískan ljósmyndara, F.W.W. Howell sem kom hingað fyrst til lands árið 1898 og síðan árið 1910. Howell ferðaðist víða um Iandið og tók myndir, sem nú teljast einstök söguleg heimild um liðinn tíma. Þessar myndir hafa verið varð- veittar í einkasafni í Bandaríkjun- um, og hafa ekki áður birst opinber- lega hér á landi. En nú hafa þær verið gefnar út - í vandaðri öskju. Alls er um að ræða 20 myndir - flestar eftir hinn bandaríska ljós- myndara. Myndirnar eru gefnar út í fjórum seríum. Upplagið á hverri myndröð er takmarkað við 199 og eru eintök- in tölusett. Davíð Oddsson, borgar- stjóri, tók fyrir skömmu við fyrsta tölusetta eintakinu. Um aldamótin þegar Howell var fyrst á ferð var Reykjavík í örum vexti. Blómleg skútuútgerð hafði hleypt nýju lífi í athafnalíf höfuð- staðarins, en með komu togara 1905 fóru hjólin að snúast fyrir alvöru. Um aldamótin voru íbúar Reykjavíkur um sex þúsund; - tveimur áratugum síðar voru þeir átján þúsund. Með heimastjórninni árið 1904 var hlutverk Reykjavíkur sem höfuðstaður landsins staðfest. Þá var bærinn orðinn fjölþætt mið- Morgunblaðið/Bjarni Davíð Oddsson bogarstjóri tók við fyrsta eintakinu úr hendi Halls Hallssonar formanns Víkings. Hjá þeim stendur Kristján Sigmunds- son formaður hnadknattleiksdeildar. stöð verslunar, stjórnmála og menn- ingar og raunveruleg valdamiðstöð landsins. Af framsýni og bjartsýni réðust Reykvíkingar í ýmsar stór- framkvæmdir af áður óþekktri stærð hérlendis, svo sem vatns- veitu, gasveitu og holræsa- og gat- nagerð, en mest munaði þó um hina gríðarmiklu höfn sem gerð var á árunum 1913 til 1917. Virkjun El- liðaáa 1921, sem var langstærsta raforkuver landsins, veitti Reykjavík yfirburðastöðu í margv- íslegum iðnaði. Um aldamótin var því ólíkt um að litast frá því Ingólf- ur Arnarson setti niður bú sitt árið 874. Það er bókaútgáfan Líf og Saga, sem gefur myndirnar út, en söluað- ili er handknattleiksdeild Víkings. Myndaseríurnar eru í vandaðri öskju og Guðjón Friðriksson, sagn- fræðingur, hefur ritað ágrip af sögu Reykjavíkur og texta með hverri mynd. (Ur fréttatilkynningu) Námskeið fyrir sumarið TIL ÚTLANDA í SUMAR? Hraðnámskeiö í tungumálum í maí fyrir byrjendurog fyrir þá sem vilja bæta við eða dusta rykið af fyrri kunnáttu. Kennd verður danska, enska, franska, gríska, ítalska, spænska, sænska, rússneska og þýska. VILTUTAKA MYNDIR? Helgarnámskeið í Ijósmyndatöku 12.-13. maí.Tæknileg undirstöðuatriði um myndavélar, filmur og fylgihluti. Einnig myndataka við misjöfn skilyrði og myndbygging. Leiðbeinandi Halldór Valdimarsson. FERÐASTU Á BÍLNUM? Á námskeiðinu „Að gera við bílinn sinn“ lærirðu að fylgjast með bílnum og halda honum við, skipta um platínur, kerti, viftureim og bremsuklossa og annast minni viðgerðir. Elías Arnlaugsson kennir í bifvéladeild Iðnskólans 7., 9. og 12. maí. VORÞREYTA? Námskeiðið „Hollusta, hreyfing og heilbrigði" miðar að heilbrigðara lífi án öfga. Kennt inni og úti um streitu, slökun og hreyfingu, tengsl andlegrar og líkamlegrar heilbrigði og hollt mataræði. Skokkað saman í lokin. „Do-lnsjálfsnudd og slökun" 15.-23. maí er námskeið í japanskri aðferð við sjálfsnudd sem felst í banki á orkurásir líkamans. Tilgangurinn er jafnvægi og betri líðan. Leiðbeinandi Sigrún Olsen. ÞEKKIRÐU REYKJAVÍK? Á námskeiðinu „Reykjavíkurrölt" í lok maí skoðarðu bæinn á kvöldgöngu með Páli Líndal og fræðist um sögu gömlu Reykjavíkur, íbúa hennar, götur og hús og færð yfirlit yfir stækkunina og nýju hverfin. Börn velkomin í fylgd fullorðinna þátttakenda. VANTAR FÖT FYRIR SUMARIÐ? Síðasta saumanámskeiðið á þessu misseri. Fyrir byrjendur og lengra komna. Hefst14. maí. Leiðbeinandi Ásdís Ósk Jóelsdóttir. UMHVERFISVERND VIÐ BÆJARDYRNAR OGVÍTTUMHEIM Helgarnámskeið um umhverfismál í samvinnu við Landvernd. Hvað er að gerast á hnettinum okkar? Hvernig er ástandið á íslandi? Hvað getum við sjálf lagt af mörkum til verndar umhverfinu? Fyrirlestrar, umræðurog útivist. Haldiðá Alviðru í Grímsnesi 9.-10. júní. Tilvalið námskeið fyrir allafjölskylduna. Nánari upplýsingar um námskeiðin, stað- og tímasetningu og verð á skrifstofunni. TÓM.VTUNDA SKOUNN Skólavörðustig 28 Sími 621488 3: Sumartmiinn hjá okkur er frá átta til fjögur Vorið er komið og sumarið nálgast óðum. Hjá SJÓVÁ-ALMENNUM og Tjónaskoðunarstöðinni skiptum við yfir í sumarafgreiðslutíma, sem er frá klukkan átta til fjögur. Sumartíminn gildir frá 1. maí til 15. september. Draghálsi 14-16

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.