Morgunblaðið - 03.05.1990, Síða 26

Morgunblaðið - 03.05.1990, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1990 Baráttudagur verkalýðsins haldinn hátíðlegur i A-Evrópu: •• „Oreigar allra landa, fyrirgefið mér“ — stóð á spjöldum göngumanna í Búlgaríu Berlín, Sófíu, Varsjá, Prag, Búkarest, Tirana, Búdapest. Daily Telegraph, Reuter. IBUAR austur- og vesturhluta Berlínar fögnuðu hátíðisdegi verka- manna saman í fyrsta sinn frá 1946 á þriðjudag. Um 60.000 manns tóku þátt í göngu verkalýðsfélaga og mikilli götuhátíð við gamla Rikisþinghúsið í V-Berlín á eftir. í miðborg Austur-Berlínar, við breiðgötuna Unter den Linden, hefur áratugum saman borið mest á vandlega skipulögðum skrúðgöngum sem gengið hafa fram hjá leiðtogunum til að hylla þá en að þessu sinni var ekkert um slíkt. I staðinn var aragrúi af jass- og rokkhljómsveitum auk lúðrasveita á staðnum, einnig götulistamenn og hvers kyns sölubúðir. Lengst af fór allt vel fram en í Vestur-Berlín kom til átaka er nokkur þúsund ungmenni, þ. á m. um 1000 A-Þjóðverjar, fleygðu grjóti og flöskum í lögreglu sem svaraði með táragasi. A-Þýskalandi.“ Um 50 voru hand- teknir í óeirðunum og segir lög- regla að fjórir liðsmenn hennar hafi slasast. Búlgaría Yfír 40.000 manns söfnuðust saman í höfuðborg Búlagríu, Sófíu, og veifuðu bláum fána stjórnarand- stöðunnar. Hátíðarhöldin breyttust í baráttufund gegn kommúnistum sem enn fara með völdin en frjáls- ar kosningar eru fyrirhugaðar í júní.' „Öreigar allra landa, fyrirgef- ið mér!“ mátti lesa á spjöldunum og „Bláan 1. maí!“ Um margra ára bil hefur komið Reuter til óláta í V-Berlín 1. maí og að Frá mótmælum sljórnarandstæðinga á Rauða torginu í Moskvu á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðs- þssu sinni heyrðust slagorð gegn ins. Svo sem sjá má báru menn einnig mótmælaspjöld með áletrunum á enskri tungu er þeir kröfðust „frelsis í stað sósíalisma". „arðráni v-þýskra auðvaldssinna í Hróp gerð að flokksleið- togum á grafhýsi Leníns Moskvu. The Daily Telegraph. MÍKHAÍL S. Gorbatsjov, leiðtogi sovéska kommúnistaflokksins, og undirsátar hans voru sýnilega miður sín er þeir yfirgáfú hyllingarsval- irnar á grafhýsi Leníns á Rauða torginu í Moskvu 1. maí. Hátíðarhöldin í tilefni af baráttudegi verkalýðsins höfðu snúist upp i fjölmenn mót- mæli gegpi stefhu stjórnvalda. Opinber verkalýðsfélög kröfðust þess að hvergi yrði hvikað frá grundvallarforsendum sósíalismans og and- mæltu áformum um að innleiða fijálst markaðskerfi í Sovétrikjunum en mest bar á róttækum stjórnarandstæðingum sem gáfú til kynna með ótvíræðum hætti að almenningur hefði fengið nóg af sósíalisman- um stjórnarháttum núverandi valdhafa. Á þennan hátt var umbóta- stefnu Gorbatsjovs andmælt á gjörólíkum forsendum en boðskapurinn virtist augljós; þolinmæði almennings fer ört þverrandi. í fyrstu virtist sem hátíðarhöldin yrðu hefðbundin skrautsýning til að fagna afrekum sósíalismans og sam- stöðu verkalýðsins. Leiðtogarnir með M. S. Gorbatsjov í broddi fylkingar birtust á hyllingarsvölunum ofan á grafhýsi byltingarhetjunnar Vladímírs Leníns og veifuðu til bros- andi verkamanna er gengu framhjá í þúsundatali. Margir þeirra höfðu verið fluttir til höfuðborgarinnar frá verksmiðjum í nágrenninu og fengu þeir í hendur blöðrur og fána er lang- ferðabifreiðarnar námu staðar skammt frá Rauða torginu. Við flokksforustunni blöstu risastórar myndir af Marx, Engels og Lenín, helstu hugmyndafræðingum komm- únista. Opinber verkalýðsfélög skipulögðu hátíðarhöldin en þau hafa fengið aukið frelsi á undanförnum mánuð- um eftir að hafa lotið stjórn komm- únistaflokksins allt frá stofnun þeirra. Brátt kom í Ijós að þessi hát- íðarhöld yrðu engum öðrum lík. Full- trúar verkalýðshreyfingarinnar gagnrýndu efnahagsstefnu ríkis- stjórnarinnar í ræðum sínum og beindu spjótum sínum einkum að Nikolai Ryzhkov, forsætisráðherra Sovétríkjanna, er stóð við hlið Gor- batsjovs og horfði niður til mannfjöl- dans. Oánægjan kom einnig fram á spjöldum er haldið var á lofti í göngunni. „Námsmenn þurfa líka mat“ sagði á einu þeirra auk þess sem minnt var á að matvæli gætu seint talist munaðarvara. Aðrir lýstu yfir ótta sínum vegna umbótastefn- unnar og þeirra breytinga sem flokksforystan hefur boðað á vett- vangi efnahagsmála. „Við höfnum einkaeign,“ sagði á einu spjaldinu en á öðru var hækkunum á nauð- synjavörum mótmælt og hvatt til þess að verkalýðsfélögin fengju vald til að ákvarða verðlag. Stjórnvöld höfðu í fyrsta skipti í sögunni heimilað stjórnarandstæð- ingum að taka þátt í hátíðarhöldun- um og flykktust þeir inn á torgið er þætti verkalýðshreyfingarinnar var lokið. Leiðtogamir voru þungir á brún er framhjá þeim voru borin mótmælaspjöld með áletruninni „Só- síalisma- nei takk“, „Fólkið hefur verið tilraunadýr í 70 ár og tilraunin hefur mistekist," og „Látið Litháen í friði." Fjölmargir báru fána Lithá- ens en aðrir héldu á lofti rauðum fánum án hamarsins og sigðarinnar. Maður einn hélt á lofti spjaldi með andlitsmyndum af félögum í stjórn- málaráði kommúnistaflokksins. Und- ir myndinni gaf að líta eftirfarandi spurningu: „Sósíalismi með mann- legri ásjónu?“ Aldraður prestur bar risastóran róðukross og hrópaði til Gorbatsjovs er hann gekk framhjá grafhýsi byltingarleiðtogans: „Krist- ur er upp risinn, Míkhaíl Sergejevítsj." Gorbatsjov virtist þreytulegur er hann virti mannhafið fyrir sér og barði krepptum hnefna í sífellu í steinhandriðið fyrir framan sig. Hin- ir forystumennirnir urðu sífellt alvar- legri á svip er aukinn kraftur færð- ist í mótmælin. Þegar fólkið tók að krefjast afsagnar Jegors Lígatsjovs, leiðtoga sovéskra harðlínumanna sem var viðstaddur, hafði Gorbatsjov sýnilega fengið nóg og hvarf á braut ásamt hinum forystumönnunum. Höfðu þeir þá fylgst með hátíðar- höldunum í 25 mínútur. Fólkið blístraði og baulaði er þeir hurfu af hyllingarsvölunum og hrópaði í kór: „Skammist ykkar, leggið niður völd- in.“ Öryggislögreglumenn voru á hveiju strái en þeir höfðu engin af- skipti af mótmælunum. Mótmæla- hrópin drukknuðu í hávaðanum sem fjölmargar lúðrasveitir framleiddu er þær tóku að leika baráttusöngva verkalýðsins af miklum krafti. Sov- éska sjónvarpið rauf útsendinguna eftir fáeinar mínútur og sýndi þess í stað skemmtiþátt með sovéskum popptónlistarmönnum. Pólland Verkalýðssamtökin Samstaða stóðu fyrir kyrrlátri hátíð í tilefni dagsins í Varsjá og aðeins um 5.000 manns voru á staðnum. Um 4.000 tóku þátt í kröfugöngu á vegum gamla kommúnistaflokks- ins og var þar mótmælt sölu á pólskum eignum í hendur útlend- ingum. Tékkóslóvakía Stúdentar fögnuðu ákaft Banda- ríkjamánninum Allen Ginsberg sem frægur var á sínum tíma fyrir and- stöðu gegn Víetnamstríðinu. Á mikilli rokk- og þjóðlagahátíð, sem, var sjónvarpað, varaði Ginsberg landsmenn við því að apa allt gagn- rýnislaust eftir Vesturlöndum. Rúmenía Fólk naut þess í Rúmeníu að hafa frí frá vinnu 1. maí í fyrsta sinn um árabil en Nicolae Ceauses- cu, fyrrum einræðisherra landsins, bannaði slíkan munað á valdatíma sínum. í miðborg Búkarest hafa andstæðingar bráðabirgðastjórnar- innar haldið uppi stöðugum mót- mælum. Albanía Ramiz Alia, leiðtogi Albaníu, fordæmdi umbótastefnuna í Austur-Evrópuríkjunum í 1. maí ræðu sinni. Hann sagði að lönd sem hefðu horfið af braut kommúnis- mans væru að fara „úr öskunni i eldinn.“ Ungverjaland Fátt bar til tíðinda við hátíðar- höldin í Búdapest en andstæð stétt- arsambönd, annars vegar gamla, opinbera sambandið frá stjórnartíð kommúnista, hins vegar samband undir stjórn umbótasinna, stóðu að fundahöldum. ... og við bjóðum þig velkominn að kynnast skálum, pottum, pönnum, hnífapörum, Ijósum og vefnaðarvöru. Verið velkomin!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.