Morgunblaðið - 03.05.1990, Page 33

Morgunblaðið - 03.05.1990, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1990 ■ SELFOSSI. Vortónleikar söng- nemenda Tónlistarskóla Árnes- sýslu verða í Selfosskirkju í dag, fimmtudag kl. 20.30. Á tónleikun- um syngja allir söngnemendur skólans, 18 talsins. Meðal þeirra er Svava Gunnarsdóttir sem er að ljúka burtfararprófi frá skólan- um. Söngkennari tónlistarskólans er Sigurveig Hjaltested. Tónleik- arnir eru öllum opnir. - Sig. Jóns. ■ NÁMSTEFNA um framtíðar- nýtingu hálendis íslands verður haldin á vegum endurmenntunar- nefndar Háskóla íslands og Fé- lags íslenskra náttúrufræðinga í IV sal Háskólabíós föstudaginn 4. maí næstkomandi frá kl. 9-16.30. Námstefnan er ætluð þeim sem nýta hálendið á einhvern hátt, til hefðbundinnna nytja, til útivistar, ferðaþjónustu, vegagerðar eða til orkuvinnslu, og er henni ætlað að veita yfirsýn yfir hvernig hálendi íslands er nýtt og um þann laga- lega og skipulagslega ramma sem til er. í upphafi námstefnunnar verður fjallað um stöðu hálendisins með tilliti til eignar- og afnotarétt- ar, en síðan gerð grein fyrir helstu flokkum landnýtingar. Áhersla verður lögð á að kynna hvernig nýtingin er skipulögð, hverjir fara með umsjón hennar, hver ferill ákvarðanatöku er og hvort og hvernig nýtingin er samræmd. Að lokum verður leitast við að draga fram líklega þróun landnýtingar og skipulags á hálendinu. Ellefu fram- söguerindi verða flutt á námstefn- unni, en fundarstjóri verður Kristín Halldórsdóttir formaður Ferða- málaráðs. ■ MIKLAR skemmdir voru unn- ar í Söngskólanum í Reykjavík aðfaranótt síðastliðins laugardags. Sökudólgurinn, eða sökudólgarnir, eru ófundnir. Innbrotið uppgötvað- ist á sunnudag. Meðal þess, sem var skemmt, var flygill skólans. Brotist var inn í íbúðarhús í Garðabæ um helgina. Þjófurinn hafði á brott með sér um 200 þús- und krónur í gjaldeyri. Þá er ljóst að hann ætlaði að hafa hljómtæki á brott með sér, en einhver styggð hefur komið að honum og hann flú- ið af hólmi. ■ VERSL UNARRÁÐIÐ heldur morgunverðarfund á föstudaginn í Skálanum á Hótel Sögu um „Stefnur í stjórn fiskveiða". Þar mæta til leiks höfundar tveggja bóka um þetta efni, sem eru að koma út. Þeir doktorarnir Hannes Hólmsteinn Gissurarson og Þor- kell Helgason. í fréttatilkynningu Verslunarráðsins segir: „Fisk- veiðistjórnunin er höfuðmál Alþing- is þessa dagana og um allt Jand er þetta málefni í brennidepli. Útkoma tveggja bóka um efnið undirstrikar mikilvægi þess. Höfundarnir hafa sökkt sér niður í þetta mál málanna síðustu vikur og mánuði og þeir leiða nú saman hesta sína á sama tima og Alþingi er nánast í uppn- ámi við að marka fiskveiðistefnu næstu ára.“ FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA 2. maí. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hœsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 80,00 71,00 75,58 44,811 3.386.888 Þorskur(óst) 76,00 59,00 70,16 13,457 944.105 Smáþorskur(ósl.) 36,00 36,00 36,00 0,582 20.952 Ýsa 89,00 73,00 85,06 12,724 1.082.352 Ýsa(ósl.) 74,00 74,00 74,00 0,195 14.430 Karfi 29,00 24,00 27,39 65,585 1.796.267 Ufsi 31,00 30,00 30,18 17,391 524.885 Ufsi(ósl-) 20,00 20,00 20,00 0,450 9.000 Ufsi(smár) 17,00 17,00 17,00 0,291 4.947 Steinbítur 34,00 34,00 34,00 0,021 714 Steinbítur(ósl.) 34,00 34,00 34,00 0,072 2.448 Langa 55,00 55,00 ■ 55,00 0,350 74.250 Lúða 235,00 185,00 208,62 0,558 116.305 Grálúða 63,00 56,00 57,63 60,620 3.493.444 Koli 33,00 29,00 30,56 0,365 11.153 Rauðmagi 40,00 40,00 40,00 0,007 280 Skata 33,00 33,00 33,00 0,172 5.660 Skötuselur 90,00 90,00 90,00 0,071 6.390 Kinnar+gellur 230,00 230,00 230,00 0,015 3.450 Hrogn 175,00 155,00 174,87 5,536 968.080 Samtals 55,59 224,375 12.472.067 FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 74,00 40,00 72,71 10,901 792.621 Þorskur(ósL) 72,00 48,00 ' 59,26 9,968 590.884 Ýsa 92,00 76,00 83,68 27,273 2.282.216 Ýsa(ósl.) 94,00 50,00 71,87 6,763 486.070 Karfi 29,00 28,00 28,99 7,972 231.144 Ufsi 34,00 20,00 32,53 5,568 181.108 Steinbítur 55,00 32,00 40,55 11,172 452.984 Langa 54,00 35,00 50,16 0,974 48.853 Lúða 300,00 225,00 247,64 0,553 136.945 Skarkoli 37,00 37,00 37,00 0,086 3.182 Keila 28,00 28,00 28,00 1,375 38.500 Skata 125,00- 125,00 125,00 0,200 25.000 Skötuselur 140,00 140,00 140,00 0,016 2.240 Rauðmagi 105,00 105,00 105,00 0,057 5.985 Hrogn 130,00 130,00 130,00 0,167 21.710 Undirmál 50,00 7,00 22,60 1,083 - 24.475 Samtals 63,17 84,346 5.327.872 FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 90,00 45,00 63,38 68,312 4.329.702 Ýsa 82,00 35,00 74,20 24,894 1.847.205 Karfi 28,00 25,00 27,87 2,856 79.600 Ufsi 34,00 10,00 21,29 1,528 .32.536 Sleinbítur 51,00 21,00 25,58 2,277 58.245 Langa 29,00 29,00 29,00 0,028 812 Lúða 300,00 115,00 285,08 0,313 89.088 Skarkoli 48,50 48,00 ' ' 48,22 0,598 28.836 Keila 12,00 12,00 12,00 0,047 564 Skötuselur 100,00 100,00 100,00 0,034 3.400 Hrogn 150,00 150,00 150,00 0,138 20.700 Blandað 10,00 10,00 10,00 0,022 220 Samtals 64,24 101,047 6.490.908 Selt var úr dagróðrabátum. í dag verður einnig selt úr dagróðrabátum. FISKVERÐ Á UPPBOÐSMÖRKUÐUM - YTRA GÁMASÖLUR í Bretlandi 2. maí. Hæstaverð Lægstaverð (kr.) (kr.) Þorskur 151,57 102,11 Ýsa 153,17 114,87 Ufsi 67,01 47,86 Karfi 52,65 44,67 VESTUR-ÞÝSKALAN D 2. maí. Þorskur 114,61 86,50 Ýsa 151,37 100,91 Ufsi 89,38 67,03 Karfi 140,56 54,78 33 Stoftifélagar og fyrsta stjórn Meistarafélags kjötiðnaðarmanna. Sitjandi frá vinstri: Tómas Kristinsson meðsíjórnandi, Gísli Árnason ritari, Þorvaldur Guðmundsson formaður og Björn Ingi Björnsson varaform: aður. Standandi frá vinstri: Sævar Hallgrímsson Akureyri, Hilmar Karlsson Hafharfirði, Jón Magnússon Hafnarfirði, Bergsveinn Símonarson Birgarnesi, Níels Hjaltason Mosfellsbæ, Ingólfur Bárðarson Sel- fossi, Ólafur Georgsson Kópavogi, Thorvald Imsland Reykjavík, Kristján Kristjánsson Reykjavík, Jón Sigurðsson Reykjavík, Einar Sigurðsson Kópavogi, Sigurður Zophus Sigurðsson Reykjavík, Óskar Smith Kópavogi, Ingólfiir Baldvinsson Mosfellsbæ, Magnús Friðbergsson Reykjavík, Alois Ifttschhofer Reylyavík, Björn Christensen Garðabæ og Svala Hjaltadóttir Reykjavík. Á myndina vantar Leif Þórsson gjaldkera. Meistarafélag kjötiðn- aðarmanna stoftiað Selfossi. MEISTARAFÉLAG Kjötiðnaðarmanna, skammstafað MFK, var stofti- að 10. febrúar síðastliðinn. Tilgangur með stofiiun.þess er að safna kjötiðnaðarmeisturum um allt land saman í ein samtök. Þeir eru yfirmenn á vinnustöðum sínum og atvinnurekendur fyrirtækja í kjö- tiðnaði. Markmið félagsins er að vinna að aukinni menntun, verkkunn- áttu og vöruvöndun þeirra sem í faginu vinna, svo og að standa fyrir kynningu og fræðslu á þeim sviðum er kjötiðnina varðar. Kjötiðnaðarmenn vilja standa vörð um iðngreinina á þann hátt að hinn faglegi grunnur sé ætíð hafður í fyrirrúmi hvað varðar gæði og samsetningu kjötvara. Með breyttum neysluvenjum fólks og hörðu verðstríði á markaðnum er nauðsyniegt að kjötiðnaðarmeistar- ar og aðrir stjórnendur matvælafyr- irtækja standi vel saman og hafí áhrif á þróun mála. Með stofnun félagsins telja kjötiðnaðarmeistarar málefnum iðngreinarinnar vel borg- ið hvað þetta varðar. Fyrstu stjórn félagsins skipa Þorvaldur Guðmundsson Síld og fisk formaður, Björn Ingi Bjömsson Höfn á Selfossi varaformaður, Gísli Árnason Afurðasölu Sambandsins ritari, Leifur Þórsson Sláturfélagi Suðurlands gjaldkeri og Tómas Kristinsson Kjötsölunni meðstjóm- andi. — Sig.Jóns. Sveitarstj órnakosningarnar: Atkvæðagreiðsla erlendis Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnakosninga 26. maí nk. getur farið fram á þeim stöðum og tímum sem hér segir: Sydney í Ástralíu: Aðalræðis- maður Sigrún K. Baldvinsdóttir, 4 Wiston Gardens, Double Bay, Sydn- ey, New South Wales 2028. Sími: (02) 327 1814. 5.-6. maí kl. 11.00- 17.00 eða eftir samkomulagi. Bordeaux í Frakklandi: Ræðis- maður Hermann Mostermans, Les Vins de Crus, 58-60 Boulevard Pierre ler, 33000 Bordeaux. Sími: 56 48 22 39. 7.-11. maí, kl. 8.15- 17.15 eða eftir samkomulagi. Lyon í Frakklandi: Ræðismaður Gerard H.N. Debrinay, Algoe S.A., 9 bis route de Campagne, 69134 Ecully Cedex. Sími: 78 33 14 30. 7.-11. maí, kl. 15.00-17.30 eða eft- ir samkomulagi. Marseille í Frakklandi: Ræðis- maður Jeanne-Marie de Gaudemar, c/o Cie Chambon, 147, rue Sainte, BP 48, 13262 Marseille. Sími: 91 54 92 29. 9.-11. maí, kl. 8.30-13.00 eða eftir samkomulagi. Strasbourg í Frakklandi: Aðal- ræðismaður Jean-Noél Riehm, Hot- el Terminus-Gruber, 10-11, Place de la Gare, 67000 Strasbourg. Sími: Morgunblaðid/Sigurður Jónsson Árnesingakórinn í Reykjavík ásamt Sigurði Bragasyni stjórnanda. ■ SAMEIGINLEGIR tónleikar Árnesingakórsins í Reykjavík, Samkórs Selfoss og Árneskórsins verða haldnir í Aratungu klukkan 21 á morgun, föstudag. Þessir kór- ar hafa um árabil haldið sameigin- lega tónleika ýmist í Reylqavík eða fyrir austan fjall. Fyrri tónleikarnir voru að þessu sinni í Langholts- kirkju 28. apríl síðastliðinn. Efnis- skráin er fjölbreytt og þrír ein- söngvarar syngja með Arnesinga- kórnum, Kolbeinn Ketilsson, Ingibjörg Marteinsdóttir og Magnús Torfason. Stjórnandi er Sigurður Bragason og undirleikari Ulrik Ólason. Loftur Loftsson stjórnar Árneskórnum og stjórn- andi Samkórs Selfoss er Jón Kristinn Cortes. „Það er mikil- vægt fyrir kórana að heyra í öðrum kórum. Það kemur í veg fyrir að þeir einangrist," sagði Jón Kristinn Cortes stjómandi Samkórs Selfoss. „Allt samstarf eykur áhugann og veitir vissa ánægju.“ Sig. Jóns. 88 32 87 00. 7.-11. maí, kl. 16.00- 18.00 eða eftir samkomulagi. Calgary í Kanada: Ræðismaður Clifford A. Marteinsson, 140 Strat- haven Circle S.W. Apt. 20, Calg- ary, Alberta T3H 2NH. Sími: (403) 220-7555. 9.-10. maí, kl. 9.00- 17.00 eða eftir samkomulagi. Nicosia á Kýpur: Ræðismaður Michael Psomas, 11, Archarnon Street, Nicosia 145. Sími: (02) 34 84 84. 7.-11. maí, kl. 8.00-20.00 eða eftir samkomulagi. Lissabon í Portúgal: Aðalræðis- maður Leif Dundas, Rua Rodrigues Sampaio 19, 2nd floor, Door B, 1100 Lisboa. Sími: (1) 546078 og 535480. 7.-11. maí, kl. 15.00-17.00 eða eftir samkomulagi. Barcelona á Spáni: Aðalræðis- maður Jose Daurella, ræðismaður Luis Balaguer de de Palleja, Cerd- enna 229-237, Sobreatieo Tercera, 08013 Barcelona. Sími: 232-5810. 7.-10. maí, kl. 12.00-14.00 eða eft- ir samkomulagi. Madrid á Spáni: Aðalræðismaður José Maria Figueras-Dotti, Euro- building, Oficina 15, Juan Ramon Jiménez 8, Madrid 28036. Sími: (1) 457-89-84. 7.-11. maí, kl. 10.00- 14.00 eða eftir samkomulagi. Malaga á Spáni: Ræðismaður Marin Guðrún Briand de Crévec- oeur, Paseo Maritimo 25, Maiaga. Sími: (52) 221739. 7.-11. maí, kl. 10.00-13.00 eða eftir samkomulagi. Eftirfarandi breytingar þarf að gera á stöðum og tímum sem til- "greindir voru í fréttatilkynningu utanríkisráðuneytisins frá 9. þ.m.: Jönköping í Svíþjóð: Kjörstjóri Elín Óskai-sdóttir, Kungsgatan 23b, let, Huskvarna. 5.-6. maí, kl. 12.00-20.00. Sundsvall í Svíþjóð: Ræðismaður Áke Carl Lennart Rietz, Svenska Cellulosa Aktiebolaget, SCA 85188 Sundsvall. Sími: (060) 19300 og 193128. 3. og 7. maí kl. 13.00- 16.00. 4. maí kl. 8.00-12.00 og 13.00-16.00 eða eftir samkomulagi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.