Morgunblaðið - 03.05.1990, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1990
49
ríkur af mörgu öðru. Sem dæmi
um gjafmildi hans að einu sinni
þegar hann var á Hofi fékk hann
stóran happdrættisvinning. Gísla
fannst þetta svo mikið að hann gaf
presti helminginn. Þetta lýsir Gísla
best og ég held ég mælti þetta fyr-
ir munn margra er þekktu hann.
Gísli dvaldist hjá mér á Akureyri
oftar en einu sinni, mismunandi
lengi. Einu sinni fór hann með okk-
ur suður í Munaðarnes þar sem við
dvöldum í viku. Einn daginn
skruppum við til Reykjavíkur og
Gísli auðvitað með. Ég spurði hann
hvert hann vildi fara. hann bað mig
að keyra sig á Skólavörðustíg í
Ura- og skartgripaverslun Korn-
elíusar og ég held ég fari rétt með
það að þeir hafi verið fyrrverandi
mágar. Þegar inn í búðina kom
sagði Gísli við okkur hjónin að við
ættum að velja okkur úr, sem sagt,
gaf okkur úr sem við eigum ennþá.
Svona var Gísli sígefandi sitt á
hvað. Það er sagt að þeir sem gefi
fái það margfalt borgað og sé þetta
rétt þá átti þetta við Gísla, því allt-
af hafði hann peninga þó tekjurnar
væru litiar. Margar sögur var Gísli
búinn að segja mér og hafði ég
gaman af. Hann sagði vel frá og
minnið frábært.
Gísli var tæplega meðalmaður
að stærð, fallega vaxinn, hafði mik-
ið dökkt og þykkt hár sem fór vel
við hörundið bjart, svipurinn hreinn
og fágaður, andlitið fellingalaust
og brosið ljómaði um það.
Hann var gleðskaparmaður , hló
oft hátt og dátt, æðrulausu og bjart-
sýnu á hverju sem gekk, en undir
niðri bjó viðkvæm sál.
Ég ætlaði ekki að hafa þetta
langt. Ég vil og fjölskylda mín að-
eins þakka honum þau góðu kynni
sem með okkur tókust og fyrir allt
sem hann gaf og gjörði fýrir okk-
ur. Ég veit og er þess fullviss að
þó hann sé horfinn héðan, þá mæt-
ir hann góðu hinu megin.
Gísli G. Sveinsson
frá Miðhúsum.
slíkri sorgarstundu en því dýpra
rista minningarnar um lífsglaðan
og fallegan dreng. Þær ljúfu minn-
ingar tekur enginn frá okkur. Þær
rifjum við upp þegar söknuðurinn
verður of sár. Harmurinn er mikill
hjá foreldrum og systkinum og
ömmu Grétars, sem elskuðu hann
og dáðu eins og við öll.
Grétar var sérstaklega auga-
steinn ömmu sinnar enda dvalið í
faðmi hennar frá fæðingu og þau
hvort öðru mikið dýrmæt. Þótt nú
hafi enn og aftur verið rofið stórt
skarð í Nesjavallafjölskylduna, lát-
um við minningarnar um Grétar
Þór lýsa okkur veg framtíðar.
Megi góður Guð geyma og
vernda elsku litla frænda og veita
foreldrum, systkinum hans og
ömmu og okkur öllum stýrk til að
yfirstíga það tilverustig sem hann
hefur tekið.
Ó, faðir gör mig styrkan staf
að styðja hvern sem þarf,
unz allt það pund, sem Guð mér gaf,
ég gef sem bróðurarf.
(M. Jocli.)
Ómar Gaukur, Ágústa
og Tómas.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
DAGBJARTAR ÍVARSDÓTTUR,
Hrafnistu,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunardeildar á 3. hæð
Hrafnistu, Hafnarfirði.
Valgerður B. Hassing, Jón Hassing,
ívar Arnar Bjarnason, Erla María Hólm
og barnabörn.
t
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu,
ELÍSABETAR RAGNARSDÓTTUR,
. Ási,
Hegranesi.
Guð blessi ykkur öll.
Valgarður Einarsson,
börn, tengdabörn
og barnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför móð-
ur minnar, tengdamóður og ömmu okkar,
EYVARAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
sem andaðist 21. apríl.
Arndís Þorvaldsdóttir, Haukur Benediktsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegt þakklæti til allra þeirra er vottuðu okkur samúð við and-
lát og útför konu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu,
langömmu og systur,
GUNNHILDAR TRYGGVADÓTTUR,
Stórhólsvegi 6,
Dalvík.
Jón Björnsson,
Brynjar Jónsson,
Birnir Jónsson,
Bragi Jónsson,
Gunnar Jónsson,
Ágústína Jónsdóttir,
Auður Jónsdóttir,
Sigurgeir Jónsson,
barnabörn, barnabarnabörn
Margrét Rögnvaldsdóttir,
Kristjana Vigdis Björgvinsd.,
Ragnhildur Jónsdóttir,
Sigríður Rögnvaldsdóttir,
Valdimar Snorrason,
Rúnar Búason,
Steinunn Hauksdóttir,
og systkini hinnar látnu.
t
Þökkum innilega þann vinarhug er okkur var sýndur vegna and-
láts móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGNÝJAR BJÖRNSDÓTTUR,
Gróustöðum.
Þuríður Sumarliðadóttir, Jón Friðriksson,
Ásgeir Sumarliðason, Fanney Sumarliðadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og góðvild við fráfall og
jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÞORGERÐAR BOGADÓTTUR.
Einnig viljum við færa starfsfólki, læknum og presti á hjúkrunar-
heimilinu Skjóli sérstakar þakkir fyrir frábæra aðstoð og umönnun.
Sigrún Guðmundsdóttir, Kristján Ágústsson,
Magnús Guðmundsson, Guðríður Jónasdóttir,
börn og barnabörn.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð
og vinarhug við fráfall og jarðarför
ANDRÉSAR KRISTJÁNSSONAR,
Digranesvegi 107.
Þorgerður Kolbeinsdóttir,
Guðrún Helga Andrésdóttir, Gunnar Emilsson,
Heiðveig Andrésdóttir, Pétur Guðmundsson,
Kristján Andrésson, Rósa Marinósdóttir,
Kolbeinn Andrésson, Snjólaug Arnardóttir,
Hallveig Andrésdóttir,
barnabörn og systkini hins látna.
Toyota 4Runner SR5 ’86
Dýrasta útgáfa, topplúga, rafdrifnar rúður, „cruise control“, mjög
vönduð hljómflutningstæki, loftlæsing, drifhlutföll 5.30:1, 35“ dekk,
auka bensíntankur (150 I), nýtt púst 2“, flækjur ásamt mörgum öðrum
hlutum. Litur: Silfurgrásans. Mjög lítið ekinn. Ath. Einn sá fallegasti!
Upplýsingar í síma 92-13571.
BERTHELSENS
Vissir þú að það eru 96sinnum meira af steinefnum í líkamanum
en fjörefnum? Samt hafa fjörefnin fengið alla athyglina til þessa.
Steinefni eru nau&synleg líkamlegu þreki og almennri velli&an.
Steinefnaskortur getur stuðlað að meiðslum, ofþreytu og sljó-
leika. SCANALKA fró BERTHELSENS er fyrir löngu orðið þekkt
og vi&urkennt sem nin bestn steinefnablandon ó markaðinum.
Nú aftur fóanleg ó íslandi.
Útsölustn&ir eru npétek og heilsuvörwerslanir.
SKEIFAN 19 SlMI: 681717
SIEMENS
Lítiö inn til okkar og skoöiö vönduð
vestur-þýsk heimilistœki!
Hjá SIEMENS eru gœði, ending og
fallegt útlit ávallt sett á oddinn!
SMITH &NORLAND
NÓATÚNI 4 • SlMI 28300