Morgunblaðið - 03.05.1990, Page 54
54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1990
Við skulum ekki spyrja hann
hvernig- honum gekk.
HÖGNI HREKKVISI
° °
'VVv^
„PAP E« PÁLÍTlE>/lNJMAE>5£M> AB
FARA FRAyH |c KÁLFl_HIK ///
Þjónkun kommúnista
Afbragðs góður
tónlistarþáttur
Til Velvakanda.
Mig langar til að koma á fram-
færi þakklæti til Aðalstöðvarinnar
fyrir afbragðsgóðan tónlistarþátt,
Undir regnboganum, sem er á dag-
skrá á sunnudögum kl. 18 til 19.
Því miður missti ég af fyrstu þátt-
unum, því að ég bjóst ekki við svona
efni á þessari stöð og rekst á þátt-
inn af hreinni tilviljun og fór að
hlusta. Svona þátt finnst mér að
ætti að endurtaka, því maður nýtur
þess jafnvel betur að hluta á hann
í annað sinn, þótt hann sé léttur
og aðgengilegur og sérlega
skemmtilega kynntur.
Nú undanfarið höfum við nokkrir
kunningjar komið saman og hlustað
á þennan fallega tónlistarþátt, sem
okkur finnst bera af öðrum sem við
munum eftir í útvarpi. Ingólfur
Guðbrandsson er þekktur fyrir
fínan tónlistarsmekk, enda fer hér
saman val á fallegu efni og frábær
tóngæði. Vonandi heldur þessi þátt-
ur áfram lengi á Aðalstöðinni svo
að við fáum að njóta þess að setj-
ast „Undir regnbogann“ hjá Ing-
ólfi. Þið eruð eina stöðin sem út-
varpar völdu tónlistarefni á besta
tíma. Sigrún
Til Velvakanda.
Hvað skyldu margir hafa verið á
fundi hernámsandstæðinga á Hótel
Borg nú á dögunum. Þetta eru fjor-
brot marx-lenin-stalínismans hér á
landi. Þar voru fréttaskýrendur
hlutlausu rikisfjölmiða þjóðarinnar.
Þeir eiga að vita að það var NATÓ
sem kom í veg fyrir að Stalín gæti
boðið fleiri þjóðum í Evrópu óbæri-
leg lífskjör.
Halda friðarsinnamir að Stalín
hefði hætt útbreiðslustefnu sinni
þegar hann væri búinn að fá
Vestur-Berlín líka. Dettur þessu
fólki í hug að Vestur-Evrópuríkin
hefðu fagnandi tekið stjóm hans.
Þótt þær væru í sárum eftir stríðið
hefðu þær barist til síðasta manns
gegn honum. Var það þetta sem
var undir friðarhjúpnum? Þjónkun
kommúnista hér á landi var sú sama
og alls staðar annars staðar. Hér á
landi börðust þeir á móti Marshal-
hjálpinni og sögðu að atvinnuleysi
og jafnvel hungur myndi sigla í
kjölfarið. Ætli hernámsandstæð-
ingarnir verði glaðir þegar afkom-
endur þeirra fara að skoða myndir
af þeim þegar þeir réðust á Alþingi
til að mótmæla inngöngu íslands í
NATO og börðust fýrir Stalín.
Það em fleiri en nasistar sem
núna mega fyrirverða sig. Þegar
tekið er tillit til stærðar þjóðarinnar
þá er spurningin þessi: Era fleiri
Stalínistar í Leníngrad tiltölulega
við fólksfjölda en þeir sem þeir sem
mættu á fundinum fræga á Hótel
borg. í síðustu borgarstjórnarkosn-
ingum í Leningrad fengu stjórnar-
andstæðingarnir 70 prósent
greiddra atkvæða.
Húsmóðir.
Ekki fleiri álver
Til Veívakanda.
Það er merkilegt að okkar ráða-
menn sjá ekki annað en álver, þeir
hugsa bara um að fjölga þeim en
hugsa ekkert um hvemig landið
okkar lítur út eftir nokkur ár, því
aðrar þjóðir vilja losna við þessa
stóriðju. Ég er alveg á móti því að
láta útlendinga eiga stóran hlut í
framkvæmdum hér - það er nóg
komið af því. Það er mjög leiðinlegt
að menn skuli ekki sjá aðrar leiðir
til að halda uppi atvinnu í landinu
eða auka við hana á annan hátt en
að bjóða útlendingum að taka þátt
í atvinnulífunu hér. Ef svona hugs-
unarháttur á að ráða þá sjá þeir
seinna hveijar afleiðingarnar verða.
Ætli það fari ekki ósköp svipað
með álverin þegar fram líða stundir
og með refaræktina þegar bændum
var att út í hana. Þá varðaði ég
við og sagði að það væri lotterí að
fara út í þá atvinnugrein, það var
búið að reyna hana áður og ég álít
að þeir menn sem sáu ekki aðra
úrlausn fyrir bændastéttina megi
skammast sín fyrir þessar fram-
kvæmdir. Ég vil bændastéttinni vel
og mér finnst það mjög leiðinlegt
að bændur skyldu láta glepjast út
í þessa refarækt. En þeir skulu
þrauka til haustsins og lóga þá
dýrunum því þessi atvinnugrein
verður aldrei annað en byrði á þjóð-
inni. Ég álít að þessir menn sem
kosnir eru og eiga að gæta velferð-
ar lands og þjóðar þurfi að gæta
að sér og gera ekki neina vitleysu.
Ingimundur Sæmundsson
I
í
i
i
I
i
í
Yíkveiji skrifar
Víðförli heitir ágætt blað, sem
gefið er út af skrifstofu bisk
ups og flytur fréttir af kirkjunni
og því starfi sem þar er unnið.
Margar uppbyggilegar greinar hef-
ur Víkverji lesið í blaðinu.
í síðasta tölublaði er skýrt frá
mannabreytingum á skrifstofu
biskups. Sr. Þorbjörn Hlynur Árna-
son á Borg hefur verið ráðinn bisk-
upsritari til næstu fjögurra ára og
sr. Örn Bárður Jónsson í Grindavík
hefur verið ráðinn verkefnastjóri
átaks kirkjunnar í safnaðarupp-
byggingu. Skipulagsbreytingar
hafa verið gerðar á starfi biskups-
ritara og mun sr. Þorbjöm verða
aðstoðarmaður biskups, sitja fyrir
hans hönd í nefndum og annast
tengsl við presta og söfnuði.
Greinilegt er að hinn nýi biskup
íslands, hr. Ólafur Skúlason, hefur
talið þörf á breytingum á starfi
kirkjunnar. Ekki sýnast þetta rót-
tækar breytingar heldur nauðsyn-
ieg aðlögun að breyttum tímum.
Þegar sr. Ólafur var kosinn væntu
menn þess að hann yrði röggsamur
og áhrifamikill biskup. Ekki verður
annað merkt en þessar vonir hafi
rætzt.
XXX
A
Iritstjórnargrein Víðförla ;gerir
biskup að umtalsefni kirkjuna
og fjármálin. Þar koma fram sár
vonbrigði vegna þeirrar ákvörðunar
stjórnvalda, að halda eftir hluta
sóknargjalda og kirkjugarðsgjalda.
Þessi ákvörðun kom sér illa fyrir
marga söfnuði, sem höfðu ráðist í
framkvæmdir og gert áætlanir um
aðrar á næstu árum. Segir hr. Ólaf-
ur að allir verði að leggjast á eitt
með það að tryggja, að hér sé að-
eins um að ræða ákvörðun fyrir
þetta ár, en verði ekki svo til fram-
búðar.
xxx
Að lokum er rétt að vitna lítil-
lega í grein eftir ungan prest,
sr. Svavar A. Jónsson. Hann er
greinilega reiður vegna bágra
launakjara presta. Það kemur fram
hjá sr. Svavari að flestir af 120
prestum þjóðkirkjunnar sinni alls
kyns aukastörfum t.d. kennslu, til
þess að geta séð fyrir sér og sínum.
Enginn vafi er á því að þetta mál
verður í brennidepli á næstu misser-
um. Enda segir sr. Svavar í grein
sinni: „Aðbúnaður presta, kjör
þeirra og aðstaða er því ekki mál,
sem kirkjan getur látið sig engu
varða. Hún hlýtur alla vega að
þurfa að skoða hug sinn þegar
prestsstarfið er smám saman að
breytast í aukavinnu."
Davíð Oddsson borgarstjóri hef-
ur hlotið verðugt þakklæti
margra fyrir að hafa bjargað Hótel
Borg frá því að verða skrifstofu-
bygging fyrir Alþingi. Einhverjir
þingmenn hafa brugðist illa við,
a.m.k. ef marka má fréttir Tímans,
og talið að borgaryfirvöld vilji ekki
að Alþingi sé í Reykjavík og réttast
sé að löggjafarsamkoman verði
flutt eitthvert annað. Þetta era
bamalegar vangaveltur. Alþingi á
að vera í Reykjavík. Ef skrifstofur
vantar fyrir þingið skal á það bent
að nægilegt skrifstofurými er að fá
í miðborg Reykjavíkur. T.d. er
Austurstreæti 10 til sölu í heilu
lagi. Þetta er 5 hæða hús sem
eflaust hentar Alþingi vel.
xxx
að borgar sig ekki að svindla,
það fengu þeir að sannreyna
tveir nemendur í framhaldsskóla í
Reykjavík í vetur. Nemendurnir
áttu að skrifa ritgerð um ákveðna
bók og gerðu það í tæka tíð. Kenn-
arinn hældi ritgerðunum á hvert
reipi en sagði að því miður yrði að
vísa báðum frá námi í íslenzku á
þessari önn. Og ástæðan var ein-
faldlega sú að báðir höfðu orðið sér
úti um sömu ritgerðina, sem þriðji
maður hafði skilað inn fyrir nokkr-
um árum!
í
€
I
í
i
í
H