Morgunblaðið - 03.05.1990, Síða 55

Morgunblaðið - 03.05.1990, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1990 55 Þessir hringdu . . . Góð þjónusta í Hólagarði Tvær mæðgur hringdu: Okkur langar að koma á fram- færi þökkum fyrir góða þjónustu og kurteisi sem okkur var sýnd í Hagkaupum í hólagarði 17. apríl sl. Pilturinn á kassanum, Rúnar Öm, var sérstaklega hjálplegur og mættu menn taka hann sér til fyrirmyndar. Hvar fæst selkjöt? Kári hringdi: Mig langar að vita hvort nokk- urs staðar sé hægt að kaupa sel- kjöt. Ég hef spurt nokkra kaup- menn en hjá þeim var ekkert að hafa á sama tíma og til boða stóðu tugir tegunda af morgunverðar- korni. Mér finnst selkjöt gott og það hlýtur að vera ódýr matur og góður valkostur í kjötborði versl- ana. Slök sorphirða í Kópavogi Óánægður Kópavogsbúi hringdi: Mér finnst áberandi hvað sorp- hirðu hefur farið aftur hér í Kópa- vogi frá því að bærinn fól verktök- um að sjá um hana. Mennirnir virðast flýta sér um of. Það er varla hægt að segja að þeir loki grindunum eftir þegar þeir hafa tekið pokana og síðan henda þeir þeim í ofboði út í götukant. Það er svo undir hælinn lagt hvenær pokarnir eru hirtir þaðan og stundum iýkur úr þeim út um allt og stundum er heimkeyrslan hjá mér full af drasli af þeim sök- um. Engin regla virðist vera á því hvenær sorp er hirt. Þar af leið- andi þarf maður stundum að setja drasl í kassa eða poka við hlið soprgrindarinnar en þó maður gangi vel frá því og bindi fyrir aukapokann er venjulega aðeins pokinn tekinn úr grindinni en annað skilið eftir. Vinnubrögðin eru hroðvirknisleg og mér finnst að það eigi að fara aftur í gamla farið, bærinn eigi að sjá sjálfur um þetta eða setja verktökunum ströng skilyrði um hvernig að verki skuli staðið.“ Tapaði rauðri flauelishúfu Tólf ára telpa tapaði rauðri flauelishúfu á sunnudagskvöld á Hjarðarhaga eða við leikvöllinn á Tómasarhaga. Finnandi vinsam- legast hringi í s. 23211. Lesgleraugu töpuðust Ný lesgleraugu með keðju í bláu tauhulstri með kínversku munstri töpuðust einhvers staðar í borginni 22. mars sl. Finnandi hafi samband við Ólöfu í s. 32273 eða 688500. Veitið verðlaun til að upplýsa morðmálið Lesandi hringdi: Mér finnst að Olíufélagið eigi að heita hárri fjárupphæð, t.d. einni milljón, fyrir upplýsingar er leitt gætu til þess að hryllings- verkið í bensínstöðinni í Stóra- gerði í síðustu viku upplýsist. LAU S B MÖPPUR frá Múlalundi... ... þær duga sem besta bók. Múlalundur SfMI: 62 84 50 UTANKJÖRSTAÐASKRIFSTOFA SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS VALHÖLL, Háaleitisbraut 1,3. hæð Símar 679053 - 679054 - 679056 Upplýsingar um kjörskrár og aðstoð við kjör- skrárkærur. Fyrst um sinn fer utankjörstaða- kosning fram hjá borgarfógetanum í Reykjavík, Skógarhlíð 6, kl. 10-15 alla daga. Sjálfstæðisfólk! Hafið samband við skrifstofuna ef þið verðið ekki heima á kjördag. NY - STUDENTAR I r x -------------------------- áw* FALKON (fcUihion jcrcmen. Smoking- fötin komin aftur Yerð aðeins kr. 14.950,- Smoking- skyrtur og lindar. GEíslB H it

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.