Morgunblaðið - 03.05.1990, Síða 60
msHijSi
FLUGLEIDIR
FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1990
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Heimsmeistaraein-
vígið í skák:
Guðmundur
o g Þorsteinn
tilnefndir
sem dómarar
Guðmundur Arnlaugsson og
Þorsteinn Þorsteinsson hafa ver-
ið tilnefndir sem dómarar í
heimsmeistaraeinvígi Garríjs
Kasparovs og Anatolíjs Karpovs
sem hefst 7. október nk. í New
York.
Einar S. Einarsson forseti Skák-
sambands íslands sagði við Morg-
unblaðið að Guðmundur Arnlaugs-
>n væri einn fjögurra skákdómara
sem tilnefndir hafa verið sem aðal-
dómarar einvígisins. Skákmeistar-
arnir hafa rétt til að velja dómara
en verði þeir ekki sammála mun
stjórn Alþjóðaskáksambandsins
taka af skarið. Þorsteinn Þorsteins-
son hefur verið tilnefndur sem að-
stoðardómari og gildir þar sama
reglan.
Guðmundur Arnlaugsson var að-
aldómari í einvígi Karpovs og Jans
Timmans sem fór fram nýlega í
_ ^uala Lumpur.
Nú er frágengið að fyrri hluti
einvígis Kasparovs og Karpovs
verður í New York í Bandaríkjun-
um. Seinni hlutinn verður í Lyon í
Frakklandi.
Ný Boeing 757 af-
hent Flugleiðum
Ný Boeing 757-flugvél var af-
hent Flugleiðum í gær í Seattle og
hlaut hún heitið Fanndís. Hún er
væntanleg til landsins í fyrramáljð.
Vigdís Finnbogadóttir, forseti ís-
lands, er stödd í Seattle og prófaði
;-^fcún 757-flughermi í gær ásamt
Sigríði Einarsdóttur, sem er ein 42
flugmanna Flugleiða sem hafa ver-
ið og verða þjálfaðir á 757-vélarnar.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Húsgögn fyrir utan hús við Grenilund þar sem vatn hafði flætt inn
á neðri hæð. Húsgögnin eru mikið skemmd. Á innfelldu myndinni
má sjá að gatnamót Grenilundar og Skógarlundar voru eins og
grunnt stöðuvatn.
Stórtión vegna leysinga
Akureyri.
MARGIR íbúar á Akureyri stóðu í ströngu í gærdag þegar vatn
flæddi inn í kjallara húsa, einkum urðu íbúar við Grenilund, Heiðar-
lund og í Innbæ óþyrmilega varir við vatnselginn. Geysistórt stöðu-
vatn hafði myndast ofan Grenilundar og má segja að straumþungt
fljót hafi ætt áfram niður götuna yfir Skógarlund og að Heiðarlundi.
Vatnið braut sér leið inn í kjail-
ara hýsanna við Grenilund og einn-
ig fór vatn inn í hús við Heiðar-
lund og víðar og stóð það allt upp
í 30 sentímetra. Rannsóknarlög-
regla fór á staðinn, en tjón hafði
ekki verið metið í gærkvöldi, en
þó er ljóst að það er mikið. Stór
húsgrunnur á svæðinu fylltist af
vatni og að sögn lögreglu var stað-
in vakt yið hann af öryggisástæð-
um.
• Ibúar húsanna höfðu ærinn
starfa við vatnsausturinn, en auk
þess þurfti að flytja búslóðir undan
vatnselgnum. í Innbænum mátti
einnig sjá fólk forða búslóð sinni
úr kjöllurum, en þangað fann
vatnselgurinn sér leið inn. Niður
Lækjargötu rann einnig straum-
þungt fljót og unnu starfsmenn
bæjarins af krafti við að opna nið-
urföll svo vatnið fyndi sér farveg
án þess að valda tjóni.
Sjá einnig fréttir um skemmd-
ir vegna flóða á blaðsiðu 2.
. Morgunblaðið/Jim Davidsson
Vigdís Finnbogadóttir og Sigríður Einarsdóttir í 757-flugherminum.
Sjá frétt á bls. 4.
Fjórir í gæsluvarðhaldi vegna morðmálsins:
Lögreglan fann föt með
blóðblettum við húsleit
ÞRÍR karlar og ein kona voru i
gær úrskurðuð í gæsluvarðhald
vegna rannsóknar á morðinu,
sem framið var á bensínstöðinni
i Stóragerði. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins fundust föt
með blóðblettum í fórum eins
Umhverfismálin skapa
.óvissu um þing'lausnir
ÓVISSA ríkti um eittleytið í nótt um hvort þinglausnir verði á laugar-
dag, eins og stefnt hefur verið að. Skúli Alexandersson greindi frá
því í umræðu í efi-i deild, að Júlíus Sólnes umhverfisráðherra hefði
tjáð sér að ríkisstjórnin hefði ákveðið að fresta þinglausnum fram
í næstu viku til að tími gæfist til að afgreiða frumvarp um stjórn
umhverfismála.
Guðmundur H. Garðarsson
“Tívaddi sér hljóðs utan dagskrár af
þessu tilefni og krafði ráðherra
svara. Hann sagði þjngmönnum
vera sýnd lítilsvirðing með því að
knýja á um afgreiðslu mála með
næturfundum, ef þetta væri ætlun-
in.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra svaraði og ságði enn
vera stefnt að þinglausnum á laug-
ardag, en ósamkomulag um um-
hverfismálafrumvarpið gæti stefnt
því í hættu. Þegar Morgunblaðið
fór í prentun í nótt voru forsetar
þingsins á fundi um þetta mál og
var það þá enn óútkljáð, hver þing-
lausnadagur verður.
þeirra, þegar lögreglan gerði
húsleit. I gærkvöldi hafði ekki
verið greint úr hverjum blóðið
var. Tveir mannanna voru úr-
skurðaðir í gæsluvarðhald til 23.
maí, sá þriðji til 9. maí og konan
sömuleiðis. Þórir Oddsson, vara-
rannsóknarlögreglustjóri, kvaðst
í gærkvöldi ekki vilja tjá sig um,
hvort einhverjar játningar lægju
fyrir eða hvort hugsanleg morð-
vopn hefðu fundist.
I gær var liðin rétt vika frá því
að Þorsteinn Guðnason, starfsmað-
ur Olíufélagsins hf., fannst látinn á
vinnustað sínum, bensínstöðinni við
Stóragerði. Var ljóst að á hann
hafði verið /áðist með barefli og
bitvopni. Ódæðismaðurinn, eða
mennirnir, hafði um 300 þúsund
krónur á brott með sér og tók bif-
reið hins látna traustataki. Bifreiðin
fannst síðar þann sama morgun á
bílastæði við Vesturgötu 3. Rann-
sóknarlögreglan handtók fimm
menn vegna málsins í síðustu viku,
en þeim var sleppt úr haldi án þess
að farið væri fram á gæsluvarð-
haldsúrskurði.
Lögreglan handtók seint á mánu-
dagskvöld tvo menn og eina konu,
á aldrinum 20 til 30 ára. Við hús-
leit fundust blóðug föt í fórum eins
þeirra, en samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins hafði í gærkvöldi
ekki verið greint úr hveijum blóðið
var. Mennirnir voru úrskurðaðir í
gæsluvarðhald til 9. og 23. maí og
konan til 9. maí.
Fjórði maðurinn, sem er á fer-
tugsaldri, var yfirheyrður af rann-
sóknarlögreglunni í gær. í gær-
kvöldi var hann úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 23. maí.
Fólkið hefur allt komið við sögu
lögreglunnar áður vegna ýmiss kon-
ar afbrota.
Helgi Daníelsson yfirlögreglu-
þjónn Rannsóknarlögreglu ríkisins
sagði í samtali við Morgunblaðið
að unnið hefði verið að rannsókn
málsins í viku og fjöldi manns hefði
haft samband við lögreglunna með
vísbendingar. Handtökurnar nú
væru árangur mikillar vinnu.