Morgunblaðið - 31.05.1990, Side 11

Morgunblaðið - 31.05.1990, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAI 1990 11 ímyndunarveikin Dóttir Argans hins ímyndunarveika, miður sín yfir væntanlegum ráðahag. Guðrún Öyahals, Margrét Óskarsdóttir og Sæmundur Andrésson í hlutverkum sinum. ________Leiklist___________ Guðrún Þóra Gunnarsdóttir Leikhópurinn Fantasía sýnir Imyndunarveikina eftir Moli- ére. Þýðandi: Lárus Sigur- björnsson. Lýsing: Egill Ingi- bergsson. Leikmynd: Kári Hall- dór. Hárkollur: Sigurbjörg Eiðsdóttir, Elsa D. Gísladóttir, Jóhann Valdimarsson, Asta Jónsdóttir og Guðrún Sigurðar- dóttir. Búningar: Jóna María Norðdah), Oddný Kristjáns- dóttir, Olöf Björg Krisljáns- dóttir og Sólveig Þóra Jóns- dóttir. Leikstjóri: Kári Halldór. Verk Moliéres, föður franska gleðileiksins, hafa kitlað hlátur- taugar leikhúsgesta allt frá því á sautjándu öld og virðast enn lifa góðu lífi. Þrátt fyrir mikið skop er alvara í leikritum Moliéres, honum var illa við alla sýndar- mennsku og fals og samúð hans var með almúganum en ekki yfir- stéttinni. Persónusköpunin ber verk hans uppi, hún er ýkt eins og í sönnum gleðileik og ákveðnir eiginleikar dregnir út og stækkað- ir s.s. auragirnd og ímyndunar- veiki. Síðasta leikrit Moliéres var Imyndunarveikin og fjallar hún um mann sem er svo ímyndunar- veikur að hann er lækna- og lyf- salamatur þrátt fyrir að enginn skapaður hlutur sé að honum nema eigin ímyndun. Auk þess er kauði með afbrigðum trúgjarn og auðvelt að blekkja hann. Læknastéttin, eiginkonan og aðrir heimilismenn notfæra sér það líka óspart. Leikhópur Fantasíu sýndi fyrr í vetur leikspuna án orða og nú hafa þau snúið sér að klassíkinni. Það er talsvert stórt stökk og mikið í ráðist. Sýningin er öll vel úr garði gerð og lítið til sparað að hafa hana sem glæsilegasta og ná andrúmslofti Loðvíks XIV með tilheyrandi pilsaþyt og íburð- armiklum hárkollum. Lítill leik- hópur ræður ekki við slíkt nema með útsjónarsemi og Fantasía leitaði liðsinnis hjá iðnskólanem- um í fatahönnun og nemum í fjöl- tæknideild Myndlista- og handíða- skóla íslands sem hafa hannað og saumað búninga og hárkollur. Leikmyndin er að vísu ekki íburð- armikil, stór kamar á miðju bak- sviði dregur að sér mesta athygli og vísar hann til sífelldra iðrakve- isukasta húsbóndans. Lifandi píanóleikur var í ágætum höndum Eiríks Guðmundssonar og lífgaði hann mikið upp á sýninguna. Leikarar Fantasiu eru allt áhugaleikarar og ber sýningin á stundum þess merki, einkum er framsögn sumra viðvaningsleg á köflum. En látbragðið allt er til fyrirmyndar, svipbrigði og hreyf- ingar vel unnar. A frumsýningu var svolítið um mismæli en það hafa sjálfsagt verið byrjunarörð- ugleikar og verður fljótt að púss- ast af. Verra fannst mér að sýn- ingin rann ekki nógu vel, það skorti tempó eins og sagt er á vondu máli, meiri hraða og kraft. Á stundum vildi hún falla svolítið niður og leikurinn verða kraftlít- ill. Þetta er einkum þegar lítið var að gerast á sviðinu, í sjálfum gam- anatriðunum ná .leikaramir sér prýðilega á strik. Leikmáti þeirra er allur mjög áþekkur, greinilega mjög samhæfður hópur. Mörgum áhugamannaleikurunum hættir til að ýkja um of persónur gaman- leikja en Fantasíuhópurinn fellur aldrei í þá gryfju og leikur yfir- leitt á mjög látlausan hátt með viðeigandi ærslum. Leikarar eru átta talsins og fara sumir með fleira en eitt hlutverk. Sæmundur Andrésson lék Argan hinn ímynd- unarveika og Gunnhildur Öyahals fláráða eiginkonu hans. Margrét Óskarsdóttir fór með hlutverk tveggja dætra hans, þeirra Ang- élique og Louison, og Ágústa Skúladóttir lék röggsama systur Argans. Marteinn Arnar Mar- teinsson lék elskhuga Angélique en Bjarni Guðmarsson fór með hlutverk lögbókara, lyfsala og læknis. Bjarni Gunnarsson var klunnalegur biðill Angélique og lék einnig lækni Argans. Guðrún Öyahals lék hina gáfuðu og út- smognu vinnukonu Toinette. Allt það sem ég hef sagt hér að fram- an um leikarana á við hvern og einn og mér finnst að það yrði aðeins leiðinleg langloka, sem segði lítið, að telja upp frammi- stöðu hvers og eins. Eins og áður sagði em þeir ótrúlega samstiga í leik sínum og að mínu mati skar- aði enginn fram úr öðrum. Það var oft mjög gaman á þess- ari sýningu Fantasíu, í leikhúsi Frú Emilíu í Skeifunni, gott að kitla hláturtaugarnar svolítið og ganga svo út í bjarta vornóttina. Það er gott framtak að lengja leikhúsárið því það tilheyrir ekki vetrinum einum að fara í leikhús. M-hátíð á Vesturlandi: Fjölbreytt dagskrá framundan SVO SEM kunnugt er stendur nú yfir M-hátíð á Vesturlandi í sam- vinnu sveitarfélaga á Vesturlandi og menntamálaráðuneytisins. Fjölmörgum dagskráratriðum er þegar lokið en á næstu dögum verða eftirtalin atriði á dagskrá: Fimmtu- daginn 31. maí kl. 20.00 verður opn- uð í grunnskólanum í Borgarnesi sýning 14 frístundalistamanna í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu. Sýn- ingin verður opin til 10. júní alla virka daga kl. 16.00-22.00 og kl. 14.00- 22.00 um helgar. Sama dag, fimmtudaginn 31. maí, verður opnuð sýning á handavinnu eldri borgara í Borgamesi og ná- grenni sem þeir hafa unnið í „Opnu húsi“ sem haldið hefur verið vikulega í allan vetur. Sýningin verður í grunnskólanum í Borgarnesi og verð- ur opin 31. maí til 4. júní á sama tíma og sýning frístundalistamanna. Fimmtudaginn 31. maí kl. 21.00 verður haldin skemmtun í Þinghamri sem samanstendur af atriðum frá nokkrum skólum á Vesturlandi. Skólarnir eru: Grunnskóli Laxárdals- hrepps, Laugaskóli í Dölum, Lýsu- hólsskóli, Laugagerðisskóli, Klepp- járnsreykjaskóli, Andakflsskóli, Heiðarskóli og Varmalandsskóli. Að lokinni skemmtuninni verður opnuð mynd- og handmenntasýning á verk- um nemenda í Varmalandsskólav Sýningin verður opin alla virka daga kl. 16.00-22.00 og 14.00-22.00 um helgar. Laugardaginn 2. júní heldur Lang- holtskórinn tónleika að Hlöðum og hefjast þeir kl. 15.00. Stjórnandi kórsins er Jón Stefánsson. Þessir tónleikar eru á vegum Tónlistarfé- lags Borgarfjarðar. (Fréttatilkynning) Ijaldstæðin á Þingvöllum ekkiopnuð á næstunni TJALDSTÆÐI á Þingvöllum verða að öllum líkindum ekki opnuð næsta hálfa mánuðinn vegna ástands gróðurlendis. Að sögn Heimis Steinssonar, þjóð- garðsvarðar, hefur vorað seint á Þingvöllum, og þar er því ennþá víða snjór í lautum og drögum, og bleyta í jörðu. „Útjörð er alveg ógróin hér enn- þá, og hvergi er farið að grænka nema á ræktuðu landi. Við opnum því ekki tjaldsvæðin að sinni, og að minnsta kosti ekki um næstu helgi. Búið er að opna bæði þjón- ustumiðstöðina og hótel Valhöll, þannig að gestir og gangandi að deginum til eru mikið velkomnir, og leiðsögn er til reiðu fyrir þá sem óska þess,“ sagði Heimir. Selfoss: Leiðrétt- ar tölur Atkvæðatölur frá Selfossi sem birtust í blaðinu á þriðjudag voru ekki alveg réttar. Réttu tölumar eru: B-listi Framsóknarflokks fékk 495 atkvæði og tvo menn kjörna eða 21,52%, D-listi Sjálfstæðis- flokks fékk 856 atkvæði og fjóra menn kjörna, 37,21%, F-listi óháðra fékk 184 og engan mann, 8%, K- listi félagshyggjufólks fékk 713 atkvæði og þijá menn kjörna eða 31%. sem allir hafa beðið effir stendur sem hæst á Bíldshöfða 10 og mörgu mörgu öðru fyrir OPNUNARTIMI Föstudag....kl.13 -19 Laugardag -16 Aöra daga .... k!.13 -18 ártúnsbrekka Frítt Kaffi Myndbandahorn fyrir börnin ESSO BILDSHOFÐI SUMARÚTSOLUMARKAÐUR BÍLSHÖFÐA10 VESTURLANDSVEGUR straumur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.