Morgunblaðið - 31.05.1990, Síða 12
12_____________________ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1990
Karlakórmn Stefiiir er ekki í
Söngsveitinni Fílharmóníu
eftirHöskuld
Þráinsson
Flutningur níundu sinfóníu
Beethovens
Fimmtudaginn 17. maí voru
áskriftartónleikar hjá Sinfóníu-
hljómsveit íslands í Háskólabíói.
Þar var m.a. flutt níunda sinfónía
Beethovens. í öllum fréttum af þeim
tónleikum var talað um að Söng-
sveitin Fílharmónía flytti þetta verk
með Sinfóníuhljómsveitinni. Þar
sem söngfólk var talið upp í söng-
skrá stóð líka „Söngraddir í Söng-
sveitinni Fílharmóníu í maí 1990“.
Þetta er því miður ekki alveg rétt
en forráðamenn Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar og Fílharmóníu hafa
reynst ófáanlegir til að leiðrétta
það.
Hverjir voru í kórnum?
Hið rétta í málinu er þetta: Sin-
fóníuhljómsveit íslands gerði samn-
ing við Söngsveitina Fílharmóníu
um saínvinnu við flutning þessa
verks, enda hefur Söngsveitin oft
eða oftast séð ein um kórsönginn
þegar níunda sinfónían hefur verið
flutt hér á landi. Svo var þó ekki
vorið 1987, en þá tóku félagar úr
Karlakórnum Stefni og Þjóðleikhús-
kómum þátt í flutningnum í
Reykjavík og auk þess bættist söng-
fólk frá Akureyri í hópinn þegar
verkið var flutt þar. Þetta kom allt
skýrt fram í söngskrám á þeim tíma
eins og vera ber, og einnig á tónleik-
unum sjálfum. Að þessu sinni fékk
Karlakórinn Stefnir boð um það
(frá Fílharmóníu) að óskað væri
eftir þátttöku hans í þessum flutn-
ingi. Um helmingur Stefnismanna
(28 söngmenn) sá sér fært að taka
þátt í þessu þannig að tæpur helm-
ingur karlaraddanna í kórnum sem
söng á tónleikunum vav úr Stefni.
Það var gaman að syngja með þessu
ágæta söngfólki úr Fílharmóníu og
æfingar voru vel skipulagðar hjá
kórstjóranum. Hljómsveitarstjórinn
lagði líka mikla áherslu á kórsöng-
inn svo að samspil kórs og hljóm-
sveitar varð betra nú en stundum
áður.
Fréttaflutningur af
tónleikunum
Miðvikudaginn 16. maí birtist
frétt um það í Morgunblaðinu að
þessir tónleikar væru fyrirhugaðir.
Upplýsingafulltrúi Sinfóníunnar var
höfundur fréttarinnar.' í fréttinni
kom ekki fram að Stefnir ætti neina
aðild að tónleikunum. Þess vegna
skrifaði ég framkvæmdastjóra Sin-
fóníunnar bréf með ósk um að þetta
yrði leiðrétt með einhveijum hætti.
Ég færði honum bréfíð, sagði hon-
um frá efni þess, sendi afrit af því
til upplýsingafulltrúans og fór með
það til formanns Fílharmóníu og
kórstjóra. Það gáfust næg tækifæri
til þess að leiðrétta þetta í fréttum
(t.d. í sjónvarpi), á tónleikum eða
í blöðum en það var ekki gert og
hefur ekki verið gert enn. Tónlistar-
gagnrýnendur blaðanna fengu til
dæmis ekkert um þetta að vita.
Hljómsveitarstjóri, einsöngvarar og
kórstjóri Fílharmóníu voru auðvitað
kallaðir fram í lok tónleikanna og
hylltir eftir vel heppnaðan flutning
í Háskólabíói. Þá benti hljómsveit-
arstjórinn Lárusi Sveinssyni,
trompetleikara í Sinfóníunni, að
standa upp og hneigja sig óg
hvíslaði um leið til hans: „Lárus,
your choir!“ En þar sem kórs Lárus-
ar (Lárus er nefnilega söngstjóri
Stefnis) hafði hvergi verið getið
hefðu áheyrendur (og áhorfendur)
auðvitað haldið að trompetleikarinn
væri kallaður fram fyrir góðan
trompetleik (t.d. þær strófur sem
hann hefði tekið baksviðs í Leónóru-
forleik Beethovens fyrr á tónleikun-
um). Þess vegna brosti trompetleik-
arinn bara og hristi höfuðið. -Annað
var ekki hægt að gera.
Afrnæli dr. Róberts A.
Ottóssonar
Nú hefur kannski einhveijum
þótt óviðeigandi að blanda Stefni
opinberlega í þennan flutning
níundu sinfóníunnar af því að tón-
leikarnir voru haldnir á afmælisdegi
dr. Róberts A. Ottóssonar, en það
var einmitt undir stjórn hans sem
Söngsveitin Fílharmónía frumflutti
þetta verk hér á landi með Sinfón-
íunni árið 1966. Ég átti þess kost
að syngja í Fílharmóníu undir stjórn
Róberts og hann var einhver ein-
lægasti og heiðarlegasti maður sem
ég hef kynnst. Þess vegna er ég
viss um að hann hefði viljað að
þessi leiðrétting kæmi fram.
Höfundur er formaður
Karlakórsins Stefnis.
Þorgerður Sigurðardóttir á
vinnustofu sinni.
■ ÞORGERÐUR Sigurðardóttir
opnar sýningu í vinnustofu sinni á
Lambastaðabraut 1, Seltjarnar-
nesi. Þorgerður sýnir þar smá-
myndir, sem hún hefur unnið í vet-
ur. Myndirnar eru plexíglerristur
og mónóþrykk og sýna jökulinn í
nálægð, enda ber sýningin yfír-
skriftina: í nálægð jökuls. Þor-
gerður lauk námi frá grafíkdeild
Myndlista- og handiðaskólans
vorið 1989 og er þetta fyrsta einka-
sýning hennar. Sýningin, sem er á
vinnustofu hennar, er opin frá kl.
15—19 og 20—22 alla daga frá 31.
maí—9. júní.
H ALDA Sveinsdóttir opnar
sýningu í Gallerí 8 í Austurstræti
laugardaginn 2. júní og verður sýn-
inging opin yfir hvítasunnuhelgina
kl. 14-18 alla dagana. Alda stund-
aði nám í Myndlistarskóla Reykja-
víkur og Myndlista- og handíða-
skóla íslands, þaðan sem hún lauk
prófi í kennaradeild. Einnig hefur
Alda sótt námskeið hjá ýmsum
myndlistarmönnum. Hún hefur
haldið einkasýningar í Galleri Land-
lyst í Vestmannaeyjum 1981, Ing-
ólfsbrunni í Reykjavík 1986, Égils-
búð á Neskaupstað 1987 og Reuff-
el Buchhandlung í Koblenz í Þýska-
landi 1989. Einnig hefur hún tekið
þátt í ýmsum samsýningum, s.s.
farandsýningu um Norðurlönd
1987, í Ólafsvík 1987 og í Hafnar-
galleríi 1987. Alda sá um uppsetn-
ingu sýningar á list fatlaðra í Lista-
safni ASÍ í mars 1990. Meginvið-
fangsefnið á sýningunni um hvíta-
sunnuhelgina er konur. Myndirnar
af konunum eru málaðar með
vatns- og akrýllitum.
(Fréttatilkynning)
■
Innlausn
HLUTABRÉFAí
S A. MVIN NUBANKA
í SLANDS HF.
SAMRÆMI VIÐ SAMNING L A N O S B A N K A ísLANDS VIÐ SaMVINNCJ-
BANKA ÍSLANDS HF. DM SAMEININGU BANKANNA II EFUK
Landsbankinn að undanförnu leyst til sín hlutabréf í
Samvinnubankanljm.
'ANDSBANKINN HEFUR LEYST ÞESSI BRÉF TIL SÍN A 2,749-FÖLDU
NAFNVERÐI OG MIÐAST KAUI'IN VIÐ 1. JANÚAR 19 9 0. ÞeTTA FELUR í
SÉR AÐ GREIDDIR ERU VEXTIR A KAUPVERÐIÐ FRA ÞEIM TÍMA.
I NNLAUSN HLUTABRÉFA ERNU LANGT KOMIN EN VEGNA FJÖLDA
ÓSKA FRÁ HLUTHÖFUM HEFUR VERIÐ AKVEÐIÐ AÐ LENGJA FRESTINN
SEM HLUTHAFAR HAFA TIL INNLAUSNAR. FRESTURINN RENNUR
UT 1 O. J ÚLÍ N . K .
LLUM HLUTHÖFUM HEFUR VERIÐ SENT BRÉF SEM HEFUR AD
GEYMA TILBOÐ BANKANS. NaUÐSYNLEGT ER AÐ HAFA TILBOÐS-
BRÉFIÐ MEÐFERÐIS ÞEGAR GENGIÐ ER F R A ÍNNLAUSN.
L
Landsbanki
íslands
Banki alira landsmanna