Morgunblaðið - 31.05.1990, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1990
Garðbæingar halda
Listahátíð í júní
EFNT verður til listahátíðar í Garðabæ dagana 2. og 4. júní næst-
komandi. Haldnir verða tvennir tónleikar, hinir fyrri í íslensku
óperunni í Reykjavík laugardaginn 2. júní kl. 13.30 en hinir síðari
verða í Kirkjuhvoli, Garðabæ mánudaginn 4. júní kl. 13.30.
Á listahátíðinni kemur fram
hópur ungra hljóðfæraleikara og
söngvara. Einnig koma fram tveir
ballettdansarar. Allir listamennirn-
ir eru úr Garðabæ.
I hópi tónlistarfólksins eru fimm
fiðluleikarar, sex söngvarar, tveir
gítarleikarar, tveir sellóleikarar,
tveir slagverksleikarar auk saxa-
fón-, horn-, sembal- og píanóleik-
ara. Eitt tónskáld er í hópnum,
Hildigunnur Halldórsdóttir, og hef-
ur hún samið nýtt tónverk í tilefni
hátíðarinnar. Verkið verður frum-
flutt á laugardaginn. Tólf lista-
mannanna, sem eru 25, stunda
nám og störf erlendis, flestir í
Bandaríkjunum en alls í sex lönd-
um. Nokkrir koma gagngert til
þess að taka þátt í listahátíðinni
’og hverfa af landi brott að henni
lokinni.
í frétt frá forsvarsmönnum hát-
íðarinnar kemur fram að hún á
einkanlega að minna á tvennt. í
fyrsta lagi glæsilegan hóp ungs
fólk á framabraut og í öðru lagi á
þörfina á því að byggð verði sem
fyrst menningar- og listamiðstöð í
Garðabæ. í miðstöðinni þarf að
vera góður samkomusalur, rúmg-
ott leiksvið og búningsherbergi,
hljómleikasalur með nauðsynleg-
um tækjum og hljóðfærum, dg
notaleg kaffistofa. Listasafn þar
einnig að vera í húsinu og þar
ætti tónlistarskólinn að fá inni.
Aðgöngumiðar á tónleikana fást
í bókabúðinni Grímu við Garðatorg
í Garðabæ og kosta 1000 krónur.
Afgangsmiðar verða seldir við inn-
ganginn í íslensku óperunni og í
Kirkjhvoli. Framkvæmdastjóri
Listahátíðar í Garðabæ er Vilberg
Júlíusson fyrrverandi skólastjóri.
Færeysk þingmannanefhd í opinberri heimsókn
Færeysk þingmannanefnd kom í heimsókn hingað
til lands á þriðjudag og var myndin tekin við kom-
una til Reykjavíkur. Á Reykjavíkurflugvelli tóku
Árni Gunnarsson forseti neðri deildar, Friðrik Ólafs-
son skrifstofustjóri Alþingis og Aðalheiður Birgis-
dóttir ritari skrifstofustjóra á móti færeysku gestun-
um.I dag og í gær dag ferðast Færeyingarnir um
Suðurland til Reykjavíkur með viðkomu á Höfn,
Kirkjubæjarklaustri, í Gunnarsholti, á Nesjavöllum,
Þingvöllum og víðar.
Gallerí Sævars Karls:
Listahátíðarsýning Eddu Jónsdóttur
Listahátíðarsýning Gallerís dóttur. 1971-1976 og síðan við grafíkdeild
Sævars Karls, Bankastræti 9, er Edda stundaði nám við Mynd- Ríkisakademíunnar í Amsterdam
myndlistarsýning Eddu Jóns- lista- og handíðaskóla íslands 1977-1978. Hefur auk þess dvalið
við vinnu í New York, París og
Sevilla þar sem hluti þessara
mynda er unninn.
Edda Jónsdóttir hefur haldið 10
einkasýningar heima og erlendis
ásamt þátttöku í íjölda alþjóðlegra
sýninga. Hún á verk á sýningunni
íslendingamir koma sem er í Köln
um þessar mundir. Á verk m.a. í
eigu Listasafns íslands, listamið-
stöðva á Norðurlöndum og Mod-
érna Grafik-safnsins í Egyptal-
andi.
Sýningin nefnist Vörður og eru
vatnslitamyndir og smáskúlptúrar
úr gleri, grásteini og pappamassa
- hugleiðingar listamannsins um
vörðuna sem vegvísi.
Sýningin stendur frá 1.-24. júní
og er opin á verslunartíma, kl.
9-18.
Edda Jónsdóttir
Nýr vettvangur misstí fylgi til
Framsóknarflokks og Alþýðu-
bandalags á lokasprettinum
- segir Ólafiir Þ. Harðarson stjórnmálafræðingnr
ÓLAFUR Þ. Harðarson lektor í sljórnmálafræði telur að síðustu
tvær vikurnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar halí Nýr vettvang-
ur tapað fylgi, og á lokasprettinum fyrir kosningamar hafí Fram-
sóknarflokkur og Alþýðubandalag bætt við sig fylgi frá Nýjum
vettvangi. Þá telur hann jafrivel að Nýr vettvangur hafí einnig
tapað einverju fylgi Alþýðuflokksmanna yfir til Sjálfstæðisflokksins
síðustu dagana fyrir kosningamar.
„Stærsta frávikið, og raunar eini
stóri munurinn á könnun Félags-
vísindastofnunar og kosningaúrslit-
unum, var fylgi Nýs vettvangs, og
ég tel að meginskýringin á því hafi
verið sú að stofnunin spurði fyrr
en DV og Skáís. Mér sýnist allt
benda til þess að síðustu tvær vik-
umar fyrir kosningar hafí Nýr vett-
vangur tapað fylgi, og það virðist
nokkuð ljóst að á lokaspretti kosn-
ingabaráttunnar bættu að minnsta
kosti Framsóknarflokkur og Al-
þýðubandalag við sig fylgi, senni-
lega frá Nýjum vettvangi. Svo kæmi
það mér ekki á óvart, þó ekki verði
um það fullyrt, að Nýr vettvangur
hafi líka tapað einverju kratafylgi
yfir til Sjálfstæðisflokksins síðustu
dagana fyrir kosningarnar," sagði
Ólafur.
Hann sagðist telja að skoðana-
könnun Félagsvísindastofnunar
hafí verið nærri lagi þegar hún var
gerð, en hafa bæri í huga að hún
hafí verið gerð fyrr en síðasta könn-
un DV og Skáís.
„Könnun Félagsvísindastofnunar^
ber vel saman við úrslitin hvað varð-
ar fulltrúafjölda, nema hvað hún
gerði ráð fyrir þremur fulltrúum
Nýs vettvangs og níu fulltrúum
Sjálfstæðisflokks, en úrslitin urðu
tveir og tíu. Það ber hins vegar að
hafa í huga, að það er aldrei við
því að búast að könnunum beri al-
veg saman við niðurstöður kosn-
inga, vegna þess að fylgið er í raun-
inni á fleygiferð alveg fram á
síðustu stundu. Það er mjög stór
hópur sem tekur endanlega ákvörð-
un í síðustu einni eða tveimur vikum
fyrir kosningar, og að minnsta kosti
10-20% kjósenda ákveða sig á kjör-
dag.“
Olafur sagðist hafa orðið var við
að sumir teldu að Félagsvísinda-
stofnun hafi breytt niðurstöðum
könnunar sinnar varðandi Sjálf-
stæðisflokkinn með því að taka til-
lit til þess hvemig könnunum og
kosningum hafi borið saman áður,
en það væri hins vegar ekki rétt.
„Stofnunin vó niðurstöðumar
með tilliti til annarra svara í könn-
uninni sem var gerð fyrir þessar
kosningar, og þó þeirri aðferð fylgi
ákveðin vandamál, þá er greinilegt
að hún hefur borið miklu betri
árangur en þær aðferðir sem aðrir
hafa notað, því frávikið á Sjálfstæð-
isflokknum var lang minnst hjá
Félagsvísindastofnun. Þegar á allt
er litið þá er ég því þokkalega
ánægður og tel að könnun stofnun-
arinnar hafi verið nokkuð nærri
lagi þegar hún var gerð,“ sagði
Ólafur Þ. Harðarson.
Daglegar reykingar 12 - 16 ára
stráka í grunnskólum Reykjavíkur
16 ára
Borgarlæknir
I 1986
1990
Strákar reykja minna
en vilja síður hætta
TALSVERT fleiri stúlkur en strákar reykja á aldrinum 13 til 16
ára. Þeir strákar sem reykja, virðast byija fyrr en stúlkurnar, og
hafa minni áhuga á að hætta að reykja en þær. Þetta er meðal þess
sem kom fram í könnun borgarlæknisembættisins á reykingavenjum
reykvískra unglinga en í dag, 31. maí, er haldinn alþjóðlegur tóbak-
svarnardagur.
Kynjamunurinn á jafnt við um
daglegar reykingar og fikt. Niður-
stöðunum ber saman við kannanir
Tóbaksvarnarnefndar, sem sýna
einnig meiri reykingar meðal ungra
kvenna en karla. Þegar unglingarn-
ir, sem voru á aldrinum 12 til 16
ára, voru spurðir um afstöðu sína
til þess að hætta að reykja, kom í
ljós að 71% stelpna óskuðu þess að
hætta að reykja en 53% stráka.
Dregið hefur úr reykingum ungl-
inga í öllum aldurshópum utan
þrettán ára en reykingar hjá þeim
aldurshóp hafa aukist lítillega, úr
5,15% í 7,25%. Þá hafa 14 ára
unglingar nánast staðið í stað frá
síðustu könnun borgarlæknisem-
bættisins, sem var gerð 1986.
Þá var einnig spurt um reykingar
á heimilum barna og unglinga. Þar
kom fram að 42% barna í 3. til 9.
svöruðú því til að ekkert væri reykt
á heimilinu. Hjá þeim börnum og
unglingum sem reykja, reykir ein-
hver á heimilinu í 71% tilvika en í
56% tilfellum heima hjá þeim sem
ekki reykja. í frétt frá borgarlækni-
sembættinu segir að af þessu sjáist
að meirihluti þeirra barna sem ekki
reykja, búi við það að einhver á
heimilinu reyki. Ef haft sé í huga
að mörg börn andi einnig að sér
tóbaksreyk annars staðar, hljóti það
að vera tiltölulega fá börn sem séu
laus við að anda að sér tóbaksreyk.
Daglegar reykingar 12-16 ára
stúlkna í grunnskólum Reykjavíkur
%
Borgarlæknir
IS 1986 BB 1990