Morgunblaðið - 31.05.1990, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1990
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir ÁSGEIR SVERRISSON
Fundur leiðtoga risaveldanna í Washington:
Veik samningsstaða Gorbatsj-
ovs einkennir viðræðumar
FYRIR réttu hálfu ári komu leiðtogar risaveldanna, þeir George
Bush Bandaríjkjaforseti og Míkhaíl S. Gorbatsjov, leiðtogi sovéska
kommúnistaflokksins, saman til fúndar á Möltu. Sá fúndur varð fyr-
ir margra hluta sakir sögulegur. Umgjörðin öll, sem í raun má telja
mikilvægasta þátt sérhvers leiðtogafundar, fór öll úr skorðum en í
lok viðræðnanna birtu leiðtogarnir tímamótayfirlýsingar; Kalda
stríðinu var lokið og upp runnið skeið sátta og samvinnu auk þess
sem stefiit yrði að því á þessu ári að undirrita bæði sáttmála um
stórfellda fækkun liðsafla og vígtóla í Evrópu og samning um fækk-
un langdrægra kjarnorkuvopna, öflugustu gereyðingarvopnanna í
vopnabúrum risaveldanna. Upp reis alda gleði og hrifhingar. En á
þessum sex mánuðum sem liðnir eru frá því leiðtogarnir brostu sínu
breiðasta framan í heimsbyggðina hafa gerst atburðir sem reyna
munu á slökunarstefnuna nýju. Og fullyrða má að atburðir þessir
hafi veikt samningsstöðu M.S. Gorbatsjovs er hann gengur í dag á
fúnd Bandaríkjaforseta.
Hrun kommúnismans í
Austur-Evrópu hefur leitt til
þess að Varsjárbandalagið er nú
aðeins nafnið tómt. Sjálfstæðis-
kröfur Eystrasltsþjóðanna hafa enn
aukið á vanda Gorbatsjovs og veikt
stöðu hans á alþjóðavettvangi.
Efnahagsástandið í Sovétríkjunum
fer sífellt versnandi og ástæða til
bjartsýni í þeim efnum er vand-
fundinn. Loks hefur það gerst að
andstæðingur Gorbatsjovs, um-
bótasinninn Borís Jeltsín, hefur
verið kjörinn forseti Rússlands,
stærsta og fjölmennasta lýðveldis
Sovétríkjanna og virðist í krafti
þess embættis geta skorað Gorb-
atsjov og stefnu hans á hólm. Orð-
rómur hefur verið á kreiki um að
heimsókn Gorbatsjovs til Banda-
ríkjanna verði jafnvel stytt af þess-
um sökum.
Glæsileg umgjörð
Umgjörð fundarins verður öll hin
giæsilegasta og Gorbatsjov mun
enn á ný gefast tækifæri til að
stíga fram á sviðið sem afburða-
snjall og umbótasinnaður leiðtogi.
Hann ætlar að halda til Minnea-
polis í Minnesota-ríki og í San
Francisco snæðir hann morgunverð
með Ronald Reagan fyrrum Banda-
ríkjaforseta, sem ítrekað hvatti
Sovétleiðtogann til að rífa Berlín-
armúrinn og gefa þjóðum Austur-
Evrópu frelsi. 250 ráðgjafar verða
með í för og þurfti 18 flugvélar til
að flytja þá, sex ZIL-glæsibifreiðar
og nauðsynlegan fjarskiptabúnað
yfir hafið til Bandaríkjanna. Þús-
undir blaðamanna fylgjast með
fundi tveggja valdamestu manna
heimsbyggðarinnar.
Upphaflega hafði verið ráðgert
að afvopnunarmál yrðu efst á baugi
í viðræðum leiðtoganna. Stefnt er
að því að þeir geti í lok fundarins
undirritað drög að svonefndum
START-sáttmála um fækkun lang-
drægra gereyðingarvopna. Að
líkindum verður jafnframt undirrit-
Míkhaíl Gorbatsjov
aður samningur um umtalsverða
fækkun efnavopna auk ýmissa
smærri samninga, sem embættis-
menn hafa unnið að og varða sam-
'skipti ríkjanna.
Afvopnun og sameining
Þýskalands
Ástandið í Sovétríkjunum og
hrun kommúnismans mun hins
vegar setja mark sitt á viðræður
leiðtoganna. Sovétmenn höfðu von-
ast tii þess að Bush Bandaríkjafor-
seti iýsti yfír því á Washington-
fundinum að Sovétríkin myndu
framvegis njóta bestu kjara sem
Bandaríkjamenn bjóða í utanríki-
sviðskiptum sínum. Nú herma
fréttir að Bandaríkjamenn hyggist
svara efnahagsþvingunum Gorb-
atsjovs og undirsáta hans gagnvart
Litháum með því að boða óbreytt
kjör í viðskiptum þjóðanna, sem
telja verður umtalsvert áfall fyrir
Sovétstjórnina í ljósi efnahags-
ástandsins. Ólíklegt er að leiðtog-
arnir nái sáttum í viðræðum um
sameiningu Þýskalands. Raunar
hefur Sovétstjómin látið að því
liggja að tilslakanir séu hugsanleg-
ar í deilu þessari. í fyrstu kröfðust
Sovétmenn þess að hið nýja og
sameinaða Þýskaland yrði hlut-
laust ríki. Því næst lögðu þeir til
að landið ætti bæði aðild að NATO
og Varsjárbandalaginu og nýjasta
tillagan í þessu efni er sú að Þjóð-
veijar verði aðilar að NATO en
taki ekki þátt í varnararsamstarfi
bandalagsins. Öllum þessum hug-
myndum hafa NATO-ríkin hafnað
og ekkert bendir til þess að Bush
forseti eða aðrir leiðtogar Vestur-
landa séu tiibúnir til að falla frá
því sjónarmiði sínu að Þýskaland
eigi að vera fullgilt aðildarríki
bandalagsins. Bush mun vafalítið
halda þessu sjónarmiði til streitu í
viðræðum sínum við Gorbatsjov.
Samningsstaða Sovétleiðtogans á
þessu vettvangi er ekki sterk;
Berlínarmúrinn heyrir sögunni til,
almenningur í þýsku ríkjunum
tveimur krefst sameiningar og lýð-
ræðissinnar eru orðnir sterkasta
afiið í austur-þýskum stjórnmálum.
Ágreiningurinn um sameiningu
Þýskalands hefur gert það að verk-
um að lítið sem ekkert hefur miðað
í Vínarviðræðunum um fækkun á
sviði hins hefðbundna herafla í
Evrópu, sem í daglegu tali eru
nefndar CFE-viðræðurnar. Á
Möltufundinum í desember sam-
þykktu leiðtogarnir að stefna bæri
að því að siíkur sáttmáli yrði tilbú-
inn til undirritunar á þessu ári.
Fyrirsjáanleg sameining hefur
veikt samningsstöðu Gorbatsjovs
og þær raddir eru teknar að heyr-
ast að forsendur fyrir slíkum sátt-
mála séu brostnar. Þannig sagði
Henry Kissinger, fyrrum utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna og einn
virtasti sérfræðingur Vesturlanda
á sviði öryggismála, í ræðu er hann
flutti í gær að viðræður þessar
miðuðu að því að dregin yrði
markalína í Mið-Evrópu, sem ekki
væri lengur til eftir hrun kommún-
ismans í Austur-Evrópu. Með falli
Berlínarmúrsins hefði línan sem
greindi austur frá vestri færst að
landamærum Póllands og Sov-
étríkjanna. Svo virðist sem Gorb-
atsjov hafi ekki önnur tromp á
hendi í viðræðunum um sameiningu
Þýskalands og stöðu þess í öryggis-
kerfi Evrópu en þá staðreynd að
þar eru 380.000 sovéskir hermenn.
Kröfur um að’þeir verði fluttir til
síns heima magnast eftir því sem
sameining þýsku ríkjanna færist
nær og þá blasir við sú staðreynd
að hermennirnir bætast í ört
stækkandi hóp húsnæðisleysingja
í Sovétríkjunum.
Bandaríkjaforseti á verði
Þess er tæpast að vænta að við-
ræður leiðtoganna í Washington
skili miklum árangri eða taki
óvænta stefnu líkt og gerðist á
Reykjavíkurfundi þeirra Reagans
og Gorbatsjovs árið 1986 þegar
minnstu munaði að Reagan gengi
að sérlega róttækum og öldungis
óraunhæfum afvopnunartillögum
án þess að hafa ráðfært sig við
bandamenn sína innan Atlants-
hafsbandalagsins. Bush mun einníg
sýna meiri varfærni en Reagan á
þessu sviði ekki síst í ljósi þess að
hann sætir vaxandi þrýstingi af
hálfu hægri sinnaðra flokksbræðra
sinna sem telja með öllu ástæðu-
laust að sýna sveigjanleika í sam-
skiptum við Gorbatsjov og fullyrða
jafnvel að óraunhæft sé að semja
við hann því hann verði ekki
langlífur í embætti. Auk efna-
vopnasáttmálans má því heita
líklegt að sameiginleg yfirlýsing
um stöðu mála í START-viðræðun-
um verði eini áþreifanlegi árangur
leiðtogafundarins í Washington.
Finnland:
Selja 15 skilyrði fyr-
ir Evrópusamstarfí
Helsinki. Frá Lars Lundsten fréttaritara Morgunblaösins.
FINNSKA ríkissljórnin hefur nú
sent utanríkisnefhd finnska
þingsins athugasemdir vegna
viðræðna um sameiginlegt evr-
ópskt efnahagssvæði (EES). Þar
eru tilgreindir 15 málaflokkar
þar sem Finnar telja sig verða
að fá undantekningar frá þeim
megin reglum sem nú gilda innan
Evrópubandalagsins (EB).
Fyrirvarar ríkisstjórnarinnar
varða einna helst rétt útlendinga
til kaupa á fasteignum, bönkum og
tryggingafélögum en hann er nú
mjög takmarkaður. Hyggist útlend-
ingur t.a.m. eignast íbúð í Finn-
landi verður hann að sækja um
sérstakt leyfi þar að lútandi til ríkis-
stjórnarinnar. Þótt einhverjar til-
slakanir séu fyrirsjáanlegar vill
ríkisstjómin samt geta takmarkað
þessi viðskipti, einkum rétt útlend-
inga til að kaupa sumarhús og
strandlóðir. Óttast Finnar að út-
lendingar eignist skóga landins eða
skerjagarðinn, ef ekki verða settar
hömlur á fasteignakaup þeirra.
VIÐSKIPTAVINIR ATHUGIÐ
Föstudaginn 1. júní verður skipt
um símanúmer hjá fyrirtækinu.
Nýja símanúmerið okkar verður
675100
HfiNS PETERSEN HF
Lynghálsi 1, sími 675100
Réttarhöld í Rúmeníu:
Verður sonur Ceaus-
escus hvítþveginn?
Sibiu. Daily Telegraph.
MARGT bendir nú til þess að hinn fertugi Nicu Ceausescu, sonur
Nicolae Ceausescus sem var einræðisherra Rúmeníu um áratuga
skeið, verði ekki dæmdur í lífstíðarfangelsi eins og flestir höfðu
búist við. Réttarhöld yfir honum hófust um síðustu helgi og var
aðalákæran þjóðarmorð en þegar á mánudag var ljóst að illa myndi
ganga að fá vitnisburð sem dygði til sakfellingar. Áthygli hefur vak-
ið að Nicu, er virðist rólegur og fullur sjálftrausts, fær að klæðast
eigin fötum og þarf ekki að bera hefðbundinn, röndóttan fangabún-
ing. Eitt vitnanna hefur nokkrum sinnum hrakyrt núverandi varnar-
málaráðherra fyrir þátt hans í fjöldamorðum á óbreyttum borgurum
í borginni Timisoara í desember.
Nicu Ceausescu er sakaður um
að hafa skipað herliði stjórnvalda í
Sibiu, þar sem hann var flokksleið-
togi, að skjóta á almenning í átök-
um sem urðu í desember. 89 manns
féllu og hundruð særðust. Yfirmað-
ur herafians í Sibiu, Aurel Dragom-
ir hershöfðingi, segir Nicu hafa fyr-
irskipað að fleiri hermönnum yrði
teflt fram er ástandið varð æ erfið-
ara viðfangs. En ákæruvaldinu
tókst ekki að gera sér mikinn mat
ú þessum framburði því að hers-
höfðinginn vísaði allri ábyrgð hers-
ins á skothríðinni á bug, sagði að
þar hefðu verið á ferð dularfullir
menn í svörtum frökkum og lög-
reglulið. „Ekkert hefði getað breytt
rás viðburðanna," sagði Dragomir.
„Jafnvel þótt Nicu hefði sjálfur ver-
ið í fararbroddi fólksins hefðu liðs-
menn öryggislögreglunnar, Securit-
ate, og lögreglunnar hafið
skothríð."
Ioan Scarletescu, háttsettur emb-
ættismaður í Sibiu, sagðist hafa
hringt í Nicu kvöldið sem drápin
áttu sér stað og hefði flokksleiðtog-
inn þá ekkert um þau vitað. Þriðja
vitnið, náinn vinur Nicus, sagði son-
inn engan þátt hafa tekið í glæpa-
verkum foreldranna. Nicu var al-
ræmdur fyrir drykkjuskap og ólifn-
að; hann er sagður hafa komið fyr-
ir útsendurum í verksmiðjum hér-
aðsins og áttu þeir að velja laglegt
kvenfólk til þátttöku í svallveislum
hans.
Dragomir hershöfðingi formælti
oft sitjandi varnarmálaráðherra,
Viktor Stanculescu hershöfðingja, í
vitnisburði sínum. Stanculescu
gegndi mikilvægri stöðu í Timisoara
þar sem uppróisnin hófst og nær
hundrað óbreyttir borgarar féllu.