Morgunblaðið - 31.05.1990, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAI 1990
Stofiianir Akureyrarbæjar:
Kvennavinnustaður
með goða framamögu-
leika fyrir karlmenn
HEIMFÆRA má upp á Akureyrarbæ það sem sagt hefur verið um
sumar aðrar bæjarstofiianir á Norðurlöndum, að þær eru kvenna-
í' vinnustaðir með góða framamöguleika fyrir karlmenn. Þetta er ein
af niðurstöðum rannsóknar sem gerð var á vegum verkefiiisins Brjót-
um múrana á stöðu kvenna hjá fjórum stórum fyrirtækjum á Akur-
eyri, þar á? meðal Akureyrarbæ. í skýrslunni „Ábyrgð/áhrif/álag“
verður að finna niðurstöður rannsóknarinnar, en í Bæjarpóstinum,
fréttabréfi Akureyrarbæjar, skrifar Valgerður H. Bjarnadóttir verk-
efiiisfreyja Brjótum múrana grein
í grein sinni segir Valgerður, að
ekki þurfi rannsókn til að staðfesta
að stofnanir bæjarins eru kynskipt-
ir vinnustaðir, konur eru í yfirgnæf-
andi meirihluta á félags- og
fræðslusviði, í þjónustu og um-
mönnun. Karlar séu einangraðir á
tækni- og umhverfissviði og á veitu-
sviði. Á fjármála- og félagsmála-
sviði sé ríkjandi hefðbundin verka-
í- skipting, konur eru í meirihluta í
hópi almenns starfsfólks, en karla-
meirihlutinn vaxi eftir því sem ofar
dragi í valdapýramídann.
í yfirliti yfir stjórnendur stofnana
bæjarins eftir að nýtt stjórnsýslu-
kerfi tók gildi hjá Akureyrarbæ
kemur fram að þrír yfirmenn aðal-
sviða; fjármálasviðs, tækni- og
umhverfissviðs og félags- og
Féll af lyftara
Rúmlega fímmtugur maður féll
af lyftara þar sem hann var við
vinnu sína hjá Fóðurvörudeild KEA
á Oddeyrartanga um kl. 13.30 í
gærdag. Maðurinn var fluttur á
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri,
en að sögn lögreglu var ekki vitað
nákvæmlega um meiðsl hans.
um stöðu kvenna hjá Akureyrarbæ.
fræðslusviðs, eru karlar, yfirmenn
veitustofnana eru þrír karlar og 15
deildarstjórar eru kartar, auk þess
sem bæjarstjóri er karl. Tvær konur
eru deildarstjórar, báðar á félags-
sviði. „Það má því heimfæra á
Akureyrarbæ það sem sagt hefur
verið um ýmsar aðrar stofnanir á
Norðurlöndum og víðar, að þær eru
kvennavinnustaðir með góða
framamöguleika fyrir karlmenn,"
segir í greininni.
Einnig kemur fram í greininni
að talsverður launamismunur er á
milli karla og kvenna sem starfa
hjá Akureyrarbæ. Byijunarlaun
karla eru nær helmingi hærri en
kvenna, en þá er miðað við fastráð-
ið starfsfólk í fullu starfí árið 1988.
Munur á launum karla og kvenna
er að hluta skýrður með kynskipt-
ingunni, karlar vinna störf sem
betur eru launuð, t.d. á tæknisviði,
en konur er fleiri á félagssviði þar
sem laun eru lægri.
Fram kemur að sumarið 1989,
eftir að nokkrar skipulagsbreyting-
ar hefðu orðið í stjórnkerfi bæjar-
ins, voru yfirmenn bæjarins 27, þar
af tvær konur og gegndu þær báð-
ar störfum á félagsmálasviði.
Meirihlutamyndun:
Morgunblaðið/Rúnar Þór
*
UA fær viðurkenningu fyrirgæði
Fulltrúar frá Coldwater afhentu Útgerðarfélagi Akureyringa í gær viðurkenningu fyrir gæðaframleiðslu.
Það var Helga Sigurðardóttir sem um árabil hefur starfað hjá ÚA sem tók á móti viðurkenningunni frá
Páli Péturssyni. Starfsfólk ÚA var saman komið í matsal fyrirtækisins er viðurkenningin var afhent og við
það tækifæri fluttu stutt ávörp þeir Gunnar Ragnars, annar af framkvæmdastjórum ÚA, og Magnús
Gústafsson og Páll Pétursson frá Coldwater og lögðu þeir áherslu á góðan hlut starfsfólks, aldrei mætti slaka
á heldur vera stöðugt vakandi yfír gæðaþættinum. Útgerðarfélag Akureyringa fékk 97,1 stig af 100
mögulegum og sagði Páll Pétursson það vera frábæran árangur. Öllu starfsfólki var að lokum boðið í
hádegismat og var boðið upp á íslenskan fisk matreiddan að hætti Bandaríkjamanna.
Viðræðum verður haldið áfram
FULLTRÚAR Sjálfstæðisflokks og Alþýðubandalags hittust á fyrsta
formlega fundinum um hugsanlega myndun nýs meirihluta í bæjar-
stjórn Akureyrar í gær. Áður höfðu fulltrúarnir hist og rætt málin
i óformlegum könnunarviðræðum.
Fulltrúar flokkanna vörð.ust allra
frétta af því um hvað rætt hefði
verið á fundinum, en ákveðið var
að fulltrúar þessara flokka muni
hittast aftur á morgun.
Björn Jósef Árnviðarson, Sjálf-
stæðisflokki, sagði að aðilar væru
komnir í viðræður, menn hefðu
rætt málin, en að öðru leyti væri
lítið hægt að segja á þessu stig við-
ræðnanna. „Það slitnaði ekki upp
úr viðræðunum, en vissulega er
ýmislegt eftir. Við fórum yfir ýmis
viðkvæm mál á þessum fundi,“
sagði Sigríður Stefánsdóttir, Al-
þýðubandalagi.
Aðilar viðræðnanna munu hittast
á þriðja fundi sínum á morgun.
44% hærra verð fyrir ferskan
þorsk í Englandi en í fyrra
^ Skýringin að stjórn hefiir verið höfð á framboðinu að
sögn Kristjáns Ragnarssonar, formanns LIU
„ÞAÐ er meira hvað hann sér eftir þessu úr þessu ráðuneyti sínu.
Honum hefur greinilega verið mjög hugleikið að hafa úthlutunina
þar í því leynimakki sem þar átti sér stað og enginn fékk neitt að
vita um,“ sagði Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands
íslenskra útvegsmanna aðspurður um þá skoðun Jóns Baldvins
Hannibalssonar, utanríkisráðherra, að leggja eigi niður Aflamiðlun
í haust og úthluta þess i stað sérstökum útflutningskvóta á hvert skip.
Úflutningskvóti á hvert
skip kemur ekki til greina
- segir Hólmgeir Jónasson, framkvæmda-
stjóri Sjómannasambands íslands
„VIÐ lítum þannig á að ekki komi til greina að hvert skip fái útflutn-
ingskvóta Við höfúm verið á móti á sölu á óveiddum fiski og ekki
yrði þetta til þess að bæta málið,“ sagði Hólmgeir Jónasson, fram-
kvæmdastjóri Sjómannasambands íslands, aðspurður um það álit Jóns
Baldvins Hannibalssonar, utanríkisráðherra, að leggja eigi niður Afla-
miðlun og úthluta útflutningskvóta á hvert skip, sem sé framseljanleg-
ur.
„Þær fullyrðingar hans að Afla-
miðlun hafi brugðist eru fjarri lagi.
Við erum með 44% hærra verð fyr-
ir þorsk í Englandi heldur en í fyrra
í pundum talið. Það að hafa haft
stjórn á framboðinu hefur valdið
því að við höfum fengið miklu hærra
verð en ella. Það voru markmiðin
með því að setja þessa Aflamiðlun
á fót og að hætta þeim feluleik sem
var í kringum þessi mál. Nú hefur
þetta verið opnað og allir vita hvað
um er að ræða. Það að tollyfirvöld
hafa ekki treyst sér til þess að
fylgja útflutningsheimildunum eftir
er auðvitað ekki okkar mál, heldur
íslenskra yfirvalda," sagði Kristján
um útflutning á ferskum fiski um-
fram heimildir frá Aflamiðlun.
- Hann sagði að sér skildist að nú
ætti að fylgja því eftir að annar
fiskur yrði ekki fluttur út en leyfí
væru fyrir, eins og tollayfirvöldum
bæri að gera, og þar með væru
málin komin í rétt horf. Menn vildu
ekki að það væri marklaust hjal sem
gert væri á þessum vettvangi held-
ur að eftir settum reglum væri farið.
„Ég held það væri mjög misráðið
að setja útflutningskvóta á hvert
skip. Þetta er nú gömul lumma frá
utanríkisráðherra. Það liggur fyrir
að mörg skip hafa tileinkað sér
þennan markað, eru ekki með
vinnslu hérlendis, heldur hafa rækt-
að markaðina bæði í Bretlandi og
Þýskalandi. Það finnst mér að eigi
að gefa mönnum meiri rétt en hin-
um sem ekki hafa séð ástæðu tii
að sinna þessum markaði, heldur
hafa viljað byggja upp sína fisk-
vinnslu hér heima, sem er ékki
nema allt gott um að segja. Þessi
markaður erlendis er takmarkaður
og það á þess vegna fyrst og fremst
að stjórna framboðinu með hliðsjón
af því að fá sem hæst verð hverju
sinni. Það gerum við best með því
að leyfa þeim aðilum að stunda
þetta sem hafa lagt mesta rækt við
og hafa mesta þekkingu á þessum
mörkuðum. Við höfum margsinnis
séð nýjum aðilum, sem ekki hafa
selt ferskan fisk erlendis, mistakast
meira og minna, og það er ekkert
réttlæti frá mínum bæjardyrum séð
að aðili sem aldrei hefur selt fersk-
an fisk eigi að fá jafnan rétt við
þann sem hefur af því langa reynslu
og hefur byggt afkomu sína á því.
Um þetta hafa ekki verið deilur
innan samtaka útvegsmanna,"
sagði Kristján.
Hann sagði að auk þess skildist
sér að það stríddi á móti stjórnar-
skránni að viðskiptaleyfí eins og
það að selja físk erlendis gengi
kaupum og sölum. Um það hefði
utanríkisráðherra álit færustu
manna og þar með næði málið ekki
lengra. „Ég tel að það geri þetta
ekki aðrir betur en þeir sem næst
þessu standa og fiskinn eiga. Þeir
hafa áhuga á því að fá sem hæst
verð fyrir fiskinn og verða að glíma
við þann mikla félagslega vanda
sem fylgir svona skömmtun. Hjá
því verður hins vegar ekki komist
að framboðið verður að takmarka,
ef við bæði eigum ekki að sýna
okkur óhæfa hér heima og verða
reknir af mörkuðunum erlendis, því
það verður ekkert liðið af kollegum
okkar í markaðslöndunum að við
setjum verðið niður fyrir þeim,“
sagði Kristján.
Aðspurður um þá niðurstöðu
fundar sjómanna í Vestmannaeyj-
um að flytja út ferskan fisk án til-
skilinna leyfa á föstudag, sagði
Kristján: „Ég held það sé alveg
prófsteinn á hvort þessu verður
stjórnað eða ekki. Ef þeir komast
upp með það, þá nær ekki nokkurri
átt að vera að myndast við þetta.
Við höldum hins vegar að það sé
þetta sem alltaf hafí verið að ger-
ast og að ekkert hafi verið farið
eftir þessum útflutningsleyfum ut-
anríkisráðuneytisins,“ sagði Kristj-
án að lokum.
Hólmgeir sagði að sér sýndist
þetta ekki jafna aðstöðu sjómanna,
því ekki kæmi þessi sala á útflutn-
ingskvóta til skipta. „Þetta er hug-
mynd sem hann hefur reifað áður
og við erum alfarið á móti, enda eru
menn búnir að ganga frá sljórnun
fiskveiða til næstu ára og mér finnst
einkennilegt að menn skuli vera að
koma með þetta upp á borðið aft-
ur,“ sagði Hólmgeir ennfremur.
Aðspurður um þær kröfur sjó-
manna í Vestmannaeyjum að þessi
útflutningur verði gefinn frjáls,
sagði Hólmgeir: „Á sínum tíma var
sæst á að setja upp Aflamiðlun til
að koma skikki á þessi mál og full-
trúi okkar er þar inni. Menn verða
auðvitað að hlýta því sem þar er
gert. Það eru ákveðnar reglur sem
gilda og meðan þær gilda verður að
fara eftir þeim.“
Hann sagði að stýring hefði verið
tekin upp eftir að frelsi hefði ríkt.
Það hefði haft sínar leiðinlegu hliðar
eins og offramboð og ef Aflamiðlun
stýrði framboðinu eftir eftirspurn á
mörkuðunum þá væri það heppileg-
asta kerfið. Stærsti gallinn þegar
útflutningurinn var óheftur hefði
verið að menn vissu ekki hver af
öðrum, þannig að þegar verðið var
hátt fluttu allir út og yfirfylltu mark-
aðina. „Það þarf að vera jafnræði á
þessum mörkuðum og ég treysti því
að Aflamiðlun úthluti miðað við þörf
markaðana,“ sagði Hólmgeir.