Morgunblaðið - 31.05.1990, Síða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1990
fclk í
fréttum
Elskum alla þjónum öllum
s. 689888
(FALKINIST
Tina Turner: Litríkur listamaður
dregur sig í hlé.
ROKK
Nú er Tinu
alvara með
að hætta
Tina Turner, „amma rokksins“
eins og hin fimmtuga söngkona
hefur gjarnan verið nefnd, er nú
að kveðja starfann fyrir fullt og
allt. Hún hefur áður sagst vera að
hætta og tilkynnt að tilteknar
hljómleikaferðir hafi verið hinar
síðustu. Alltaf hefur hún látið und-
an aðdáendum sínum og haldið
áfram að kyija rokkið. En nú er
mál að linni, segir Tina.
Það er sem almenningur átti sig
á því að nú sé alvara á ferðum.
Slegist er um hvern aðgöngumiða
og er stemmningin rafmögnuð á
hvetjum hljómleikum. Sem dæmi
hélt hún þrenna hljómleika í Stokk-
hólmi, þijú kvöld í röð. Uppselt var
öll kvöldin, 12.000 manns mættu
hvert kvöld, alls hlustuðu því
36.000 manns á Tinu í Stokkhólmi.
Alls staðar þar sem hún hefur kom-
ið á yfirstandandi ferðalagi hafa
menn verið á einu máli um að „sú
gamla" sé að kveðja „með stæl“.
ssindola VenhAxía
LOFTRÆSIVIFTUR
SUÐURLANDSBFIALrr 8 SlMI 84670
ÞREK
Pacino bil-
aði næstum
á taugum í
ástarsenunni
ÞUNGAROKK
Brúðkaup liður í
bættri ímynd
Axl Rose, söngvari
þungarokkshljóm-
sveitarinnar Guns and Ro-
ses, sem slegið hefur öll
vinsældarmet í þeim tón-
listargeira síðustu misseri
hefur gengið að eiga unn-
ustu sína, stúlku að nafni
Erin Everly. Axel er 28 ára
gamall, en brúður hans 24
ára. Hefur Axel þekkt Erin
lengi og kærleikar hafa
verið miklir þótt oft hafi
gustað um sambandið. Eitt
vinsælasta lag sveitarinn-
ar, „Sweet Child of Mine“,
er til dæmis bæði tileinkað
og um Erin Everly.
Brúðkaupið þykir benda
til þess að hljómsveitar-
meðlimir séu að stillast, en
mikið sukk og drykkju-
skapur hefur lengst af einkennt
liðsmenn sveitarinnar á hljómleik-
um. Fyrir nokkru var nærri slitnað
upp úr samstarfinu vegna deilna
um hina afleitu ímynd Guns and
Roses, en niðurstaðan virðist hafa
orðið sú að reynt verður til þrautar
að bæta ímyndina án þess að tapa
vinsældunum. Þrátt fyrir allt er
ekki talið víst að það lánist fullkom-
lega. Brúðkaupið var meðal annars
liður í að bæta ímyndina. Axl Rose
var þó ekki fyrstur til, trymbill
hljómsveitarinnar kvæntist í vetur
og gengu sögur um að það hafi
ekki gengið stóráfallalaust og það
Axl Rose
hafi ekki verið fyrr en brúðurin
hafi gefið vilyrði fyrir taumlausu
framhjáhaldi á hljómleikaferðum,
að trymbillinn lýsti sig reiðubúinn
í hnapphelduna. Ekki er líklegt ef
satt er að það hjónaband bæti lé-
lega ímynd Guns and Roses.
GLUGCAVIFTUR - VECCVIFTUR
BORÐVIFTUR - LOFTVIFTUR
Ensk og hollensk gæðavara.
Veitum tæknilega ráðgjöf við
val á loftræsiviftum.
Það borgar sig að
nota það besta.
Þeiœing Reynsla Þjónusta
Þeir sem sáu kvikmyndina „Sea
of Love“ með þeim A1 Pacino
og Ellen Barkin í aðalhlutverkunum
hrifust ekki einungis af geypilegri
spennu hennar heldur var þarna
einnig að finna óvenjulega heitar og
æsilegar ástarsenur sem þau Paeino
og Barkin skiluðu með sönnum ágæt-
um. Oft eru leikarar spurðir hvemig
þeim líði við slíkar tökur, hvað þá
er þeir eru meira og minna naktir.
Nær undantekningarlaust munu þeir
Ellen Barkin og AI Pacino.
svara því þannig að þeir fari hjá sér
og þurfi að taka á öllu sem þeir eigi
til að standast slíka raun sem ástars-
enurnar eru. Það er sem sé hinn
mesti misskilnungur að fólkið hafi
sérstaka ánægju af.
Hitt vita ekki allir, að þrátt fyrir
langan og litríkan leikferil, hafði
Pacino aldrei lent í annarri eins ást-
arsenu og í „Sea of Love“ og um
tíma fór hann svo gersamlega á taug-
um að horfur voru á því að hann
gæti ekki leikið hiutverkið og finna
yrði nýjan mann. Kom þá til kasta
Barkin, sem kallar ekki allt ömmu
sína og er talin taugalaust og ákveð-
ið hörkutól. Tökurnar á atriðinu tóku
heila tvo daga og átti Pacino í vand-
ræðum allan tímann. Eftir á sagði
hann hins vegar að Barkin hefði
reynst sér betri en enginn, hún hefði
róað hann niður og talað spaklega
til á mikilvægum augnablikum. Sjálf
sagði Barkin að það hefði virkað
frekar drífandi á hana heldur en hitt
hversu hikandi og taugatrekktur
Pacino var. Hvað sem því líður, þótti
atriðið takast frábærlega vel og
myndin er ein hin umtalaðasta í árar-
aðir fyrir vestan haf. Hér á landi
hefur hún verið sýnd og fengið mjög
góða dóma.
Ódýr hádegismatur
alla virka daga
frá kl. 12-2
COF
Hamborgari dagsins
m/frönskum og salati kr. 540
Samloka dagsins
m/frönskum og salati kr. 445
Kjötréttur kr. 630
Fiskréttur kr. 630
2.
Súpa fylgir.