Morgunblaðið - 31.05.1990, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1990
55
,ldvagninn
Getur maður skrifað
sannleikann um Lúter?
- síðari grein.
Til Velvakanda.
En til að skilja, hvernig Lúther
varð umbótamaður, þarf einnig
fleira til hliðsjónar, eins og ég benti
á í grein minni, og það breytir dómi
okkar um Lúther. Ég á hér ekki
við þá misbresti í kaþólsku kirkj-
unni, sem Úrban páfi VI viður-
kenndi sjálfur og kirkjuþingið í
Trent réð bót á. Því miður er hér
ekki pláss til að vitna til þess, sem
Lexikon fíir Theologie und Kirche
(VI, 723-36) segir um uppruna
guðfræði Lúthers. Að mati LTK er
Lúther eins og „persóna úr sorgar-
leik“. Já, það má líkja honum við
gríska kappa, því að ókostur þeirra
var alltaf „hybris", þ.e. hroki. ILTK
segir (723): „Úr kenningum
Ágústínusar um erfðasynd, hold-
lega fysn, náð, verðleika verka og
útvalningu til himins og heljar, úr
leyndardómsfullum hugleiðingum
um algert gildisleysi mannsins
frammi fyrir Guði og ennfremur
úr sinni eigin sálarreynslu smíðaði
Lúther fræðikerfi, þar sem haldið
var fram, að Guð einn verkaði alla
hluti, í stað þess, sem Biblían held-
ur fram, að hann sé virkur í öllu
(einnig því sem maðurinn gerir).
Próf. Einar getur ekki bjargað
skinni Lúthers með því að segja að
„menn séu ábyrgir gagnvart Guði“.
Samkvæmt kenningu Lúthers, sem
er kenning um „trúna eina, náðina
eitra, Biblíuna eina, aðeins Krist “
(hér vantar „aðeins Lúther"), er
sáluhjálp mannsins alfarið undir
Guði einum komin. í lútherska játn-
ingaritinu Form. Conc., Sol. decl.,
II, 20, segir: „í sálarlegum og guð-
legum hlutum, sem hafa eitthvað
með sáluhjálp mannsins að gera,
er maðurinn eins og saltbingur, já,
eins og tijástofn eða lífvana mynda-
stytta, sem hefur hvorki augu né
munn né skilningarvit né hjarta.“
En eigum vér þá samt að reyna að
halda boðorðin? Já. Hvers vegna?
Jú, boðorðin eiga, að mati þessara
Lúthersmanna að sanna oss, að það
sé ómögulegt að halda þau (þvert
á móti kenningu Biblíunnar), þau
eiga að fá oss til að örvænta um
sáluhjálp vora. Svo kenndi Lúther,
en lausnina fann hann í „trúnni
einni“. „Hinn réttláti mun lifa fyrir
trú.“ En Jakob postuli varar oss
við: „Trúin án verka er dauð“
(2.26). Það er andstætt sálar-
reynslu Lúthers. Þess vegna segir
hann um Jakobsbréf: „Það er aðeins
hálmbréf, ekki verðugt postula."
Getur hroki Lúthers, sem hélt þó
fram grundvallarsannleiksgildi
Biblíunnar, orðið skýrari en í þess-
ari fyrirlitningu hans á þeim post-
ula, þ.e. biskupi Jerúsalemborgar,
sem Páll átti fund með ásamt Pétri
og sem álitinn var „máttarstólpi
kirkjunnar"? Hvaða skynsamur
kristinn maður má tala svona? Páf-
inn í Róm? Nei. Aðeins Lúther virð-
ist hafa umboð til að dæma biskup
Jerúsalem sem ónýtan ritara, af því
að bréf hans var ekki samkvæmt
sálarreynslu þess fyrrnefnda. Ját-
um einfaldlega, að Lúther setur sig
yfir Biblíuna.
Þarf enn að ræða það, sem ég
skrifaði: „í útskýringu á Róm. 9,18
nn segir Lúther: „Guð vill hið illa,
annars væri það ekki til, en Guð
elskar það ekki“.“ Þessi orð hef ég
eftir J. Lortz (Die Reformation in
Deutschland, 186). Lortz er kannski
frægasti Lútherssérfræðingur á
Þýzkalandi. Auðvitað trúi ég frekar
Lortz en Einari. Einar neitar, að
Lúther (ég tala hér ekki um lúth-
ersku kirkjuna, það væri ekki rétt)
hafí sagt það. Það er þó auðvelt
að trúa því, ef vér höfum í huga,
að Lúther var undir áhrifum
nómínalista, sem kenndu algert al-
mætti Guðs, sem maðurinn mætti
ekki takmarka með frjálsum vilja.
Hið lútherska „Lexikon der Re-
formation" segir (128): „Lúther
ætlast til þess af kristnum manni,
að hann meðtaki dóm eilífrar refs-
ingar Guðs, ef trúin krefst þess.
Geri maðurinn það, mun Guð ekki
yfirgefa hann.“ Við sjáum, að frelsi
viljans hefur hér ekkert að segja. í
útskýringu á Rómv.bréfinu talar
Lúther um útvalningu manna og
ræðst á hugmyndina um ftjálsan
vilja mannsins. Samkvæmt Lúther
er maðurinn svo spilltur, að hann
getur einungis syndgað, því að
girnd hans sé þegar synd. Jakob
postuli leiðréttir það aftur í bréfi
sínu: „Þegar girndin síðan er þung-
uð, fæðir hún synd,“ þ.e. aðeins ef
vér látum hana þroskast með fijáls-
um vilja. En bréf postulans telur
Lúther einskisvert. Textann: „Guð
hefur ofurselt þá fysnum hjartn-
anna til saurlifnaðar," álítur Lúther
ekki aðeins leyfi, heldur skipun og
boðorð" (J. Ficker í DTC II, 12,
14). Guð vill, að „syndaranum verði
það ósjálfrátt að vera syndari og
halda áfram í synd“ (Richter, DTC
II, 213, 217). Fleiri textar um út-
valningu mannsins eru í DTC
1283-87.
Að lokum nokkur orð um meðal-
gangarann. Að Jesús sé eini meðal-
gangari endurlausnar vorrar er
stöðug kenning kaþólsku kirkjunn-
ar, og hún þarf ekki að læra það
hjá próf. Einari (sbr. trúarkenn-
ingasafn Denzingers, nr. 143, 251,
253, 333, 711, 790). En er það þá
ekki óvirðing við Guð, ef vér biðjum
heilaga og aðra menn og konur,
t.d. foreldra vora í himnum? Vér
gerum það, því að þau standa oss
nær, ekki af því að vér elskum þau
meira en Guð. í hugum vor kaþól-
•ikka eru heilagir menn ekki ein-
hveijar myndastyttur, sem Guð
hefur skreytt, en sjálfar hafa ekk-
ert gert fyrir heilagleik sinn („að-
eins náð“). — Er þá ekkert gott að
segja um Lúther? Jú, það gerði ég
áður í ýtarlegum greinum í Lesbók
Mbl., eins og ég sagði. Eins vona
ég, að Einar taki ekki ágreining
okkar sem eitthvað pereónulegt og
að mér leyfist áfram að vera vinur
hans.
Sr. J. Habets
Kæru viðskiptavinir!
í sumar höfum við lokað á laugardögum.
Höfum mikið úrval af margskonar
sumarvörum.
Eigum t.d. 2 stærðir af
ferðarúmum m/dýnu.
55x110cmkr. 9.900,-
60 x 120 cm kr. 10.900,-
ALLT FYRIR BORNIN
Klapparstíg 27, sími 19910.
VtlSV-R
I örfáa daga bjóðum við öll stök
teppiog mottur með 20% afslætti.
Missið ekki af einstöku tækifæri.
TEPMVERSLUK
FRIÐMKS BERTEISEN
FÁKAFENI 9 - SÍMI 686266
CAMP-IET '90 TJALDVAGNARNIR ERU KOMNIR!
r sér-
,doger
fcfcjwm
rj'al(*»agn’íea?aVél
Ktalmr-
Það er næsta fullvíst að Camp-let hefur fallið íslendingum best allra
tjaldvagna, enda er frágangur þeirra rómaður og telja eigendur
þeirra þá best fallna fyrir íslenskar aðstæður. í ár kynnum við nýja
Royal tjaldvagninn sem er örugglega glæsilegastur allra tjaldvagna!
Kynntu þér kosti keppinautanna og þá sérðu að það er
ekki um aðra kosti að ræða en Camp-let.
* »
'y°t*
79 O
* o n ~
'9*o.zy»
^JíEvrm’
Sundaborg 11 Sími 91-686644