Morgunblaðið - 31.05.1990, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 31.05.1990, Blaðsíða 57
57 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1990 HANDKNATTLEIKUR / EVRÓPUBIKARKEPPNIN KNATTSPYRNA „Sannkölluð veisla í Santander" Vill nota sólgleraugu á HM Michel Preud’homme, markvörður belgíska iandsliðsins í knattspyrnu, hefur óskað eftir því að fá að nota sólgleraugu í leikjum Belga í HM. Samkvæmt reglum FIFA er bannað að nota hluti sem valdið geta meiðslum en Preud’homme hefur sótt um undanþágu. Hann segir að það sé ekki nóg að vera með skyggnishúfu í sólinni á Italíu. „Sólgleraugun eru mjúk og brotna ekki þó stigið sé á þau,“ sagði hann. GOLF HAGNYIT HASKOLANAM ÍKERFISFRÆÐI Innritun í kerfisfræðinám á haustönn 1990 Tölvuháskóla Verzl- unarskóla íslands fer fram á skrifstofu skólans til 31. maí. Eft- ir þann tíma verður tekið við umsóknum eftir því sem pláss leyfir. Markmið námsins er að útskrifa kerfisfræðinga, sem geta unn- ið við öll stig hugbúnaðargerðar, skipulagt og séð um tölvuvæð- ingu hjá fyrirtækjum og annast kennslu og þjálfun starfsfólks. Hægt er að heíja nám í september og janúar. Stúdentar af hagfræðibraut ljúka námi á þremur önnum en aðrir geta þurft að sækja tíma í fornámi allt að einni önn til viðbótar. Kennt er eftir hádegi, en nemendur sem vilja halda áfram að vinna hluta úr degi jafnframt námi, þurfa að ræða við kennslu- stjóra um möguleika á því. Eftirtaldar námsgreinar verða kenndar: Fyrsta önn: Vélamál Forritun í Pascal Kerfísgreining og hönnun Stýrikerfi Forritahönnun Verkefni önnur önn: Gluggakerfi ' Gagnaskipan Fjölnotendaumhverfi Gagnasafnsfræði Verkefni á 2. önn Þriðja önn: Hugbúnaðargerð Fyrirlestrar um valin efni Forritunarmál Lokaverkefni Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Verzlunarskól- ans, Ofanleiti 1. Nánari upplýsingar veitir kennslu- stjóri á skrifstofu skólans og í síma 688400. TVI TÖLVUHASKOLI VI - segir Evrópumeistarinn Kristján Arason hjá Teka „ÉG hef ekki enn áttað mig al- mennilega á þessu,“ sagði Kristján Arason við Morgun- blaðið í gær, en sem kunnugt ertryggði hann sér Evrópubik- armeistaratitilinn íhandknatt- leik með Teka ífyrrakvöld. „Hér snýst allt um handbolta, það er sannkölluð veisla í San- tander enda fyrsti Evrópu- meistaratitillinn til borgarinnar og hátíðin heldur áfram næstu daga.“ Besta liðið Æfingabúðir KR á Akranesi Islandsmeistarar KR í körfuknatt- leik standa fyrir æfingabúðum á Akranesi helgina 2.-3. júní fyrir krakka, frá öllum félögum, 16 ára og yngri. Farið verður yfir undirstöðuatriði æfinga og keppni. Kennarar verða Páll Kolbeinsson, Guðni Guðnason og Axel Nikulásson. Boðið verður upp á gistingu og fæði á Akranesi. Nánari upplýsing- ar fást í síma 13177 og 73542. Pollamót öldunga hjá Þór á Akureyri íþróttafélagið Þór heldur „polla- mót öldunga“ í knattspymu í sum- ar, annað árið í röð. Það fer fram föstudag 6. og laugardag 7. júlí. Eftir keppni á laugardeginum verð- ur boðið upp á að fylgjast me_ð leikn- um um 3. sætið í HM á Ítalíu á risatjaldi í Sjallanum og þar verður svo lokahátíð mótsins á eftir. Stað- festing á þátttöku verður að hafa borist til Benedikts Guðmundsson- ar, Stapasíðu 17, Akureyri fyrir 1. júní. Mót í Grafarholti Opið golfmót, Sanyo-mótið, verð- ur haldið í Grafarholti á morgun, föstudag, og laugardag. Mótið verð- ur 36 holur með og án forgjafar. Það er nýmæli að tveggja daga mót skuli vera á fyrrnefndum dög- Um í stað laugardags og sunnu- dags. Á morgun verða rástímar frá kl. 10 til 19. Skráning fer fram í versluninni í Grafarholti í síma 82815.'................. Teka hefur ekki verið í hópi sterkustu liða þar til í fyrra. Þá voru gerðar umtalsverðar breyt- ingar á hópnum; Kristján Arason, Mats Olsson, Cabanas og Melo voru keyptir og árangurinn lét ekki á sér standa: Bikarmeistarar í fyrra og annað sæti í deildinni og nú Evrópu- bikarmeistarar og fyrsta eða annað sæti í deildinni. LAUSBLAÐA- MÖPPUR frá Múlalundi... ... þær duga sem besta bók. Múlalundur SlMI: 62 84 50 Kristján sagði að Teka væri vel að titlinum komið. „Við höfum sleg- ið út fjögur af bestu liðum Evrópu og eigum þetta skilið — við erum með besta liðið.“ Teka sló út aust- ur-þýsku meistarana Rostock, Grosswallstadt frá Vestur-Þýska- landi, ungversku meistarana og loks sænsku meistarana. Aðspurður um næsta tímabil sagði Kristján að þessi staða gæti vissulega breytt fyrirhuguðum áformum um að koma heim til FH. „Forráðamenn Teka vilja halda óbreyttu liði, en framhaldið hefur ekki enn verið rætt.“ Kristján Arason og Mats Olsson halda Evrópubikarnum hátt á lofti eftir frækilegan sigur gegn Drott í úrslitunum. Kristján gerði þijú mörk í leiknum, en ekki fjögur eins og mishermt var í blaðinu í gær. Olsson, landsliðsmarkvörð- ur heimsmeistara Svía, var maður leiksins og lokaði markinu, þegar mest lá við. Morgunblaðiö/Sigurgeir Öldungameistarar kvenna Sveit Golfklúbbs Vestmannaeyja sigraði í kvennaflokki í fyrstu sveita- keppni í öldungaflokki, sem fram fór í Vestmannaeyjum um síðustu helgi, og Keilir í karlaflokki, eins og greint var frá í þriðjudagsblaðinu. Á mynd- inni að ofan er sigursveitin, frá vinstri: Sigurbjörg Guðnadóttir, sem einn- ig er formaður Golfklúbbs Vestmannaeyja, Sjöfn Guðjónsdóttir og Jakob- ína Guðlaugsdóttir. Lengst til hægri er Kristín Einarsdóttir liðsstjóri. GOLF KORFUBOLTI KNATTSPYRNA NBA Portland vann Phoenix Portland vann Phoenix í fímmta leik liðanna, 120:114, í Portland og er yfir, 3:2 í úrslitakeppni vestúrdeild- arinnar. Leikurinn var jafn og var Phoenix var yfir, 113:114, þegar 47 sek. voru til leiksloka, en Portland skoraði sex síðustu stig leiksins úr vítaskotum. Pho- enix hefur virkað sterkara lið, en leikmenn Portland hafa sýnt geysilega baráttu. Drexler var bestur þeirra og skoraði 32 stig. »0 KSMST HBIM A OOODfrCA H) HEKLA HF Laugavegi 170 -174 Stmi 695500
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.