Morgunblaðið - 06.06.1990, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JUNI 1990
Reglugerð um gerð og búnað ökutækja:
Nánast eingöngn umboðm
geta flutt inn notaða bíla
INNFLUTNINGUR notaðra bif-
reiða verður erfiðari en verið hef-
ur frá og með næstu mánaðamót-
um, þegar byrjað verður að fara
eftir ákvæðum nýrrar reglúgerð-
ar um gerð og búnað ökutækja
við skráningu og skoðun þeirra.
Bíla, sem komnir eru til landsins
fyrir 1. júlí, er heimilt að skrá
samkvæmt eldri reglum. Strangar
kröfur reglugerðarinnar um að
ökutæki uppfylli kröfur evrópskra
staðla, svonefndra ECE-staðla,
valda því, að erfitt verður eða
útilokað með öllu að flytja inn
notaða bíla eða aðra bíla en þá sem
keyptir eru beint af framleiðanda.
Einkum á þetta við ameríska bila.
Almenna reglan við skoðun og
skráningu ökutækja hér á landi verð-
ur samkvæmt reglugerðinni sú, að
ökutækin fái svonefnda gerðarviður-
kenningu. Sú viðurkenning er veitt
raðsmíðuðum ökutækjum sem flutt
eru inn ný, frá verksmiðju. Til að
ckutækin fái þessa viðurkenningu
þarf að framvísa gögnum, sem sýna
að ökutækið uppfylli kröfur ECE-
staðlanna. Vottorðin, sem þarf að
framvísa eru um á annan tug atriða
og liggja að baki þeim kostnaðar-
samar prófanir.
Gerðarviðurkenning er einungis
gefin út á nafn framleiðanda eða
innflytjanda í hans umboði. Flytji
tveir eða fleiri aðilar inn sams konar
ökutæki, skal sérhver þeirra sækja
um gerðarviðurkenningu og leggja
fram tilskilin gögn, samkvæmt reglu-
gerðinni. Bifreiðaskoðun íslands,
sem sótt er um viðurkenninguna til,
er óheimilt að nota fylgigögn þau,
sem lögð eru fram tll gerðarviður-
kenningar, fyrir aðra en þann sem
viðurkenningin var gefin út á, nema
til komi samþykki þess sama.
Gerðarviðurkenning þýðir, að ekki
þarf að grandskoða sérhvert ökutæki
hverrar gerðar, nægir venjulega að
skoða eitt eða tvö, enda séu öll öku-
tækin sem flutt eru inn þeirrar gerð-
ar í öllum aðalatriðum eins.
Hægt er að fá svonefnda skráning-
arviðurkenningu fyrir einstök öku-
tæki. Sú viðurkenning gildir aðeins
um eitt ökutæki og þarf að framvísa
sambærilegum fylgiskjölum og við
gerðarviðurkenningu. Þó er sú und-
antekning gerð, þegar um einstakl-
ing er að ræða, að hafi ökutækið
verið í eigu hans erlendis í eitt ár
eða lengur, nægir að sýna skráning-
arskírteini, enda sé ökutækið flutt
inn frá landi þar sem ökutæki eru
gerðarviðurkennd á fullnægjandi
hátt að mati Bifreiðaskoðunar.
Til viðbótar þessum viðurkenn-
ingareglum eru aðrar um búnað öku-
tækja, sem kveða á um lágmarksbún-
að þeirra. Undantekning eru ökutæki
sem eru 26 ára eða eldri og falla
undir skilgreininguna fornbílar. Þar
sem bandarískir bílar eru í allmörg-
um tilvikum ekki framleiddir fyrir
evrópskan markað, þýða þessar nýju
reglur, að innflutningur notaðra bíla
frá Bandaríkjunum verður annað
hvort útilokaður eða mjög kostnaðar-
samur. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins kostar nokkur hundruð
þúsund krónur ef kaupa þarf sér-
staka prófun á því, hvort bíll uppfyll-
ir kröfur ECE- staðla.
VEÐUR
í DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 6. JUNl
YFIRLIT í GÆR: Um 400 km suður af Hornafirði er hægfara 987
mb lægð og grunnt lægðardrag yfir íslandi.
SPÁ: Fremur hæg austan og norð-austan átt. Smá skúrir suð-aust-
an- og austanlands en annars staðar skýjað, en úrkomulaust.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Fremur hæg austan-
og norð-austan átt. Víða dálítil rigning um austanvert landið en
bjartviðri suð-vestan- og vestanlands. Hiti 8-12 stíg.
TAKN.
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skyjað
Alskyjað
s, Norðan, 4 vindstig:
^ Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrimar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■) 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
y Skúrir
*
V El
= Þoka
== Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—|- Skafrenningur
Þrumuveður
xn VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hlti veður Akureyri 13 léttskýjað Reykjavik 9 skýjað
Bergen 14 hálfskýjað
Helsinki 21 aiskýjað
Kaupmannahöfn 20 hálfskýjað
Narssarssuaq 7 skýjað
Nuuk 0 skýjað
Osló 20 skýjað
Stokkhólmur 17 alskýjað
Þórshöfn 9 rigning
Algarve 24 léttskýjað
Amsterdam 18 hálfskýjað
Barcelona 23 skýjað
Berlín 13 súld
Chicago 11 skýjað
Feneyjar 20 súíd
Frankfurt 17 skýjað
Glasgow 12 rlgning
Hamborg 14 skýjað
Las Palmas 21 skýjað
London 15 skýjað
Los Angeles 16 heiðskirt
Lúxemborg 15 skýjað
Madríd 23 léttskýjað
Malaga 29 léttskýjað
Mallorca 25 léttskýjað
Montreal vantar
New York 13 léttskýjað
Orlando 26 léttskýjað
París 18 skýjað
Róm 21 Þokumóða
Vfn 19 skýjað
Washington 13 léttskýjað
Winnipeg 12 skýjað
Frá slysstað á Bústaðavegi. Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson
Harður árekstur
á Bústaðavegi
HARÐUR árekstur tveggja bíla varð á mótum Bústaðavegar
og Réttarholtsvegar aðfaranótt mánudags er jeppa var ekið á
miklum hraða inn í hlið fólksbíls. Kona, sem var ökumaður fólks-
bílsins, slasaðist alvarlega og var lögð inn á gjörgæsludeild
Borgarspitala. Konan er ekki í lífshættu.
Fólksbílnum var ekið suður
Réttarholtsveg en jeppanum vest-
ur Bústaðaveg. Á gatnamótunum
eru umferðarljós og voru þau virk
þegar slysið varð. Ókumaður jepp-
ans viðurkenndi að hafa ekið á
miklum hraða þegar hann lenti í
hlið fólksbílsins og ýtti honum á
undan sér 40-50 metra áður en
bíiarnir stöðvuðust.
Ökumaður fólksbílsins, sem var
einn í bflnum, slasaðist mikið.
Ökumaður jeppans er grunaður
um ölvun. Lögreglan lýsir eftir
vitnum að slysinu.
Ók fram af
hengju á
vélsleða
JÍONA slasaðist töluvert þegar
hún ók á vélsleða fi-am af hengju
í Unaðsdal skammt austan við
bæinn Bæi á Snæfjallaströnd á
laugardagskvöld. Konan var í hópi
fimmtán vélsleðamanna.
Hjúkrunarkona var með í hópnum
og hafði hún hlúð að hinni slösuðu
er þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-
SIF, kom á slysstað.
Hópurinn var með farsíma með-
ferðis og hafði samband við Land-
helgisgæsluna sem sendi þyrlu af
stað um sjöleytið. Konan hlaut tölu-
verða höfuðáverka og var flutt á
gjörgæsludeild Borgarspítalans en
hún er á batavegi.
Slys við Hvalskarðsá
Piltur varð undir grjóti
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar var
kölluð út ásamt lækni um kl. 14 á
laugardaginn var, vegna slyss er
orðið hafði í Ilvalfjarðarbotni.
Piltur úr Reykjavík hafði slasast
á göngu í klettabelti við Hval-
skarðsá. Var hann fluttur í Borg-
arspítalann.
Slysið varð um hádegisbilið. Þrír
skólafélagar voru nýlagðir af stað
gangandi, ætluðu þeir til Þingvalla.
Þeir höfðu sveigt af leið og farið
þangað sem Hvalskarðsá rennur, en
þar við ána er klettabelti. Þeir voru
á leið niður að fossinum, og var sá
sem slasaðist síðastur. Ætlaði hann
að styðja sig við stein, sem losnaði
skyndilega, og fylgdi annar steinn á
eftir. Undir þessum hnullungsstein-
um varð pilturinn. Hlaut hann slæmt
opið beinbrot á öðrum fæti, einnig
brotnuðu nokkur rif er gijótið féll
ofan á hann þar sem hann lá, og
hann hlaut innvortis meiðsl. Annar
félaga hans fór þegar niður í Botns-
skála til að leita hjálpar. Hinn sat
hjá vini sínum sem ekki varð hreyfð-
ur.
Biðin eftir að hjálp bærist varð
alllöng, eða 3 klukkustundir, en þá
kom þyrlan. Um leið og hún kom inn
yfir slysstaðinn seig læknir úr henni
niður til piltsins. Læknirinn kallaði
sér til aðstoðar björgunarsveitar-
menn sem voru skammt frá. Var
pilturinn orðinn mjög kaldur. Læknir
og sjúkraflutningamenn höfðu verið
tilkallaðir en höfðu ekki hafst neitt
að. Lækninum í þyrlunni gekk greið-
lega að búa um hinn slasaða sem svo
var tekinn um borð í þyrluna. Hún
lenti klukkan liðlega 15 við Borg-
arspítalann en þar gekkst pilturinn
undir læknisaðgerð og er nú á bata-
vegi.