Morgunblaðið - 06.06.1990, Blaðsíða 31
30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JUNI 1990
/
fltrcgiisttWiiWfr
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúarritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
FlaraldurSveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, .sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift-
argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið.
Að loknum
leiðtogafundi
Viðræður þeirra George
Bush Bandaríkjaforseta og
Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétfor-
seta í Washington höfðu helst
það gildi að þær gáfu leiðtogun-
um tækifæri til að kynnast bet-
ur. Ef marka má ummæli Gorb-
atsjovs á blaðamannafundi á
sunnudag, tókust góð kynni með
þeim Bush. Notaði Gorbatsjov
sömu ummæli um Bush og
Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra Breta, á sínum tíma
um Gorbatsjov, það er að unnt
væri að vinna með honum að
framgangi mála. Stefnir nú í
reglulega fundi forseta Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna. Sú
skipan markar þáttaskil og ætti
jafnframt að draga úr þeirri
spennu sem jafnan fylgir fund-
um sem þessum. Viðræðurnar í
Washington sýna, að fjölmiðla-
lætin vegna þeirra eru að verða
ástæðulaus.
Forsetarnir rituðu ekki undir
neina bindandi samninga í af-
vopnunarmálum. Á hinn bóginn
staðfestu þeir viljayfirlýsingar
um það í fyrsta lagi, að fyrir
áramót yrði gengið frá samningi
um fækkun langdrægra kjarn-
orkuvopna um þriðjung; í öðru
lagi yrði gengið frá samningi
um mikinn niðurskurð á efna-
vopnum; og í þriðja lagi yrði
staðið þannig að viðræðunum í
Vínarborg um fækkun hefð-
bundins herafla í Evrópu, að
unnt yrði að rita undir samning
á fundi æðstu manna ráðstefn-
unnar um öryggi og samvinnu
í Evrópu (RÖSE), sem setlunin
er að halda í haust. Á öllum
sviðum er um merkar yfirlýsing-
ar að ræða og vonandi tekst að
hrinda þeim í framkvæmd með
þeim hætti, að enginn telji ör-
yggi og stöðugleika ógnað.
Eftir að Gorbatsjov lagði af
stað í ferðina til Bandaríkjanna
bar það til tíðinda í Moskvu, að
Boris Jeltsín, helsti andstæðing-
ur Sovétforsetans á pólitískum
heimavelli, var kjörinn forseti
Rússlands, stærsta sovéska lýð-
veldisins. Ástæðurnar fyrir vin-
sældum Jeltsíns eru meðal ann-
ars þær að hann hefur óhikað
bent á veikleikann í efnahags-
stjórn Gorbatsjovs og þá stað-
reynd að hagur almennings hef-
ur fremur versnað en batnað á
þeim rúmu fimm árum sem
Gorbatsjov hefur setið við völd.
Það hefur löngum verið ráða-
mönnum í Kreml mikið kapps-
mál að vera taldir standa jafn-
fætis forseta Bandaríkjanna á
heimsvettvangi. Er ekki vafi á,
að Gorbatsjov telur það styrkja
stöðu sína heima fyrir að hafa
átt fundinn með Bush á þessum
örlagatímum. Hann getur einnig
sagt við heimkomuna, að sér
hafi tekist að gera viðskipta-
samning við Bandaríkjastjórn
og fylgdarmenn sínir hafi náð
viðskiptasamböndum við
bandarísk stórfyrirtæki á borð
við Chevron og IBM. Hins vegar
er þess að gæta, að Bush tengir
gildistöku viðskiptasamningsins
við rýmri heimildir fyrir Sovét-
borgara til að flytja frá heima-
landi sínu kjósi þeir það. Hefur
hann þar í huga jafnt gyðinga
sem aðra.
Áður en til viðræðnanna í
Washington var gengið létu fjöl-
miðlar eins og þar yrðu teknar
ákvarðanir um stöðu sameinaðs
Þýskalands og stefnu í öryggis-
málum. í lok fundanna sögðu
forsetarnir einfaldlega að þá
greindi á um stöðu Þýskalands
og um málefni þess yrði rætt
áfram í viðræðum Bandaríkja-
manna, Breta, Frakka og Sovét-
manna með þátttöku fulltrúa frá
Austur- og Vestur-Þýskalandi,
þ.e. 4+2 viðræðunum. Raunar
var aldrei við annarri niðurstöðu
að búast, því að hvorki Banda-
ríkjamenn né Sovétmenn geta
sagt Þjóðverjum fyrir verkum í
þessu efni, þótt ráðamenn þeirra
geti látið skoðanir sínar í ljós.
Bush vill að Þýskaland verði
aðili að Atlantshafsbandalaginu
(NATO) en Gorbatsjov segir að
nauðsynlegt sé að halda þannig
á málum, að Þýskaland geti fall-
ið eðlilega inn í nýja skipan ör-
yggismála í Evrópu. Hvorugur
vill neyða neinu upp á Þjóðveija
en í samræmi við ákvæði Hels-
inki-sáttmálans eiga þeir sjálfir
að geta ákveðið framtíð sína.
George Bush ítrekaði það
sjónarmið stjórnar sinnar, að
Eystrasaltsríkin ættu að öðlast
sjálfstæði. Á hinn bóginn fylgdi
hann þeirri skoðun ekki eftir af
neinni festu. Kom það í sjálfu
sér ekki á óvart miðað við þá
hálfvelgju, sem einkennt hefur
afstöðu Bush.
Blaðamannafundur forset-
anna einkenndist af vilja beggja
til að gera sem minnst úr ágrein-
ingsmálum. Gorbatsjov er hætt-
ur að flytja áróðursræður um
að öll kjarnorkuvopn verði
þurrkuð út af yfirborði jarðar,
svo að dæmi sé tekið. Samskipti
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna
eru með öðrum orðum að færast
í allt annað horf en áður. Fund-
irnir í Washington staðfestu
það, þótt ekki væru teknar sögu-
legar ákvarðanir á þeim.
í + % LISTAHATIÐ I REYKJAVIK
Morgunblaðið/Einar Falur
Forseti Islands, frú Vigdís Finnbogadóttir, opnaði sýningu á verkum André Masson í Listasafni ís-
lands. Stöðugur straumur gesta hefúr legið á sýninguna.
Góð aðsókn að erlend-
um atriðum Lista-
hátíðar í Reykjavík
MIÐAR á tvenna tónleika Vínar-
drengjakórsins í Háskólabíói um
liðna helgi seldust alveg upp og
nærri lá að sama væri að segja
um píanótónleika Andrei Gavr-
ilovs. Þeir tónleikar voru einnig í
Háskólabíói og seldust yfir 900
miðar. Þá var Gamla bíó þétt set-
Á dagskrá Listahátíðar í
dag, miðvikudag 6. júní, eru
eftirtalin atriði:
Kl. 17.17 Austurstræti
Leiksmiðja Leikfélags
Reykjavíkur
Orgill
Kl. 17.30 Háskóli íslands, Lög-
bergi
Samræður um náttúruváindi og
listir.
Kl. 21 Borgarleikhús
Cricot 2 leikhópurinn frá Pól-
andi sýnir „Ég kem aldrei aft-
ur“ í leikstjórn höfundar, Tad-
eusz Kantor.
Kl. 21 íslenska óperan
Tónleikar helgaðir Magnúsi
Blöndal Jóhannssyni.
Kl. 21 Hressó
Félagar úr óperusmiðjunni,
Hannes Guðrúnarson, Tríó
Vigdísar Klöru og félaga
VERK Magnúsar Blöndals Jó-
hannssonar hljóma í Islensku
óperunni í kvöld. Tónleikarnir
eru Jduti af dagskrá Listahátíð-
ar. Á þeim verða flutt fjölbreytt
verk, gömul og ný, fyrir pianó,
blásarakvintett, segulband, óbó
og einleiksfiðlu svo nokkuð sé
talið. Frumflutt verða tvö verk
sem Magnús samdi á þessu ári
og sýnd kvikmynd Osvaldar
Knudsen „Surtur fer sunnan“ við
tónlist Magnúsar.
Magnús Blöndal Jóhannsson er
einn af brautryðjendum nútímatón-
listar á íslandi. Hann byijaði að
fikta við tónsmíðar aðeins sex ára
ið á sýningum Lilla teatern frá
Helsinski og helst að finna auð
sæti á svölunum. „Við erum geysi-
lega ánægð með aðsókn að erlend-
um atriðum hátíðarinnar, en hún
mætti vera meiri að íslensku við-
burðunum," segir Egill Helgason
blaðafúlltrúi Listahátíðar, sem nú
stendur yfir í Reykjavík.
Auk þess sem þegar er talið var
kirkjuóperan „Abraham og ísak“
eftir John Speight frumflutt á Hvíta-
sunnunni. Operan var flutt _aftur í
Háteigskirkju í gærkvöldi. Á sama
tíma flutti tékkneski Kocian-
strengjakvartettinn verk eftir Dvor-
ak, Janacek og Schubert í íslensku
óperunni.
Mikil ásókn hefur að sögn Egils
Helgasonar verið í miða á sýningar
Cricot 2 leikhópsins frá Kraká. Hóp-
urinn flutti „Ég kem aldrei aftur“ í
leikstjórn höfundarins, Tadeus Kant-
or í fyrsta sinn í gærkvöldi, en alls
verða sýningar fjórar. Kantor kom
til landsins ásamt föruneyti sínu á
sunnudag.
Myndlistarsýningar hófust víða í
borginni um helgina og og segir
Egill Helgason að margir hafi tekið
myndlistarrúnt á nokkrar sýningar.
Hann segir að flestir hafi þó skoðað
verk Frakkans André Masson. Sýn-
gamall, gekk í Tónlistarskólann í
Reykjavík og lærði tónsmíðar,
hljómsveitarstjórn og píanóleik við
Juillard-tónlistarháskólann í New
York.
Eftir heimkomu 1954 starfaði
hann við Útvarpið og Þjóðleikhúsið
og afkastaði miklu í tónsmíðum.
Þar fór hann oft nýjar leiðir og
fékkst fyrstur manna hér við elektr-
ónískar tónsmíðar. Magnús sinnti
tónsmíðum ekki á áttunda áratugn-
um en tók upp þráðinn fyrir níu
árum, þá búsettur í New York.
Á tónleikunum sem hefjast
klukkan 21 í kvöld flytja sex hljóð-
færaleikarar verk Magnúsar. Á efn-
isskránni er rafverkið Samstirni,
ing á þeim opnaði í Listasafni Is-
lands á laugardagskvöld að viðstödd-
um fjölda gesta. Þá segir Egill að
rnjög margir hafi komið á Kjarvals-
staði síðan á laugardaginn og skoðað
yfirlitssýningu um íslenska högg-
myndalist fram til 1950.
Nýlist ýmiskonar prýðir garða í
Þingholtunum meðan á Listahátíð
stendur og gjörningar eru öðru hvoru
hafðir frammi í Nýlistasafninu að
Vatnsstíg 3b. Að sögn Egils Helga-
sonar hefur mikið verið spurt um
þessa sýningu, „Fyrir ofan garð og
neðan". Kort yfir sýninguna liggi
frammi á miðasölu Listahátíðar,
Listasafninu, Kjarvalsstöðum, Borg-
arbókasafninu og víðar.
Myndlist undir berum himni þrífst
víðar en í Þingholtunum þessa dag-
ana, því landslagsverk Bandaríkja-
mannsins Richards Serra var vígt í
Viðey í gærkvöldi. Verkið „Áfangar"
stendur Listahátíð af sér, enda
myndað úr átján stuðlabergssúlum.
sem sóttar voru í Hrunamannahrepp.
„Austurstræti 17.17“ heita uppá-
komur sem verða daglega fram til
loka Listahátíðar 16. júní á þeim
stað og tíma sem nafnið bendir til.
Leikurinn berst stundum á Lækjar-
torg eða inn á Hressó, eins og gerist
síðdegis í dag.
Tónleikar helgaðir Magnúsi
Blöndal Jóhannssyni verða í ís-
lcnsku óperunni í kvöld og hefj-
ast klukkan 21.
Minigrams fyrir píanó og blásara-
kvintett (frumflutt), Dúett fyrir
klarinett og óbó, Sonorities III fyrir
píanó og segulband, Sonorities VI
fyrir einleiksfiðlu (frumflutt) og
kvikmyndin „Surtur fer sunnan"
við tónlist Magnúsar.
Tónlist Magnúsar Bl. Jóhannssonar:
Ný verk og gömul í
Islensku óperunni
i
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JUNI 1990
31
Morgunblaðið/Þorkell
Sovéski píanóleikarinn Andrei Gavrilov ásamt
pólska hljómsveitarstjóranum Jacek Kaspszyk að
loknum tónleikum með Sinfóníuhljómsveit íslands
í Háskólabíói á laugardag.
Dansinn dunar í Austurstræti 17.17. Morgunblaðið/Einar Falur
Sigurbjörn Einarsson biskup:
Listin er leikur en trúin alvara
í þessari viku fara fram sam-
ræður um list í Lögbergi í Há-
skóla íslands á vegum Listahá-
tíðar. Herra Sigurbjörn Einarsson
biskup talaði fyrstur á annan í
hvítasunnu um vensl trúar og list-
ar.
I erindi sínu skiigreindi Sigurbjörn
list svo að hún væri leikur en trúin
alvara. Leikur og alvara væru and-
hverfur en samt sem áður samstæð-
ur í eðlilegu lífi mannsins sem þyrfti
hæfilegan skammt af hvorutveggja.
Leikur er skrúð eða viðhöfn, sagði
Sigurbjörn. I leiknum er fólgin feg-
urð. Að maðurinn skuli leita fegurð-
arinnar hennar sjálfrar vegna greinir
hann frá dýrunum. En trúin markar
manninum einnig sérstöðu. Sigur-
björn vitnaði í Einar Benediktsson:
„Mannapinn horfði svo lengi til him-
ins að hárin hættu að vaxa á enni
hans.“ Maðurinn hefur ekki eignast
þá gersemi að henni hafi ekki verið
fórnað á altari trúarinnar, sagði Sig-
urbjörn. Saga mannsins er að megin-
hluta trúarsaga og spUrning hvort
hún sé nokkuð annað í innstu rót.
Leikþörfin hefur hvergi fremur
látið til sín taka en þegar maðurinn
tjáir trú sína, sagði herra Sigurbjörn
ennfremur. Listin hefur fæðst af al-
vörunni og dafnað í reifum trúarinn-
ar eins og allt æðra andlegt líf.
Heimstrúarbrögðin fæða af sér listir
og þar er kristnin í fararbroddi. Ótví-
Morgunblaðið/ Einar Falur
Herra Sigurbjörn Einarsson
ræðast er þetta á sviði tónlistarinnar.
Sigurbjörn vék að stöðu nútíma-
mannsins. „Hann svimar því hann
hefur rokið svo hátt á galdrapriki
tækninnar." Sigurbjörn sagði
nútímamanninn reikulan í trú sinni
og list sinni en þó hefði hann aldrei
verið þyrstari í hvort tveggja. Það
hefði verið aðalsmerki mannsins að
hann yndi því ekki að vera mark-
laus. Tómhyggjan afneitar þessu,
sagði Sigurbjörn, og sviptir manninn
þarmeð því aðalsmerki senuhann
hefur borið og borið hefur hann.
Maðurinn hefur engar staðreyndir
og það er hin hliðin á aðalsmerkinu
að hann leitar og spyr. „Nútímamað-
urinn virðist í vaxandi mæli lifa án
þess að spyija í alvöru, leita í al-
vöru.“ Sigurbjörn sagði það trúar-
brögðum sameiginlegt að þau væru
leit en Kristur væri markmiðið. „Að
finna hann er ekki að verða góður,
fagur eða fullkominn heldur öðlast
fótfestu og viðmiðun og óbuganlega
von í leit sinni að sjálfum sér, að
merkingu lífsins." En listin er líka
leit og sú list sem stendur undir
nafni rýfur mæri. Hún túlkar það
sem er fyrir handan. Skapandi lista-
maður heyrir og sér það sem aðrir
sjá ekki. Hér snertast trú og list. „En
hvorki skyldi gera leik að trú né trú
að leik,“ sagði herra Sigurbjörn.
í dag miðvikudag kl. 17.30 ræða
Sigurður Steinþórsson jarðfræðing-
ur, Þorsteinn Gylfason heimspeking-
ur og Jóhann .Áxelsson lífeðlisfræð-
ingur um „Náttúruvísindi og listir"
í Lögbergi. Á föstudag á sama tíma
og sama stað ræða Páll Kr. Pálsson,
forstjóri Iðntæknistofnunar íslands,
Melkorka Ólafsdóttir háskólanemi,
Hrafnkell A. Jónsson verkamaður,
Sigurður A. Magnússon rithöfundur
og Guðmundur Magnússon prófessor
spurninguna: „Hversu lífvæn er
menning fámennra þjóða?“ PÞ
Þorsteinn I. Sigfússon Bragi Árnason
Nýir valkostir
í orkumálum
eftir Braga Árnason
og Þorsteinn
I. Sigfússon
'Vetni er frumefni og dregur nafn
sitt af vatni. Þegar vetni brennur í
andrúmsloftinu myndast vatn. Þann-
ig er vetnisbruninn mjög hreinn. Við
brana vetnis myndast mikil orka. I
hverri massaeiningu vetnis er fólgin
um þrisvar sinnum meiri orka en í
sambærilegri massaeiningu olíuefna.
Orkuna má nýta til upphitunar og
til þess að knýja vélar á mjög svipað-
an hátt og með olíu. Munurinn er
sá, að vetnisbruni veldur ekki um-
hverfismengun. Út úr skorsteinum
og púströrum vetnisvélar kemur
hrein vatnsgufa.
Vetni er álitið eitt álitlegasta
framtíðareldsneyti mannkyns. Því
fylgja ekki gróðurhúsaáhrif né önnur
mengun sem hlýst af bruna olíu og
kola. Hætta á stórfelldri sjávarmeng-
un, eins og nú er þegar olía er flutt
um heimshöfin, verður engin þegar
um er að ræða flutninga á'vetni.
Vetni er unnið úr vatni, sem mynd-
ast aftur í sama magni við branann,
og þess vegna er hráefnið óþijótandi.
Vetni er venjulega unnið með
þremur meginaðferðum. Með raf-
greiningu á vatni, þar sem raf-
straumur klýfur vatn; með því að
leiða vatnsgufu yfir glóandi kol; eða
með því að láta jarðgas hvarfast við
vatnsgufu. Nýtni raforku við raf-
greiningu vatns er um 80%. Tilraun-
ir hafa verið gerðar á framleiðslu
vetnis með því að hvarfa vatnsgufu
við bráðið hraun.
Orkuauðlindir Islands
Heildar vatnsorka íslands, sem
talið er hagkvæmt að virkja, er um
30TWh á ári (TWh er orkueining
sem jafngildir þúsund milljónum
kílówattstunda). Þar af eru nú um
4 TWh nýttar eða rúmur tíundi
hluti. Nýtanleg varmaorka er mun
meiri eða ekki undir 80TWh á ári,
og er aðeins um einn tuttugasti
hluti hennar nýttur í dag. Orku-
notkun íslendinga er í dag um
lOTWh á ári og skiptist þannig, að
rúmur þriðjungur kemur sem raf-
orka frá vatnsafli, tæpur þriðjungur
er jarðhiti til húsahitunar og tæpur
þriðjungur innflutt olía og bensín.
Fyrirsjáanlegt er því, að innlend
orkuframleiðsla getur orðið mun
meiri en not eru fyrir til notkunar
innanlands.
Evrópskt ft'umkvæði
Greinarhöfundar fóru sl. vor til
viðræðna við evrópska aðila í efna-
iðnaði. Ferðin var kostuð af ís-
lenska Járnblendifélaginu hf. og
Háskóla íslands. Háskólinn hefur
undanfarin ár eflt starfsemi sína
tengda orkuiðnaði t.d. með sam-
vinnu við Járnblendifélagið og
stofnun Samstarfshóps um orku-
frekan iðnað, SAMOF. Hlutverk
SAMOF er m.a. að miðla þekkingu
á sviði orkunýtingar.
Eftir viðræður við evrópska aðila
tengda Dechema, sambandi þýskra
efnaframleiðenda, var ljóst að til-
raunir með notkun vetnis eru langt
komnar innan vébanda Evrópu-
bandalagsins að frumkvæði Dech-
ema. í ráði er að framleiða vetni í
rafgreiningarverksmiðju á austur-
strönd Kanada með 100 MW afli.
Vetnið verður síðan flutt með
tankskipum til Wilhelmshafen
nærri Hamborg í Þýskalandi. Hægt
er að flytja það sem fljótandi vetni,
eða í efnasamböndum. Á megin-
landi Evrópu verður vetninu komið
fyrir í geymum og miðlað til íblönd-
unar í jarðgaskerfi Hamborgar, til
raforkuframleiðslu, til verksmiðju-
reksturs og síðast en ekki síst er í
ráði að um níu hundruð strætis-
vagnar í Hamborg verði knúnir^
vetni. Vetni er mjög gott eldsneyti'
fyrir sprengihreyfla sams konar og
nú ganga fyrir bensíni, ef gerðar
eru breytingar á aðfærslukerfi elds-
neytisins.
Verkefnið er kallað „Hydrogen
Pilot Project-Canada“ og er í þrem-
ur þáttum. Fyrsta þætti lauk 1987
og öðrum þætti lýkur á þessu ári.
Kanadamenn hyggjast selja orku
frá orkuverum sínum á um 18 mills
í upphafi en verðið hækkar í um
36 mills um 1995. (Einingin „mill“,
sem er einn þúsundasti úr Banda '*
ríkjadal, er oft notuð þegar rætt
er um orkuverð til stóriðju.) Verk-
efnið er stutt af Eureka þróunar-
samstarfi Evrópubandalagsins og
er að stórum hluta kostað af fyrir-
tækjum, sem taka þátt í því.
Þáttur íslands
Möguleikar okkar íslendinga á
þátttöku í þessu samstarfi hafa
ekki verið kannaðir nógu ítarlega.
Ljóst er að þarna er á ferðinni upp-
haf nýrrar orkualdar í Evrópu, þar
sem nú á fyrir alvöru að hefja nýt-
ingu vetnis sem orkugjafa fyrir al-
menning. Við höfum í greinargerð-
um og viðtölum við þá aðila hér sem
fjalla um orkumál kynnt þetta mál^
og hvatt til þess að ísiendingar fylg-
ist með þróuninni og freisti þess
að taka þátt í henni. Það myndi
falla vel að ímynd íslands sem
hreins lands þar sem gnótt náttúru-
legrar orku býr í vötnum og iðrum
landsins, að Island yrði útflytjandi
hins hreina nýja eldsneytis, vetnis.
Eldsneytis sem framleitt yrði með
náttúrulegri, hreinni orku, í iðnaði
sem sjálfur væri í fararbroddi í
umhverfísmálum, og að þessi orka
yrði notuð til þess að minnka meng-
un í stórborgum Evrópu.
Frekari þátttaka Islendinga í
þessum málum bíður ákvörðunar
stjórnvalda. Þar kemur margt til.
og ekki augljóst hvort hægt er að*.
koma til samstarfs við einmitt það
verkefni sem hér er lýst. Raforku-
verð Kanadamanna virðist sam-
keppnisfært við það verð sem ís-
lendingar bjóða til stóriðju. Hins
vegar er flutningaleiðin frá Kanada
til Evrópu þrisvar sinnum lengri en
frá austurströnd íslands. Hér heima
gæti þetta orðið álitlegur valkostur
í orkunotkun. Áhugavert er að geta
þess að áburðarframleiðsla gæti
fléttast slíkri verksmiðju sem eins
konar aukabúgrein, þar sem fram-
leiðslutæknin er að hluta til sú
sama.
Við viljum með greinarkorni
þessu hvetja stjórnvöld og fyrirtæki
til þess að gefa þessu máli frekari
gaum. Hér er ef til vill í augsýn
tækifæri sem skipt gæti sköpum í
orkubeislun og iðnþróun hér á landi.
Höfundar eru prófessorar í
cfiiafrædi' og cðlisfræði við
Háskóla íslands.