Morgunblaðið - 06.06.1990, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.06.1990, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 1990 BANDARÍKJAHEIMSÓKN GORBATSJOVS Mikhaíl Gorbatsjov; Sovéska þjóðarskútan sem „festalaust rekald“ Forsetinn segir ráðamenn hafa komist að raun um að varpa verði öllu gamla ráðstjórnarkerfinu fyrir róða Washington. Frá Ivari Guðmundssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. MIKHAÍL Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, lýsti yfir því á fundi með bandarískum þingmönnum í sovéska sendiráðinu hér í Was- hington fyrir helgina, að sovéska þjóðarskútan væri „festalaust rekald“. Sagði hann, að gamla efhahagskerfið hefði komið í veg fyrir að perestrojkan leiddi til þeirra umbóta í efinahags- og at- vinnulífi, sem við hana væru almennt kenndar. Sovéski forsetinn sagði, að með- al sovésku þjóðarinnar hefði ekki verið nein vinnugleði. Fólk hefði einungis farið að fyrirmælum en ekki látið stjórnast af eigin áhuga eða framtakssemi. Þess vegna hefði verið nauðsynlegt að gjör- breyta um stefnu. Rakti Gorbatsjov síðan til hvaða ráða hefði verið gripið í því skyni að bjarga þjóðarskútunni og sagði: „Fyrst reyndum við að breyta skipan efnahagsstjórnarinnar með því að taka upp leigu- og sam- vinnurekstur, en það dugði ekki, nei, dugði ekki? Hvers vegna ekki? Af því að stjómarhættir héldust í höfuðdráttum óbreyttir. Loks rann upp.fyrir okkur, hvílíkir einfeldn- ingar við værum. Gamla kerfið, sem hafði verið við lýði í tugi ára var eins og haft eða áþján á öllu efnahagslífinu. Undir því nutu ein- staklingar sín ekki og innan ramma þess var ekki unnt að taka skynsamlegar ákvarðanir. Þess vegna yrði að breyta stjómskipan- inni — afnema ráðstjómarskipu- lagið.“ Þá sagði Gorbatsjov, að þrátt fyrir þær breytingar serr\ þegar hefðu verið gerðar væri ekki nóg að gert. Hin nýja skipan væri enn í deiglunni. Þjóðarskútan hefði leyst festar og hún hefði ekkert akkeri, þess vegna væri stefna Sovétmanna nokkuð á reiki. Gorbatsjov bætti við að þessar breytingar of langan tíma væri hætta á, að það kynni að skapast ringulreið innan þjóðfélagsins. Þess vegna hefði verið ákveðið að flýta efnahagsbreytingum sem mest. Reuter Míkhaíl Gorbatsjov og Ronald Reagan við upphaf morgunverðarfúnd- ar þeirra í bústað sovéska ræðismannsins í San Francisco i fyrradag. Leiðtogamir segja grunn lag’ðan að betri samskiptum Washington. Reuter. GEORGE Bush Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtogi gangast við því að mörg vandamál í sambúð risaveldanna séu enn óleyst en Bush segir jaínframt að lagður hafi verið traustur grunnur að auknu samstarfi á fjögurra daga fúndi þeirra í Bandaríkjunum, sem lauk í Washington á sunnudag. Sovétleiðtoginn sagði í viðtali við sov- éska sjónvarpið að fúndurinn væri jaftimikilvægur sáttmála sem Sovét- menn og Vesturveldin gerðu með sér 1942 um baráttu gegn Hitlers- Þýskalandi „er lönd okkar ýttu til hliðar hugmyndafræðilegum ágrein- ingi og hófu samvinnu." Stjórnmálaskýrendur eru þó flestir sammála um að fúndurinn marki tæpast nokkur timamót og benda á að ekkert virðist hafa þokast í viðkvæmustu deilumálunum; stöðu sameinaðs Þýskalands með tilliti til öryggis- og varnarmála í Evrópu og sjálfstæð- isbaráttu Eystrasaltsríkjanna. Sovétmenn benda á ægilega landi, innrás heija Hitlers kostaði reynslu sína af sameinuðu Þýska- . yfir 26 milljónir Sovétborgara lífið, Reuter Forsetar Bandaríkjanna og Sovétríkjanna ásamt konum sínum og helstu samstarfsmönnum á sveitar- setri Bandaríkjaforseta í Camp David. Þar funduðu leiðtogarnir sl. laugardag. Fundur Gorbatsjovs og forseta Suður-Kóreu: Stj ómmálasamband í augsýn Seoul. San Francisco. Reuter. ROH Tae-woo Suður-Kóreuforseti og Míkhaíl Gorbatsjov Sovétfor- seti ákváðu á fúndi sínum í San Francisco í fyrradag að taka upp náið samstarf ríkja sinna á sviði eftiahagsmála og auka viðskipti. Verður skipuð sameiginleg ráðherranefnd síðar á þessu ári til þess að undirbúa þau mál. Fundur Roh og Gorbatsjovs, sem haldinn var á hótelherbergi í San Francisco síðdegis á mánu- dag, var sögulegur þar sem þetta var í fyrsta sinn að leiðtogar Suður-Kóreu og Sovétríkjanna hittast. Eftir fundinn sagði Roh að þeir hefðu samþykkt í aðalatrið- um að taka upp eðlilegt stjórn- málasamband og sögðu embættis- menn að hugsanlega yrði það að veruleika síðar á árinu. Þá sagði Roh að þeir Gorbatsjov hefðu orðið sammála um að nú væri orðið aðkallandi að slökun ætti sér stað á Kóreuskaganum. Vonuðust Suður-Kóreumenn til þess að fundurinn markaði tíma- mót í sambúðinni við Norður- Kóreu en stríðsástand hefur ríkt milii þeirra frá lokum Kóreustríðs- íns fyrir nær 40 árum. Sovétmenn hafa stutt við bakið á kommúnistastjórn Norður- Kóreu. í gær fór Roh til fundar við George Bush Bandaríkjaforseta og skýrði honum frá viðræðunum við Gorbatsjov. og vilja að sameinað Þýskaland verði hlutlaust.-Vesturveldin vilja tryggja stöðugleika með því að landið verði í Atlantshafsbandalaginu (NATO); leiðtogar beggja þýsku ríkjanna taka undir sjónarmið Vesturveldanna. Bush sagði á blaðamannafundi leið- toganna í Hvíta húsinu á sunnudag að þótt ekki hefði fundist lausn á málinu hefðu forsetarnir verið sam- mála um að Þjóðverjar ættu sjálfir að fá að ráða framtíð sinni í þessum efnum. Bandaríkjaforseti sagði leið- togana hafa ákveðið að eiga fram- vegis reglulega fundi, e.t.v. árlega. „Við höfum ekki hliðrað okkur við að ræða mál þar sem okkur greinir á,“ sagði forsetinn. Hann sagðist ekki viss um að ágreiningur hefði minnkað í Þýskalandsmálunum. Gorbatsjov taldi viðræðurnar hafa einkennst af góðu andrúmslofti og sagðist hafa boðið Bush í opinbera heimsókn til Sovétríkjanna. Sovét- leiðtoginn var varkár er hann ræddi afstöðu Vesturveldanna til Þýska- lands en fulltrúi sovéska utanríkis- ráðuneytisins, Vítalíj Tsjúrkín, sagði um helgina að ljóst væri að NATO- ríkin væru enn að leita að óvini og hefðu valið Sovétríkin. Sjálfstæði Litliáens Bush hefur sætt gagnrýni fyrir að gera samning við Sovétmenn um aukin viðskipti þótt Moskvustjórnin haldi áfram að þjarma að Litháum með efnahagslegum og pólitískum þvingunum. A blaðamannafundinum ítrekaði forsetinn m.a. að viðskipta- samningurinn væri háður því skil- yrði að sovéskum gyðingum og öðr- um verði gert auðveldara að flytjast úr landi. „Vilji einhver deila á mig þá er það í lagi, ég mun svara þeim. Ég gerði það sem ég tel bandarískum hagsmunum fyrir bestu,“ sagði Bush og bætti því við að lausn Litháens- málsins væri ekki skilyrði fyrir við- skiptasamningnum. Rædd voru ýmis staðbundin deilu- mál, þ. á m. Kashmír, Kambódía, Afganistan og Miðausturlönd en ljóst virðist að engar meiri háttar ákvarðanir hafa verið teknar í þess- um málum. Nokkra athygli vöktu þau ummæli Gorbatsjovs að Yassir Arafat, leiðtogi Frelsissamtaka Pal- estínumanna væri maður sem hægt væri að ná samkomulagi við. Sovét- leiðtoginn sagði að til greina kæmi að setja hömlur á brottflutning sov- éskra gyðinga úr landi nema Israel- ar tryggðu að fólkið tæki sér ekki bólfestu á hemumdu svæðunum. Einræður Gorbatsjovs Persónuleg tengsl forsetanna tveggja eru með besta móti og sama er að segja um samskipti eigin- kvennanna, Raísu Gorbatsjovu og Barböru Bush. Bandarískur almenn- ingur tók Sovétleiðtoganum með kostum og kynjum og er ljóst að hann nýtur enn mikillar hylli þar í landi. A hinn bóginn virðist hrifning- in heldur farin að minnka á öðrum vígstöðvum; fjölmiðlar eru ekki jafn hástemmdir og fyrr og 90 mínútna langur fundur Gorbatsjovs með nokkrum þingleiðtogum varð honum ekki ótvírætt til framdráttar. Þing- mennimir héldu að á fundinum, sem fór fram í sovéska sendiráðinu og var sjónvarpað beint án vitundar þeirra, ættu að fara fram skoðana- skipti. Reyndin varð sú að Sovétleið- toginn talaði sjálfur þindarlaust nær allan tímann. Er hann varði stefnu sína í sjálfstæðismálum Litháa líkti hann málinu við innrás Bandaríkja- manna í Panama og gaf í skyn að þingleiðtogarnir væru sekir um tvö- falt siðgæði; væru frelsisunnendur fyrir hönd Litháa en tröðkuðu á frelsi Panamabúa. Sem kunnugt er veltu Bandaríkjamenn einræðisherr- anum Manuel Noriega úr sessi í Panama og létu réttkjörinn forseta taka við vöidum. Ummælum Sovét- leiðtogans var í skeytum Reuters- fréttastofunnar líkt við „löðrung í andlit þingmannanna." Niðurstöðurnar Samþykkt voru drög að samningi um allt að 35% niðurskurð á birgðum langdrægra kjarnavopna og er þess vænst að fullgerður samningur verði tilbúinn til undirritunar fyrir árslok. Viðskiptasamningur var gerður og kveður hann á um fjárfestingar, eignarrétt og einkaleyfi. Samningur- inn er sagður undanfari þess að Bandaríkin veiti Sovétmönnum bestu viðskiptakjör, sem m.a. merkir brottfall innflutningstolla. Ýmsir stjórnmálaskýrendur telja mögulegt að Bandaríkjaþing neiti að staðfesta viðskiptasamninginn vegna deilunn- ar um sjálfstæði Eystrasaltsríkj- anna. Ákveðið var að hætta framleiðslu efnavopna og minnka núverandi birgðir um 80% fyrir árið 2002. Endurbættar voru reglur eldri samninga um eftirlit með kjarna- vopnatiiraunum. Leiðtogarnir hétu því að lokið yrði samningum um fækkun í hefð- bundnum herafla í Evrópu fyrir árs- lok. Nýr loftferðasamningur mun ljór- falda flugumferð milli ríkjanna. Samið var um samstarf varðandi flutninga á sjó og afnumdar ýmsar hömlur í þeim efnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.