Morgunblaðið - 06.06.1990, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 06.06.1990, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JUNI 1990 51 Guðný S. Oskars- dóttír — Minning Hjartfólgin vina mín er horfin, flutt til æðri tilverustigs. Og við sem þekktum hana að verðleikum er huggun harmi gegn að vita að heimkoma hennar verður með því móti er hun sáði hér á jarðríki, með sinni hjartahlýju og lítillæti. Þvi trúum við og vitum að sam- kvæmt því mun hún uppskera. Guðný Sesselja, Sissa, eins og hún var kölluð af vinum sínum, var vinkona Pöllu systur minnar, allt frá þvi er þær slitu barnskón- um, á Kirkjutorgi 6. Ég dáðist alltaf að því að sjá fölskvalausa vináttu þeirra á milli og þar brá aldrei skugga á. Að Pöllu systur er þvi mikill harmur kveðinn er vinkona hennar er burtkölluð svo allt of fljótt. Sissa var glæsileg kona, vel gefin og skemmtileg, þau voru samrýnd hjón sem voru höfðingleg heim að sækja á fallega hlýlega heimilið þeirra á Egilsgötu 12, þau unnu bæði mjög tónlist og voru fagurkerar á góðar bókmenntir og myndlist. Nú er skarð fyrir skildi, er ekki nýtur lengur við glaðværs hláturs hennar Sissu minnar, en þau hjón deildu ávallt með fjölskyldu minni bæði sorg og gleði, og tómlegt verður í heimboðunum ef engin Sissa er, það var kátt á hjalla þegar Sissa tók í píanóið á slíkum stundum og fékk heimakórinn til að taka lagið og syngja með þótt raddirnar væru ekki allar í dúr og moli. Ég ætla mér ekki að tíunda hér manngæsku og kosti elsku Sissu minnar, það hefði ekki verið henni að skapi, enda veit ég vel að það mun skrifað á æðri slóðum. En ég vildi að Guð hefði gefíð mér ritsnilld bónda hennar, að ég hefði getað skrifað fögur minning- arljóð um hana, en Baldur samdi að bróður sínum látnum, Þorleifi, ein þau fegurstu minningarljóð er ég hefi lesið. Blessuð veri minning elsku Sissu og þakka ég samfylgdina. Það er hver maður rikari eftir að hafa átt að vin slíka konu. Dáin - horfín - harmafregn. Hvílíkt orð mig dynur yfir en ég veit að látinn lifir, það er huggun harmi gegn. Hvað væri annars guðleg gjöf, geimur heims og lífið hljóða? Hvað væri sigur sonarins góða? Illur draumur, opin gröf. (Jónas Hallgrímsson) Stína Þorleifsdóttir + Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, BJARNI B. ÓSKARSSON silfursmiður, Álandi 11, andaðist í Borgarspítalanum mánudaginn 4. júní. Þorgerður Hjálmarsdóttir, Björgvin Óskar Bjarnason, Inga Lára Bragadóttir, Guðjón Bjarnason, Margaret Anderson, Halldór Bjarnason, Jensína K Jensdóttir, Hjálmar Bjarnason, Þórey Þ. Þórarinsdóttir, Gerður Björk Guðjónsdóttir og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför hjart- kærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, HELGU DAGBJARTAR ÞÓRARINSDÓTTUR, Hátúni 47, Reykjavík. Andrew Þorvaldsson,_ Sigrún Andrewsdóttir, Grétar Áss Sigurðsson, Kristín Andrewsdóttir, Kristján Jóhannsson, Hulda Hjálmarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Alúðarþakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vináttu og veittu okkur hjálp við fráfall og útför frænda okkar, PÉTURS ALBERTSSONAR bónda, Kárastöðum. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á deild 11 -E Landspfa- lanum og allra þeirra sem heimsóttu hann í veikindum hans. Ættingjar. + Okkar innilegustu þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur vináttu og hlýhug með blómum, kortum og skeytum við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar,' tengdaföður og afa, GUÐBJÖRNS BENEDIKTSSONAR, Dalbraut 27. Guð blessi ykkur öll. Guðrún Björnsdóttir. dætur, tengdasynir og barnabörn. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður minnar, ömmu og langömmu, GÍSLÍNU MARGRÉTAR MAGNÚSDÓTTUR frá Baldurshaga, Vestmannaeyjum. Sesselja Andrésdóttir, Arndís Friðriksdóttir, Ingimundur Helgason, Andrés Haukur Friðriksson, Helga Pétursdóttir og barnabarnabörn. + Innilegustu þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur vin- áttu og hlýhug og vottuðu okkur samúð við andlát og útför eigin- manns míns, föður, fósturföður, tengdaföður og afa, SIGURBJÖRNS A. HARALDSSONAR, Garðabraut 24, Akranesi, Lilja Guðmundsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÍÐAR BJÖRNSDÓTTUR frá Blönduósi. Blessuð sé minning hennar. Björn Arason, Guðrún Jósafatsdóttir, Ingibjörg Aradóttir, Sigurður Þ. Guðmundsson, börn, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og bróður, MAGNÚSAR E. GUÐJÓNSSONAR framkvæmdastjóra Sambands islenskra sveitarfélaga. Sérstakar þakkir viljum við færa stjórn og starfsfólki Sambands íslenskra sveitarfélaga. Alda Bjarnadóttir, Kolfinna S. Magnúsdóttir, Tómas Jónsson, Alda S. Magnúsdóttir, Hauður Helga Stefánsdóttir Edda M. Vignisdóttir, Þórunn K. Tómasdóttir, Alda K. Tómasdóttir, og systkini hins látna. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim fjölmörgu, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför sonar okkar, barnabarns, bróður og ástvinar, HJÁLMARS RÖGNVALDSSONAR, Tunguseli 8, Reykjavík. Guðmunda Hjálmarsdóttir, Birgir Jónsson, Rögnvaldur Ólafsson, Ólafur Eiríksson, Hjálmar Sigurðsson, Ásta Birgisdóttir, Ármann Birgisson, Svava Birgisdóttir, Dagrún Hlöðversdóttir. + Okkar ástkæra dóttir, systir, sonardóttir, dótturdóttir og frænka, BRYNDÍS ÓLÖF LIUA BJÖRGVINSDÓTTIR, fædd27. 6. 1966, andaðist 27. 5. 1990, jarðsungin 2. 6.1990. Okkur er sár harmur í hjarta og þökkum alla hluttekningu og hjálp. Björgvin Óskarsson, Þórhildur Jónasdóttir, Kolbeinn Óskarsson, Ólöf J. Jónsdóttir, Lilja Gunnlaugsdóttir, • frænkur og frændur. + Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur vináttu og hlýhug og vottuðu okkur samúð við andlát og út- för eiginkonu minnar, dóttur, móður, tengdamóður og ömmu, KRISTJÖNU RAGNARSDÓTTUR, Klyfjaseli 5. Stefán Guðmundsson, Anna M. Guðmundsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓHANNS ANGANTÝSSONAR, Skarðshlíð 18G, Akureyri. Gunnar Jóhannsson, Benný Jóhannsdóttir, Guðbjörg Jóhannsdóttir, Númi Jóhannsson, Páll Jóhannsson, Hilmar Jóhannsson, Guðrún Jóhannsdóttir, Heiðar Jóhannsson, Helga Alice Jóhanns, Edle Jóhannsson, Haratdur Hannesson, Gary Salow, Ásgerður Gústafsdóttir, Svanhildur Árnadóttir, Árni Sigurðsson, Bergrós Ananiasdóttir, Haraldur Pálsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar og systur okkar, INGUNNAR RUNÓLFSDÓTTUR ^ frá Kornsá, Sunnubraut 48, Keflavík. Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki sjúkrahúss Keflavíkur. Kristján Oddsson, Ásgerður Runólfsdóttir, ísleifur Runólfsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.