Morgunblaðið - 06.06.1990, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 06.06.1990, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JUNI 1990 Enn um fréttamenn o g útvarpsráð eftirMarkús A. Einarsson Hér á eftir mun ég fara nokkrum orðum um tvær greinar sem birst hafa í Morgunblaðinu sem svar við grein minni „Furðuleg viðbrögð fréttamanna", sem birtist í Morg- unblaðinu 5. maí 1990. Þessar tvær greinar eru grein Atla Rúnars Halldórssonar varafréttastjóra út- varps, „Valdið, mátturinn og dýrð- in“ frá 10. maí og greinin „Um rétt og rangt“ eftir Brodda Broddason fréttamann útvarps sem birtist 24. maí sl. Svo sem kunnugt er, er hér um að ræða umfjöllun um úrskurð útvarpsráðs vegna fréttar fréttastofu útvarps varðandi VT-teiknistofuna 31. mars sl. Einkenni greinanna Áður en ég vík að einstökum atriðum þykir mér rétt að vekja athygli á því, að í hvorugri grein- inni er reynt að svara á málefna- legan hátt því sem ég hafði fram að færa um ákvæði útvarpslaga og reglur um fréttaflutning. Báðir fréttamennirnir leiða hjá sér að fjalla um þær grundvaliarreglur sem um áratuga skeið hafa á far- sælan hátt verið í gildi. Þess í stað reyna þeir að gera sem minnst úr útvarpsráði með vel þekktum slag- orðum, sem m.a. má lesa úr fyrir- sögn Atla Rúnars, og reyndar bætir varafréttastjórinn ýmsum sætindum við í texta sínum, svo sem: „misbeiting valds“ — „dapur- legur minnisvarði um mistök" — „fulltrúar gamla ijórflokksins í útvarpsráði“ — „órökstudda og löglausa geðþóttaúrskurði gæslu- manna stjórnmálaflokkanna". Athyglisvert er að auk hnútu- kasts vitna báðir fréttamennirnir í bréf stjórnar Arkitektafélags ís- lands, og virðist sem það sé þeirra helsta röksemd í málinu. Vísað er til atriða úr því bréfi um að kynn- ing teikninga hafi gerst með frem- ur villandi hætti og að stjóm telji ekki ástæðu til að hafast frekar að í þessu máli. Kjarni málsins er að í bréfi þessu er ekki um nein afgerandi efnisat- riði að ræða sem varða mat út- varpsráðs á því hvort umrædd frétt var óhlutdræg eður ei. Reyndar verður ekki séð að í bréfinu sé ákveðin afstaða tekin til eins eða neins. Úrskurður útvarpsráðs byggðist á fréttinni sjálfri, greinargerð frá þeim aðila sem kærði og á greinar- gerð frá Atla Rúnari Halldórssyni varafréttastjóra. Takið eftir að Atli Rúnar sendi útvarpsráði grein- argerð, án efa í þeim tilgangi að úrskurður yrði honum í hag. Felst ekki í því óbein viðurkenning á því að útvarpsráð skuli úrskurða í slíkum málum? Lagalegar skýringar í grein Atla Rúnars Atli Rúnar skýrir frá því að Félag fréttamanna hafi leitað eftir áliti hæstaréttarlögmanns sem ekki er nefndur á nafn. Hefur út- varpsráð reyndar ekki fengið að sjá það álit. Vitnar hann í álit þetta, og vekur það furðu að þar er ijallað um málsgrein í 20. grein útvarpslaga sem er máli þessu með öllu óviðkomandi. Skal það skýrt nánar. í 20. grein laganna er ijallað um hlutverk útvarpsráðs. Hljóðar 1. málsgrein svo: „Ötvarpsráð tek- ur ákvarðanir um hversu útvarps- efni skuli haga í höfuðdráttum inn- an marka ijárhagsáætlunar.“ Þarna er fjallað um skipulagningu og niðurröðun dagskrárefnis og koma málefni fréttastofu Ríkisút- varpsins þar við sögu að því leyti einu að ákveða þarf fjölda og tíma- setningu fréttatíma. í tilvitnun Atla Rúnars er þessi málsgrein, sem engu skiptir í máli þessu, gerð að aðalatriði. Svo langt er gengið að vitna til greinargerð- ar þeirrar sem fylgdi útvarpslaga- frumvarpinu á sínum tíma. Hver er tilgangurinn með þess- ari vitleysu? Sennilega sá að þurfa ekki að nefna næstu málsgrein sem Markús Á. Einarsson „Hjá því verður ekki komist, svo hugsanlegt dæmi sé nefht, að með reglum sé reynt að koma í veg fyrir að fréttamenn geti átölu- laust lagt einstaklinga, fyrirtæki eða stofnanir í einelti í fréttatímum.“ einmitt varðar málið, en þar segir: „Ráðið setur reglur, eins og þurfa þykir til gæslu þess að fylgt sé ákvæðum 15. gr. Ákvarðanir út- varpsráðs um útvarpsefni eru end- anlegar.“ Þarna er m.a. um reglur um fréttaflutning að ræða í því skyni að gæta ákvæða um fyllstu óhlut- drægni í frásögn, túlkun og dag- skrárgerð. í 8. grein reglugerðar um Ríkisútvarpið segir svo í fram- haldi af því sem að framan var nefnt úr lögunum: „Leiki vafi á hvernig skuli fara með mál er snerta 15. gr. útvarpslaga skal vísa þeim til útvarpsráðs.“ Við þetta má svo bæta að í þeim kafla útvarpslaga sem fjallar um einkastöðvar er ákvæði um að ein- staklingar, félög eða stofnanir geti kært til útvarpsréttarnefndar verði þeir fyrir hlutdrægni eða mismun- un. „Nefndin skal þá, eins fljótt og við verður komið, felia úrskurð um kæruefnið og er sá úrskurður bindandi fyrir málsaðila.“ Dettur nokkrum lifandi manni i hug að skyldur útvarpsráðs séu minni að þessu leyti en þeirrar nefndar sem fjallar um einkastöðv- ar? Traust almennings á fréttastofum Ríkisútvarpsins Það fer fyrir bijóstið á Atla Rúnari að ég skuli skýra traust almennings á fréttastofum Ríkisútvarpsins með þeim lögum og fréttareglum sem í gildi eru. Sjálfsagt er að fram komi, að ég hef fram til þessa álitið fréttamenn mjög hæfa í starfi. Það breytir hins vegar ekki þeirri skoðun minni að vitneskja um fréttareglur eigi ríkan þátt í jákvæðri afstöðu al- mennings hvað varðar áreiðanleika frétta Ríkisútvarpsins. Staðreynd er að í þeim ná- grannalöndum þar sem ríkisútvarp er við lýði koma fréttastofur ríkisútvarps oft vel út í skoðana- könnunum. Ríkisútvarp er ijölmið- ill viðkomandi þjóðar og almenn- ingur gerir þær kröfur að í fréttum felist ekki: „neins konar ádeilur eða hlutdrægar umsagnir“ ... svo vitnað sé í reglur um fréttaflutning Ríkisútvarpsins. Má útvarpsráðsmaður ekki láta til sín heyra? Áður en ég vík að ákveðnu efnis- atriði úr grein Brodda Broddasonar langar mig að nefna skemmtilega málsgrein hans sem hljóðar svo: „Hvers vegna varaformaður út- varpsráðs heldur nokkurra vikna gömium skollaleik úr útvarpsráði áfram á síðum Morgunblaðsins, verður hann væntanlega að skýra fyrir ráðinu, því ekki trúi ég því að aðrir ráðsmenn kunni að meta þetta leiðrétta ljósrit sannleikans." Í fyrsta lagi virðist Broddi gram- ur yfir því að útvarpsráðsmaður skuli láta til sín heyra. Má ég þá minna hann á hvernig fréttamenn notuðu þær nokkru vikur sem hann nefnir. Ályktanir voru samdar, fréttatímar óspart notaðir í eigin máli, frægt viðtal við varafrétta- stjórann í þættinum Dagskrá á rás 2, viðtöl í dagblöðum og fleira mætti nefna. í einhveiju dagblað- anna mátti sjá yfirlýsingu vara- fréttastjórans um sigur. Hvers konar sigur? Hvergi vantaði stóru orðin um útvarpsráð fremur en í þeim greinum sem hér er íjallað um. Hugsa sér að útvarpsráðsmað- ur skuli láta sér detta í hug að vekja athygli á öðrum sjónarmiðum eftir allan þennan hamagang! Það er víst ekki til þess ætlast að blás- ið sé á fréttamenn. I öðru lagi bið ég lesendur að líta á síðasta hluta setningar Brodda. Efast nokkur um hvað Broddi ætlast til að lesið verði úr þessu? Varla. Undirritaður hlýtur með skrifum sínum að vera að gera eitthvað í andstöðu við aðra ráðsmenn. Um stöðu mála í því efni veit ég líklega betur en Broddi, og raunar er ákvörðun útvaipsráðs í málinu löngu tekin og málinu lokið þar. Hér höfum við hins veg- ar glæsilegt dæmi um það hvernig orðalag getur ráðið því að frétt verði hlutdræg ef ekki röng. Þá kúnst kann Broddi greinilega í þessu tilviki. Hér skal ítrekað að það er engin tilviljun að hugtakið óhlutdrægni er nefnt í útvarpslög- um. Það virðast fréttamenn hins vegar skyndilega ekki mega heyra. En kærar þakkir fyrir ágætt dæmi Broddi. Umbeðin athugasemd í grein minni frá 5. m aí sl. nefndi ég að töluverðrar tregðu hefði gætt hjá fréttastofu útvarps að birta leiðréttingu. í grein sinni nefnir Broddi Broddason umbeðna athugasemd við fréttina, en það orðalag var notað í ályktun út- varpsráðs 20. apríl sl. Þannig vill til að VT-teiknistof- an mun í kjölfar hinnar frægu fréttar 31. mars hafa sent frétta- stofunni langa athugasemd. Nú gerist það eftir ályktun útvarps- ráðs 20. apríl að engin leiðrétting birtist og var skýring fréttastjóra sú, að hin umbeðha athugasemd væri alltof löng. Þarna léku menn sér að orðinu umbeðinn, en í álykt- un útvarpsráðs var með orðalaginu „umbeðna athugasemd“ átt við athugasemd samkvæmt beiðni VT-teiknistofunnar, en ekki ein- hveija langa athugasemd sem bor- ist hefði áður. Þennan skilning útvarpsráðs fékk fréttastjóri vita- skuld vitneskju um. Broddi 100 / MeibaSerla handfang I féÉ íim handfang "V. SERLA Soft, hvítur. 4 eða 8 rúllur í pakka. SERLA Soft, gulur, bleikur og hvítur. 2 rúllur í pakka. SERLA Toilet, gulur. 6 eða 12 rúllur í pakka. % endurunninn pappír-SERLA Nature Friendly, náttúruhvítur. 9 rúllur í pakka.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.