Morgunblaðið - 06.06.1990, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 06.06.1990, Blaðsíða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JUNI 1990 I ! AFGASRULLUR fyrir bílaverkstæði Olíufélagið hf 681100 Hvítasunnukappreiðar Fáks: Spennandi gæðinga- úrslit í hávaðaroki Góður árangur Leists frá Keldudal á nýjum skeifiim í skeiðinu mættu síðan í úrslit á annan í hvítasunnu. Úrslitin voru spennandi í báðum flokkum þrátt fyrir leiðindaveður. Ljóst var að hestarnir sýndu ekki sínar bestu hliðar og má þar vafa- laust um kenna veðrahamnum. í B-flokki unnu ísak og Gunnar Arnarsson sig upp úr þriðja sæti í það fyrsta og er þetta í annað sinn sem þeir félagar vinna B- flokk hjá Fáki. Kjarni og Sævar Haraldsson og Kraki og Unn Kroghen urðu jöfn í öðru til þriðja sæti en í stað þess að' fara í svokallaðan bráðabana gaf Unn Sævari eftir annað sætið. Var það virðingarverð ákvörðun af hennar hálfu því bráðabanar eru leiðinda fyrirbæri og í raun óþarfir. Fyrirfram var búist við öruggum sigri hjá Kjarna en hann hafði gott forskot í báðum for- keppnunum og fékk 9,0 í aðalein- kunn í seinni forkeppninni. Ekki voru allir brekkudómarar sammála niðurstöðum dómara en þeir réðu að sjálfsögðu engu um úrslitin frekar en fyrri daginn. í A-flokki héldu Svartur og Sig- urbjörn sæti sínu þó naumt væri því Gýmir og Trausti Þór veittu þeim harða keppni. Að loknu brokki og tölti í úrslitunum virtist allt stefna í öruggan sigur þeirra síðarnefndu. Þegar kom að skeið- inu fataðist Gými og Trausta flug- ið og Svartur og Sigurbjörn héldu fengnum hlut. Ekki voru dómarar þó sammála hveijum bæri fyrsta sætið því tveir dómarar af fimm settu Gými og Trausta í fyrsta sætið. Að loknum úrslitum voru verð- launaðir tíu efstu hestar í hvorum flokki og mátti þar glöggt greina að Fákur sendir sterka hesta á landsmót nú sem fyrr. I unglingaflokki sigraði Edda Rún Ragnarsdóttir á Sörla frá Norðtungu en hún hlaut einnig viðurkenningu fyrir prúðmannlega framkomu og snyrtilegan klæðn- að. Var hún vel að þessari viður- kenningu komin. í barnaflokki sigraði Steinar Sigurbjörnsson á Glæsi og sannað- ist þar að sjaldan feilur eplið langt frá eikinni því hann er sonur Sig- urbjörns Bárðarsonar. Sama má segja um þá tuttugu krakka sem fara á landsmót fyrir hönd Fáks og sagt var hér að ofan um gæðingana því fullvíst má telja að mörg þeirra komi til með að beijast um efstu sætin á landsmót- inu. Fara þar saman góðir hestar og knapar með mikla kunnáttu þótt ungir séu. brýnið Börkur frá Kvíabekk á 14,7 sek. Veittur er bikar þeim knapa 18 ára ogyngri sem bestum tíma nær í 250 m skeiði og hlaut hann Auðunn Kristjánsson sem sat Arna-Brúnku sem skeiðaði vega- lengdina á 25,2 sek. Best er að hafa sem fæst orð um aðrar greinar kappreiða nema ef vera skyldi árangur Neista Guðmundar Jónssonar í 300 m brokki en hann var eini hesturinn sem lá og náði prýðisgóðum tíma, 32,1 sek. í stökkgreinum virðist ríkja undanhald samkvæmt áætl- un því þátttakan er lítil og öll spenna sem fylgdi þessum grein- um hér áður fyrr virðist fyrir bí. Með sama áframhaldi verður þess ekki langt að bíða að hætt verði keppni í stökkgreinum. Úrslit í hvíta’sunnumótinu urðu sem hér segir: A-flokkur: 1. Svartur frá Högnastöðum, eig- andi Magnús Torfason, knapi Sig- urbjörn Bárðarson, 8,92. 2. Gýmir frá Vindheimum, eigandi Jóhanna M Björnsdóttir, knapi Trausti Þór Guðmundsson, 8,65. 3. Garpur frá Hóli, eigandi Vigfús Lýðsson, knapi Hafliði Halldórs- son, 8,62. 4. Kolur frá Stóra-Hofi, eigandi Gunnar B. Dungal, knapi Atli Guðmundsson, 8,54. 5. Dagfari frá Sogni, eigandi Davíð Matthíasson, knapi Aðal- steinn Aðalsteinsson, 8,59. B-flokkur: 1. ísak frá Litla-Dal, eigandi Guð- mundur Jóhannsson, knapi Gunn- ar Arnarsson, 8,85. 2. Kjarni frá Egilsstöðum eigandi og knapi Sævar Haraldsson, 9,00. 3. Kraki frá Helgastöðum I, eig- andi Lára Jónsdóttir, knapi Unn Kroghen, 8,77. 4. Vignir frá Hala, eigandi og knapi Sigurbjörn Bárðarson, 8,73. 5. Gammur, eigendur Kristinn og Ragnar Skúlasynir, knapi Unn Kroghen, 8,56. Tölt 1. Unn Kroghen á Kraka, 88,26. 2. Gunnar Arnarsson á Bessa, 85,33. Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Það var fyrst og li-emst yfirferðartöltið sem lyfti Isak frá Litla-Dal úr þriðja sæti í fyrsta sætið og þar með var sigurinn í höfn. Knapi er Gunnar Arnarsson. Góðir tímar náðust í skeiðgrein- um kappreiða enda vindurinn í bakið. Leistur frá Keldudal virðist endurborinn því talið var að hann væri búinn að vera sem keppnisve- kringur vegna fótameins. Hann sigraði í skeiðinu á 22,5 sek. sem er aldeilis góður tími hjá fótalaus- um hesti. Um ástæður þess hve vel tókst til hjá Leisti sagðist Sig- urbjörn eingöngu þakka það svo- kölluðum Sleipnir Sport-skeifum en þær draga verulega úr högg- kraftinum sem leiðir upp fætur hesta við niðurkomu. Leistur hefur verið með kvíslbandabólgu og fram til þessa hefur það yfirleitt þýtt að hestar sem hana fá eru ónothæfir til brúkunar. Má því segja að eigendur he'sta með þenn- an kvilla hafi þarna eignast nýja von. í 150 m skeiði sigraði gamla Auk þess að sigra í unglingaílokki hlaut Edda Rún Ragnarsdóttir viðurkenningu fyrir prúðmannlega framkomu og snyrtimennsku. Hér situr hún hest sinn Sörla frá Norðtungu og hampar verðlauna- gripnum sem gefinn var af Ragnari heitnum Thorvaldsen. Eftir harða keppni stóð Svartur firá Högnastöðum uppi sem sigurveg- ari í A-flokki. Knapi er Sigurbjörn Bárðarson. Unn Kroghen sigraði tölkeppnina á Kraka frá Helgastöðum. Hestar Valdimar Kristinsson LANGRI og strangri gæðinga- keppni hjá hestamannafélaginu Fáki lauk á annan í hvítasunnu. Tuttugu og fjórir efstu hestar í A- og B-flokki, sem dæmdir voru fyrir hálfum mánuði, voru endurdæmdir á fimmtudags- og fostudagskvöld í síðustu viku. Fimm efstu í hvorum flokki 'jlÆill'.'jíll SWIíj MEÐ SÉRSTÖKUM SAMNINGIVIÐ GRAM-VERKSMIÐJURNAR, FENGUM VIÐ EINA SENDINGU AF ÞESSUM FJÓRUM GERÐUM Á ALVEG EINSTAKLEGA HAGSTÆÐU VERÐI GRAM KF265 200 Itr. kælir L "Stó Ki- frystir H 146,5 tm B 55,0 cm D 60,1 cm áöur kr, 57.990,- stgr. kr.51.960,- GRAM KF250 173 llr. kælir 70 Itr. frystir H 126,5 cm 135,0 cm (stillonleg) B 59,5 cm D 62,1 cm áöur kr. 57.990,- a, 54.700.- stgr. kr. 51.960.- GRAM KF355 277 Itr. kælir 70 Itr. frystir H 166,5 cm 175,0 cm (stillanleg) B 59,5 cm D 62,1 cm áður kr. 72.960,- i kr. 68.900." stgr. kr. 65.450.- GRAM KF344 198 llr. kælir 146 llr. Irystir H 166,5 cm 175,0 cm (stillanleg) B 59,5 cm D 62,1 cm áðurkr. 79,950,- ster. kr.71.630,- GRAM-KJELISKAPAR hágæóa tæki í eldhúsii, ■ á tilboisverði 5% Staögreiösluafslóttur m Kaupir þú tvö heimilistæki í einu í verslun okkar, gerum vii enn betur og bjáium 10% aíslátt gegn staigreiislu /ponix HÁTÚNI 6A SÍMI (91)24420
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.