Morgunblaðið - 06.06.1990, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 06.06.1990, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JUNI 1990 Listahátíð Garðbæinga María Gísladóttir Tónlist JónÁsgeirsson Oft hefur því verið haldið fram að einstaklingshyggjan sé eitt af meginskapgerðareinkennum Is- lendinga og víst er það rétt, að í fámenni er hver einstaklingur verðmeiri en meðal milljónaþjóð- anna. Séu hæfileikar og geta ein- staklingsins langt umfram það sem fámennið þarf, getur það ýmist heft viðkomandi eða hann ofbýður þolinmæði meðborgara sinna. Sjálfur snýst hann oft gegn þessum vanköntum lítils samfé- lags, fer utan og ásakar heima- menn um skilningsleysi, smá- smugulegheit og skort á aga. Mörgum sést yfir þá staðreynd að ýmislegt sem mótast hefur meðal stórþjóðanna er ekki til staðar í fámennissamfélögum. Þessi mis- munur er ástæðan fyrir sífelldum samanburði, þar sem heimsmæli- kvarðinn verður mikilvæg viðmið- un og gleymist þá mörgum að það grasrótarstarf sem er unnið heima í fámenninu er ekki síður mikil- vægt en „heimsfrægðin". A meðan Listahátíðin í Reykjavík 1990 leggur meginá- herslu á að horfa út fyrir land- steinana er haldin lítil listahátíð þar sem litið er til þeirra sem erj- að hafa garðinn heima fyrir. Það grasrótarstarf, sem ungir lista- menn úr Garðabæ vilja sýna, á sér nokkuð langa sögu. Sú saga hefst með starfi Ingólfs Guðbrandssonar í Laugarnesskólanum en tveir lærisveinar hans, Guðmundur Nordahl og Guðfinna Dóra Ólafs- dóttir, gerast brautryðjendur í tón- listaruppeldi við Flataskóla í Garðabæ. Þar með hefst samspil tónlistarskólans og grunnskólans og nú getur Garðabær státað af tónmenntakennslu sem í mörgum greinum er til fyrirmyndar, jafnvel þó leitað sé að samanburði erlend- is. En sagan er ekki öll sögð með því að tilgreina nöfn kennaranna, því skóli er annað og meira en það sem góður kennari getur verið, því aðstæður þurfa að vera já- kvæðar og þar naut Guðfinna Dóra Ólafsdóttir samstarfs við skólastjórann, Vilberg Júlíusson, sem vakinn og sofinn hlúði að þessari starfsemi og það er ein- mitt hann sem stendur að baki þessari sérkennilegu listahátíð. En áður en ijallað er um þá sem komu fram á Listahátíð í Garðabæ 1990, er rétt að víkja aftur að einstaklingshyggju okkar íslend- inga. Hún á sér eina dökka hlið og það er þegar sá einkennilegi einstaklingur, sem með einhverj- um hætti hefur skarað fram úr, hættir starfi, er oftar að enginn kemur í staðinn fyrir hann og það sem hann byggði upp koðnar nið- ur. Það er sagan um Laugames- skólann og ef það er rétt sem frést hefur, er líklegt að svo muni verða með Flataskóla er Guðfínna Dóra Ólafsdóttir hættir þar störfum og munar þá einnig um að Vilbergur Júlíusson er ekki lengur skóla- stjóri. Það hlýtur að vera ríkur skóli, sem ekki hefur þörf fyrir starfskrafta Guðfinnu, þó líklega sé það ástæðan, að íslensk skóla- yfirvöld hafa ekki mótað neina stefnu um listuppeldi i grunnskól- um landsins, nema af hundshætti skert þar til ætlaðan vinnutíma og auk þess lagt það í hendur hvers einstaks skólastjóra að ráð- stafa þessum tímum. Þrátt fyrir að undirrituðum hafi verið tíðrætt um tónmenntina í Flataskóla til að leggja áherslu á mikilvægi undirstöðu menntunar í grannskólanum, er ljóst, að hver einstaklingur velur sér viðfangs- efni eftir hæfíleikum og getu og leitar sér menntunar víða, bæði hér heima og erlendis. Listahátíð Garðbæinga, sem haldin var í ís- lensku óperanni sl. laugardag, hófst á glæsilegum dansi Maríu Gísladóttur og Malcolms Burns, sama atriði og á opnun Listahát- íðar í Reykjavík. Þrátt fyrir að sviðið í íslensku óperunni sé mun minna en í Borgarleikhúsinu bjó dans Maríu yfir seiðmagnaðri feg- urð og dönsuðu bæði af öryggi, rétt eins og rýmið væri nóg. Ann- ar dansari kom fram á listahátíð Garðbæinga og það var Helena M. Jóhannsdóttir í skemmtilega útfærðu atriði, sem kallast dýra- dans og stendur nær því að vera „akróbatik“ en eiginlegur dans. Það yrði of langt mál að fjalla um alla þá sem komu fram en þar sem margir hveijir eru enn í námi verður aðeins tæpt á því helsta. Hæst bar Ieik Bryndísar Höllu Gylfadóttur sellóleikara í Fant- asiestúcke eftir Schumann. Sam- leikari hennar var Helga Bryndís Magnúsdóttir .og var flutningur þeirra yfirvegaður en helst til var- færnislega útfærður. Pétur Jónas- son gítarleikari flutti tvö verk, það fyrra, Zambra granadina eftir Al- béniz, flutti Pétur mjög vel og af öryggi. Seinna verkið nefnist Serie (1969), eftir Gúnter Braun og er það samið fyrir gítar og slagverk, sem Pétur Grétarsson slagverks- maður aðstoðaði nafna sinn við að flytja. Hildigunnur Halldórsdóttir fiðluleikari flutti það erfiða verk Romanza Andalusa, eftir Saras- ate, býsna vel og er hún þegar orðin slyngur fiðlari. Bróðir henn- ar, Sigurður Halldórsson sellóleik- ari, lék Adagio og Allegro eftir Boccerini og var sékennileg ró yfír fallega útfærðum leik hans. Samleikari systkinanna var Jónas Ingimundarson píanóleikari. Gréta Guðnadóttir lék Inngang og Rondo capriccioso eftir Saint-Saens. Gréta er kraftmikill fiðlari og þó hún ætti einstaka erfið augnablik, var leikur hennar í heild góður og töluvert tilþrifamikill. Samleikari hennar var Helga Bryndís Magn- úsdóttir. Af söngvurum sem komu fram á hátíðinni skal helst geta Sigríðar Elliðadóttur mezzosópran, er söng tvær aríur, Connais-tu-lee Pays, eftir Ambroise og Per lui che Ad- oro eftir Rossini. Sigríður er efni- leg söngkona og söng af öryggi en hún stundar framhaldsnám á ítah'u. Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran er langt komin með að ljúka MS-prófi í söng. Hún söng tvær aríur, Donde lieta eftir Puc- cini og Gimsteinaaríuna úr Faust eftir Gounod. Ingibjörg er mjög efnileg söngkona og ræður yfír töluverðri tækni þó ung sé og flutti hún þessar erfíðu aríur mjög vel. Samleikari hennar var David Knowles. Þeir Gárðbæingar eiga sitt tón- skáld og vaf frumflutt skemmti- lega gert verk. Það nefnist Duo santo og er höfundurinn Hildi- gunnur Rúnarsdóttir. Hún byggir verkið á stefí úr Grallaranum og er þessi „Helgitvísöngurí' saminn fyrir fiðlu og selló og var leikinn og sunginn af Hildigunni Halldórs- dóttur og Sigurði Halldórssyni. Verkið hefst á grallarastefinu, sem flutt er einraddað í formi víxlsöngs. Eftir skemmtilegar út- færslur á víxlaðri hiynskipan, end- aði verkið á því að flytjendur sungu og léku grallarastefíð „uni- sono“. Allir listamennimir sem komu fram á tónleikunum í Islensku óperunni stóðu sig með prýði og geta Garðbæingar verið stoltir af listfengi unga fólksins. Ljódabók eftir Berg- lindi Gunnarsdóttur Út er komin hjá Örlaginu í Reykjavík Ijóðabókin Ljósbrot í skugg- ann eftir Berglindi Gunnarsdóttur. Þetta er þriðja ljóðabók höfund- ar en fyrsta bók hennar, Ljóð fyrir Iífi, kom út árið 1983. Önnur bók Berglindar, Ljóðsótt, var gefin út af Blekbyttunni fyrir fjórum arum. í Ljósbroti í skuggann er 21 frumsamið ljóð ásamt ljóðabálkin- um Úr sálumessu. Einnig eru í bók- inni þýðingar á ljóðum nokkurra skálda, þar á meðal Gabrielu Mistr- al, Césars Vallejo, Rafaels Alberti og Frederieos García Lorca. Fyrir tveimur árum kom út hjá Máli og menningu þýðing Berglind- ar á skáldsögunni Ást og skuggum eftir Isabel Allende. Ljósbrot í skuggann er 65 blað- síður að stærð. Kápu hannaði Helga Pálína Brynjólfsdóttir. Bókin er unnin hjá G.Ben. prentstofu hf. í Kópavogi. MEÐAL ANNARRA ORÐA Tvær áttir í senn eftir Njörð P. Njarðvík Við lifum á einkennilegum tímum þegar vilji manna og þjóða virðist stefna í tvær áttir í senn. Samtímann er að sönnu jafnan erfítt að meta. í hringiðu atburða er óljóst hvert muni stefna. En margt bendir til þess að nú séu mikilsverð tímamót í sögu manns- ins, þótt þau gerist ekki með augljósum hætti eins og stundum áður. Nú þegar leiðtogar stórveld- anna (eins og við höfum vanist að líta á Bandaríkin og Sovétrík- in) hittast, skyldi þeim þá vera ljóst að ríki þeirra era ekki lengur stórveldi í raun? í lok heimsstyij- aldarinnar 1945 skiptu þessi ríki heiminum á milli sín og um leið ríkjum heims í andstæðar fylking- ar. Hveiju skipta þau nú 45 áram síðar? Menn eru sammála um að kalda stríðið sé á enda. Því stríði hafa þessi ríki bæði tapað. Þau tvö ríki sem töpuðu heimsstyijöld- inni, Þýskaland og Japan, era öflugustu efnahagsríki veraldar. Þau hafa unnið kalda stríðið án beinnar þátttöku, báðum bannað að ráða öflugum her. Þannig er kaldhæðni sögunnar. Bandaríkja- menn era með skuldugustu þjóð- um heims þótt þess gæti ckki enn að ráði í daglegu lífí fólks heima fyrir. Og Sovétríkin riða til falls í bókstaflegum skilningi, bæði efnahagslega og pólitískt, rúin öllum áhrifum í öðram löndum Austur-Evrópu. Hvernig getur slíkt gerst á ekki lengri tíma? Hervald og sóun Tvennt sýnist blasa við: her- vald og almenn sóun. Sagan kennir okkur að öll stórveldi líði undir lok. Þetta er stórkostleg þversögn: í sjálfum stórveldis- draumnum býr tortímingin. Eins og Steinn sagði: „í draumi sér- hvers manns er fall hans falið." Stórveldi þenst út og getur ekki hætt útþenslu fyrr en hún er orð- in svo mikil að ríkið í heild liðast í sundur. Hvorki Bandaríkin né Sovétríkin hafa ráð á vígbúnaði sínum. Auk þess sýnir sjálf nátt- úran, sjálf tilveran, okkur tak- markanir okkar með áþfeifanleg- um hætti. Atómsprengjan kennir okkur í ofurleiftri sínu hvert hem- aður leiðir: til endanlegrar tortím- ingar. Leið hervalds er ekki leng- ur fær. Tii þess er máttur her- valdsins einfaldlega orðinn of mikill og heimurinn um leið of lítill. Menn geta ekki keppt eftir auðæfum með því að tortíma sjálfum sér. En þetta er ný hugs- un sem enginn skildi, fýrr en Hiroshima var lögð í rúst á einu andartaki með einni sprengju sem ein flugvél flutti með sér. í öðru lagi ætti öllum að vera orðið skiljanlegt, að efnahagur sem byggist á sóun stenst ekki. Við getum ekki leyft okkur að veiða meiri físk en endumýjun fískistofnanna leyfir. Þetta skilja allir, þótt menn deili um það hvar mörkin skuli vera. Og af hveiju deila menn um það? Vegna per- sónulegra hagsmuna. En þetta er líka ný hugsun. Um það leyti sem kjamorkusprengjan sýndi okkur ógnarásýnd okkar eigin tortímingar, þá datt engum hér í hug, að fiskurinn í sjónum væri takmörkuð auðlind. Þegar sfldin hvarf, skildi enginn af hveiju. En við skiljum það nú, og þess vegna eigum við okkur ekki leng- ur afsökun vanþekkingar. Hið sama gildir um þá veröld sem við byggjum. Við vinnum úr hreinleika náttúrannar lífsþæg- 'indi sem við skilum aftur sem óþverra sem drepur náttúrana. í Tékkóslóvakíu segja menn að þetta sé nú þegar orðin spurning um lif og dauða. Skógar eyddir og loft svo mengað að það drepi böm. Hvers virði eru þá lífsþæg- indi tækninnar? Önnur þversögn felst einnig í undram tækninnar. Aukin tækni krefst aukinnar þekkingar en leiðir til almennrar fáfræði. Opin- berar skýrslur í Bandaríkjunum sýna að ólæsi og almenn van- þekking eykst sífellt. Newsweek skýrði frá því nýlega að banda- rískir unglingar hefðu staðið sig lakast í samanburði skólabarna frá tíu löndum. Og þó er almenn velmegun mest í Bandaríkjunum og tækniþekking lengst komin. Og hvers virði er þá tæknin? Þetta tvennt: hervaldið og sóuhin ætti að vera búið að kenna okkur að líf byggist ekki á algerri tortím- ingu. Ef maðurinn á að halda áfram að lifa, verður hann að læra að lifa með sjálfum sér og náttúrunni sem nærir hann. Sjálfsákvörðun og heildarlöggjöf Við lifum á einkennilegum tímum þegar vilji manna og þjóða virðist stefna í tvær áttir í senn. Við sjáum þörf smárra þjóða fyr- ir sjálfstæði og eigin forráð, og við sjáum þörfína fyrir allsheijar samkomulag um heildartilveru mannsins. í slíkri veröld er hvorki rúm fyrir stórveldi hemaðar né efnahags, sem í skjóli máttar síns geta beitt aðra ofríki. Forsenda slíkrar veraldar er þvert á móti gagnkvæm virðing fyrir menn- ingarlegum sérkennum þjóða. Við sjáum í sjálfstæðisbaráttu Litháa hversu mikla þörf þjóðir hafa fyr- ir eigin verðmæti. Eigið tungumál jafngildir frelsi til eigin hugsunar og tjáningar. Það er hins vegar eðli stórveldis að þurrka út ein- kenni smáþjóða. Þetta kemur skýrt fram i þjóðernisólgu víða í Sovétríkjunum, af því að þar vilja menn ekki una menningarlegum og efnahagslegum yfírráðum Rússa. Þessar þjóðir vilja einfald- lega vera þær sjálfar. Til þess hafa þær að sjálfsögðu fullan rétt. Hver þjóð á að fá að ráða sér sjálf. Þetta verða Bandaríkja- menn líka að skilja og hætta að leika Iögregluhlutverk sitt í Mið- Ameríku, þar sem þjóðir era að vísu sjálfstæðar í orði kveðnu, en lúta í raun vilja stórveldisins í norðri. En jafnframt er svo komið að athafnafrelsi hverrar þjóðar verð- ur að takmarkast við tillitsemi við aðrar þjóðir. Þegar heimurinn minnkar í raun, aukast gagn- kvæm áhrif. Tsjernobyl-slysið sýndi okkur það áþreifanlega. Við íslendingar viljum ekki kjarn- orkuúrgang í Skotlandi. Mann- kynið í heild óttast fall regnskóg- anna í Amasón og viðurkennir ekki að þeir séu séreign Brasilíu- manna þótt þeir séu í landi þeirra. Þessar staðreyndir kalla á heild- arlöggjöf um náttúruvernd og nýtingu auðlinda, mengun og úr- gang. En sú löggjöf verður um leið að byggjast á þekkingu og virðingu fyrir sjálfsákvörðunar- rétti þjóða. Þetta er vandasam- asta framtíðarverkefni fjölskyldu þjóðanna. En tími eiginhags- munastefnu stórvelda er liðinn. Höfundur er rithöfiindur og dósent í íslenskum bókmenntum við Háskóla íslands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.