Morgunblaðið - 06.06.1990, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 06.06.1990, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNI 1990 27 Gorbatsjov boðar háskólastúd- entum nýtt skeið í alþjóðamálum San Francisco. 'Reuter. Camp David. LOKAÁFANGI Bandaríkjaferðar sovésku forsetahjónanna var í Kali- forníu. Þar ávarpaði Mikhaíl Gorbatsjov Sovétforseti stúdenta og hvatti til þess að þjóðir heims tækju höndum saman nú þegar kalda striðinu væri lokið og hafist yrði handa við að skrúfa hernaðarvélar þess í sundur. Sovésku forsetahjónin buðu fyrrum Bandaríkjaforseta, Ronald Reagan, og konu hans Nancy til morgunverðar á mánudag í hinum rammgirta bústað sovéska ræðismannsins í San Francisco. Að loknum fundunum með George Bush forseta í Washington hélt Gorb- atsjov á sunnudag til Minneapolis í Minnesotaríki. Þar ávarpaði hann forráðamenn í bandarísku viðskipta- lífi og var vel fagnað af almenningi. Þaðan lá leiðin til Kaliforníu. Reagan og Gorbatsjov ræddust við í 55 mínútur eða stundarfjórðungi lengur en ráðgert hafði verið. Fór vel á með þeim og afhenti Sovétfor- setinn Reagan heiðurspening sem þakklætisvott sovésku þjóðarinnar fyrir aðstoð sem Bandaríkjamenn veittu á jarðskjálftasvæðunum í Armeníu árið 1988. Bauð Gorbatsjov bandarísku forsetahjónunum fyrr- verandi til Sovétríkjanna í september nk. og þáðu þau boðið. Athygli blaðamanna beindist öðru fremur að eiginkonum forsetanna en fáleikar hafa þótt vera með þeim hingað til. Fór betur á með þeim að þessu sinni en áður og héldust þær m.a. í hendur er þær gengu út á svalir ræðismannsbústaðarins og horfðu yfir San Francisco-flóann. Að fundi loknum sagðist Nancy Rea- gan hafa átt góða stund með Raísu Gorbatsjovu og með þeim væru kær- leikar. „Þetta var'ánægjuleg stund og það fór vel á með okkur,“ sagði Nancy. Sakaði hún fjölmiðla um að hafa brugðið upp rangri mynd af sam- skiptum þeirra hingað til. I Stanford-háskóla í Kaliforníu flutti Gorbatsjov ræðu og féll hún í góðan jarðveg meðal stúdenta. Klöppuðu þeir hvað eftir annað og ætlaði allt um k’oll að keyra þegar Gorbatsjov sagði að kalda stríðinu væri lokið, enginn hefði unnið það og tími væri kominn til að leysa upp bandalögin tvö sem háð hefðu það og skrúfa hernaðarvél þeirra í sund- ur. Framtíðarsýn hans um nýja skip- an heimsmála þar sem gömlu haturs- bandalögin vikju fyrir nýjum sem byggðu á gagnkvæmu trausti og ejn- settu sér að beijast. gegn hungri, sjúkdómum, fátækt og fíkniefna- notkun vakti einnig hrifningu. Að ræðu lokinni var Gorbatsjov klappaður upp. George Shultz, fyrr- um utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, er kennir við háskólann, gaf Sovétleiðtoganum sovéskt.vegg- spjald frá árinu 1921. Á spjaldinu er vitnað í sovéska skáldið Alexander Púshkín er sagði: „Lengi lifi sólin - megi hún sigra myrkrið." Gorbatsjov virtist vikna er hann tók við gjöfinni og stijúka tár af hvörmum sér. 15-20 % AFMÆLISAFSLÁTTUR MOTTUR TEPPABÚDIN H/F. SUDURLANDSBRAUT 26 S-91-68 19 50. VINKLAR Á TRÉ Þ.ÞORGRÍMSSON&CO ÁRMÚLA 29, SÍMI 38640 Komdu með fjölskylduna og reynsluaktu þessum frábœrabíl! SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91-670000 OG 674300 ÁRLEG ÓKEYPIS SKOÐUN! Árlega koma fulltrúar framleiðenda hingað til lands og skoða bílana, eigendum að kostnaðarlausu. ÞR/GGJA ÁRA ÁBYRGÐ! Við bjóðum nú þriggja ára ábyrgð á þessum frábœru bílum. Greiðslukjör eru við allra hœfi. Öll verð eru staðgreiðsluverð. Bílarnir eru ryðvarðir, skráðir, titbúnir á götuna með útvarpi og segulbandi. ■ ■ ■ Isuzu Gemini. LT þriggja dyra hlaðbakur kostar aðeins þúsund og LT fjögurra dYraJQ§ þúsund krónur. Isuzu Gemini er kallaður STÓRISMÁBÍLUNN, vegna hins ótrúlega rýmis sem í honum er. í Gemini sameinast frábœr stjórnsvörun, sparneytni, viðbraðgssnerpa og þœgindi. Vélin er 1300cc. 72 hö„ hann er framhjóladrifinn, 5 gíra, með afistýri, aflhemlum, PCV-lœsingavara á hemlum og upphitaðri afturrúðu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.