Morgunblaðið - 06.06.1990, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 06.06.1990, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JUNI 1990 29 Ar liðið frá göldamorðunum í Peking: Námsmenn mótmæla til að minnast fórnarlambanna Reuter Um 1.000 stúdentar við Peking-háskóla á mótmælafiindi að morgni 4. júní sl. Þeir sögðu að mótmælin hefðu staðið alla nóttina og væru „stórkostlegur sigur.“ Fyrir réttu ári siguðu sljórnvöld herliði á stúd- enta og aðra andófsmenn á Torgi hins himneska friðar og féllu hundruð eða þúsundir vopnlausra borgara. Peking. Reuter. ÞESS var minnst víða um heim á sunnudag og mánudag að ár var liðið fi'á því hersveitir voru sendar á Torg hins himneska fi-iðar í Peking til að kveða nið- ur friðsamleg mótmæli lýðræð- issinna. Námsmenn í Peking- háskóla efhdu til mótmæla á háskólasvæðinu og erlendir fréttamenn í kínversku höfuð- borginnr' sættu barsmíðum lög- reglu. Lögreglan var með mikinn við- búnað í Peking um helgina og lok- aði meðal annars Torgi hins him- neska friðar. Námsmenn í Pek- ing-háskóla sýndu þó hug sinn til stjórnvalda með því að kasta flösk- um út úr heimavistum sínum á mánudag. Þannig vildu þeir sýna andstöðu sína við hinn aldna leið- toga Deng Xiaoping, en nafn hans rímar við „litlar flöskur“ á kínversku. Almennt er talið að Deng hafi fyrirskipað innrás hers- ins á Torg hins himneska friðar, sem kostaði hundruð eða jafnvel þúsundir manna lífið. Kvöldið áður höfðu um þúsund námsmenn efnt til mótmæla við Peking-háskóla. Einn þeirra, Li Minggi, flutti ávarp þar sem hann fordæmdi spillingu embættis- manna og krafðist lýðræðisum- bóta. Stjórnendur háskólans og embættismenn kommúnista- flokksins héldu fund, þar sem skipuleggjendur mótmælanna voru fordæmdir sem „gagnbylt- ingarsinnar" og „óvinir alþýðunn- ar“. Erlendir blaðamenn í Peking kvörtuðu undan því við kínversk stjórnvöld að nokkrir þeirra hefðu sætt barsmíðum lögreglu. Mál- gagn kínverska hersins svaraði þessu með ásökunum um að er- lendar þjóðir hefðu ekki látið af „árásum sínum og arðráni“ í Kína og líkti stefnu Vesturlanda í mál- efnum landsins við ópíumstríðið fyrir 150 árum. Um 100.000 manns gengu í sorgarklæðum um götur Hong Kong á sunnudag til að minnast fórnarlambanna á Torgi hins him- neska friðar. Það eru 25 ór siðan, krakkar! Hittumst öll eftir 25 ár á Dansbarnum, Grensásvegi 7, föstu- daginn 8. júní frá kl. 19.30-23.00. Útskrift: Landspróf 1965 úr Vogaskóla. Útskrift: Gagnfræðadeild Í966 úr Vogaskóla. SNYRTISTOFAN NN býður velkomnar til starfa og kynnir í leiðinni júnísumartilboð sitt: 10% AFSLÁTTUR AF ALLRI . ÞJÓNUSTU WKL UG VÖRUM María Lárusdóttir Hjördís Kristinsdóttir Við höldum áfram sömu góðu þjónustunni og bjóðum meðal annars uppá andlitsböð, fótsnyrtingar, litanir, Make-up húðhreinsanir og alla almenna snyrtingu. Einnig bjóðum við nú aftur uppá hinar sívinsælu gervineglur ásamt handsnyrtingu. AÐ LOKUM BJÓÐUM VIÐ NÚ UPPÁ PARTA- NUDD SEM ER NÝJUNG HÉR HJÁ OKKUR Á NN Tímapantanir í síma 19660 alla virka daga á milli kl. 10 og 18. KOMIÐ OG NJÓTIÐ BETRA SUMARS MEÐ OKKUR. Suiiiir bílar eru betri en aírir Hondu Accord EX 2,0 1990 kostar aðeins frá kr. 1.290.000,00. Þessi bíll er ríkulega útbúinn og m.a. með aukabúnað eins og rafdrifnar rúður, rafstýrða spegla, hita í sætum, vökvastýri/veltistýri, samlæsingar, samlita stuðara, útvarp/segulband og margt fleira. Honda Accord er margfaldur verðlaunabíll og hlaut Gullna stýrið í Þýskalandi. í ár var Honda Accord kosinn bíll ársins í sínum flokki í Bandaríkjunum og þar var hann einnig mest seldi bíllinn á síðasta ári. Yið bjóðum sérlega hagstæð greiðslukjör þar sem aðeins þarf að greiða 25% út og afganginn á allt að 30 mánuð- um. Komið, sjáið og sannfærist að hér er á ferðinni frábær bíll. (H) HONDA HONDA Á ISLANDI, VATNAGÖRÐUM 24, S-689900 (H .. ■ 'tí'i :í f; :
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.