Morgunblaðið - 06.06.1990, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 1990
Atvinna
í eigin húsnæði
Til sölu lítil og haganleg myndbandaleiga í eigin
húsnæði. Verð á fyrirtækinu, húsnæðinu og öll-
um spólunum aðeins kr. 4,8 millj.
Allt vinsælar eða nýjar spólur.
SUÐURVE R I
SfMAR 82040 OG 84755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
SKETFAM
FASTEIGNAMiÐLUN • SKEIFUNNI 19 • 685556
Einbýli og raðhús
FOSSVOGUR - RAÐH.
Höfum í einkasölu mjög fallegt raðhús
196 fm nettó ásamt bílsk. á mjög góð-
um stað í Fossvogi. 5 svefnherb., góðar
stofur með arni. Suðursv. Fallegt út-
sýni. Falleg ræktuð lóð. Ákv. sala.
STÓRITEIGUR - MOS.
- IMÝTT LÁN
Höfum í einkasölu fallegt raðhús á
tveimur hæðum 145 fm ásamt góðum
bílsk. 4 svefnherb. Gott hús. Falleg
ræktuð lóð. Áhv. nýtt lán frá hús-
næðisstj. Ákv. sala.
GUÚFRASEL
Glæsil. keðjuhús á einni hæð 180 fm
m/innb. bílsk. 4 svefnherb. á hæðinni.
Fráb. útsýni. Kj. undir öllu húsinu. Ákv.
sala. Verð 13,5 millj.
SEUAHVERFI
Höfum til sölu glæsil. elnb. á
tvelmur hæðum 270 fm nettó
með innb. bílsk. Húsið er mjög
vel byggt og vandað og stendur
ó faliegum útsýnisst. Mjög falleg
lóð, sértelknuð. Skipti mögul. á
mlnnl eign.
4ra-5 herb. og hæðir
GRAFARV. - GARÐHÚS
Höfum í sölu í nýbygg. í Grafarvogi á
fráb. útsýnisstað eina 4ra herb. íb. 116
fm og eina 7 herb. 126 fm íb. sem eru
tilb. u. trév. nú þegar og tilb. til afh.
Sameign skilast fullfrág. að utan sem
innan. Teikn. á skrifst.
BLÖNDUBAKKI
Mjög falleg 4ra-5 herb. íb. á 3. hæö
111,2 fm nettó. Rúmg. svefnherb. Suð-
ursvalir. Parket. Aukaherb. í kj. Ákv.
sala. Verð 6,5 millj.
BERGSTAÐASTRÆTI
Falleg 4ra herb. íb. í kj. í 5-íbhúsi. Nýl.
innr. Endurn. og falleg íb. Ákv. sala.
VESTURBÆR
Glæsil. 6 herb. nýl. íb. á 3. hæð 173
fm nt. Góðar svalir í norð-vestur með
fráb. útsýni. Rúmg. og falleg eign.
SÖRLASKJÓL - BÍLSK.
Höfum í einkasölu hæð í þríb. 83 fm
nettó sem skiptist í 2 svefnherb., 2 stof-
ur, eldhús og baö. Óvenju rúmg. bílsk.
60 fm fylgir.
SELJAHVERFI
- BÍLSKÝLI
Glæsil. 3-4 herb íbúð á jarðhæö
92 fm. Sér verönd í suður. Bílskýli
fylgir. Mjög ákv. sala. Verð
6,2.millj.
NJÁLSGATA
Góö íb. á tveimur hæðum um 175 fm
í góðu tvíbhúsi. Sérþvhús. Mikið end-
urn. eign. Áhv. nýtt lán fró hús-
næðlsstj. V. 7-7,2 millj.
VESTURBERG
Falleg 4ra-5 herb. íb. á 4. hæö á besta
stað við Vesturberg. Suövsv. Góð íb.
Góð sameign. Útsýni. Verð 6,2 millj.
MOSFELLSBÆR
Falleg neðri sérh. í tvíb. 153 fm nettó.
3 stofur, 4 svefnherb. Nýtt eldhús.
Nýtt hitakerfi. Áhv. nýtt lán frá húsnstj.
VESTURBERG
Falleg 4ra herb. íb. á 4. hæð (3. hæö).
Fráb. útsýni. Mikið áhv. Verð 5,7 millj.
3ja herb.
KRUMMAHÓLAR
- BÍLSKÝLI
Sérl. glæsil. 3ja herb. íb. á 4. hæð
í lyftublokk ósamt bílskýli. íb. er
öll ný endurbyggð með fallegum
innr. Suðursv. Laus strax. Sjón
er sögu ríkari. Lyklar á skrifst.
Verð 6,5 millj.
GARÐASTRÆTI
Sérlega glæsil. 2ja-3ja herb. íb. á 3.
hæð (efstu) 97 fm nettó. Allar innr.
sérlega vandaöar. Marmari á gólfum.
Suðursv. og laufskáli úr stofu. Fráb.
útsýni. Mjög sérstök og falleg eign.
Verð 7,5 millj.
DVERGABAKKI
Vel skipulögð 3 herb íb. á 2. hæð
í nýlega uppgeröu fjölbhúsi. Ákv,
sala 5,4 mijlj.
2ja herb.
KÓNGSBAKKI
Falleg og rúmg. 2ja herb. íb. á 1. hæð
í 3ja hæða blokk. Parket. Þvottahús í
íb. Sér suöurlóö. Ákv. sala.
VESTURBERG
Falleg íb. á 6. hæð í lyftuhúsi. Vest-
ursv. Fráb. útsýni yfir borgina. Þvotahús
á hæðinni. Ákv. sala.
RAUÐÁS
Sérl. anyrtil. og falleg 2ja herb.
ib. á 1. hæð 64 fm nettó. Suður-
verönd í sérlóð. Einnig svalir í
norðaustur með frábæru útsýni.
Ákv. sala. Verð 5,2 millj.
ENGJASEL
Falleg einstaklingsíb. á jaröh. ca 40 fm
í blokk. Góðar innr. Snyrtil. og björt íb.
Ákv. sala. Verð 2,9 millj.
LAUGARNESVEGUR
Falleg íb. í risi í þríbhúsi. Geymsluris
yfir íb. Ákv. sala. Verð 3,2-3,4 millj.
NJÁLSGATA
Snotur 2ja-3ja herb. íb. á 1. hæð í þríb.
Sérinng. Ákv. sala. getur losnað fljótl.
Verð 3,3-3,4 millj.
í smíðum
GRASARIMI - GRAFARV.
Höfum í einkasölu fallegt parh. á tveim-
ur hæöum 145 fm ásamt 23 fm bílsk.
Skilast fokh. m/járni á þaki. Afh.
sept./okt. ’90. Verö 6,3 millj.
VESTURBÆR - KÓP.
Höfum til sölu 3 raðhús 160 fm. Afh.
tilb. u. trév. fljótl. Góöur útsýnisstaöur.
Húsin eru fokh. og tilb. til veðsetn. nú
þegar. Traustur byggaðili.
DALHÚS
Höfum til sölu tvö raðh. 162 fm ásamt
bílsk. Húsin afh. fullb. aö utan, fokh.
að innan. Lóð grófj. Fallegt útsýni. Allar
uppl. og teikn. á skrifst.
LEIÐHAMRAR
Höfum til sölu parhús 177 fm sem er
hæð og ris með innb. bílsk. Afh. fullb.
að utan, fokh. eða tilb. u. trév. aö inn-
an. Góö grkjör. Teikn. og uppl. á skrifst.
DVERGHAMRAR - BÍLSK.
Höfum í einkasölu fokh. neöri sérhæð
(jaröhæð) 172 fm ásamt 25 fm bílsk.
fb. er í dag fullb. að utan, fokh. að inn-
an. Hiti kominn. Áhv. nýtt lán húsn-
stjórn.
Meira en þú getarímyndaó þér!
V ínardrengjakórinn
V.sy. ' f Í ( 4 '11' m Ý% i £ -mþ
Vínardrengjakórmn
_________Tónlist____________
JónÁsgeirsson
Trúlega er heimsókn Vínar-
drengjakórsins einn mesti tónlist-
arviðburðurinn á Listahátíðinni
1990. Þessi kór á sér nærri 500
ára sögu og er ein merkasta tón-
listarstofnun Vesturlanda. Stjórn-
andi kósins í þessari heimsókn er
Peter Marschik er hann er, auk
þess að vera góður píanóleikari,
einnig tónskáld og fluttu drengirn-
ir m.a. fallegt lag eftir hann við
kvæðið Herbstnachmittag, eftir
Rainer Maria Rilke. Á efnisskránni
voru trúarleg tónverk eftir Eybler,
da Croce og Mendelssohn. Inn á
milli var skotið aríu, Jauchzet
Gott in alle Landen, eftir J.S.
Bach, sem aðalsópraninn flutti
með slíkum glæsibrag er fullorðn-
ir söngsnillingar væru vel sæmdir
af. Eitt framúrstefnuverk var á
efnisskránni, eftir Erich Eder de
Lastra, í svonefndum „handa-
hófsstíl", eins konar leikur með
hljóð, allra áheyrilegasta verk.
Eftir hlé fluttu drengirnir eins
þáttar „buffa“-óperu eftir Mozart,
L’oca del Cairo, sem í þýsku útgáf-
unni nefnist Die Ganz des Kalifen
(Gæs kalífans). Mozart samdi
nokkur atriði og sum þeirra eru
aðeins til sem skissur en sú gerð,
sem Vínardrengimir fluttu, er
unnin af Richard Rossmeyer.
Hann bætir við tveimur atriðum
úr söngleiknum (Singspiel) Zaide
og rondo-þætti (Alla Turca) úr
A-dúr píanósónötunni (K. 331).
Drengirnir sungu verkið ágætlega
og var uppfærslan í heild elskulega
barnaleg, ekta og innileg barna-
sýning.
Það sem eftir var tónleikanna
sungu drengirnir tvö lög eftir
Schubert, tvö þjóðlög, skutu inn
tríói úr Töfraflautunni og luku
tónleikunum með tveimur lögum
eftir Johann Strauss. Öll lögin
voru frábærlega vel sungin. Sem
aukalag söng aðalspóraninn aríu
úr I Vespri siciliani eftir Verdi af
einstökum glæsibrag og lauk þess-
um frábæru tónleikum með því
að kórinn söng Dónárvalsinn.
í söng drengjanna fer saman
ögun, kunnátta og sterk tilfínning
fyrir mótun tónhendinga, enda er
þjálfun drengjanna í höndum mik-
illa kunnáttumanna. Það var
ánægjulegt að heyra skýran fram-
burð og fallega tónmótun drengj-
anna í íslenska þjóðlaginu Sofðu
unga ástin mín en hápunktur tón-
leikanna var snilldarsöngur aðal-
sópransins (ekki nafngreindur í
efnisskrá) í aríum eftir J.S. Bach
og Verdi, auk þess að vera leið-
andi rödd í samsöng kórsins, sem
í heild söng frábærlega vel undir
stjórn Peter Marschik.
Andrei Gavrilov
Gneistaflug í Háskólabíói
e
______Tónlist_________
Ragnar Björnsson
Þrátt fyrir góðan leik hljóm-
sveitarinnar í þriðju sinfóníu Beet-
hovens virtust tónleikagestir bíða
eftir næsta atriði sem var undra-
maðurinn austan frá Sovjet.
Kannski var þessi spennandi bið
ástæðan fyrir því að einhvern
stöðuleika vantaði í flutning „Ero-
icu“. Fyrsti þátturinn e.t.v. örlítið
of hraður þrátt fyrir „con brio“,
punkteringarnar í öðrum þættin-
um ekki nógu nákvæmar út í gegn
og prestóið í lok síðasta þáttar
náði ekki fluginu. Þó spilaði hljóm-
sveitin vel, kannski ætlaði hljóm-
sveitarstjórinn sér um of?. Andrei
Gavrilov kom og sigraði áheyrend-
ur og -horfendur strax í fyrstu
töktunum í Rapsodiu um stef eftir
Paganini. Yfirburðatækni og
ásláttur minnti á sagnirnar um
vald Fr. Liszts yfir píanóinu. Það
gneistaði af leik Gavrilovs og slík
var tæknin og yfirferðin að á
stundum efaðist maður um að
hljómborð flygilsins væri af fullri
stærð og ósjálfrátt sveif fyrir augu
manns ýkjumynd af Franz Liszt
þar sem nóturnar héldust ekki við
á píanóinu en flugu út um víðan
völl. Enn jók það á áhrifin að
hljómsveitarstjórinn Jacek Kasps-
zyk frá Póllandi minnti í útliti
mjög á sjálfan Paganini og vant-
aði þá aðeins þann gamla í kompa-
níið sem birtist svo í aukalaginu
hjá Gavrilov. „Brilliant" var leikur
Gavrilovs, og sama má eiginlega
segja um hljómsveitina og stjórn-
andann, sem skiluðu erfiðu hlut-
verki áberandi vel. Einhverjir
munu hafa farið ófullnægðir heim
og viljað heyra meira frá hendi
píanistans en þessa tiltölulega
stuttu rapsódíu. Óskandi væri að
íslenskum tónleikagestum gæfist
kostur á að heyra Gavrilov aftur
sem fyrst og þá í fjölbreyttu efni-
svali. Tónleikunum lauk með
pompi, 1812 forleiknum eftir Tsja-
ikovskij. Lúðrasveitin sem lék með
hljómsveitinni var þláklædd en
hvaðan hún kom var ekki stafkrók
að finna í efnisskrá. Mikið vor-
kenni ég þeim sem þurfa að sitja
í fyrstu 5 bekkjaröðunum á tón-
leikum í Háskólabíói.
68-77-68
FASTEK3IMAMIC)UUIM
SVERRIR KRISTJÁNSSON
HÚS VERSLUNARINNAR 6. HÆÐ
BALDVIN HAFSTEINSSON HDL.
FASTEIGN ER FRAMTÍÐ
SKEMMTISTAÐUR í HJARTA BORGARINNAR
Til sölu veitinga- og skemmtistaður á besta stað í miðborginni.
VÍN - BJÓR - DISKÓ.
Hvað viltu meira?
Allar nánari upplýsingar á skrifst. (ekki i sima).
FYRIR HERRAN - FYRIR FRUNA
Til sölu glæsileg og þekkt SÉRVERSLUN með herra- og dömufatnað.
KLASSA MERKI
Hentugt fyrir tvenn samhent hjón (tveir fastir starfsmenn, tveir hálfs-
dagsstarfsmenn). Allar nánari upplýsingar á skrifst. (ekki í síma).