Morgunblaðið - 06.06.1990, Side 28
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JUNI 1990
Efhahagssamruni þýsku ríkjanna;
* Reuter
Artíðar Khomeinis minnst
íranar fjölmenntu við grafhýsi Ruhollahs Khomeinis j arleiðtogann. íranska fréttastofan IRNA skýrði frá
erkiklerks á mánudag til að minnast þess að ár er því að átta milljónir manna hefðu lagt leið sína til
liðið frá andláti hans. Fólkið hrópaði vígorð gegn grafhýsins. Myndin er af hýsinu, sem er 25 km
Bandaríkjunum og eftirmaður Khomeinis, Ali sunnan við Teheran.
Khamenei, hélt tilfinningaþrungna ræðu um bylting- I
Lafontaine í and-
stöðu við flokkinn
Rex Harrison:
Hínn ódauðlegi pró-
fessor Higgins látinn
OSKAR Lafontaine, kanslaraefhi jafnaðarmanna í Vestur-Þýska-
lándi, er nú kominn í andstöðu við fjölda flokkssystkina sinna
vegna afstöðu sinnar til samnings þýsku ríkjanna um efnahags-
samruna. í viðtali við vestur-þýska tímaritið Der Spiegel fyrir
skömmu gagnrýndi Lafontaine samninginn harðlega. Hann lagði
til að jafhaðarmenn höfhuðu samningnum í neðri deild vestur-
þýska þingsins en notuðu ekki meirihluta sinn í efri deildinni,
Sambandsráðinu, til þess að fella samninginn.
London og New York. Reuter.
BRESKI leikarinn Rex Harri-
son lést á heimili sínu í New
York á laugardag, 82 ára að
aldri. Hann átti yfir sex áratuga
leikferil að baki, kom fyrst firam
á sviðið í leikhúsi í Liverpool
16 ára gamall og lék síðast á
Broadway í New York fyrir
aðeins þremur vikum. Hann var
sexkvæntur og gekk síðast í
hjónaband þegar hann var sjö-
tugur. Banamein hans var
krabbamein í brisi.
Rex Harrison, sem hét í reynd
Reginald Carey Harrison, var
tvímælalaust þekktastur fyrir leik
sinn í hlutverki hins dæmigerða
Breta, prófessors Higgins, í söng-
leiknum „My Fair Lady“. Hann
var af kynslóð sem státaði af jafn
frægum risum í leiklistinni og
Laurence Olivier, John Gielgud
og Ralph Richardson. Harrison
var fágaður og óaðfinnanlegur í
framkomu í flestum hlutverka
sinna.
Eftir að hann hafði leikið í My
Fair Lady lék hann aðalhlutverkið
Rex Harrison
í kvikmyndinni um Dagfínn dýra-
lækni. Hann lék enn fremur í
kvikmyndinni Kleópatra og sögðu
gagnrýnendur þá að hann hefði
stolið senunni frá Richard Burton
og Elizabeth Taylor; Harrison lék
Júlíus Sesar.
Árið 1974 gaf Rex Harrison
út ævisögu sína, „Rex“, þar sem
fram kom í fyrsta sinn að hann
hefði verið blindur á öðru auga
frá barnæsku. Sama ár flúði hann
frá Bretlandi vegna skattamála
og bjó til skiptis á Frönsku og
ítölsku Rivierunni og í Sviss.
Árið 1989 aðlaði Elísabet II
Bretadrottning Rex Harrison og
bar hann eftir það virðingartitilinn
„Sir Reginald". Óskarsverðlaunin
hlaut hann fyrir leik sinn í hlut-
verki prófessors Higgins.
„Ætli maður að ná einhveiju
markmiði er engin auðveld leið
til,“ sagði Harrison, „hvorki í
lífinu né listinni. Hvarfli að manni
að eitthvað verði auðvelt, þá er
allt búið, dautt.“
„Hann var eins og allar miklar
stjörnur: skapmikill, spennandi og
skemmtilegur,“ sagði Lawrence
Evans, sem var umboðsmaður
Harrisons í meira en fjóra ára-
tugi. „Hann var með fyndnustu
leikurum sem ég hef þekkt um
ævina, elskulegur og uppstökkur
maður.“
Skrifað var undir samning
þýsku ríkjanna með pomp og prakt
19. maí síðastliðinn. Viðbrögð
stjórnarandstöðunnar í Vestur-
Þýskalandi voru misjöfn. Hans-
Jochen Vogel, formaður flokks
jafnaðarmanna, virtist ánægður
með samninginn en sagði að gera
þyrfti á honum nokkrar breyting-
ar. Lafontaine segir samninginn
hins vegar vera „mikil mistök“.
Hann vill fara hægar í sakirnar,
spáir miklu atvinnuleysi eftir 1.
júlí þegar samningurinn gengur í
gildi og heldur því fram að enginn
geti séð fyrir hversu kostnaðar-
samt verði fyrir Vestur-Þjóðveija
að standa straum af samrunanum.
Nú virðist hins vegar ljóst að
samkomulag er að nást milli Vog-
els og Helmuts Kohls kanslara um
breytingar á samningnum. í ljósi
þess væri óhugsandi fyrir þing-
menn jafnaðarmanna að hafna
samningnum þegar hann kemur
til kasta þingsins í Bonn. Lafonta-
ine segir hins vegar í viðtalinu við
Der Spiegel að hann líti svo á að
flokkurinn verði að styðja kansl-
araefni sitt í svo mikilvægu máli
sem þessu. Hann hótar jafnvei að
hætta við framboð ef flokkurinn
hlýðir ekki.
Margir hafa gagnrýnt Lafonta-
ine fyrir að bjóða ekki upp á neinn
valkost gegn þeirri leið sem ríkis-
stjórnir þýsku ríkjanna hafa valið.
„Hann kyndir undir ótta en ekki
vonir, einblínir á áhættuna en ekki
möguleikana sem bjóðast við sam-
einingu,“ skrifar Theo Sommer,
ritstjóri Die Zeit í forystugrein,
en blað hans hefur löngum þótt
hallt undir jafnaðarmannaflokk-
inn. „Jafnvel í venjulegu árferði
væri Lafontaine óheppilegt kansl-
araefni. En nú eru óvenjulegir
tímar. Lafontaine er í senn rangur
maður á rangri stundu . . Hvernig
er hægt að treysta honum fyrir
sameiningunni sem hann er ósátt-
ur við? Efahyggjumenn eiga erindi
í stjórnmál en þeir verða að vita
hvað þeir vilja. Ándstaðan ein ger-
ir þá ekki hæfa til leiðsagnar,"
skrifar Sommer.
Samkvæmt skoðanakönnunum
styðja 33% vestur-þýskra jafnað-
armanna Lafontaine í kanslara-
embættið og 22% austur-þýskra.
Walter Momper, borgarstjóri
Vestur-Berlínar, nýtur t.d. mun
meira fylgis jafnaðarmanna. í ljósi
þessa hvetur Theo Sommer til
þess að jafnaðarmenn hafni La-
fontaine nú þegar sem kanslara-
efni áður en hann veldur flokknum
meira tjóni.
Ákveðið að leggja Jaftiaðar-
mannaflokkinn breska niður
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Jafnaðarmannaflokkurinn breski, klofningsflokkur í kringum David
Owen, fyrrum utanríkisráðherra Verkamannaflokksins, var í reynd
lagður niður á sunnudag, þegar miðstjórn hans kom saman. Hrakfarir
flokksins i aukakosningunum fyrir
sem fyllti mælinn.
David Owen, leiðtogi flokksins,
kallaði saman fund miðstjórnarinnar
til að ræða fjármál hans, félagatal
og stöðuna eftir aukakosningarnar í
Bootle, en þar fékk flokkurinn ein-
ungis 155 atkvæði, þriðjung af at-
kvæðum grínflokksins Monster Ra-
ving Loony Party.
Tillaga Owens var, að flokkurinn
yrði lagður niður og hann yrði
pólitískur þrýstihópur. Þingmenn
hans, sem eru þrír, sætu sem óháðir
tæpum tveimur vikum voru kormð,
þingmenn í Neðri málstofunni. Þetta
var samþykkt.
Fjármál flokksins eru í viðunandi
horfi, enda stendur Mark Sainsbury,
eigandi stærstu stórmarkaðakeðju á
Bretlandseyjum, undir útgjöldum
hans. Félagar flokksins eru nú ekki
nema 6.200 og fer stöðugt fækkandi.
John Cartwright, þingmaður
flokksins og formaður miðstjómar-
innar, sagði að 19 hefðu verið
ákvörðuninni fylgjandi en 5 á móti.
Þessari ákvörðun hefðu ekki fylgt
nein sárindi innan flokksins.
David Owen vildi ekki segja, hvort
hann hygðist ganga í Verkamanna-
flokkinn fyrir næstu kosningar, en
fregnir hafa verið um, að hann væri
að velta því fyrir sér.
Talsmenn Verkamannaflokksins
hafa lýst yfir, að liðsmenn Jafnaðar-
mannaflokksins séu velkomnir í
þeirra raðir, en andstaða er gegn því
innan flokksins að taka við David
Owen. Paddy Ashdown, leiðtogi
Fijálslynda lýðræðisflokksins, sagði
■ TEHERAN - Ali Kham-
enei, trúarleiðtogi írana, krafðist
þess í gær að Salman Rushdie,
höfundur skáldsögunnar „Söngva
Satans", yrði framseldur breskum
múslímum til að þeir gætu tekið
hann af lífí fyrir guðlast. Ýmsir
Vesturlandabúar höfðu gert sér
vonir um að írönsk stjórnvöld væru
reiðubúin að ógilda dauðatilskipun
Ruhollahs Khomeinis erkiklerks
frá því í febrúar 1989.
■ TÓKÍÓ - Leiðtogar
stríðandi fylkinga í Kambódíu und-
irrituðu samkomulag á fundi í Tókíó
í gær, þar sem þeir lýsa sig reiðu-
búna til að leggja niður vopn. Leið-
togar Rauðu khmeranna komu hins
vegar í veg fyrir að gengið yrði frá
formlegum vopnahléssamningi.
■ LONDON - Olía lækkaði
verulega í verði í gær vegna fregna
um að Saudí-Arabar hefðu boðið
afslátt af olíu sem afhent verður í
júlí. Einnig réð þar^miklu að ný
skýrsla Samtaka olíuútflutnings-
ríkja, OPEC, benti til þess að aðild-
arríkin þrettán hefðu ekki dregið
úr olíuvinnslu sinni. Hefur olíuverð-
ið ekki verið jafn lágt í sextán
mánuði.
■ JERÚSALEM - Yitzhak
Shamir, forsætisráðherra Israels
og leiðtogi Líkud-flokksins, hét því
í gær að mynda nýja samsteypu-
stjórn með nokkrum smáflokkum
fyrir fimmtudag. Stjórnmálskýr-
endur sögðu að slík stjórn myndi
hafna tillögu Bandaríkjamanna um
friðarviðræður milli ísraela og Pal-
estínumanna. Deilur um tillöguna
urðu til þess að Verkamannaflokk-
urinn sleit stjórnarsamstarfi við
Líkud-flokkinn fyrir tæpum þrem
mánuðum.
að það lægi beinast við, að stuðnings-
menn Jafnaðarmannaflokksins
gengju til liðs við fijálslynda.
David Owen var utanríkisráðherra
í stjórn Verkamannaflokksins 1974-
1979, en gekk úr flokknum árið
1981 ásamt þremur öðrum þing-
mönnum hans. Árið 1988 gengu
jafnaðarmenn til sameiningar við
Fijálslynda flokkinn. David Owen
neitaði að taka þátt í þeirri samein-
ingu. Nú virðist ferli hans í brezkum
stjórnmálum endanlega vera lokið.
■ LOS ANGELES - Banda-
ríski söngvarinn Michael Jackson
missti meðvitund á dansæfingu á
heimili sínu í einu af úthverfum Los
Angeles á sunnudagskvöld. Hann
er á sjúkrahúsi og mun vera á bata-
vegi eftir að hafa þjáðst af bijóst-
verkjum.
Bretland:
IRA myrðir
tvo brezka
hermenn
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari
Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðs-
ins.
ÍRSKI lýðveldisherinn (IRA), við-
urkenndi sl. laugardag að hafa
staðið fyrir morðum á tveimur
brezkum hermönnum fyrir helgi,
öðrum í Vestur-Þýzkalandi hinum
í Lichfield í Englandi.
Síðdegis á föstudag gengu tveir
menn vopnaðir inn á brautarstöð í
Lichfield, þar sem nýliðar í brezka
hernum voru að halda heim í helgar-
leyfi. Þeir skutu á hóp manna og
særðu þijá, einn lézt síðar um dag-
inn. Seint á föstudagskvöld sátu
morðingjar IRA fyrir brezkum ma-
jór, þegar hann kom heim til sín í
Dortmund í Vestur-Þýzkalandi.
Þetta er í fyrsta skipti frá 1975,
að IRA skýtur mann í Englandi.
Hryðjuverk IRA eru talin hafa flutzt
frá Norður-írlandi vegna þess að
barátta yfirvalda þar gegn hi-yðju-
verkamönnunum hefur borið mikinn
árangur.