Morgunblaðið - 06.06.1990, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 1990
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Sigurður Helgason stjórnarformaður Flugleiða afhenti Akur-
eyringum útilistaverkið Farið eftir Pétur Bjarnason, myndlista-
mann á hvítasunnudag, en verkið gefúr félagið í tilefiii af hálfrar
aldar aftnæli atvinnuflugs á íslandi. Verkinu hefúr verið komið
fyrir á tveggja metra háum steinstöpli við Strandgötu.
Flugleiðir færa Akur-
eyringum útilista-
verkið Farið að gjöf
SIGURÐUR Helgason stjórnarformaður Flugleiða afhenti Akur-
eyringum útilistaverkið Farið, eftir Pétur Bjarnason myndlistar-
mann á hvítasunnudag, en verkið lét fyrirtækið gera i tilefúi
af því að hálf öld er liðin frá því að samfellt atvinnuflug hófst
á íslandi með stofnun Flugfélags Akureyrar hf. Það félag varð
síðar Flugfélag íslands hf., annað af tveimur fyrirtækjum sem
stóðu saman að stofnun Fiugleiða.
Flugfélag Akureyrar hf. var
stofnað 3. júní 1937 og hálfri
öld síðar, 3. júní 1987 hélt stjóm
Flugleiða hátíðafund á Akureyri
þar sem samþykkt var að efna
til samkeppni um gerð listaverks
til handa Akureyringum. Sam-
. keppnina sigraði Pétur Bjarna-
son, myndlistarmaður og verk
hans, Farið, var afhjúpað við
Strandgötu á Akureyri á hvíta-
sunnudag. Verkið er steypt í
brons og er komið fyrir á tveggja
metra háum steinstöpli.
í fréttatilkynningu frá Flug-
leiðum segir að nú hilli undir
tímamót í sögu innanlandsflugs-
ins, þar sem verið er að leggja
lokahönd á tillögur til stjórnar
félagsins um endurnýjun innan-
landsflugflotans. Gert sé ráð fyr-
ir að tillögurnar verði lagðar fyr-
ir stjórnarfund í þessum mánuði.
Árlega flytja Flugleiðir um 260
þúsund farþega í innanlandsflugi
og leggja flestir leið sína til eða
frá Akureyri.
Annir hjá lögreglu:
Átta teknir fyrir
neyslu fíkniefiia
MIKLAR annir voru hjá lögregl-
unni á Akureyri um helgina, þrjú
umferðaróhöpp urðu, talsvert var
um ölvun, óspektir og átök og
voru fangageymslur fúllar um
helgina. Þá voru átta teknir fyrir
ncyslu fíkniefna.
Þrjú umferðaróhöpp urðu í um-
dæmi lögreglunnar, öll á laugardag.
Bíll valt við bæinn Skóga á Þela-
mörk um kl. 6 á laugardagsmorgun
og meiddist farþegi í bílnum nokkuð
og var fluttur á sjúkrahús. Ökumað-
ur er grunaður um ölvun við akst-
ur. Skömmu eftir hádegi ók bifreið
á sjö ára gamalt barn á mótum
Helgamagrastrætis og Ham-
arsstígs. Barnið var flutt á sjúkra-
hús, en hlaut ekki teljandi meiðsl.
Þá var ekið á gangandi vegfaranda
laust fyrir miðnætti á mótum Gei-
slagötu og Strandgötu og hlaut
hann áverka og var hann var flutt-
ur á sjúkrahús.
Að sögn varðstjóra lögreglunnar
var helgin mjög annasöm, fjöldi
fólks var í bænum og ölvun mikil
aðfaranótt laugardags og sunnu-
dags. Um 30 manns fengu að gista
fangageymslur lögreglunnar, þar
af átta í tengslum við neyslu fíkni-
efna. Fínkiefnaneytendurnir voru
teknir í tveimur til þremur hópum
ýmist í heimahúsum eða í miðbæn-
um.
Nokkuð var um rúðubrot, minni-
háttar átök og óspektir. Einn var
staðinn af því að kasta af sér vatni
inn í bíl sem stóð við Brekkugötu,
en iðraðist hann fljótt gjörða sinna.
Um helgina voru sex ökumenn
teknir grunaðir um ölvun við akstur
og tólf voru teknir fyrir að aka of
hratt.
Brotist var inn í Tónlistaskólann
aðfaranótt þriðjudags, engu var
stolið, en minniháttar skemmdir
unnar.
Iþróttafélagið
Þór 75áraídag
Rjómaterta og grillaðar pylsur í
boði við félagsheimilið
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Þór á 75 ára afinæli í dag og í tilefúi af því verð-
ur öllum Þórsurum, sem og velunnurum félagsins boðið í kaffí og rjó-
matertu í Hamar, félgsheimili Þórs. Þar verða einnig grillaðar pylsur
og gosdrykkir í boði. Að lokum verður farið í skrúðgöngu frá Hamri
og inn á Akureyrarvöll þar sem Þór mætir KR í knattspyrnuleik.
Einar Sveinn Ólafsson varafor- spjall við gamlar kempur og nýjar.
maður Þórs sagði að aðalhátíðarhöld
félagsins vegna 75 ára afmælisins
yrðu 29. september í haust og væri
stefnt að því að taka félagsheimilið
Hamar í notkun við það tækifæri. í
þessari viku verður afmælisins
minnst með sérstöku útvarpi sem
Þórsarar standa að, en útsendingar
þess hófust seinnipartinn í gær. Sent
er út á FM 100,4 á tímabilinu frá
kl. 15 til 23. Fyrsti hluti dagskrárinn-
ar er helgaður yngri kynslóðinni, en
frá kl. 18—19 verður samtengt við
Rás 2. Unglingarnir ráða ríkjum á
tímanum 19—20.30, en fráþeim tíma
og fram á kvöld verður að finna
ýmsan fróðleik um félagið og létt
Sent verður út fram á sunnudags-
morgun, en ætlunin er að útsending
standi aðfaranótt sunnudags.
Félagsheimili Þórs, Hamar er um
1.200 fermetrar að stærð, hæð, kjall-
ari og ris. Frá því um páska hafa
verið unnar um 3.000 stundir í sjálf-
boðavinnu við bygginguna og hafa
þar margar vaskar hendur lagt hönd
á plóg, að sögn Einars Sveins. Seinna
í sumar verður hluti af kjallara tekin
í notkun, en þar er búningsaðstaða.
Á hæðinni er salur, snyrtingar, eld-
hús og fleira og verður einnig hluti
að því rými tekið í notkun síðar í
sumar, en risið bíður betri tíma.
7 OOmanna MA-hátíð hald-
in í íþóttahöllinni 16. júní
MA-HÁTÍÐ verður haldin í Iþróttahöllinni á Akureyri laugardaginn
16. júní næstkomandi. Hátíðin er opin öllum MA-stúdentum fyrr og
síðar og reikna framkvæmdaaðilar með að um 6-700 manns sæki hát-
íðina. Tilgangurinn með hátíðarhöldunum er að veita stúdentum frá
Menntaskólanum á Akureyri, kennurum skólans og gestum þeirra tæki-
færi til að hittast og skemmta sér; rilja upp minningar skólaáranna
með viðeigandi hætti. Á hátíðinni verður boðið upp á fjölbreytta dag-
skrá, þar sem margir landsþekktir MA-ingar koma fram.
Sérstök MA-hátíð er nú haldin í
fyrsta sinn, en það eru fulltrúar 25
ára stúdenta sem hafa haft með
höndum undirbúning ásarnt fulltrú-
um annarra árganga og starfsmanna
skólans. Hátíðin var kynnt á blaða-
mannafundi í gær og þar kom fram
að hefð hefur verið fyrir því til fjölda
ára að stúdentar fjölmenni til Akur-
eyrar í tengslum við útskrift úr skól-
anum 17. júní. Einkum hafa það
verið afmælisárgangar, 10, 25, 40
og 50 ára stúdentar. Nú er ætlunin
að safna saman á einn stað öllum
þeim MA-stúdentum sem taka vilja
þátt í hátíðinni, en gert er ráð fyrir
að 6-700 manns sæki hátíðina.
íþróttahöllin er eina húsið í bæn-
um þar sem fyrirhugaður fjöldi gesta
getur setið til borðs og hægt er að
koma fyrir stóru dansgólfi. Húsið
hefur reynst vel við hliðstæð tæki-
færi og er á hentugum stað, svo að
segja í túnfæti Menntaskólans. Hát-
íðina ber upp á 110 ára afmæli
skólans og þá eru liðin 60 ár frá því
stúdentar voru fyrst útskrifaðir frá
skólanum, eftir að hann varð form-
lega menntaskóli með sérstökum lög-
um.
Skrifstofa verður opnuð á setu-
stofu heimavistar og verða miðar
afhentir þar 14,—16. júní, en þar sem
nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku
tímanlega geta þeir sem hug hafa á
að taka þátt í hátíðarhöldunum haft
samband við Ólaf Oddsson eða
Nönnu Þórsdóttur á Akureyri.
Opið badmintonmót
Islandsmótið Hörpudeild - Akureyrarvöllur í kvöld kl. 20
MATV0RU
MARKAÐURINN
KAUPANGI-SÍMI 21234
OPIÐ Pro Kennex mót í badmin-
ton verður haldið í íþróttahöllinni
dngana 8.-9. júní næstkomandi.
Keppt verður í einliða- og tvíliða-
leik í meistaraflokki og A- og B-
flokki. Bæði verður keppt í karla-
og kvennaflokki og er ekki um út-
sláttarmót að ræða.
Mótið hefst kl. 15 á föstudag og
á B-flokki, en keppni í A-flokki og
meistaraflokki hefjast kl. 18. og
verður spilað til k. 22.30, en mótinu
verður síðan framhaldið á laugardag
frá kl 9 til 17.
Flestir af bestu badmintonspilur-
um landsins taka þátt í þessu móti
og er þetta stærsti viðburður á þessu
sviði á Akureyri þó leitað sé langt
aftur í tímann. Áætlað er að mótið
verði haldið árlega hér eftir.
Fréttatilkynning
90 unglingar
atvinnulausir
Atvinnulausir unglingar fæddir á
árinum 1972-1974 og skráðir hjá
Vinnumiðlunarskrifstofunni á Ak-
ureyri eru samtals 90. Frá því var
sagt í frétt á laugardag að hópurinn
teldi samtals 160, en hið rétta er
að atvinnulausir unglingar fæddir
1974 eru alls 70 og þeir sem fædd-
ir eru 1972-73 eru alls 20 eða 90
samtals.
t