Morgunblaðið - 06.06.1990, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 1990
49
skilur eftir sig stórt skarð í hjarta
mínu sem aldrei verður fyllt. Eg
bið góðan Guð að styrkja og styðja
Arndísi, Ruth Þórðar og litla
ófædda barnið, foreldra hans, ætt-
ingja og vini.
Margrét
Og þvi varð allt svo hljótt við helfregn þína
sem hefði klökkur gígjustrengur brostið.
Og enn ég veit margt hjarta harmi lostið,
sem hugsar til þín alla daga sína.
En meðan árin þreyta hjörtu hinna,
sem horfðu eftir þér í sárum trega,
þá blómgast enn, og blómgast ævinlega,
þitt bjarta vor í hugum vina þinna.
(T.G.)
Mér finnst þetta ljóð eftir Tómas
Guðmundsson lýsa vel tilfinningum
mínum þegar ég frétti lá besta vin-
ar míns, Þórðar Más Þórðarsonar,
en ég var staddur erlendis, er
hörmulegan dauðdaga hans bar að
höndum, laugardaginn 12. maí sl.
Við Tóti kynntumst fyrst er við
störfuðum saman við matreiðslu á
Hótel Borg fyrir fáum árum og
vorum við þá báðir í námi í Hótel-
og veitingaskólanum. Við urðum
strax miklir mátar og lærði ég
margt í sambandi við okkar fag af
honum, en í því var hann stórsnjall
og hafði einstaka tilfinningu og
smekkvísi fyrir þeirri list sem mat-
argerð getur verið. Oft ræddum við
þau mál svo mikið, að vinum og
vandamönnum þótti nóg um. Við
áttum margar ógleymanlegar
stundir saman bæði í starfi og leik
og má þar nefna skólaferðalag til
Suður-Ameríku fyrir 2 árum. Ann-
að áhugamál sem tengdi okkur
Tóta saman var tónlist en á henni
hafði hann brennandi áhuga, sem
hann miðlaði til mín og annarra
vina sinna. Einnig hafði hann mik-
inn áhuga á bókum og átti gott
bókasafn.
Ef ég ætti að lýsa Tóta í fáeinum
orðum og eins og ég mun ávallt
minnast hans, er það hve mikið
prúðmenni og mikill vinur vina
sinna hann var. Það var mín gæfa
að eignast slíkan vin. Tóti var góð-
ur faðir og var Rut litla dóttir hans
augasteinn hans. Eg átti margar
ánægjulegar stundir á heimili þeirra
Addýar og Tóta. Þau kynntust ung,
og voru að byggja upp sitt heimili
og framtíð. Það var því eftirvænting
og mikil gleði í vændum, en þau
áttu von á öðru barni sínu innan
skamms.
Það er því hörmulegra en orð fá
lýst er Þórður Már var hrifinn burt
í blóma lífsins frá fjölskyldu og vin-
um á svo sviplegan hátt. Ég og fjöl-
skylda mín sendum kveðju og biðj-
um Guð að styrkja Addý og Rut
litlu, foreldra hans og systkini og
biðjum fyrir framtíð litla ófædda
barnsins.
Pétur Bogi Hockett
Mig langar að kveðja í fáum orð-
um frænda minn sem lést af slysför-
um 12. maí síðastliðinn. Þó sam-
bandið hafi ekki verið mikið síðustu
ár, þá áttum við góðar stundir hér
áður fyrr og var ávallt tilhlökkunar-
efni að fara í heimsókn í Ásendann
þar sem hann bjó á uppvaxtarárum
okkar. Ég þakka góðar stundir og
votta fjölskyldu hans og vinum sam-
úð mína á þessari sorgarstundu.
„Þú skalt ekki hryggjast þegar þú skilur
við vin þinn, því að það sem þér þykir vænst
um í fari hans getur orðið þér ljósara í ijar-
veru hans, eins og fjallgöngumaður sér fjall-
ið best af sléttunni.“ (Kahlil Gibran.)
Róbert Hannesson
Hvað er að ári? Hvað er að vori?
Hví er stríð fyrir sumarblíðu?
(M. Joch.)
Síminn hringir og okkur eru sögð
þau voveiflegu tíðindi, að tengda-
sonur okkar hafi látist í hörmulegu
slysi.
Iiversu lítilsmegnug erum við
mannanna börn, þegar svona ber
að höndum. En þá er sá til sem
veitir okkur styrk og huggun. Til
hans er gott að leita. Það höfum
við öll reynt að undanförnu.
Þórður Már var yngsta barn heið-
urshjónanna Unnar Haraldsdóttur
frá Siglufirði og Þórðar Þ. Krist-
jánssonar frá Súgandafirði. Hann
og Arndís kynntust fyrir 9 árum.
Með þeim tókst kærleikur og ást,
sem styrktist með ári hvetju vanda-
mönnum og vinum til mikillar gleði.
Það var unun að sjá hvað þeim leið
vel saman. Yngsta systir Arndísar
dvaldist mikið hjá þeim og mynd-
aðist kærleiksrík vinátta á milli
þeirra.
Þórður Már var lærður mat-
sveinn og var yfirmatreiðslumaylur
á Hótel Selfossi. Hann var sannar-
lega listamaður í sinni grein. Það
getum við borið vitni um, því ósjald-
an var okkur boðið á heimili þeirra
i gómsætar krásir. Heimili þeirra
var hlýlegt og bar vott um góðan
smekk. Þar var mikið af bókum og
hljómplötum. Þórður Már naut þess
að lesa góða bók og hlusta á tón-
list. Mikil var gleðin er litla telpan
fæddist 1988. Hún var sólargeisli
foreldranna og ber vott um, hve vel
þau hafa alið hana. Framtíðin var
svo björt. Nýverið höfðu þau fest
kaup á stórri íbúð í sama hverfi.
Eftirvæntingin skein úr augum
þeirra og annað barn að fæðast
innan skamms. En nú er Þórður
Már farinn til föðurins á himnum.
Elsku Arndís og elsku Ruth Þórð-
ar. Við biðjum Guð að styrkja ykk-
ur og varðveita og gefa ykkur kraft
til að standast þessa miklu raun.
Og tárin sem að væta vanga þinn
er vökvan, send frá lífsins æðsta brunni.
(H. Hafdstein.)
Við biðjum Guð að styrkja okkur
*
Ester Asmunds-
dóttir -Kveðjuorð
Fædd 26. nóvember 1909
Dáin 29. maí 1990
Mig langar með fáum orðum að
minnast elsku ömmu minnar, sem
lést eftir erfið og langvinn veikindi
að morgni 29. maí.
Amma var mín besta vinkona,
alltaf gat ég leitað til hennar þegar
eitthvað bjátaði á. Það er mér erf-
itt að hugsa framtíðina án hennar,
en þetta er víst leið okkar allra.
Það er mér huggun að vita af henni
í góðum höndum og að þjáningum
hennar sé lokið.
Blessuð sé minning elsku ömmu
minnar. Guð geymi hana.
Far þú í friði,
friðut' Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi, Elsku afi og mamma, Guð styrki
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. ykkur i þessári miklu sorg.
(V. Briem.) Hanna Andrea Guðniundsdóttir
öll, sem næst ykkur standa. Að-
standendum Arnar, sem líka fórst
í þessu slysi, sendum við kveðjur
og biðjum Guð að gefa þeim styrk.
Við kveðjum Þórð Má með sárum
söknuði.
Flýt þér vinur í fegri heim,
ktjúptu að fótum friðarboðans
og fljúgðu á vængjum morgunroðans
meira að starfa Guðs um geim.
(Jónas Hallgrímsson.)
Ruth og Árni
Fáein kveðjuorð í minningu um
Þórð Má Þórðarson. Hann lést í
sorglegu slysi ásamt öðrum ungum
manni 12. maí síðastliðinn.
Þórður Már var ljúfur og góður
drengur. Svo óvænt kom kallið, að
við stöndum eftir orðvana og harmi
slegin.
Hann kom inn í fjölskyldu mína,
er þau Arndís Valgerður dótturdótt-
ur mín og Þórður Már bundust ást-
ar og tryggðarböndum. Þá voru þau
við nám í Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti. Hún lauk stúdentsprófi,
en hann prófi í matartækni. Síðan
fór hann í Hótel- og veitingaskól-
ann. Þaðan útskrifaðist hann með
góðri einkunn enda ágætur í því
fagi.
Þau eignuðust íbúð í Rauðási 21.
Þar leið þeim vel og þar fæddist
litla Ruth Þórðar, sem nú er á öðru
ári. Hún var augasteininn þeirra.
Það var dásamlegt að sjá hvað hann
var mikill og góður faðir. Foreldrum
Þórðar Más, systkinum hans, móð-
urafa og föðurömmu sendi ég inni-
legar samúðarkveðjur. Guð blessi
ykkur öll.
Elsku Arndís mín, litla Ruth
Þórðar og ófætt barn. Góður guð
verndi og styrki ykkur. Blessuð sé
minning Þórðar Más.
Sveinbjörg
Mig langar að minnast Tóta okk-
ar með nokkrum fátæklegum orð-
um. Við kynntumst fyrir um tveim
árum er fjölskyldur okkar samein-
uðust. Það var samt eins og ég
hefði þekkt hann mun lengur, Tóti
tók mér strax og ég tók honum.
Það var eitthvað svo sérstakt við
hann Tóta, ég gat talað við hann
um flesta hluti, því hann var greind-
ur og vel að sér. Tóti hafði skemmti-
legan tónlistarsmekk og þar lágu
áhugamál okkar saman.
Ég gerði alltaf ráð fyrir að með
tíð og tíma mundum við hittast oft-
ar, spjalla saman og hlusta á góða
tónlist. En eins og við flest vitum
þá erum við oft svo upptekin af
hinu daglega amstri og gerum ráð
fyrir að geta hitt vini og skyld-
menni þegar svo ber við, en allt er
í heiminum hverfult og nú er Tóti
farinn til æðri heima þar sem góður
Guð varðveitir hann.
Ég minnist Tóta sem glaðlegs
ungs manns sem skipti sjaldán
skapi, hann var mikill húmoristi en
umfram allt góður drengur.
Elsku Addý mín þú ert mér sem
systir, og minning Tóta verður
ávallt stór í hjörtum okkar allra.
Góður Guð blessi þig og Ruth litlu,
svo og aðra aðstandendur.
Far þú i friði,
friður Guðs blessi þig,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Þórhallur Árnason
15-20 %
AFMÆLISAFSLÁTTUR
TEPPI
fEPPABÚDIN H/F.SUDURLANDSBRAUT 26
Vilt þú nú langt?
Radíóáhugamenn ná daglega um
heim allan.
Nýtt námskeið í morsi og radíótækni
hefst 11. júní nk.
Innritun í sfma 31850
Áskriftar- og þjónustusímar:
91-62 60 40 og 91-69 96 00
ÞJONUSTUMIÐSTOÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Þjónustumlðstöð ríkisvcröbréfa, Hvcrfisgötu 6,2. hæð. Stmi 91-62 60 40
Eitt símtal
og þú ert
áskriíandi að
spariskírteinum
rikissjoðs