Morgunblaðið - 06.06.1990, Síða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 1990
MANEX
HÁRVÖKVINN
Jóhannes S. Jóhannesson:
„Ég hafði í gegnum árin
reynt allt til a losna við flös-
una en ekkert dugði. Ég
hélt ég yrði bara að sætta
mig við þetta. En nú veit ég
betur. Vökvinn virkilega
virkar".
Elín Sigurbergsdóttir:
„MANEX hárvökvinn hefur
virkað með ólíkindum vel
fyrir mig. Ég var því sem
næst að missa allt hárið.
Það datt af í flygsum og ég
var komin með hárkollu.
Fljótlega eftir að ég byrjaði
að nota MANEX hætti hár-
losið og í dag er ég laus við
hárkolluna og komin með
mikið og.fallegt hár. Læknir-
inn minn og kunningjar
mínar eru hreint undrandi á
þessum árangri".
Tómas Friðjónsson:
„í fjölda ára hef ég barist
við mjög slæmt exem í hárs-
verði, Eg hafði reynt ýmis
smyrsl o.fl. án teljanlegs
árangurs. Með einni flösku
af MANEX hárvökvanum
tókst mér hins vegar að
hreinsa í burt allt exem og
í dag sést ekki vottur af
því."
Jóna Björk
Grétarsdóttir:
„Ég missti megnið af
hárinu 1987 vegna veik-
inda. Árið 1989 byrjaði
hárið fyrst að vaxa aftur,
en það var mjög léiegt,
svo þurrt og dautt og
vildi detta af. Síðan
kynntist ég MANEX. Eftir
3ja mánaða notkun á
MANEX próteninu,
vítamíninu og sjampóinu
er hár mitt orðið gott og
enn í dag finn ég nýtt hár
vera að vaxa.
Fæst i flestum apótek-
um, hárgreiðslu- og rak-
arastofum um land allt.
Dreifing:
s. 680630. ambrösia
fclk f
fréttum
OPINBERUN
Fyrrum elskhugi
birtir nektarmyndir
afMadonnu
*
Ut er komin bók sem ætla
mætti að poppsöngkonunni
Madonnu þyki lítt spennandi. Er
það lífshlaup Ijósmyndara að
nafni Martin Schreiber. Hann
var kennari í listaháskóla á árum
áður og þegar hin 31 árs gamla
Madonna var aðeins 19 ára réð
hann hana sem nektarmódel fyr-
ir nemendur sína og síðar fyrir
sjálfan sig. Þau urðu síðan elsk-
endur um skeið. Bókin er smekk-
full af myndum af Madonnu
meira og minna nakinni og auk
þess lýsir Schreiber kynnum
sínum af Madonnu í bak og fyr-
ir. Eins og búast mátti við, selst
bókin grimmt, einkum vegna
myndanna og uppljóstrana um
einkalíf Madonnu þótt langt sé
um liðið. Enda mun leikurinn til
þess gerður frá hendi Schreibers.
Ljósmyndarinn ber annars
Madonnu afar vel söguna, segist
hafa unnið með urmul ung-
kvenna, en engin hafi getað
gætt ljósmynd því lífi sem
Madonna fór létt með. Bæði
hefði hún verið svo leikræn í
fyrirsetunum og svo truflaði ekki
fagur vöxtur stúlkunnar. í bók-
injii greinir Schreiber frá því að
Madonna hafi einnig verið viðrið-
in fáeinar klámmyndir, en það
er gömul saga en ekki ný.
Madonna hefur sjálf látið hafa
eftir sér að þetta tímabil í lífí
sínu hafi reynst nauðsynlegt til
þess að koma sér á framfæri og
til að koma sér af stað. Madonna
gengur meira að segja svo langt
að segjast hafa haft meiri og
minni not af öllum sínum elsk-
hugum í gegn um tíðina. Schrei-
ber kemur inn á þetta í bók
sinni, segir söngkonuna hafa
verið tilkippilega í allt milli him-
ins og jarðar ef hún hefði séð Madonna 19 ára byrjuð að feta sig á toppinn. Á innfelldu mynd-
sér einhvern ávinning í því. inni er Madonna núna, heimsfræg söngkona.
STYKKISHOLMUR
Morgunblaðið/Árni Helgason
Járniðnaðarmenn á ferð í Stykkishólmi,
3-10 %
AFM ÆLISAFSLÁTTU R
PARKETT
lEPPABÚOIN H/F. SUÐURLANDSBRAUT 26
S-91-68 19 50
iðnaðarmenn
í heimsókn
Félag járniðnaðarmanna var
hér í Hólminum um kosn
ingahelg ina með eldri félags-
menn og maka þeirra og nýtti
sér vel dagana, bæði til eyja-
ferða og til að skoða bæinn og
mannvirki hér. Fékk hópurinn
góða leiðsögn og var fóikið
ánægt, bæði yfir veðri og við-
tökum öilum. Seinna kvöldið
var haldinn dansleikur á hótel-
inu. Þar skemmtu Hafsteinn
Sigurðsson tónlistarkennari og
Daði Þór Einarsson tónlistar-
skólastjóri með ljúfri tónlist.
Hótelið hefir tekið upp þá
nýbreytni að fá þá til að
skemmta gestum og hefur það
mælst vel fyrir. Það hafa aldrei
verið jafn margir gestir í maí á
hótelinu eins og í ár og því nóg
að gera.
- Árui
Morgunblaðið/Ámi Helgason
Ingigerður Sigurbrandsdóttir á Dvalarheimilinu I Stykkishólmi.