Morgunblaðið - 05.07.1990, Side 4
Níu manna hópur úr unglingavinnunni í kaffihléi.
VEÐUR
/DAG kl. 12.00
Hflímlk): VeSuretoIa í$tand$
(Byggt fl vaOotaoá kl 16.151 gær)
VEÐURHORFUR í DAG, 5. JÚLÍ
YFIRLIT í GÆR: Um 600 km austur af Dalatanga er hægfara 990
mb lægð, en hæðarhryggur á vestanverðu Grænlandshafi þokast
austur. Skammt norður af írlandi er 985 mb lægð á leiö austur
og síðar norðaustur.
SPÁ: Norðlæg átt, gola eða kaldi. Léttskýjað á Suður- og Vestur-
landi en skýjað á Norður- og Austurlandi. Fremur kalt norðanlands
en sæmilega hlýtt syðra.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Hæg breytileg átt og léttskýjað vlöast
hvar. Dagshiti 11 til 18 stig.
HORFUR Á LAUGARDAG: Hægviðri og léttskýjað á Norður- og
Austurlandi, en suðaustangola og skýjað á Suðvestur- og Vestur-
landi. Hiti 12 til 20 stig.
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
^ Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r t Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hrtastig:
10 gráður á Celsius
\J Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl, 12:00 í gær að ísl. tíma
h«i veður
Akureyri 7 skýjaó
Reykjavtk 14 léttskýjað
Bergen 111! skýjað
Helslnki 20 léttskýjað
Kaupmannahöfn 17 léttskýjað
Narssarssuaq 8 skýjað
Nuuk 4 þokaigrennd
Osló 18 skýjað
Stokkhólmur 19 léttskýjað
Þórshöfn 10 skýjað
Algarve 24 heiðskirt
Amsterdam 17 alskýjað
Barcelona 25 léttskýjað
Berlln 19 léttskýjað
Chicago 27 helðskirt
Feneyjar 26 téttekýjað
Frankfurt 20 léttskýjað
Qlaegow 12 rigníng
Hamborg 17 skýjað
Les Palmas 24 skýjað
London 12 rigningogsúld
Los Angeles 17 helðskirt
Lúxemborg 17 skýjað
Madnd 28 heiðskírt
Malaga 27 þokumóða
Maflorca 26 léttskýjað
Montreal 23 alskýjað
New York 25 hállskýjað
Orlando 23 skýjað
Paris vantar
Róm 27 reykur
Vin 16 rigning
Washington 23 alskýjað
Winnipeg 14 skýjað
Veður til að
dytta að...
Veðurblíðan heldur áfram að leika við íbúa Suður- og Vestur-
Iands. Þeir sem tækifæri hafa á að bregða sér út fyrir hússins dyr,
ýmist til að njóta veðursins eða dytta að. Morgunblaðsmenn brugðu
sér upp í Kjós og á Akranes í sólskini en dálítið napurri norðang-
jólu og hittu fyrir nokkra ánægða sólskinsunnendur.
Meðalfellsvatn skartaði sínu feg-
ursta í sólinni og nokkuð var af
fólki í bústöðum við vatnið og við
veiðar. „Það er ekkert að hafa í
vatninu svei mér þá, ég held að hér
hafí einungis veiðst tveir laxar það
sem af er,“ sagði Ásmundur Jo-
hannsson, sem naut veðursins og
brúsakaffis við eigið bátaskýli.
Hann kvaðst vera við annan mann,
sem væri að gera úrslitatilraun til
að veiða eitthvað. Ásmundur á bú-
stað við vatnið og hefur verið þar
yfir sumartímann frá 1973 en sagð-
ist sjaldan hafa vitað eins litla veiði.
„Hér áður var mikil veiði í vatninu
og þá átti ég fleytuna „Heppinn",
en ég sé varla nokkra ástæðu tií
að nefna nýja bátinn sama nafni,“
sagði Ásmundur.
I sama streng tók Kristinn
Morthens, sem hefur búið allt árið
við Meðalfellsvatn undanfarin átta
ár. „Ég var með trilluna „Drottn-
ingarrassgatið“ hér áður fyrr en
nú er lítið að hafa úr því,“ sagði
Kristinn, sem býr í Fjallkofanum.
Nafnið segist hann hafa dregið af
Fjallræðunni. Bústaðinn byggði
hann 1956, og hefur gróðursett
mikið af trjám í kring. Þó að það
Savako Fujiwara frá Japan og
Armin Lindemann frá Þýska-
landi kappklædd á Ieið frá Akra-
nesi.
gustaði við vatnið, bærðist ekki hár
á höfði við Fjallkofann. „í svona
veðri er hér Paradís á jörð og ég
er þá í hlutverki gestamóttöku-
stjóra. En það er verst þegar
tengdadæturnar koma og taka til,
þá fínnst ekki neitt,“ sagði Kristinn
og glotti um leið og hann svipaðist
um eftir kaffibollum. „En í verra
veðri og á veturna koma fáir hingað
og ég væri ekki hér ef ég ætti ekki
svona góða nágranna." Kristinn
segist lítið hafast að á sumrin nema
slaka á, en á veturna málar hann.
„Það er ekki fyrr en í ágúst sem
náttúran skartar litum sem mér
finnst varið í að mála.“
Á afleggjaranum til Akraness
keyrðu Morgunblaðsmenn fram á
kappklætt göngufólk sem var á leið
út á þjóðveg til að ná rútunni til
Borgarness. Þar voru á ferð Savako
Fujiwara frá Japan og Armin Linde-
mann frá Þýskalandi. Þau sögðu
að þrátt fyrir sólskinið væri golan
svo köld að ekki væri vogandi ann-
að en að klæða sig vel. „Við erum
einungis að hita upp fyrir lengri
göngur, því við ætlum okkur að
ganga um Snæfellsnes og þá er
Ijómandi að bytja á stuttri göngu.“
Ásmundur Jóhannsson fær sér
kaffisopa á meðan hann bíður
eftir félaga sínum.