Morgunblaðið - 05.07.1990, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JULI 1990
13
lítið heim arabanna og hið raun-
verulega ástand þar, áður en þeir
hefja að nýju upp dýrðaróðinn um
Arafat og málstað hans? Hvernig
væri það til dæmis að rifja upp
fyrir sér þá staðreynd, að aðeins
eitt af ríkjum araba, Egyptaland,
hefir viðurkennt tilverurétt ísraels?
Myndi ekki viðurkenning þessara
ríkja á ísrael ein sér ná langt til
þess að skapa frið fyrir botni Mið-
jarðarhafsins? Væri viti Steingríms
ekki vel varið með því, að hann
talaði um fyrir þeim sem ráða
ríkjum arabanna, og fengi þá til
þess að viðurkenna tilverurétt ísra-
elsríkis?
Þá myndi það og efla skilninginn
að hugleiða kveðjuorð Arafats við
Saddam Hússein, forseta Iraks, í
lok hinnar nýafstöðnu ráðstefnu
forystumanna arabaþjóðanna í
Baghdad:
„Sigursælir munum við halda inn
í Jerúsalem og reisa fána okkar á
veggjum borgarinnar. Þú heldur
innreið með mér á þínum hvíta
fáki.“
Tónninn í þessum orðum Arafats
bendir ekki til þess áð hann hugsi
sér í alvöru friðsamlega samninga-
leið, enda lætur hann drepa hvern
Varnarliðið
sótti norsk-
an sjómann
ÞYRLA björgunarsveitar varn-
arliðsins á Keflavikurflugvelli
sótti sjómann af norska togaran-
um Korallen á þriðjudag. Hann
hafði fengið hjartaáfall.
Landhelgisgæslunni barst beiðni
um kl. 7 um morguninn í gegnum
Vestmannaeyjaradíó um að sjómað-
urinn yrði sóttur um borð. Land-
helgisgæslan sneri sér til varnar-
liðsins þar sem skipið'var statt um
340 mílur sauðvestur af Reykja-
nesi. Töf varð á því að varnarliðs-
þyrlan kæmist á loft þar sem tank-
vél sem fylgja átti þyrlunni bilaði.
Komið var með sjúklinginn til til
Reykjavíkur laust fyrir kl. 16 í og
var hann lagður inn á Borgarspítal-
ann.
Sviptur rétt-
indum vegua
hraðaaksturs
LÖGREGLAN á Höfii stöðvaði
ungan ökumann á vélhjóli á 147
kílómetra hraða í fyrradag og
svipti . hann ökuréttindum á
staðnum. Pilturinn, sem er
tvítugur, hafði haft ökuréttindi í
flmm daga.
Þá varð harður árekstur tveggja
bíla á Dalsbraut í fyrradag slösuð-
ust tvær stúlkur sem voru farþegar
í öðrum bílnum lítillega. Hvorug
þeirra var í öryggisbeltum.
Áreksturinn varð með þeim hætti
að ökumaður reyndi að aka fram
úr bíl sem skyndilega beygði af
Dalbraut inn í Sunnubraut án þess
að sýna stefnuljós. Ökumaður
bílsins sem reyndi framúraksturinn
ók inn í hlið þess er ætlaði að
beygja og skemmdust báðir bílarnir
mikið.
XJöföar til
XX fólks í öllum
starfsgreinum!
Drottning aðlar sendiherra Breta
þann palestínumann sem vill aðra
leið en hans í viðskiptunum við ísra-
el. Hinir drepnu eru nú á þriðja
hundraðinu. Árafat er því enn að
veifa byssunni sem hann tók með
sér upp í ræðustólinn hjá Samein-
uðu þjóðunum.
Bókun Guðs í máli Jerúsalems
er þann á veg að orð Arafats munu
aldrei rætast.
Höfiindur er hagfræðingur,
fyrrum efnahagsráðunautur
ríkisstjórnarinnar og bankastjóri
Framkvæmdabankans.
SENDIHERRA Breta á íslandi,
Richard R. Best, veitti viðtöku
riddaranafnbót úr hendi Elísa-
betar II. drottningar, meðan á
opinberri heimsókn hennar til
Islands stóð. Jafiilramt hlutu
æðstu starfsmenn sendiráðsins
orðu fyrir þátt þeirra í skipulagn-
ingu heimsóknarinnar.
Bretadrottning veitti viðurkenn-
ingarnar um borð í snekkju sinni
Britanníu, sem Tá í Reykjavíkur-
höfn. Kallaði hún sendiherrann fyr-
ir sig og sló hann til riddara með
sverði. Riddaratign veitir engin sér-
stök réttindi, önnur en þau að Ric-
hard R. Best sendiherra getur nú
titlað sig „sir“ og eiginkona hans
Mary E. Best getur skeitt ávarpinu
„lady“ við nafn sitt. Á ensku heitir
nafnbótin: „Knight commander of
the Victorian order.“
Aðrir starfsmenn sem hlutu við-
urkenningar voru Alp Mehmet
sendifulltrúi, Phillip Leadbetter
liðsforingi, fulltrúi breska flughers-
ins á Keflavíkurflugvelli, Caroline
Gibbson sendifulltrúi og Caroline
Mitchell ritari. Sæmdi Bretadrottn-
ing þau orðum sem einnig eru
kenndar við Viktoríu drottningu.
aö fjárfesta að hluta til í traustum
veröbréfum, sem innleysa má með
skömmum fyrirvara.
Dæmi:
Sjötíu og fimm ára gamall maður
hefur reglulegar tekjur að eign
sinni í Fjórðungsbréfum. Hann
hefur einnig komið sér upp vara-
sjóði í ísiandsbréfum og Öndveg-
isbréfum. Öndvegisbréf eru mjög
traust fjárfesting, enda grund-
völluð á ríkistryggðum verðbréf-
um, og ekki þarf að hafa neinar
áhyggjur af skattinum, innlausn-
ardögum, endurfjárfestingum og
þess háttar umstangi.
Sérfræöingar Landsbréfa h.f. sjá
um alla umsýslu, svo að eigendur
Öndvegisbréfa geta notið áhyggju-
iausrar ávöxtunar.
Leitið ráða hjá Landsbréfum h.f.
Komið og fáið nánari upplýsing-
ar, bæklinga og aðstoð hjá ráð-
gjöfum okkar og umboðsaðilum í
útibúum Landsbanka íslands og
Samvinnubankans um land allt.
w
LANDSBRÉF H.F.
Landsbankinn stendur með okkur
Suöurlandsbraut 24,108 Reykjavík, simi 606080
Löggilt veröbréfafyrirtæki. AM að Veröbréfaþingi íslands.
íslendingar hafa varðveitt þjóðar-
arf sinn af kostgæfni. Fátt eitt
setjum við í öndvegi, en handritin
og sögurnar eru tvímælalaust
eitt af því sem borið hefur hróður
okkar út um heim allan.
Öndvegisbréf eru fjárfesting sem
hægt er að vera stoltur af. Þau eru
eignarhluti í verðbréfasjóði, þar
sem fjárfest er í ríkistryggðum
skuldabréfum og víxlum, hús-
bréfum og öðrum skuldabréfum
með ríkisábyrgð, sem njóta sömu
skattfríðinda og spariskírteini ríkis-
sjóðs.
Öndvegisbréf eru skattfrjáls á
sama hátt og spariskírteini ríkis-
sjóðs. Þau eru eins og nafnið
bendir til úrvals fjárfesting, sem
einkum hentar þeim sem setja
skattfríðindi og öryggi í fyrirrúm.
á eftirlaunaaldri er tækifæri til að
njóta ávaxta langrar starfsævi. Þá
byrjar fólk að ganga á sparnað sinn
og öryggi fjárfestinga er mikil-
vægara en nokkru sinni.
Á þessu æviskeiði hentar flestum
að hafa reglulegar tekjur af fjárfest-
ingum sínum og einnig er heppilegt
Islensku handritin, þjóðarsál Islendinga.
Ráðsettir Islendingar
eiga traust og arðbær
ÖNDVEGISBRÉF