Morgunblaðið - 05.07.1990, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1990
35
Minning:
SigurðurR. Halldórs
son frá Hraungerði
Fæddur 9. febrúar 1909
Dáinn 26. júní 1990
Mig langar að minnast Rögn-
valds móðurbróðui' míns nokkrum
orðum.
Eg átti því láni að fagna að kynn-
ast honum nokkuð vel og ætla að
reyna að lýsa hvernig hann kom
mér fyrir sjónir. Hann.var, eins og
presturinn sagði við kistulagning-
una „engum öðrum líkur.“ Það á
nú víst vel við um marga, en átti
sérstaklega vel við Rögnvald, svo
einstakur og sérstakur var hann.
Hann var sérstaklega glettinn og í
raun léttlyndúr. Það var gaman að
grínast með Rögnvaldi, því að
glettni hans var svo fínleg og snið-
ug, og stundum í hálfkveðnum
vísum sem við skildum, sem vel
þekktum til. Ég kom oft til þeirra
systkinanna í Stigahlíðinni fyrir
nokkrum árum er ég var að læra
í Reykjavík og reyndar oft síðan.
Þá var margt spjallað og spaugað
yfir góðgjörðum og kaffibolla.
Rögnvaldur var þá oft einn heima
er frænku bar að garði. Þá var sko
lagað gott kaffi og ýmislegt týnt
til. Þarna sá ég nýja hlið á Rögn-
valdi, sem gaman var að kynnast.
Það var eins og að koma í aðra
veröld þarna hjá þeim, enginn að
flýta sér, alltaf nógur tími að spjalla
og rifja upp gamla daga og spurt
frétta úr sveitinni af mönnum og
málleysingjum.
Það var gaman að hlusta á þá
bræðurna, Rögnvald og Sigmund,
tala saman. Sá sem var að segja
frá fékk ávallt að ljúka máli sínu
án þess að hinn gripi fram í og var
sama hver átti í hlut, einstaka orði
eða athugasemd skotið inn í til
áréttingar, en alltaf eins og báðir
væru jafnir og hvorugur þóttist hin-
um fremri. Margt mátti af því læra.
Það var skrýtið með Rögnvald,
að honum fannst allt fólk vera gott
fólk _og fann öllum eitthvað til ágæt-
is. Ég heyrði hann aldrei öfunda
neinn, en honum fannst ánægjulegt
ef öðrum farnaðist vel og hefðu
góða heilsu, því að hann varð fyrir
þeirri bitru reynslu að missa heils-
una rúmlega tvítugur, sem varð til
þess að hann gat ekki tekið þátt í
atvinnulífinu sem áður. Sú reynsla
tekur á alla, og þá ekki síst fólk
eins og Rögnvald, svo samvisku-
samur og kappsfullur sem hann var.
í vöggugjöf hefur Rögnvaldur
fengið góðar gáfur. Hann var svo
fróður og minnugur á það, sem
hann hafði heyrt og lesið um, að
lærðustu menn gátu varla skákað
honum á ýmsum sviðum. T.d. var
furðulegt, hvað hann var vel að sér
í sögu lands og þjóðar og reyndar
annarra þjóða líka. Það var sama
hvort talað var um litla ársprænu
á Norðurlandi, fjall á Austurlandi,
íbúaijölda stórborgar úti í heimi,
alls staðar virtist hann vera með
allt á hreinu og vissi nærri upp á
hár hvernig háttaði til á staðnum,
þótt hann hefði aldrei verið þar.
Rögnvaldur ferðaðist ákaflega lítið
um ævina, en það var víst gaman
að vera í bíl með honum og hlusta
á hann segja frá því, sem fyrir
augu bar.
Rúnar, systursonur Rögnvalds,
sem alinn var upp hjá syskinunum
í Stigahlíð, var heppinn að fá að
Leiðrétting
Síðastliðinn föstudag birtust f
blaðinu minningarorð um Valdimar
Thorarensen, Gjögri. Nafn greinar-
höfundar, Auðuns Hafnfjörð Jóns-
sonar, misritaðist og stóð Hrafn-
fjörð. Beðist er velvirðingar á mis-
rituninni. Blaðið hefur verið beðið
að geta þess að sambýliskona Valdi-
mars, Hildur Pálsdóttir sem er lát-
in, hafi verið frá Kálfshamarsvík,
en ekki Skagaströnd.
geta safnað slíkum fróðleik í sjóð.
Þeir frændur nutu samvistanna og
virtu hvorn annan mikils.
Sigmundur, þinn söknuður verð-
ur mikill sem nærri má geta, besti
vinur og herbergisfélagi í marga
áratugi horfinn. Elskulegu systkini
og Rúnar, við hér í Ráðagerði biðj-
um Guð að blessa ykkur og minn-
ingu Rögnvalds.
Dúna
í dag kveðjum við móðurbróður
minn, Sigurð Rögnvald Halldórs-
son. Foreldrar hans voru Halldór
Guðmundsson (f. 26.09.1872),
bóndi í Hraungerði í Álftaveri og
kona hans, Sigrún Þorleifsdóttir (f.
18.08.1879), og var hann þriðji í
röðinni af sjö systkinum. Eitt þeirra,
Guðbjörg eldri, lést fyrir sjö árum,
en eftir lifa Sigmundur, Hallgrím-
ur, Guðbjörg yngri (Stella), Sigríður
og Rannveig.
Rögnvaldur vann við búskapinn
með foreldrum sínum og fór ungur
með bræðrum sínum til vertíða í
Vestmannaeyjum, eins og títt var
með unga menn í þá daga. Aðeins
22 ára gamall varð hann fyrir þeirri
sáru reynslu að missa heilsuna og
gat lítið unnið eftir það, en var þó
stundum í kaupamennsku, m.a.
fjögur sumur á Þorvaldseyri undir
Eyjafjöllum. Rögnvaldur bjó í
Hraungerði með foreldlum sínum
og systkinum til 1939 þegar afi
hætti búskap, en amma dó tveimur
árum áður.
Hraungerðissystkinin voru ákaf-
lega samhent, enda fór það svo, að
nokkur þeirra stofnuðu fljótlega
heimili saman í Reykjavík, og hafa
búið saman síðan. Á því heimili
fæddist ég 1947 og hef verið með
þeim síðan, reyndar í annarri íbúð
síðustu fimmtán árin, en þó í sama
húsi.
Þegar ég man fyrst eftir mér
voru á heimili þessu Rannveig móð-
ir mín, Guðbjörg eldri, Rögnvaldur
og Halldór afi. Skömmu síðar flutti
Sigmundur inn á heimilið og var
hópurinn óbreyttur uns afi andaðist
1964. Guðbjörg andaðist svo 1982
og nú er Rögnvaldur látinn.
Við Rögnvaldur vorum ákaflega
góðir vinir. Þegar ég var barn pass-
aði hann mjög oft. Ekki man ég
eftir því, að hann hafi leikið sér
mikið við mig, en las því meira fyr-
ir mig, sagði mér sögur og sýndi
mér myndir. Hann þyrsti í fróðleik,
einkum um land og sögu, jafnt um
ísland sem önnur lönd. Einnig hafði
hann mikinn áhuga á alls konar
mannvirkjagerð, allt frá Babels-
turni og píramítum fortíðar til sam-
tímans. Hann var stálminnugur og
miðlaði bæði mér og öðrum vel af
fróðleik sínum og vakti snemma
froðleiksfýsn barnsins. Hann var
barngóður og börn báru virðingu
fyrir honum, enda talaði hann yfir-
leitt við þau eins og þau væru full-
orðið fólk.
Það var ákaaflega gaman að
ferðast með Rögnvaldi, en hann
virtist þekkja landið og nöfn á
kennileitum og bæjum, þó hann
hefði aldrei komið þar áður. Var
þá ótrúlegt, hve miklum fróðleik
hann gat ausið úr sagnabrunni
sínum, bæði þjóðsögur og sögu
landsins í nútíð og fortíð.
Líklega hefur Kötlugosið, sem
hófst 12. október 1918 verið stærsti
atburðurinn í lífi Rögnvalds, enda
vai'ð fólkið að flýja frá Hraungerði
og.fleiri bæjum í fjárhús, sem stóðu
hærra í svonefndu Virkio.' Vatns-
flaumur og jakaburður fórú um
hlaðið í Hraungerði og öskufallið
var svo þétt að stundum var myrk-
ut- um hábjartan dag. Þá var hann
aðeins níu ára gatnall, en minning-
arnar um þennan atburð voru ætíð
ferskar og ég held að á hvetju ári
þann 12. október hafi hann tekið
fram Eldritin eða annan fróðleik
um Kötlu og lesið, ýmist upphátt
eða í hljóði.
Sigmundur og Rögnvaldur hafa
nú verið herbergisfélagar samfellt
í nálega fjörutíu ár. Þeir voru góðir
félagar og vinir, töluðu mikið sam-
an, lásu fyrir hvor annan og mið-
luðu hvor öðrum af fróðleik sínum.
Ég kveð Rögnvald með þakklæti
og virðingu og bið Guð að styrkja
stystkini hans og ættingja í sorg-
inni.
Halldór Rúnar Guðmundsson
HAMBORGARI,
FRANSKAR OG PEPSI
aieins 299,
Bónusbitinn
Ármúla 42, s. 82990.
Súkkulaði Sælkerans
Heildsölubirgðir íslensk Dreifing ■ Sími 91-68 73 74
Hinar þekktu ítölsku Guzzini búsáhalda og
gjafavörur fást nú í miklu úrvali
og fallegum sumarlitum.
HAGKAGP — Kringlunni og Skeifunni.
RÓMGÐ ÍTÖLSK HÖNNUN
©guzzini
SIEMENS
SMITH & NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
SIEMENS
Eigendur
sumarbústaðall
Við eigum til
sólarrafhlöður
frá Siemens
ásamt nauðsynlegum
fylgihlutum til uppsetn-
ingar og viðhaldslausrar
notkunar.
Hagstætt verð.
Leitið nánari upplýsinga
hjá sölumönnum okkar.
SMITH &NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300