Morgunblaðið - 05.07.1990, Síða 48
fe'3
mmmD
FIMMTUDAGUR 5. JULI 1990
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Landeyjar:
Flugvöllur
byggður á
Bakka
Þriðja samg’öngu-
leiðin milli lands
ogEjja
FLUGRÁÐ hefur samþykkt upp-
byggingu á flugvelli fyrir tveggja
hreyfla vélar á Bakka í Landeyj-
um og verður hafíst handa við
if verkið á næstu vikum, en með
uppbyggingu Bakkavallar má
segja að þriðja samgönguleiðin
opnist milli lands og Eyja.
Flugtími á litlum vélum milli
Bakkavallar og Eyja er aðeins 5
mínútur og enn styttri með
tvegf?ja hreyfla vélum. Sam-
kvæmt samþykkt. Flugráðs verður
600 metra austur-vestur braut
sem fyrir er lengd í 1100 metra
og gerð verður 700 metra löng
norður-suður braut. Farþegaskýli
verður byggt í haust á Bakkavelli.
Bakkavöllur er að mestu í landi
Bakka í Austur-Landeyjum. Á milli
lands og Eyja eru 10 km fyrir neðan
Bakka, en flugvöllurinn er steinsnar
frá ströndinni. í mörgum tilvikum
er fært milli Bakka og Eyja nógu
lengi til þess að fljúga þar á milli
þótt veður kunni að vera ótryggt til
flugs á lengri leiðum, svo sem til
Reykjavíkur. Ráðgert er að koma
upp vörslu fyrir bíla við Bakkaflug-
völl og jafnvel byggja bílskýli, m.a.
fyrir fjölda Eyjamanna sem eiga
sumarbústaði á Suðurlandi. Þá skap-
ast nýr möguleiki með uppbyggingu
Bakkaflugvallar fyrir fastaiands-
menn að aka til Bakka og skjótast
síðan flugleiðis út í Eyjar. Ráðgert
er að setja lýsingu á Bakkaflugvöil
á næsta ári, en ljúka við brautir og
flugskýli á þessu ári. Áætlaður
kostnaður við framkvæmdir á Bakka
á þessu ári er 7 milljónir króna.
UndirJöktí
Morgunblaðið/Ragnar Axelsson
Litadýrðin t.il sjós og lands í sólskininu siðustu daga hefur glatt augu gesta og gangandi víða um land. Kvöldbirtan hefúr ekki síst
verið þrungin stemmningu og fegurð eins og þessi mynd Ragnars Axelssonar sýnir, þar sem Snæfellsjökull virðist sigla inn í nóttina
ásamt flutningaskipinu til vinstri og varðskipinu til hægri.
Samtök fískvinnslustöðva:
Fiskvinnslan rekin með
1% tapi þrátt fyrir 12%
hækkun afurðaverðs
FISKVINNSLAN er nú rekin
með 1% tapi, þrátt fyrir að af-
urðaverð hafí hækkað að meðal-
tali um 12% á þessu ári, sam-
kvæmt útreikningum að sögn
Arnar Sigurmundssonar for-
manns Samtaka fískvinnslu-
stöðva. Arnar sagði í samtali við
Unnið að stækkun Hótel Borgar og breytingum á miðbænum:
Spáð í teikningar eft-
ir Guðjón Samúelsson
BORGARYFIRVOLD skoða nú
teikningar Guðjóns Samúels-
sonar fyrrum húsameistara
ríkisins af húsi við Póstliús-
stræti, allt frá horni Kirkju-
strætis að Austursf ræti. „Menn
ræða þann möguleika að rífa
húsið þar sem skrifstofur borg-
aryfirvalda og Gallerí Borg er
nú, milli Reykjavíkurapóteks
og Hótel Borgar. Ef byggt yrði
í skarðið eftir teikningum Guð-
jóns fengist miklu fallegri heild-
armynd,“ segir Hjörleifur
Kvaran, deildarstjóri stjórn-
sýslu- og lögfræðideildar borg-
arinnar.
Reykjavíkurborg fær Hótel
[i n sjmi i ffljSH
;I I IMI II®
WWWWT'%
Svona lítur Pósthússtræti milli Kirkjustrætis og Austurstrætis út
á teikningu Guðjóns Samúelssonar, en miðhluti hússins var aldr-
ei byggður samkvæmt henni.
i i
Borg afhenta í haust. Hjörleifur
segir að fyrirhugað sé að stækka
hótelið, herbergin séu nú aðeins
45 talsins og það þyki óhentugt
í rekstri. Mun fallegra væri að
hans sögn að hafa heildarmynd á
húsalengjunni allri.
Ymsar ráðgerðir aðrar eru nú
um nýbyggingar í miðbænum
samkvæmt upplýsingum úr Borg-
arskipulagi. Rætt er um að setja
glerþak yfir inngarð Hafnarhúss-
ins og hafa undir því einhverskon-
ar markaðstorg sem tengdist
höfninni. Þá liggur^fyrir tillaga
að byggingu ofan á Miðbæjar-
markaðinn, fyrir skrifstofur og
íbúðir. Ennfremur er nú unnið að
teikningum að torgi sem sameina
myndi Hallærisplan og Steindórs-
plan. Hugmyndin er að byggja
yfir þetta torg að hluta og setja
þar á stofn félags- og menningar-
miðstöð.
Morgunblaðið að miðað við 8%
ávöxtun stofnfjár væri nú 2% tap
á söltun og 0,4% tap á frýstingu
en frá síðustu áramótum hefði
verð á saltfiski hækkað um
18-19% og frystum fiski um 9%.
„Þetta er öllu lakari útkoma en
við áttum von á en aðalskýringin
á henni er sú að hráefnisverðið
hefúr hækkað mikið í ár.“
Arnar Sigurmundsson sagði að
Samtök fiskvinnslustöðva áætluðu
að hráefnisverð hefði hækkað um
12% síðastliðna fjóra mánuði vegna
heimalöndunarálags, sem samið
hefði verið um f vetur, svo og auk-
innar sölu á fiskmörkuðunum.
„Verð á fiskmörkuðunum hefur
hækkað meira en almennt fiskverð.
Þá hefur Bandaríkjadollar sigið og
það hefur neikvæð áhrif á bæði
fr-ystingu og söltun, enda þótt með-
algengið sé óbreytt. Venjulegir
víxilvextir eru hins vegar komnir
niður í 14%, greiðslutími afurðalána
hefur styst og launabreytingar hafa
ekki verið miklar að undanförnu,
þannig að afkoma fiskvinnslunnar
er nú heldur betri en um síðustu
áramót," sagði Arnar.
Samkvæmt útreikningum Sam-
taka fiskvinnslustöðva hefur verð á
frystum fiski hækkað um 8% frá
1. mars en saltfiski um 4%. Arnar
sagði að líkur væru á að fiskvinnsl-
an þyrfti að greiða í Verðjöfnunar-
sjóð í næsta mánuði. Hins vegar
hefðu Samtök fiskvinnslustöðva
ályktað gegn þessum sjóði og skyn-
samlegast hefði verið að nota þessa
peninga til að greiða niður skuldir
fiskvinnslunnar.
Morgunblaðið/Einar Falur
Akureyringur gáir til veðurs.
*
Afram blíða
SÓLSKINIÐ sem gælt hefúr við
landsmenn sunnan- og vestan-
lands helst áfram næstu daga og
nær að líkindum yfir allt landið á
föstudag, að sögn Veðurstofúnn-
ar. Á laugardag er aftur á móti
spáð veðrabrigðum og skúrum um
mest allt landið á sunnudag.
Hæð á Grænlandshafi hefur stuðl-
að að heiðríkjunni. Um helgina hörf-
ar hæðin væntanlega undan lægð
vestan af hafi. Lengra nær veð-
urspáin ekki, en fátt bendir til þess
að vætutíðin verði varanleg, að sögn
veðurfræðings.
Ný hola bor-
uð við Kröflu
„VIÐ BYRJUÐUM að bora nýja
holu við Kröflu í síðustu viku til
að kanna hvort upphaflega
vinnslusvæðið fyrir Kröfluvirkj-
un er orðið vinnsluhæft á ný eft-
ir eldsumbrotin þar,“ sagði Ás-
grímur Guðmundsson jarðfræð-
ingur hjá Orkustofnun.
Einungis önnur túrbínan í
Kröfluvirkjun er í gangi en hún
framleiðir 30 megawött. „Hin túr-
bínan hefur ekki verið sett niður
ennþá en það hefur mjög mikil áhrif
hvernig til tekst með þessa nýju
holu hvort farið vei'ður út í það en
þetta er einn hagkværnasti virkjun-
, arkosturinn," sagði Ásgnmur,