Morgunblaðið - 08.08.1990, Side 1
64 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
176. tbl. 78. árg.
MIÐVIKUDAGUR 8. AGUST 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bandarískt herlið sent
til varnar Saudi-Arabíu
Saddam Hussein íraksfor-
seti (t.h.) hitti í gær leið-
toga leppstjórnarinnar í
Kúvæt, Alaa Hussein Ali.
Saddam Hussein hét því
að styðja nýju stjórnina,
sem hann kom til valda
með innrás í síðustu viku,
með öllum tiltækum ráð-
íraskir hermenn gráir fyrir járn-
um við landamæri Saudi-Arabíu —
Fimmtíu herskip í viðbragðsstöðu
áPersaflóa — Efnahagsþvingun-
um SÞ framfylgt af miklum þunga
Washington. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað að sent verði her-
lið til Saudi-Arabíu til þess að mæta ógnun frá íröskum hersveitum
sem standa gráar fyrir járnum við landamæri Kúvæts og Saudi-
Arabíu. Um er að ræða 4.000 fallhlífahermenn og ótilgreindan íjölda
herþotna sem fluttar verða frá austurströnd Bandaríkjanna. Ríkis-
stjórn Bandaríkjanna og varnarmálaráðuneytið hafa ekki viljað stað-
festa liðsflutninginn opinberlega en það var bandaríska sjónvarpsstöð-
in CBS sem skýrði frá honum í gærkvöldi. Paul Beaver starfsmaður
Jane’s Defence Weekly sagði í samtali við sjónvarpsstöðina Sky í gær
að allt stefndi í mesta styrjaldarástand í Miðausturlöndum síðan styr
stóð um stofnun Ísraelsríkis.
Ónafngreindir starfsmenn banda-
ríska varnarmálaráðuneytisins sögðu
í samtali við Reuters-fréttastofuna
að stjórnvöld í Saudi-Arabíu hefðu í
fyrradag fallist á beiðni Dicks Chen-
eys, varnarmálaráðherra Banda-
ríkjanna, um að bandarískt herlið
kæmi til landsins. Heimildarmennirn-
ir segja að umræddum herafla sé
ætlað að verja flugvelli í Saudi-
Arabíu þar sem bandarísku orrustu-
þoturnar, líklega af gerðinni F-15
og F-16, verða staðsettar. Búist er
við að fallhlífahermennirnir verði
fluttir beint frá bækistöðvum sínum
í Fort Bragg í Norður-Karólínu til
Saudi-Arabíu. Cheny átti í gær við-
ræður við ráðamenn í Egyptalandi.
Egyptar neita fréttum um að þeir
ætli einnig að senda herlið til Saudi-
Arabíu.
Saddam Hussein, forseti íraks,
varði í gær innrásina í Kúvæt og
sagði að hún hefði verið mjög kröft-
ug viðbrögð við hótunum erlendra
ríkja í garð íraks. Um 100.000 írask-
ir hermenn réðust inn í Kúvæt 2.
ágúst síðastiiðinn og hefur sú aðgerð
verið fordæmd víða um heim. Huss-
ein flutti sjónvarpsávarp í gær og
var engan bilbug á honum að finna.
Stöðugt bárust fréttir um það í
gær að verið væri að hrinda víðtæku
viðskiptabanni Sameinuðu þjóðanna
gagnvart írak í framkvæmd. Tyrkir
ákváðu að stöðva lestun olíu við enda
leiðslunnar sem liggur þvert yfir
landið frá írak. Einnig_ er lítill
straumur olíu um leiðslur Iraka yfir
Saudi-Arabíu einfaldlega vegna þess
að kaupendur finnast ekki. Mörg ríki
undirbúa einnig hafnbann gagnvart
írak. Almenn skipaumferð um Persa-
flóa er nú lítil og eru þar um fimmtíu
herskip frá Bandaríkjunum, Bret-
landi, Frakklandi og Sovétríkjunum
sem eru reiðubúin að koma í veg
fyrir olíuflutninga frá Irak og Kúv-
æt. Þar á meðal er eitt bandarískt
flugvélamóðurskip, annað stefnir nú
á Súez-skurð frá Miðjarðarhafi og
hið þriðja hefur lagt úr höfn í Banda-
ríkjunum.
Bandarískir embættismenn skýrðu
frá því á fundi Atlantshafsbanda-
lagsins í Brussel í gær að liðsstyrkur
íraka á landamærum Kúvæt og
Saudi-Arabíu ykist stöðugt. Bresk
yfirvöld ráðlögðu borgurum sínum í
gær að yfirgefa austurhluta Saudi-
Arabíu.
Miklar sveiflur voru á olíuverði í
gær. Fatið af hráolíu seldist á 28,31
dali við lokun í Wall Street í gær.
Sjá ennfremur fréttii- á bls. 23,
24 og 25.
■■
nt '
" ■■ ■ ■ -
i
Reuter
Kohl vill flýta alþýskum kosningum:
Lafontaine hótar að stöðva
stj órnar skrárbreytingar
Bonn. Reuter.
EKKI náðist samkomulag milli stjórnarflokka og stjórnarandstöðu-
flokka í Vestur-Þýskalandi í gær á sérstökum fundi um hvenær eigi
að sameina þýsku ríkin og halda alþýskar kosningar. Ríkisstjórnir
beggja þýsku ríkjanna vilja halda sameiginlegar þýskar kosningar
14. október en til þess þarf stjórnarskrárbreytingu í Vestur-Þýska-
landi. Oskar Lafontaine, leiðtogi vestur-þýskra jafnaðarmanna, seg-
ir að flokkur sinn fallist ekki á slíkt.
Helmut Kohl, kanslari Vestur-
Þýskalands, sagði að fundi loknum
að samkomulag hefði verið um að
yrði sameiningunni flýtt myndi það
sporna gegn algjöru efnahagshruni
í Austur-Þýskalandi. Þá sagði hann
Líbería:
V-Afríkuríki senda
friðargæslusveitir
Monróvíu. Reuter.
LEIÐTOGAR ríkja í Vestur-
Afríku ákváðu í gær að senda
friðargæslusveitir til Líberíu.
Leiðtogi uppreisnarmanna í
Líberíu, Prince Johnson, hafði
hótað að ráðast á bandarísk
herskip við strönd landsins ef
Bandaríkin eða ríki Vestur-
Afríku sendu ekki hersveitir til
ac’T' binda enda á stríðið í
landinu.
Uppreisnarmenn undir stjórn
Johnsons tóku 16 útlendinga í
gíslingu í höfuðborg _ landsins,
Monróvíu, á mánudag. Áður hafði
hann hótað að handtaka alla út-
lendinga í borginni. Bandarískar
þyrlur fluttu 74 útlendinga; 62
Bandaríkjamenn, átta Líberíu-
menn, tvo ítali, Kanadamann og
franskan prest, í bandarískt her-
skip við strönd landsins á sunnu-
dag. Stríðið i landinu hefur kostað
þúsundir manna lífið og 200.000
manns, þar af margir dauðvona
sjúklingar, eru nú í flóttamanna-
búðum skammt fyrir utan höfuð-
borgina. Um 3.000-4.000 manns
flýja þangað daglega vegna bar-
daganna, matvælaskorts og ætt-
bálkadrápa í höfuðborginni.
Reuter
Ljósmyndari í Monróvíu varð vitni að því 27. júlí síðastliðinn er
uppreisnarmaður úr liði Prince Johnsons skaut hermann, hollan
Samuel Doe forseta Líberíu, til bana.
að flokkur sinn, kristilegir demó-
kratar, vildi að sameining færi fram
14. október og alþýskar kosningar
þá um leið. Jafnaðarmenn, sem eru
í stjórnarandstöðu undir forystu
Oskars Lafontaines, vilja hins vegar
sameiningu um miðjan september
en alþýskar kosningar 2. desember,
eins og hafði verið ákveðið.
Kohl sagðist búast við því að
a-þýska þingið myndi samþykkja
ályktun um að biðja vestur-þýska
þingið að breyta stjórnarskránni svo
hægt verði að halda kosningar 14.
október. Tveir þriðju hlutar vestur-
þýskra þingmanna þurfa að sam-
þykkja slíkar breytingar og geta
jafnaðarmenn stöðvað þær.
Kohl vill kosningar sem fyrst,
áður en efnahagur Austur-Þjóð-
veija verður of bágborinn en Laf-
ontaine telur að slíkt muni koma
kristilegum demókrötum til góða.
Hann segir að ef ekki verði kosið
fyrr en í desember þá hafi v-þýskir
kjósendu,r áttað sig á kostnaðinum
við sameiningu og snúi baki við
Kohl og flokki hans. Atvinnuleysi
hefur nær tvöfaldast í Austur-
Þýskalandi síðan 1. júlí þegar mynt-
bandalag þýsku ríkjanna gekk í
gildi.
Austur-þýskir smáflokkar á
vinstri vængnum gengu til liðs við
græningja í Vestur-Þýskalandi á
sunnudag. Með þvi að bjóða fram
sameiginlega við alþýskar kosning-
ar eiga þessir flokkar möguleika á
að ná 5%-lágmarkinu til að fá full-
trúa kjörna á þing.