Morgunblaðið - 08.08.1990, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. AGUST 1990
25
* • ^
Oryggisráð SÞ samþykkir refsiaðgerðir gegn Irökum:
Olíuinnflutningsbann gæti
\sigt efnahag landsins í rúst
Tyrkir stöðva olíuútflutning frá írak til Miðjarðarhafsins
Washington, Sameinuðu þjóðunum, Amman, Ankara. Reuter.
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóðanna (SÞ) samþykkti á mánudag
afdráttarlausar refsiaðgerðir gagnvart írökum og leppstjórn Sadd-
ams Husseins, forseta landsins, í Kúvæt. Aðgerðirnar, sem þykja
hinar hörðustu í sögu Sameinuðu þjóðanna, taka í raun fyrir öll
viðskipti við írak og Kúvæt auk þess sem kveðið er á um bann
við innflutningi á olíu frá löndunum tveimur og sölu á vopnum
til þeirra. Sýnt þykir að sameinist þjóðir heims um að virða olíu-
innflutningsbannið muni allt efnahagslíf landanna tveggja lamast.
Fulltrúar 15 ríkja sitja í Örygg-
isráðinu og studdu 13 þeirra álykt-
un um refsiaðgerðir gagnvart
írökum en fulltrúar Kúbu og Jem-
en sátu hjá. Bandaríkin, ríki Evr-
ópubandalagsins og Japan höfðu
þegar gripið til refsiaðgerða vegna
innrásar Iraka og ríkisstjórnir fjöl-
margra ríkja, þ. á m. Svíþjóðar og
Sviss, sem fylgt hafa hlutleysis-
stefnu á vettvangi utanríkismála,
tilkynntu á mánudag og í gær að
þær myndu virða samþykkt Ör-
yggisráðsins.
Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, sem stödd var
í Bandaríkjunum um helgina,
sagði að aldrei áður í sögunni
hefðu þjóðir heims staðið saman
með slíkum hætti og George Bush
Bandaríkjaforseti lýsti yfir því að
allt yrði gert til að tryggja að
aðgerðirnar skiluðu tilætluðum
árangri. Leiðtogarnir sögðu á
fundi með fréttamönnum í Was-
hington á mánudag að samþykkt
Öryggisráðsins sýndi ljóslega að
þjóðir heims fordæmdu yfirráða-
stefnu íraka. Bæði lögðu þau
áherslu á mikilvægi þess að ríki
heims sameinuðust um að hrinda
refsiaðgerðunum í framkvæmd en
þetta er í þriðja skiptið í sögu
Sameinuðu þjóðanna sem sam-
þykkt er að grípa til aðgerða sem
þessara.
Þótt samþykkt Öryggisráðsins
kveði á um víðtækar refsiaðgerðir
þykir enginn vafi leika á því að
þær beinist fyrst og fremst gegn
olíuútflutningi íraka og Kúvæta
sem allt efnahagslíf landanna
tveggja hvílir á. Segja sérfræðing-
ar að sökum þessa muni refsiað-
gerðir að öllum líkindum skila
meiri árangri en oftast áður. Olía
frá írak er einkum flutt um olíu-
leiðslur er lig-gja um Tyrkland og
Saudi-Arabíu en olía frá Kúvæt
er flutt sjóleiðina um Persaflóa.
Saudi-Arabar sæta þrýstingi af
hálfu Bandaríkjamanna um að
loka olíuleiðslunni og átti Dick
Cheney, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, um helgina fundi
með ráðamönnum þar í landi. Sér-
fræðingar sem fréttamenn Reut-
ers-fréttastofunnar ræddu við í
gær sögðu að loka yrði olíuleiðsl-
unum ef tryggja ætti að samþykkt
SÞ skilaði tilætluðum árangri. Með
þessu móti yrði unnt að leggja
efnahagslíf íraks í rúst. Að öðrum
kosti gætu írakar að öllum líkind-
um komið allt að þriðjungi fram-
leiðslu sinnar í verð. Stjórnvöld í
Tyrklandi tilkynntu í gær að
ákveðið hefði verið að virða sam-
þykkt Öryggisráðsins og hefði því
verið lagt bann við útflutningi á
olíu frá írak um Tyrkland. Tals-
maður stjórnvalda sagði að þar
sem allur olíuútflutningur ^ hefði
verið stöðvaður myndu írakar
sjálfir neyðasttil að loka olíuleiðsl-
unni. Rúmur helmingur þeirra olíu
sem írakar flytja út fer um tyrk-
nesku olíuleiðslurnar.
Viðmælendur Reuters-frétta-
stofunnar sögðu að refsiaðgerðirn-
ar myndu einnig kippa stoðunum
undan iðnvæðingaráformum
stjórnar Saddams Husseins íraks-
forseta en þau hafa verið fjár-
mögnuð með vestrænum lánum.
Þá myndi bann við útflutningi á
landbúnaðarafurðum, einkum
korni, til íraks koma ser illa fyrir
landsmenn þó svo ekki væri vitað
hvort írakar hefðu aukið innflutn-
ing fyrir innrásina í Kúvæt og
safnað þannig birgðum.
Ovíst um afdrif hundruða útlendinga
Washington, Bonn, Amman. Reuter.
ALLS er saknað um 300 útlendinga í Kuvæt. Jórdaníustjórn sagði
i gærmorgun að stjórnvöld í Bagdad hefðu heitið því að leyfa öllum
útlendingum í írak og Kúvæt að fara úr landi um Jórdaníu. Talsmað-
ur sænska utanríkisráðuneytisins vísaði þessu á bug. „Sendiráð okk-
ar í Bagdad og Kúvæt segja að engir útlendingar geti yfirgefið lönd-
in að undanskildum starfsmönnum erlendra sendiráða og Sameinuðu
þjóðanna," sagði hann. Hann bætti við að ekki væri einu sinni hægt
að staðfesta að áðurnefndir starfsmenn mættu fara úr landi.
írösk flugvél kom í gær til Am-
man í Jórdaníu frá Bagadad og
voru 73 japanskir ferðamenn í vél-
inni auk nokkurra tuga Iraka og
fáeinna V-Evrópumanna. Japansk-
ur stjómarerindreki sagðist ekki
vita hvort fleiri flugvélar væru
væntanlegar. Þúsundir útlendinga
voru í Kúvæt er írakar réðust inn
í landið og fjöldi útlendinga býr
einnig í Irak. Iraski sendiherrann í
Grikklandi virtist staðfesta ummæli
Jórdananna á blaðamannafundi í
gær er hann sagði að engir erlend-
ir gíslar væru í höndum íraka; allir
útlendingar, sem þess æsktu, gætu
fengið að fara, annaðhvort um Jórd-
aníu eða Tyrkland. Útlendingar í
Kúvæt yrðu að fara landveg þar
sem aðalflugvöllur landsins væri
lokaður vegna „bandarískra hót-
ana.“
„Við erum að gera ráðstafanir
til að taka við gífurlega mörgu
fólki,“ sagði jórdanskur embættis-
maður fréttamanni Reuters-irétta-
stofunnar. Annar sagði að gert
væri ráð fyrir þvi að taka við fyrsta
rútubílahópnum við Ruweished-
landamærastöðina á morgun, mið-
vikudag, en tímasetningin færi eftir
því hratt erlend sendiráð í Bagdad
gætu skipulagt flutningana. Höfuð-
borg Jórdaníu, Amman, er í um 900
km ijarlægð frá Bagdad og land-
mærastöðin um 200 km norðaustan
við Amman.
Heimildarmenn úr röðum er-
lendra stjórnarerindreka segja að
íraskir hermenn hafi rannsakað dýr
strandhótel í Kúvæt á mánudag og
handtekið Bandaríkjamenn, Breta,
Frakka, V-Þjóðveija og ítali. Bre-
skir heimildarmenn segja að nokkur
hundruð manns, þ. á m. um 200
farþegar breiðþotu British Air-
ways-flugfélagsins er ekki komst
frá Kuvæt-flugvelli vegna innrásar-
innar, hafi verið ekið á brott, senni-
lega til Bagdad.
Reuter
Kreisky
jarðsettur
Bruno Kreisky, fyrrum kanslari
Austurríkis, var jarðsettur í Vín
í gær. Kreisky lést á sunnudag,
79 ára að aldri. Meðal við-
staddra við útförina voru m.a.
fimm forsætisráðherrar. Krei-
sky, sem var gyðingur, reyndi
mjög að bæta sambúð gyðinga
og araba. Á myndinni sést
Yasser Arafat, leiðtogi Frelsis-
samtaka Palestínu (PLO), votta
minningu Kreiskys virðingu
sína.
•(On Screen Display) Með OSD getur þú séð
allar aðgerðir á skjánum meðan þær eru
framkvæmdar.
•(Sleep timer) Sjálfslökkvandi stillir, fyrir þá
sem dotta.
Þú getur treyst Philips.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI8 SÍMI691515 ■ KRINGLUNNISÍMI6915 20
\/id ehUinSvexgJcuéegöi i samuHyjuttt
•20 tommu hágæða litaskjár
•Frábær hljómgæði úr hátalara framan á tæki
•40 stöðva minni
•Sjálfleitari
•Þráðlaus fjarstýring stýrir öllum aðgerðum;
Kveikir, slekkur, hækkar, lækkar, velur rás, lagar lit,
stillir hljóð.
|g PHILIPS
Dagskráin verður
skemmtilegri með Philips
Gott sjónvarp er sannkallaður gleðigjafi á heimilinu,
dagskráin ræður að von nokkru en PHILIPS tryggir
að hljóð og mynd rennur saman í skemmtilega heild.
Philips myndgæði, glæsilegt útlit, tæknileg
fullkomnun og
frábært verö.