Morgunblaðið - 08.08.1990, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 08.08.1990, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1990 33 ATVIN N U A UGL YSINGAR Verkstjóri með fiskvinnsluréttindi og vélstjóri óskast til starfa við frystihús með rækju- og fiskvinnslu. Um framtíðarstörf er að ræða. Upplýsingar gefa Gunnar eða Agnar í síma 94-4300 á daginn og á kvöldin í símum 94-4030 (Gunnar) og 94-4344 (Agnar). Afgreiðslustörf HAGKAUP vill ráða starfsfólk til afgreiðslu á kassa í verslunum fyrirtækisins, Skeifunni 15 og í Kringlunni. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf á tímabilinu 20. ágúst til 1. september. Um er að ræða bæði heilsdags- og hluta- störf. Upplýsingar um störfin veita verslunarstjórar viðkomandi verslana á staðnum (ekki í síma). HAGKAUP Sölumenn Vaka-Helgafell hf. vill ráða sölumenn til starfa við farandsölu á vönduðum bókum og bóka- flokkum í Reykjavík og um allt land. Há sölu- laun eru í boði og eru tekjumöguleikar miklir fyrir duglegt fólk. Kjörið tækifæri fyrir bæði námsmenn og vana sölumenn sem vantar aukavinnu. Vinsamlegast hafið samband við söludeild okkar í síma 688300 eða komið og ræðið við okkur. VAKá HELGAFELL Síðumúla 6, 108 Reykjavík. Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar auglýsir eftir umsjónarmanni að Úlfljótsskála og orlofs- húsum félagsins að Úlfljótsvatni í Grafningi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Um er að ræða búsetu allt árið. Starf- inu fyigir lítil íbúð. Umsóknum, ásamt meðmælum, skal skilað á skrifstofu Starfsmannafélags Reykjavíkur- borgar, Grettisgötu 89, fyrir 17. ágúst nk. Stjórnin. Samvinnuferóir - Lanösýn Reykjavík: Austurstræti 12, s. 91 -691010, Innanlandsferðir, s. 91 -691070, póstfax 91 -27796, telex 2241, Hótel Sögu við Hagatorg, s. 91 -622277, póstfax 91 -623980. Akureyri: SkipagÓtu 14. s. 96-27200, póstfax 96-27588. telex 2195. Gjaldkeri Samvinnuferðir-Landsýn hf. óska eftir að ráða reyndan gjaldkera til starfa í hópferða- deild skrifstofunnar. Æskilegt er að viðkom- andi geti hafið störf sem fyrst. Skriflegar umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist skrif- stofunni, Austurstræti 12, merktar: „Gjald- keri“, fyrir miðvikudaginn 15. ágúst. Hótel ísland óskar eftir að ráða eftirfarandi starfsmenn í fullt starf frá og með 1. september nk.: Ljósameistara sem hannar lýsingu fyrir hinar ýmsu sýning- ar og uppákomur. Viðkomandi þarf að hafa 'menntun og/eða víðtæka reynslu í hönnun og stjórnun lýsingar fyrir söng- og leiksýning- ar, ásamt góðu listrænu innsæi. Hljóðstjóra sem annast hljóðblöndun og hljóðstjórn á tónlistarflutningi í húsinu. Leitað er að aðila með víðtæka reynslu og skapandi hæfileika. í boði er góð vinnuaðstaða í hvetjandi um- hverfi, þar sem faglegur metnaður fær út- rás. Um er að ræða fullt starf allt árið. Umsóknum, sé skilað til Ingólfs Arnarssonar, tæknistjóra Hótels íslands, fyrir 15. ágúst nk. HÚmfjÍlND Ármúla 9. Óskum eftir hressu og duglegu starfsfólki til stjórnunarstarfa í sal. Yngri en 23ja ára koma ekki til greina. Umsóknir berist auglýsingadeild Mbl. fyrir 15. ágúst, merktar: „Hard Rock kaffi - 9959“. Kennarar athugið Við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar eru lausar nokkrar stöður. Kennslugreinar meðal ann- ars enska, danska og raungreinar. Ódýrt húsnæði til staðar ásamt leikskóla- plássi fyrir börn 2ja-5 ára. Fámennar bekkjardeildir og gott kennsluhús- næði. Flutningsstyrkur greiddur. Upplýsingar gefa formaður skólanefndar, Kjartan Reynisson, ívinnusíma 97-51240 eða heimasíma 97-51248 og skólastjóri í vinnu- síma 97-51224 eða heimasíma 97-51159. Skólanefnd. Sauðárkrókskaupstaður VID FAXATORG - 550 SAUOARKRÓKI - SlMI 95-5133 - NAFNNR. 7483-5406 Frá Gagnfræðaskólanum á Sauðárkróki Kennarar - kennarar Kennara vantar í almenna bekkjarkennslu, íslenskukennslu í 8.-10. bekk og íþrótta- kennslu. Upplýsingar gefa skólastjóri í síma 95-36622 og yfirkennari í síma 95-35745. POTTURINNj OG “ PRNIÍi Framtíðarstarf Óskum eftir að ráða matreiðslumann, nema í matreiðslu og starfsfólk í sal. Upplýsingar milli kl. 15.00 og 18.00 á staðnum. Potturinn og pannan, Brautarholti 22, sími 11690. Aðalbókari Ólafsfjarðarbær auglýsir stöðu aðalbókara lausa til umsóknar. Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf sendist undirrituðum fyrir 20. ágúst 1990. Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður. Ólafsfirði 1. ágúst 1990. Bæjarstjórinn í Ólafsfirði, Olafsvegi 4, 625 Ólafsfirði, sími 96-62151. Skrifstofustarf Starfskraftur óskast til aímennra skrifstofu- starfa og símvörslu. Fjölbreytt starf. Umsækjendur vinsamlegast sendi umsóknir ásamt upplýsingum um starfsreynslu til aug- lýsingadeildar Mbl. merktar: „B - 8078“. Aðstoðar- verslunarstjóri Óskum eftir að ráða kvenmann eða karlmann til starfa sem aðstoðarverslunarstjóra. Þarf að hafa bílpróf. Umsóknir leggist inn á auglýsingadeild Mbl. merktar: „RR - 9189“. Snyrtivöruverslun Starfsfólk á aldrinum 25-45 ára óskast til framtíðarstarfa á reyklausum vinnustað. Reynsla úr verslun æskileg. Vinnutími: 1. 09.00-13.30. 2. 13.30-18.00. Umsóknir er greini aldur, fyrri störf og vinnu- tíma sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 12. ágúst merktar: „KG - 7241“. Fjölbrautarskóli Vesturlands á Akranesi auglýsir Kennara vantar í ensku, íslensku og rafvirkjun. Umsóknarfrestur er til 15. ágúst. Umsóknir berist Fjölbrautaskóla Vestur- lands, Vogabraut 5, 300 Akranesi. Skólameistari. Seltjarnarnesbær Starfskraftur óskast í íþróttamiðstöð Sel- tjarnarness (kvennaböð). Umsóknir sendist framkvæmdastjóra íþróttamiðstöð við Suðurströnd, Seltjarnar- nesi. Upplýsingar um starfið veittar í síma 611551. Kennarar ath.! Gerðaskóli í Garði auglýsir eftir kennurum fyrir næsta skólaár. Meðal kennslugreina: Tungumál og íslenska í eldri deildum og al- menn bekkjarkennsla. Ódýrt húsnæði og leikskólapláss er til staðar. Upplýsingar gefur skólastjóri í símum 92-27380 og 92-27020 á skólatíma og 92-27048 á kvöldin, og formaður skólanefnd- ar í síma 92-27058. Skólastjóri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.