Morgunblaðið - 08.08.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.08.1990, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1990 - VEÐUR FLUGSTOÐ LEIFS EIRÍKSSONAR KEFLAVÍKUR- FLUGVÖLLUR Þegar velin varö bensínlaus reyndi flugmaðurinn aö lenda á Reykjanes braut, en endaöi flugferöina fyrir utan veginn. 1000 m Mbl./KG Bensínlaus flugvél skall á Reykjanesbraut FERJUFLUGVÉL af gerðinni Aero Commander 690V með tvo menn innanborðs reyndi nauðlendingu á Reykjanesbraut rétt fyrir ofan byggðina í Njarðvík um tíuleytið síðastliðið sunnudagskvöld. Vélin var á leið til Reykjavíkur en varð bensínlaus, þannig að flugmaður- inn sneri vélinni til Keflavíkur til lendingar þar. Áður en vélin komst að vellinum missti hún afl og lenti úti í móa, eftir misheppnaða til- raun flugmannsins til lenda á veginum. Mennirnir sluppu með skrám- ur. Vélin var á leið frá Kanada til Bretlands og hugðist flugmaðurinn millilenda í Reykjavík. Áður en þangað kom varð vélin eldsneytis- laus og var henni þá snúið til Keflavíkur til lendingar þar. Flugmaðurinn flaug vélinni yfir byggðina í Njarðvík í áttina að flug- braut sem liggur frá austri til vest- urs. Áður en hún kom að brautar- endanum missti hún afl og sam- kvæmt frásögn sjónarvotta gerði flugmaðurinn þá tilraun til að lenda á Reykjanesbrautinni. Vélin skall á veginn, fór yfír hann og endaði úti í móa skammt frá. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir með skrámur. Grétar Oskarsson hjá Loftferða- eftirlitinu segir að rannsókn á or- sökum slyssins hafi hafist þegar í stað. Búið sé að safna gögnum vegna málsins og ljóst að vélin hafí orðið eldsneytislaus. Ekki liggi hins vegar fyrir hvernig standi á því og endanlegar niðurstöður rannsókn- arinnar muni ekki liggja fyrir fyrr en eftir tvo til þrjá mánuði. VEÐURHORFUR í DAG, 8. ÁGÚST YFIRLIT í GÆR: Mtili ísiands og Noregs er lægðardrag á hreyfíngu austur og dálítiil hæðarhryggur skammt vestur af landinu fer einn- ig austur. Á suðvestanverðu Grænlandshafi er að myndast lægð, sem mun þokast austnorðaustur á morgun. SPÁ: Sunnan og suðvestan gola. Skýjað og dáiítil súld suðvestan- og vestanlands og 10-14 stiga hiti en bjart veður og 15-20 stig í öðrum landshiutum. HORFUR Á FIMMTUDAG: Suðaustan átt nokkuð stíf suðvestan- lands með rigningu eða súld vfða um land, síst á norðausturlandl. Hiti yfirleitt 10-16 stig, hlýjast norðanlands. HORFUR Á FÖSTUDAG*. Norðaustan strekkingur og rigning og fremur svalt á Vestfjörðum en hæg suð- og suðaustanátt með TAKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Aiskýjað y, Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / » Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * •J0° Hitastig: 10 gráður á Celsfus ^7 Skúrir * V El = Poka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —j. Skafrenningur Þrumuveður Vélin féll 30-40 metr- um fyrir framan okkur - segir Guðný Sigfúsdóttir sem var sjónarvottur að slysinu GUÐNÝ Sigfúsdóttir og maður hennar, Grétar Kristjónsson, voru á ferð eftir Reykjanesbrautinni þegar bandarísk feijuflugvél af gerðinni Aero Commander 690V gerði tilraun til nauðlendingar á veginum fyrir ofan byggðina í Njarðvík. Vélin skall á veginn 30 til 40 metrum fyrir framan bíl þeirra. Guðný og Grétar óku éftir Reykja- nesbrautinni þegar þau sáu flugvél- ina koma fljúgandi yfir byggðina í Njarðvík. „Við tókum eftir því að hún flaug lágt og á lítilli ferð,“ segir Guðný. „Þá hallaði hún eins og flug- maðurinn ætlaði að beygja til hægri inn á veginn. Það mistókst og véln skall á veginn 30 til 40 metrum fyr- ir framan okkur og kastaðist út í móa vestan við veginn.“ Guðný segir að þau hafi stöðvað bílinn þegar í stað og hlaupið í áttina að flugvélinni. Nánast samstundis hafi annar flugmannanna komið út og verið ómeiddur að sjá en hinn hafi komið út skömmu síðar. Sá hafi verið með einhverjar skrámur og virst örlítið vankaður. Árásarmaður ófundinn Maður á þrítugsaldri ruddist inn á heimili 77 ára gamallar konu við Dalbraut á mánudag, sló hana í andlitið og ógnaði henni. Konan var talin kinnbeins- brotin. Árásarmanninum er lýst svo að hann sé á þrítugsaldri, grannvax- inn, rúmlega meðalmaður á hæð, dökkhærður og dökkklæddur. Hann var ófundinn í gær. Konan var flutt á slysadeild þar sem gert var að sárum hennar. Talið var hugsanlegt að hún hefði kinnbeinsbrotnað. Sigrún Á. Eiríks- dóttirlátin SIGRÚN Á. Eiríksdóttir, ekkja Páls ísólfssonar tónskálds, lést í gær, 79 ára að aldri. Sigrún fæddist 2. júní 1911 á Þykkvabæjarklaustri. Foreldrar hennar voru Rannveig Jónsdóttir og Eiríkur Ormsson rafvirkjameist- ari. Hún fluttist með foreldrum sínum til Reykjavíkur árið 1918, og bjó þar síðan. Sigrún hlaut hefðbundna skólá- göngu og gekk meðal annars í Kvennaskólann í Reykjavík. 1933 giftist hún Heinrich Durr rafmagns- verkfræðingi og eignuðust þau þijár dætur. Þau slitu samvistum. Ferjuflugvél af gerðinni Aero Commander 690V gerði tilraun til nauðlendingar á Reykjanes- braut á sunnudagskvöldið. Það mistókst, vélin skall á veginn en endaði utan vegar. Sigrún Á. Eiríksdóttir Á stríðsárunum rak Sigrún barna- fataverslunina Tröllafoss í Reykjavík. Sigrún giftist Páli ísólfssyni tón- skáldi árið 1947 og eignuðust þau eina dóttur. Páll lést 1974. / DAG kl. 12.00 >f** VEÐUR VÍÐA UM HEIM hftl veéur Akureyri 11 léttskýjað Reykjavflc 12 skýjað Bergert Heisinki Kaupmannaltöfn H! 19 eo skúr téttskýjað skýjað Narssarssuaq 13 skýjað Nuuk 1*! rigning Ósló íii: ð Stokkhólmur 18 léttskýjað Þórehöfn m suW Algarve m heiðskírt Amsterdam m skýjaft Barcelona 33 mistur Berlfn 20 hálfskýjað Chicago 12 léttskýjaft Feneyjar 11 alskýjað Frankfurt 19 léttskýjað Qlasgow 1B úrkomafgrermd Lbs Palmas m: heiðskírt London 20 skýjað LosAngeles 20 hálfskýjað Lúxemborg 17 skýjaft Madrid 27 heiðskírt Malaga 28 mistur Mallorca 30 skýjað Montreal 18 rigning NewYork Orlando 24 þokumóða vantar Parts . 21 skýjað Róm 29 þokumöða Vín 17 rigning Washíngton 21 skýjað Winnipeg 17 léttskýjað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.